Leita í fréttum mbl.is

Gott fólk ég held að það sé sama hver verður við stjórn! Við þurfum að borga!

Held að menn séu búnir að gleyma því að við skrifuðum undir samkomulag í París síðasta haust þar sem við gengumst undir það að borga þennan hluta innistæðutrygginganna. Það átti aðeins eftir að semja um hvernig við borguðum. Og til að friða Hollendinga voru gerð drög að samningi við Hollendinga upp á 6,7% vexti og 10 ára lán. Samkomulagið hljóðaði þannig:

Samkomulag næst við Evrópusambandið fyrir hönd Hollendinga og Breta - Greiðir fyrir láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF)

16.11.2008

Mikilvægur áfangi hefur náðst til lausnar deilunnar um innstæðutryggingar vegna íslenskra bankaútibúa á Evrópska efnahagssvæðinu og stöðu sparifjáreigenda í þeim. Viðræður Íslands við nokkur Evrópusambandsríki, sem komust á fyrir tilstilli Frakklands sem nú fer með formennsku í Evrópusambandinu, leiddu til samkomulags um viðmið sem lögð verða til grundvallar frekari samningaviðræðum.

Samkomulagið felur í sér að íslensk stjórnvöld ábyrgjast lágmarkstryggingu þá sem EES-reglur mæla fyrir um til innstæðueigenda í útibúum bankanna erlendis. Endanlegur kostnaður ríkissjóðs vegna þessa mun ráðast af því hvað greiðist upp í innstæðutryggingar af eignum bankanna. Einnig er kveðið á um að Evrópusambandið, undir forystu Frakklands, taki áframhaldandi þátt í að finna lausnir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármálakerfi og efnahag.

Aðilar eru ásáttir um að hraða fjárhagslegri aðstoð við Ísland, þar með talið samþykkt lánafyrir­greiðslu sem beðið hefur samþykktar stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) undanfarnar vikur. Erindi Íslands hjá IMF verður tekið til afgreiðslu hjá sjóðnum miðvikudaginn 19. nóvember.

Umsamin viðmið

  1. Ríkisstjórn Íslands hefur átt viðræðufundi með stofnunum Evrópusambandsins og hlutaðeigandi aðildarríkjum þess um skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að því er tekur til tilskipunar um innstæðutryggingar 94/19/EB. Aðilar komu sér saman um að tilskipunin um innstæðutryggingar hafi verið felld inn í lög­gjöf­ina um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við samninginn um Evrópska efnahags­svæð­ið og gildi því á Íslandi með sama hætti og hún gildir í aðildarríkjum Evrópusambandsins.
  2. Viðurkenning allra aðila á þessari lagalegu stöðu greiðir fyrir skjótri niðurstöðu samninga­viðræðna þeirra sem nú standa yfir um fjárhagsaðstoð við Ísland, þ.m.t. við Alþjóða­gjald­eyris­sjóðinn. Þessar samningaviðræður skulu fara fram með samhæfðum og samræmdum hætti og skal þar tekið tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland er í og knýjandi nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt.
  3. Stofnanir Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins munu taka áframhaldandi þátt í þessu ferli sem fer fram í samráði við þær.

Reykjavík 16. nóvember 2008

Þá er rétt að vitna í yfirlýsingu Geirs Haarde sem kom 8. október

Yfirlýsing forsætisráðherra

8.10.2008

Ríkisstjórn Íslands metur mikils að bresk stjórnvöld hyggjast tryggja að eigendur Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi muni ekki tapa peningum á viðskiptum við Icesave.

Ríkisstjórnir landanna meta nú stöðuna og leita að viðunandi lausn fyrir alla aðila.

Með breytingu á lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta eru innstæður gerðar að forgangskröfum ef kemur til skiptameðferðar. Góðar líkur eru á að eignir Landsbankans muni standa undir stærstum hluta innstæðna á Icesave-reikningum Landsbankans í Bretlandi.

Ríkisstjórnin ítrekar að ríkissjóður mun styðja Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta við öflun nægjanlegs fjár.

Ríkisstjórn Íslands er staðráðin í að láta ekki núverandi stöðu á fjármálamörkuðum skyggja á áralanga vináttu Íslands og Bretlands.

 

Annars er ég með hugsanlega lausn fyrir Alþingi þegar ríkisábyrgðin kemur til umræðu. Að þegar málið' kemur til nefnda eftir fyrstu umræðu. Þá ræður Alþingi færustu sérfræðinga heims í samningamálum af þessari tegund og lætur þá fara yfir þetta með nefndunum og kanna hvort og þá hvað hefði verið hægt að gera betur í þessum samningum og þeirri stöðu sem við erum í.  Og eins þá verði ráðinn sérfræðingur í að hámarka eignir til að fara yfir eignasafn Landsbankans erlendis og honum falið að meta það. Hann ætti ekki að vera lengi að því því að fyrri möt hljóta að liggja fyrir í skilanefndum og þarf aðeins að fara yfir þá vinnu.

Annars væri holt fyrir fólk að átta sig á því að sá viðsnúningur sem Steingrímur J Sigfússon hefur sýnt í þessu máli varðandi skuldbindingar okkar varðandi IceSave segir okkur nú að málið er að hættan á einangrun okkar gagnvart útlöndum sem gæti fylgt þessu er svo alvarleg að hann og fleiri þora ekki að taka áhættuna. Nú hafa fulltrúar flokka sem hafa um 75% af öllum þingmönnum á Alþingi í raun komið að þessu máli og nær allir tekið þann pól að það þurfi að semja um þessar skuldir.


mbl.is Icesave gæti fellt stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband