Leita í fréttum mbl.is

Auðvita er allir á móti samkomulaginu! - En við verðum að samþykkja það!

En við höfum ekki aðra kosti nema að hætta á að okkur verði kastað aftur í efnahagslegur tilliti um áratugi.

Ég er virkilega orðinn þreyttur á draumórum Framsóknar um að við eigum möguleika á þessu og hinu án þess að borga.

Nú í Kastljósi var Eygló Harðardóttir að ræða um að við hefðum átt að fá þetta lán í Krónum. Hverskonar kjaftæði er þetta. Hún vitnar í lög um innistæðusjóð 9.gr. En hún og fleiri eru búin að gleyma því að Bretar og Hollendingar eru nú þegar búnir að greiða fyrir hönd innistæðutryggingarsjóðs út greiðslu til innlánseigenda. Og þau gerðu það í pundum og evrum. Af hverju í ósköpunum ættu þeir að taka það í mál að fá skuldina greidda upp í verðlausum krónum? Ég bara held að þetta fólk sé ekki í lagi.

IceSave málið hefur þróast þannig hjá framsókn.

Í upphafi => við eigum ekkert að borgar þetta. => fara með málið fyrir dóm => við eigum ekki að samþykkja þennan samning en eigum að standa við skuldbindingar => við eigum að fá lánið í krónum.  Það hefur nefnilega komið í ljós að þegar göng eru skoðuð að Ísland er búið að reyna allt það sem Indeframsókn hefur sagt að hafi ekki verið gert. Sérfræðingar innlendir og erlendir verið samninganefnd og ríkisstjórn til aðstoðar og ráðleggingar alveg eins og þau hafa sagt.

Ég get ábyrgst að ef að þessi samningur verður feldur og stjórnin fellur. Sem yrði væntanlega til að framsókn og sjálfstæðisflokkurinn kæmist að völdum. Þá mundi það leiða til varðandi IceSave:

  • Í versta falli lendum við í erfiðum deilum við Evrópu og fleiri ríki.
  • Í besta falli verður sest að samningaborði aftur og sami eða verri árangur næsðist.
  • Og allt þar á milli yrði til að auka á hörmungar fyrir okkur næstu árinn.

Það er t.d. ljóst að við fengjum ekki lán og þyrftum að endurgreiða AGS þau lán sem við þegar höfum fengið þar sem að frágangur á IceSave er skilyrði fyrir aðstoð við okkur. Þar með hefðum við engan gjaldeyri til að verja krónuna. Þar með misstum við stuðning AGS og fleiri við gjaldeyrishöft. Höftin eru brot á EES og þar með fengju Bretar og Hollendinga vopn í hendurnar um að láta vísa okkur þar út.

Og ég neita því kjaftæði í Indefence og framsókn að þessar þjóðir muni ekki um þessar upphæðir og því séu þær tilbúnar í frábæra samninga við okkur eða gefa okkur þetta fé.

Mér finnst þetta svo augljóst að ég skil ekki þessa þingmenn sem tala í slagorðum og frösum sem þeir grípa upp efti misvitrum Indefence mönnum. Bendi fólki á góða pælingu um Indefence eftir Karl Th. Birgissson á Herdubreid.is


mbl.is Meirihluti mótfallinn Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hammurabi

Sífellt er endurtekið að "okkur beri skylda" til að greiða Icesave ábyrgðir. Það hinsvegar að það sé endurtekið gerir það ekki svo.

Þjóðir heims ábyrgjast ekki innistæður þeirra sem eiga inni hjá bönkum sínum. Þannig virkar það einfaldlega ekki.

Nú gætu menn sagt "já en Björgvin var búin að lofa englendingunum", það er líka staðreynd að "loforð" er ekki það sama og skylda. Það má vel vera að það væri fallega gert að gefa englendingum og hollendingum þessar 1200 miljarða, en okkur ber engin skylda til þess.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Hollendingar og Englendingar reyna að knésetja Íslendinga. Undanfarnar tilraunir þeirra, í Þorskstríðunum, sýna að réttlætið endar yfirleitt á því að sigra.

Þess ber sérstaklega að geta að málalyktir annars þorskastríðsins urðu þau að Íslendingar lofuðu að reyna ekki að víkka út landhelgina. Þetta loforð var endurtekið af hérlendum stjórnvöldum. Ég vænti þess þá að þú viljir einnig veita Bretum heimild til að veiða fisk hér upp að ströndum, þ.e.a.s. að þú teljir okkur "bera skyldu til"?

Hammurabi, 1.7.2009 kl. 20:23

2 identicon

Við verðum segirðu.  Ekki aldeilis.  Við getum aldrei greitt þetta.  Þetta er óútfylltur tékki.  Samþykkt þessa dæmalausa samnings saminn við viðsemjendur okkar af Svavari Gestssyni og kosningastjóra Vinstri Grænna getur aldrei gengið upp.  Samþykkt samningsins er ígildi fullveldisafsals og það er kannski það sem þú Magnús, hóra Samfylkingarinnar vill en hún er undirlægja ESB og allt skal yfir okkur ganga bara til þess að komast þangað inn.  Nei takk.

ÞJ (IP-tala skráð) 1.7.2009 kl. 20:38

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

ÞJ hvernig getur þú sagt að þessi samningur sé dæmalaus? Hefur þú séð þá marga? Minni þig á að í samninganefndiinni voru nú aðeins fleiri en Svavar og að þessi Kosningastjóri var ekki í nefndinni heldur var hann aðstoðarmaður Svavars! Bendi þér t.d. á að Eva Joly réð sér aðstoðarmann hér á landi sem er arkitekt!

ÞJ það er alveg sama hvað þú kallar mig! Við þurfum að borga þetta. Þetta viðurkennir Framsókn og Borgarahreyfingin líka. Þau eru bara ekki til að skrifa upp á þennan samning. Og þegar þau eru spurð þá geta þau ekk með nokkru móti bent á hvernig samning þau vilja því það breytist frá viku til viku hjá þeim. Og endra í að þau átta sig á að það er ekkert annað í boði.

Erlend lögfræðifyrirtæki hafa farið yfir þennan samning og telja að í flestu sé hann sambærilegur við aðra lánasamninga.

Ef við geturm ekki borgað þennan samning þá kemur það í ljós eftir 7 ár. Og þá getur engin sakað okkur um að hafa ekki reynt. Og þá eru möguleikar á að taka nýtt lán til a greiða hann upp, eða semja að nýju skv. ákvæði í samningnum. En eins gæti verið að við yrðum komin í þá stöðu þá að við gætum vel borgað hann. Minni þig á að tók okkur aðeins 6 ár að skapa þetta ástand hér sem hrundi síðast haust. Það tók okkur ekki nema kannski 10 ár að greiða niður skuldir ríkisins sem voru um þó nokkarar um 1990. Þær voru komnar í 20% fyrir hrun.

En þú verður að horfa í það að meira að segja InDefence "sérfræðingarnir" eru farnir að tala um að við stöndum við skuldbingingar okkar nú síðust vikur. Þó þeir vilji nýjan samnig. Þeir vita bara ekki alveg hvernig.

Magnús Helgi Björgvinsson, 1.7.2009 kl. 20:56

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Hvað höldum við að við erum ? Við eru óreiðuþjóð, gerspillt og ætlum að stilla heiminum upp við vegg. Það þarf að lækka rostann í þessari lummuþjóð í eitt skipti fyrir öll

Finnur Bárðarson, 1.7.2009 kl. 21:02

5 Smámynd: Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir

Þetta er voðalega einfalt, enginn hefur trú á því að við getum nokkurntímann staðið við þessar afborganir. Þar með samþykkjum við þetta aldrei. Ef það verður gert verður landflóttinn skelfilegur og innviðir þessa þjóðfélags mun aldrei þola þennan samning!

Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 1.7.2009 kl. 21:38

6 Smámynd: Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir

Finnur: ég vona að rostinn verði aldrei bældur í þessari þjóð! Þjóðin hefur ekkert gert af sér. Þú getur valið að lækka þinn rosta og leggjast flatur en gerðu það þá vinsamlegast einn og haltu okkur hinum utan við þetta.

Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 1.7.2009 kl. 21:40

7 identicon

Finnur, ég er þér sammála.

Valgeir (IP-tala skráð) 1.7.2009 kl. 21:41

8 identicon

@Anna: Gerði þjóðin ekkert af sér? Kannski rétt. Yfirgangur og frekja eru ekki saknæm. 

En það eitt að þjóðin virðist ekkert hafa lært af óförunum er sorglegt, mjög sorglegt. Það væri nú allt í lagi að líta aðeins í eigin barm. 

Valgeir (IP-tala skráð) 1.7.2009 kl. 21:45

9 Smámynd: Eygló

"Yfirgangur og frekja eru ekki saknæm."  JÚ, SVO SANNARLEGA. 

Útrásargræðin fólst EINMITT í yfirgangi og frekju; svo yfirgengilegri að náði oft langt yfir "sakleysi". Það sem við neyðumst til að sætta okkur við að sé ekki SAKnæmt er í flestum tilvikum vegna þess að EKKI ERU/VORU til lög sem náðu yfir gjörningana hjá þessum eiturpöddum.

Eygló, 2.7.2009 kl. 01:17

10 Smámynd: Eygló

Ætli þeir séu ekki mjög margir sem hugsi hvernig þetta liti út EF VIÐ værum hinum megin við borðið.

Myndum við skrifa undir að fá borgað í snjáðum og lítilsvirtum gjaldmiðli sem hvergi er hægt að nota? "Við eigum að fá að borga þeim í íslenskum krónum" Frá hvaða plánetu er hún nafna mín? Jörð?

Myndum við taka strax eignir uppí skuld, eignir sem enginn veit hvers virði eru eða verða?

Í þessu máli held ég að enginn geti samið um skárri kjör, JAFNVEL EKKI :)  BjaBen eða SigDav!! he he

Hitt væri reyndar fjandi gott á þá að leyfa þeim að prófa en eins og málin standa NÚ myndu nýjar samningaumleitanir sennilega bæta gráu ofan á svart. 

Gengjum við ekki að þessum samningi og byrjuðum á núlli, er ég sannfærð um að verri niðurstaða næðist.

Þessar hótanir um að fella stjórnina; koma hinum og þessu á kné eru ógeðfelldar. Ætlum við að berja bumbur og reyna að losa okkur við ríkisstjórnir svo eftir því hvernig fólki líkar mál og mál (að vísu STÓRmál í þessu tilviki.

Eygló, 2.7.2009 kl. 01:24

11 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég mun hitta Karl Th Birgis,í afmæli í júlí,fæ hann örugglega til að rökræða um Indefence. Gott að heyra og geta spurt,ég breyti auðvitað engu í þessu dæmi,þótt ég sé á móti þessum samningi. Orðin þreytt á að lesa allt um þetta. Óska að allt leysist farsællega,það er auðvitað mikl reiði ennþá. Segi bara góða nótt Magnús Helgi.

Helga Kristjánsdóttir, 2.7.2009 kl. 03:11

12 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það er alvegs sama hvað fólk barmar sér yfir þessum samning. Við komum til með að borga okkar hluta af IceSave samt sem áður. Að öðrum kosti verðum vð að lýsa okkur gjaldþrota og hleypa þá kröfuhöfum að eignum okkar hér á landi og erlendis. Síðsta ríki sem varð gjaldþrota var minnir mig Nýfundnaland og það tilheyrir Kanada eftir það.

Fólk getur kosið að trúa einhverju meintum sérfræðingum sem vilja meina að þeir kunni allt og viti allt betur en stjórnvöld. En svo þegar málið er skoðað þá hafa þeir litla reynslu á þessum sviðum. M.a. aldrei staðið í samningum sem þessu. En ég kýs að treysta þeim sem fara með stjórn þessara mála og við kusum fyrir 2 mánuðum. Ég er á því að 7 ár sé tími sem við getum notað til að koma hér á almennilegum hagvexti sem styður við gegni krónunar (ef hún verður áfram) sem lækkar lánin í íslenskum krónum. Sem og að nægur gjaldeyrir verði hér til staðar til að greiða þann hluta skuldarinnar sem stendur eftir eftir 7 ár. Ég bendi líka á að ef við sjáum þá ekki fram á að greiða þetta þá höfum við ákvæði um að taka upp samninginn já eða neita að öðrum kosti að greiða eða taka annað lán og greiða hann upp.

Svon hefur fólk sem lendir í skuldum bjargað sér hér á landi.  Það hefur samið um ný og hagstæðari lán þannig að það fengi tækifæri að koma undir sig fótunum Þó að skuldirnar hafi virst vera óyfirstíganlegar. 

 Þannig hafa fyrirtæki eins bjargað sér í gegnum tíðina. Þannig höfðum við náð að greiða niður skuldir ríkisins niður síðustu 2 áratugina.

E

Magnús Helgi Björgvinsson, 2.7.2009 kl. 04:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband