Leita í fréttum mbl.is

Davíð búinn að gleyma að þegar hann fór frá í febrúar þá var ástandið ekk beisið.

Nú þegar maður les þessi orð Davíðs í þessari frétt og viðtalinu við hann þá skilur maður hvaðan Guðlaugur Þór og fleiri hafa fengið innlegg sitt í umræðurnar á Alþingi.

Davíð alveg búinn að steingleyma að hann átti nú nokkra góða spretti að gera þetta að þvi vandamáli sem það er í dag.

  • Hann einkavæddi bankana
  • Lækkaði bindiskyldu á bönkunum
  • Hann skipulagið viðbrögð og stjórnaði Seðlabankanaum allan tíman sem að IceSave var í gangi.
  • Hann sem fyrrum forsetisráðherra ætti nú að vera ljós sú staða sem Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún voru í hér sl. október þegar að útlit var fyrir að ekki fengist hér gjaldeyrir til að flytja inn olíu og mat.
  • Eins ætti Davíð að muna eftir að honum var falið vorið 2008 að leyta að gjaldeyrisláni fyrir okkur. En það gekk ekki. Hefði hugsanlega sparað okkur milljarða í dag.
  • Hann vildi ekki sjá það vorið 2008 að leitað yrði til alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem hugsanlega hefði komið í veg fyrir hrun bankana.
  • Hann tregðaðist við að leita til hans í sl haust sem hefur tafið endurreisnina.
  • Hann kom í viðtal og sagði að Ísland mundi bara skilja nær allar skuldir í gömlubönkunum og ekki greiða neitt. Því " við ætlum ekki að greiða skuldir óreiðumanna"

Það er svo auðvelt að vera nú sá sem allt vissi betur en gerði samt ekkert af viti í því. Seðlabanka og FME hefði verið í lófa lagið að stoppa þetta 2006. Og banna eða hamla því að Landsbankinn stofnaði útibú í Bretlandi. En þeir gerðu ekki neitt. Bankarnir vor þá þegar orðnir stærri en við réðum við.


mbl.is Ekki setja þjóðina á hausinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eygló

Já en Magnús, hann spáði hruninu, öllum aðdraganda þess, umfangi þess og afleiðingum - - - eftir á.

Eygló, 4.7.2009 kl. 18:01

2 identicon

Já Davíð gerði mistök.. Get over it

Hann gerði hinsvegar marga aðra hluti sem skipta miklu meira máli, sem voru flestir af hinu góða..

Það er alltaf voðalega auðvelt að vera vitur eftirá

Jón (IP-tala skráð) 4.7.2009 kl. 18:04

3 identicon

Ja, hann sagði að bankarnir væru allfot alltof stórir löngu áður en allt féll um koll. Afhverju hann gerði ekkert í því veit ég ekki, en ég held að það hafi bara verið honum ofviða. Kraftarnir sem knúðu bankana áfram (t.a.m. stórkostleg aukning í eftirspurn eftir lánsfé til neyslu) voru bara svo miklir, að strax í 2006 þá var í raun ekkert hægt að stoppa þessa stórslys.

Gulli (IP-tala skráð) 4.7.2009 kl. 18:05

4 Smámynd: Fannar frá Rifi

Gerði hann ekki neitt í því? Hvernig var með fjölmiðlafrumvarpið? frumvarp sem hefði komið í veg fyrir það að bankarnir og eigendur þeirra gætu einokað fjölmiðlamarkaðin á Íslandi. Lög sem þú og Samfylkingin börðust hart gegn. Þar sem þú, Samfylkingin og forsetinn stóðu vörð um útrásarvíkinganna svo að þeir gætu nú farið sínu fram án minnstu gagnrýni. Ábyrgð Samfylkingarinnar og Forsetan eru mest í þessu máli. Enda voru það helstu stuðningsmenn útrásarinnar.

Fannar frá Rifi, 4.7.2009 kl. 18:19

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Jón það er einmitt það sem hann er að gera! Vera vitur eftir á. EN óþarfi t.d. að gera Geir að einhverjum allsherjar blórabögli. T.d. að hann hafi skrifað honum bréf 22 október sl. Þá vorum við löngu komin í vandræði og búin að semja um að fara samningaleiðina.

Gulli það er ekki nóg að vara við að bankarnir séu ofstórir en um leið létta af þeim öllum kvöðum eins og bindiskildu og gera þeim ekki t.d. ýtarlegri kröfu um eigiðfé og lausafé.

FME og Seðlabanki voru í samstarfi og hefði verið í lófalagið að stöðva þetta 2006. Þeir höfðu sérfræðinga sem áttu að gera sér grein fyrir þróuninni a.m.k. í byrjun árs 2007. Það voru þessar stofnanir sem áttu að fylgjst með bönkunum og þær brugðust. Og þó að Neyðarlögin sem m.a. Davíð kom að hefðu gert ráð fyrir að við gætum skilið skuldir okkar eftir þá mátti Davíð vera ljóst að það gegni ekki án meiriháttar hörmungum fyrir okkur.

Minni menn t.d. á þegar Davíð hélt að hann gæti fest gegnið á krónunni. Hann á bara að viðurkenna að hann er með pungapróf í lögfræði og þrátt fyrir alla hans reynslu gat hann ekki séð fyrir einföldustu hluti nema eftirá. Halda menn að hann hefði ekki á fundum með Sigurjóni og Halldóri getað rekið á eftir eða flýtt þessu. Hefði hann ekki átt að tjá sig um þetta opinberlega löngu fyrir hrun. Og þar með gefið þjóðinni til kynna hvað væri í vændum.

Minni líka á viðbrögðin þegar að seðlabanki reyndi að kaupa meirihluta í Glitni sem kom þessu öllu endanlega af stað.

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.7.2009 kl. 18:19

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Fjölmiðlafrumvarpið hafði ekkert með hrun bankana að gera Fannar. Sjálfstæðismenn höfðu nú öll völd á RÚV og eins Mogganum.

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.7.2009 kl. 18:20

7 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Kemur nú  hrunmótorinn með sitt hefðbundna:  Ég sagði þetta og ég sagði hitt og er stórkostlegur etc.

Sorglegt bara.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 4.7.2009 kl. 18:29

8 identicon

Fannar frá Rifi segir að Davíð hafi reynt að koma í veg fyrir að bankarnir yrðu of stórir með frumvarpi um fjölmiðla...Blind er þín trú og hreinlega hallærislegt að lesa það sem kemur frá trúflokknum.

Tryggvi Marteinsson (IP-tala skráð) 4.7.2009 kl. 18:32

9 Smámynd: Fannar frá Rifi

frétta og fjölmiðlamenn eru nánast allir í vinstriflokkunum.

þarf að minnast á Baugsmálið? hvernig Samfylkingin stóð og varði útrásina og svikamyllur út í rauðan dauðan? hvernig lögin gilda ekki um alla því þeir ríku geta keypt sig frá lögbrotum í krafti stöðu sinnar og styrk yfir allri umfjöllun um mál þeim tengdum? 

Fannar frá Rifi, 4.7.2009 kl. 18:34

10 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ert þú að segja að IceSave hafi verið á vegum Baugs? Ég skil ekki alveg hvað þú ert að fara? Allir þeir sem komu að IceSave voru gildandi í Sjálfstæðisflokknum!

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.7.2009 kl. 18:53

11 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

hvaða bull í þér Magnús, af því að ég er Sjálfstæðismaður er ég þá verri maður en ÞÚ ?

Jón Snæbjörnsson, 4.7.2009 kl. 19:00

12 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Jón ég var að svara Fannari og benda honum á að þeir í Landsbankanum voru allir Sjálfstæðismenn þ.e. Björgúlfur 1 og 2 og Sigurjón og Hreiðar. Því Fannar er að kenn því um að vinstrimenn hafi átt þátt í að IceSave hafi þróast eins og það gerði. Ég er ekkert að setja út á almenna Sjálfstæðismenn en mér leiðist þegar þeir leita að orsökum þessa klúðurs í Fjölmiðlafrumvarpið.

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.7.2009 kl. 19:13

13 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

afsakaðu Magnús ég er stundum of bráður, en veistu það eru margir af þessu "gaurum" virkir í KFUM - segji bara svona

Jón Snæbjörnsson, 4.7.2009 kl. 19:17

14 identicon

Hvernig væri Magnús að þú færir stundum úr þessum pólitísku brókum Samfylkingarinnar og skoðaðir málið eins og það raunverulega snýr að alþýðu manna í þessu landi.  Það vita allir sem vilja vita að við getum ekki borgað þetta og því ber að leyta nauðarsamninga um þessar ábyrgðir okkar og skiptir þá engu máli hver var þarna og þar og á þessum eða hinum tíma í einhverjum stólum hvort sem það er íhald, framsókn eða samvó.

ÞJ (IP-tala skráð) 4.7.2009 kl. 19:32

15 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Fannar var t.d. að halda því fram að allir blaðamenn væru vinstrisinnaðir. Ég var svona að hugsa til t.d. Agnesar Braga, Elínar Hirst, Óla Thynes og fleiri og fleiri og ég sé ekki betur en að þeir séu bara úr öllum flokkum. Málið er að eins og menn ættu að gera sér grein fyrir þá var það Davíð og draumur hans um Ísland sem fjármálamiðstöðu sem lagið línurnar um hvað við hleyptum þessum bönkum langt.

En svona af því að við erum að tala um sjálfstæðismenn þá eru nokkrir sjálfstæðismenn sem ég kann vel við í pólítík. t.d. Þorgerði Katrínu (já ég veit allt um Krístján Ara) af þvi að hún er tilbúin að skoða mál þvert á flokkslínur, Kristján Júl af því að hann er mjög yfirvegaður í málflutningi sínum, Pétur Blöndal af því að hann er ekkert að velta fyrir sér hvort að hans hugmyndir séu í anda flokksins eða hugmyndafræði hans. Hanna Birna í Reykjavík. Bara það að koma Reykjavík út úr þeim látum sem voru þar fyrir ári síðan. Ragnheiður Ríkharðsd fyrir að vera föst á sínu og reyna að hugsa um hvað henta fólkinu best.

Þó ég sé ekki sammála þeim oft þá kann ég við þau sem stjórnmálamenn.

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.7.2009 kl. 19:33

16 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

ÞJ það krefst þess að við lýsum okkur gjaldþrota. Það er þá líka yfirlýsing um að við séum ekki fær að taka lán næstu ár eða áratugi. Sbr. Argentína! Því værum við dæmd í að hér yrði engin fjárfesting næstu ár eða áratugi. Það er tvennt ólíkt að Íslensk fyrirtæki borgi ekki skuldir eða ríkið. Ef ríkið borgar ekki þá er það þjóðargjaldþrot.

Því vill ég ÞJ að við gefum okkur þau 7 ár sem við höfum a.m.k. vegna IceSave til að reyna að koma löppunum unidr okkur. Ef við getum það ekki þá, er ekkert nema að viðurkenna það. Segja að við höfum reynt allt og þrátt fyrir það getum við ekki borgað. Og þá og þá fyrst lýsum við yfir að við séum ekki borgunarmenn fyrir skuldum ríkisins.

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.7.2009 kl. 19:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband