Leita í fréttum mbl.is

Vá vanskil aukast um 0,04%

Held að fréttamenn ættu kannski að hringja í Íbúðarlánasjóð og fá betir upplýsigar en að lepja bara upp eitthvað úr fréttatilkynnigu þeirra. Þá t.d. hefðu þeir vitað að vanskil nú eru langt frá því að vera þau mestu. T.d. las ég frétt frá 2003 á www.ils.is þar sem segir að vanskil séu í sögulegu lámarki og þá eru þau 0,30% af heildarútlánum. Þannig að vanskil hafa þá væntanlega verið enn hærri árin þar á undan.

0,14% er það ekki um það bil 1500 til 2000 lán af öllum þeim fjölda sem skuldar íbúðalánasjóði.


mbl.is Vanskil aukast hjá Íbúðalánasjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir þína heilbrigð skynsemi :-)

ASE (IP-tala skráð) 9.6.2009 kl. 13:35

2 identicon

Góðan dag; Magnús Helgi !

Skammsýni þín; er forkastanleg, Gullbringusýslu búi, góður. 

Gerir þú þér ekki grein fyrir; að þetta er bara byrjun, á mun verra ástandi, sé miðað við það liðleskju stjórnarfar hvítflibba- og blúndukerlinga, sem nú er við lýði, í landinu ?

Það var ætlan; þeirra sjóhundanna- og bændanna hliðhollu þungavigtar sveitar, þeirra Guðjóns Arnars, og annarra félaga minna, þar innan vébanda, að auka STRAX þorskkvótann, um 100 þús. tonn, og samsvarandi, í öðrum tegundum; ýmsum, hefðu þeir náð mönnum inn, í síðustu lotu (25. Apríl), og hefja byggingu áburðarverksmiðju, norður við Hrútafjörð, með frændum mínum, Húnvetningum - í stað Gufuness verksmiðjunnar. Auk annarra verkefna, einnig.

Nei; Magnús Helgi. Frekar; en að spýta í lófa, og hefja endurreisn, lyppast þessi kóð; Steingrímur og Jóhanna niður, sökum ofurtrúar, á bullinu í Jóhanni frænda mínum, í Hafrannsókna stofnun - og öðrum við líka andskotans spraðurbössum, innanlands, sem utan.

Því; er allt hér, í þessu andskotans skötulíki, Magnús minn, og vita máttu, að létir þú til þín heyra, til uppbyggingar nauðsynlegrar, í slen kratabúðum Samfylkingarinnar, þessi viðhorf mín, myndir þú vaxa, til nokkurrs álits, í mínum ranni.

Og; gæfir, þessum helvítis gerpum, í þínum flokki, almennilegt spark, í þágu lands og lýðs og fénaðar alls.

Meira að segja; hugleiðslu Fakírarnir, austur á Indlandi, eru líflegri, í sinni kyrrsetu, en þetta vinstra lið þitt, Magnús minn.

Svona; drattastu nú af stað, Magnús minn !!!

Með; sæmilegum kveðjum, úr nágranna sýslu þinni - Árnessýslu /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 9.6.2009 kl. 13:38

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Óskar Helgi skammatu þín bara sjálfur sveitadurgur. Ég er hér að tala um að 2003 námu vanskil við Íbúðarlánasjóð 0,3% af heildarútlánum, nú í dag aukast þau jú aðeins úr 0,1 upp í 0.14% af heildarútlánum.

Ég er bara á því Óskar að ef að fjölmiðlar einbeta sér að því að brjóta allt og alla niður með hræðsluáróðri þá verði þeim mun erfiðara að byggja hér upp aftur.

Eins og þú sjálfsagt veist hafa íbúðareigendur áður haft það skítt hér á landi. t.d. þegar ég vara að basla í þessu um 1990. En fólk komst út úr þessu án þess að hér væru dómadagsspár á hverjum degi. Hvert prósent blásið upp og gert að frétt.

Það er alveg sema hvað núverandi stjórn eða kannski næsta gerir, að ef það kostar að fólk þurfi að leggja eitthvað á sig til að komast út úr þessu þá fer fólk í baklás og fer niður á Austuvöll að eyðileggja pottanan sína og pönnur.

Hefur fólki ekki dottið í hug að betra sé að koma landinu upp úr kreppunni með því að leggja eitthvað á sig, en fara síðar að reyna að ná í peninga og eignir þeirra sem sannalega eftir rannsókn eru sekir. Og kannsi aðallega að koma í veg fyrir að þeir komist hér aftur í þessa stöðu. Helst bara að þeir haldi sig erlendis.

Þannig er það að ef skip bilar þá er fyrst að koma skipinu af stað aftur með öllum ráðum. Ef það tekst ekki verður að finna bestu lausn fyrir áhöfnina að ná landi. Og finna annað skip til að taka við  Síðan er hægt að rannsaka hvort að vélstjórarnir, eigendurnir eða aðrir hafa viljandi eða óviljandi eyðilagt skipið. Og þá verða þeir kærðir og dæmdir.

Magnús Helgi Björgvinsson, 9.6.2009 kl. 13:55

4 identicon

Sæll aftur; Magnús Helgi !

Hvaða skammir; ertu að bera upp á mig ? Er sannleikurinn, svona illa svíðandi, eða hvað ?

Hvað; hafa þau Jóhanna og Steingrímur, verið að gaufast, upp á síðkastið ?

Voru; þau Haarde, og Ingibjörg Sólrún, kannski líflegri, í sínu forar svaði ?

Eru þetta viðhorf þín; almennt, til okkar landsbyggðarbúa, sem fram kemur, í upphafs setningu andsvars þíns, hér að ofan ?

Síðan hvenær; hefi ég mært, íslenzka fjölmiðla - hverjir; eru jú flestir, sofandi, fram á prik sín, ekki satt ?

Það væri þá helzt; Klausturpóstur 19. aldarinnar, sem önnur blöð, fyrri tíma, sem nytu minnar virðingar, að nokkru.

Og; í Guðanna bænum. Ekki hrökkva úr gír, þó svo ég nefni leiðtoga ykkar, og liðleskjur aðrar KÓÐ, Magnús minn. Þau hafa látið það, á sannast. Það finnst okkur; 3/4 landsmanna, alla vega, sé mið tekið af spjalli við fólk, víða um land.

Ég hélt; að þið Gunnars þegnar, byggjuð ekki, yfir svona snöggum geðhrifum, sumir, sem raun ber þó vitni.

En; njóttu dagsins, það sem eftir lifir hans.

Í; sæmilegasta jafnvægi, úr Suðuramti - þrátt fyrir ástand mála - á landi hér !

Óskar Helgi Helgason 

 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 9.6.2009 kl. 14:19

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Fyrirgefðu Óskar las þetta í fljótheitum og las Sammsýni sem" skammastu þin". Það er svona þegar maður er á fullu við eitthvað annað og kíkir á tölvuna. En ég biðst afsökunar.

En það er var bara ábending mína að þessi vanskil eru innan skekkjumarka. Þessi aukning gætu verið kannsi 30 til 50 manns. Og vanskil hafa ofti veirð mun verri.

Magnús Helgi Björgvinsson, 9.6.2009 kl. 16:34

6 identicon

Allt í bezta; Magnús minn - Allt í bezta, en,.......... um þróun vanskila vandamála erum við ekki dús, um stund.

Með ágætum kveðjum; úr nágranna sýslu /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 9.6.2009 kl. 16:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband