Leita í fréttum mbl.is

Nú er ég ekki löglærður maður en er innistæðursjóður ekki ábyrgur skv. þessu?

Var að glugga í lög um innistæðusjóðinn: Þar segir í 3. gr

Viðskiptabankar, sparisjóðir, fyrirtæki í verðbréfaþjónustu og aðrir sem nýta sér heimildir laga til að stunda viðskipti með verðbréf í samræmi við lög um verðbréfaviðskipti, sem hafa staðfestu hér á landi, skulu eiga aðild að sjóðnum. Hið sama gildir um útibú þessara aðila á Evrópska efnahagssvæðinu. Þessi fyrirtæki, hér eftir nefnd aðildarfyrirtæki, bera ekki ábyrgð á skuldbindingum hans umfram lögbundin framlög til sjóðsins, sbr. ákvæði 6. og 7. gr. Fjármálaeftirlitið skal halda sérstaka skrá um aðildarfyrirtæki.

Sem sagt að þarna er ljóst að útibú heyra undir þennan sjóð.

Í 4 gr segir

  Stjórn sjóðsins skal skipuð sex mönnum til tveggja ára í senn. Viðskiptabankar tilnefna tvo menn í stjórn sjóðsins, sparisjóðir einn mann, fyrirtæki í verðbréfaþjónustu og aðrir sem nýta sér heimildir laga til að stunda viðskipti með verðbréf sameiginlega einn mann og viðskiptaráðherra tvo menn. Viðskiptaráðherra tilnefnir jafnframt fulltrúa innstæðueigenda og fjárfesta sem áheyrnaraðila með málfrelsi og tillögurétt í stjórn sjóðsins og skal hann uppfylla sömu kröfur og stjórnarmenn. Viðskiptaráðherra skipar formann stjórnar. Varamenn skulu tilnefndir á sama hátt.
     Stjórn sjóðsins er heimilt að ráða framkvæmdastjóra við sjóðinn eða semja við lögaðila um rekstur og vörslu hans. Lögaðilinn getur verið Seðlabanki Íslands og vörslufyrirtæki samkvæmt lögum um verðbréfasjóði.

Ef að þessi sjóður er ekki á vegum ríkisins hvernig stendur þá á þvi að viðskiptaráðherra tilnefnir 2 menn og formann nefndarinnar?

Síðan segir í 10 gr

10. gr.Fjárhæð til greiðslu.

     Nú hrökkva eignir viðkomandi deildar sjóðsins ekki til þess að greiða heildarfjárhæð tryggðra innstæðna, verðbréfa og reiðufjár í hlutaðeigandi aðildarfyrirtækjum og skal þá greiðslu úr hvorri deild skipt þannig milli kröfuhafa að krafa hvers þeirra allt að 1,7 millj. kr. er bætt að fullu en allt sem umfram er þessa fjárhæð skal bætt hlutfallslega jafnt eftir því sem eignir hvorrar deildar hrökkva til. Fjárhæð þessi er bundin við gengi evru (EUR) miðað við kaupgengi hennar 5. janúar 1999. Sjóðurinn verður ekki síðar krafinn um frekari greiðslu þótt tjón kröfuhafa hafi ekki verið bætt að fullu.
     Hrökkvi eignir sjóðsins ekki til og stjórn hans telur til þess brýna ástæðu er henni heimilt að taka lán til að greiða kröfuhöfum.
     Komi til greiðslu úr sjóðnum yfirtekur hann kröfu kröfuhafa á hendur hlutaðeigandi aðildarfyrirtæki eða þrotabúi.

Er þetta ekki einmitt sem verið er að gera núna? Mér skilst að eftir 7 ár taki innistæðusjóður lán til að greiða upp okkar hluta í IceSave. Reyndar verður ríkisábyrgð á þessu láni en formlega séð verður það innistæðusjóður sem tekur það.

Svo ég spyr hvaða atriði eru það sem menn eru að hengja sig í þegar þeir segja að við þurfum ekki að greiða IceSave?


Manni skilst að menn séu að hengja sig í eftirfarandi þegar þeir hafna ábyrgð okkar en eins og getið er um í þessari frétt er það vafasamt.

Þá hefur því verið haldið fram að í aðfararorðum tilskipunarinnar segi að aðildarríki beri ekki ábyrgð gagnvart innstæðueigendum hafi það komið á fót innlánstryggingarkerfi í samræmi við tilskipunina. Sérfræðingar sem leitað hefur verið til telja þarna um mislestur á 25. efnisgrein hennar að ræða, en þar segir: „Whereas this Directive may not result in the Member States’ or their competent authorities’ being made liable in respect of depositors if they have ensured that one or more schemes guaranteeing deposits or credit institutions themselves and ensuring the compensation or protection of depositors under the conditions prescribed in this Directive have been introduced and officially recognized;". Þetta þýði að óvíst sé að ábyrgð falli á aðildarríki hafi verið komið upp tryggingarkerfi samkvæmt tilskipuninni.

Visir

Hvet fólk til að lesa alla þessa grein á visir.is hún tekur fínt á þessu

Síðar í þessari frétt/grein segir:

Raunar virðist, svona að aflokinni orrahríð í falli bankanna, að stjórnvöld hafi líka komist að raun um að krafan um að innstæðutryggingar takmörkuðust við eign Tryggingarsjóðs innstæðna stæðist ekki skoðun. Í yfirlýsingu forsætisráðherra frá 8. október síðastliðnum segir orðrétt:

„Ríkisstjórnin ítrekar að ríkissjóður mun styðja Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta við öflun nægjanlegs fjár," og var þar ítrekuð fyrri afstaða stjórnvalda, líkt og hún birtist í bréfi viðskiptaráðuneytis til breska fjármálaráðuneytisins 20. ágúst. Þar er fullyrt að íslensk stjórnvöld muni gera allt sem í þeirra valdi stendur til að Tryggingarsjóður fái staðið við skuldbindingar sínar hvað varðar lágmarksvernd innstæðueigenda.

 

 

Eins má nefna að í ríkisreikningin 2007 er innstæðusjóður skráður í d hluta hans

innistæðusjóður

Og skv. skilgreiningu í ríkisbókhaldi er D hluti

D-hluti. Til hans teljast fjármálastofnanir ríkisins, þar með taldir bankar og vátryggingafyrirtæki í eigu ríkisins, enda séu þær hvorki sameignar- né hlutafélög.

(tekið af wikipedia )


mbl.is Sjálfstæðismenn til bjargar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bilunin er með slíkum eindæmum að til eru þingmenn sem ætla að skrifa undir samning sem þeir hafa aldrei lesið og fá ekki að lesa vegna þess að þeir sem eru að kúga þjóðina Bretar og Hollendingar banna að innihald samningsins er kunngert.

Er allt í lagi með ríkisstjórnarþingmennina?

Guðmundur Gunnarsson (IP-tala skráð) 12.6.2009 kl. 17:23

2 Smámynd: Haraldur Hansson

Sjóðurinn á að veita tryggingu fyrir alla innstæðueigendur, líka í útibúum erlendis. En það jafngildir ekki ríkisábyrgð.

A.m.k. 4 síðustu ár hefur ríkisendurskoðun gert athugasemdir með endurskoðuðum ríkisreikningi og hamrað á að sjóðurinn sé ekki í eigu ríkisins og alls ekki á ábyrgð ríkissjóðs.

Síðan koma inn í þetta neyðarlögin og túlkun á þeim. Enginn getur veitt vissu fyrir því að þau haldi ef á reynir.

Staðan er þannig að fræðimenn og hæfir lögfræðingar deila um málið. Allir hafa þeir eflaust eitthvað til síns máls en eru mjög ósammála. Þá er aðeins eitt að gera; að vísa málinu til dómstóla og fá fram úrskurð. Til þess eru dómstólar.

Haraldur Hansson, 12.6.2009 kl. 17:24

3 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Ábyrgðin er íslands.  Því miður.  Það eru engar deilur þá hægt sé að grafa upp 2-3 ísl. sem ætla að upphefja stóra þrætubók.  Gallinn við þrætubókamenn, eins og jón baldvin hefur bent á,  er að það fyrirfinnst enginn sem tekur mark á útúrsnúningafræði þeirra.  Það er bara þannig.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 12.6.2009 kl. 17:45

4 identicon

Takk fyrir stórgóða samantekt.  Ekki lögfróð heldur en finnst lögfræðirökin gegn því að borga hljóma svolítið eins og verið að "deila um keisarans skegg".  Erlendis er oft talað um anda lagana, maður hefur á tilfinningunni að á Íslandi sé meira um að lögin tekin bókstaflega (sem m.a. talið skýra af hverju verið svona erfitt að "nappa" víkingana okkar hingað til, sbr. gamla Baugsmálið).  Mér finnst alla vega andi lagana alveg skýr, sem og andi neyðarlagana. 

Ég myndi persónulega ekki þora að taka áhættuna á að fara með þetta mál fyrir dómstólana (sem ekki einu sinni víst að hægt þ.s. Bretar/Hollendingar geta neitað þeirri leið, eins og við neituðum Bretum um að fara í mál í þorskastríðinu á sínum tíma).  Vona að þeir sem berjast fyrir þeirri leið séu reiðubúnir að bera ábyrgðina á afleiðingunum ef sú leið yrði farin. 

ASE (IP-tala skráð) 12.6.2009 kl. 18:14

5 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

"Prime Minister Geir H. Haarde shouldn't be pissed off with the EU countries but merely with himself and his Central Bank and 2 or 3 large Icelandic Banks (IMG:style_emoticons/default/dry.gif) After all Iceland didn't want to belong to the EU in the first place so WHY being pissed of with the EU ? (IMG:style_emoticons/default/huh.gif)
It's a country with 300,000 people for Xsake...and they put themselves in shite, nobody else did.

In The Netherlands they attracted some 50,000 people*** who stashed their savings with ICESAVE (lured by high interest rates) and contrary to what happened in the UK, ICESAVE Holland was not allowed to close their Bank-website ....BUT....showing some clients on television, it was IMPOSSIBLE for them to get access to the website in order to try and transfer money from their accounts into saver haven.

Iceland's Prime Minister Geir H. Haarde shouldn't blame others....but himself, his Central Bank and the regulators, controlling the other banks. (IMG:style_emoticons/default/dry.gif)


*** The Dutch clients of ICESAVE- Iceland are able to collect (lot of trouble, but still) the first € 20,000 savings from the Icelandic Goverment and the rest they're hopefully (for them) able to collect from the Dutch Government, which in fact, I find rather stupid; if you're that greedy to put your money on an iceberg and the iceberg melts...it's your own fault."

Frá þessari vefsíðu...

http://www.thaivisa.com/forum/Icesave-Sht-Creek-Expats-Troub-t216509.html

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 12.6.2009 kl. 19:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband