Leita í fréttum mbl.is

Flott hjá Evu en er hún að misskilja eitthvað?

Næ ekki alveg þessum kafla hjá henni. Er hún að segja í greininni að við við borgum meira enn innistæðutryggningarnar. Er hún að misskilja eitthvað?

Það voru Hollendingar og Bretar sem ákváðu einhliða að upphæð innistæðutryggingarinnar ætti að vera ekki aðeins 20 þúsund evrur fyrir hvern reikning, rétt eins og kveðið var á um í evrópskum og íslenskum lögum– nokkuð sem þegar var ógerlegt fyrir íslensku ríkisstjórnina að standa við, en hún hafði tilkynnt mjög fljótlega eftir að bankarnir voru þjóðnýttir að aðeins væri hægt að ábyrgjast innlán á Íslandi –, heldur að upphæð 50.000 til 100.000 evrur, jafnvel hærri.

Heldur hún að okkur sé gert að borga allar innistæðurnar?

Eflaust rétt hjá henni að alþjóðarsamfélagið er ekki að sýna okkur mikla miskunn. Og sér í lagi Bretar og Hollendingar. En það er líka þessi spurning um fordæmi.  Þ.e. kæmu þá aðrar þjóðir í kjölfar okkar..


mbl.is Stöndum ekki undir skuldabyrði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Spá mín um algert hrun fasteignaverds á Íslandi mun raetast:  Midad vid núverandi verd íbúdarhúsnaedis er alveg ljóst ad um minnst 50% laekkun verdur ad raeda.

60-70% laekkun er ekki ólíkleg....jafnvel 80% laekkun.  Hús sem verid er ad reyna ad selja í dag fyrir 40 milljónir mun í besta falli seljast fyrir 20 milljónir.

Ris og kjallaraíbúdir verda óseljanlegar med öllu.

Thjód sem lét og laetur en í dag vada yfir sig med kvótakerfinu baud spillingaröflunum upp á ad afhenda bröskurum ríkisbankana.  Thetta gerdi thjódin med thví ad kjósa Spillingarflokkinn og Framsóknarspillinguna.

Thjódin var raend med eigin vilja.

*Spáin raetist* (IP-tala skráð) 1.8.2009 kl. 09:29

2 identicon

Eða veit hún kannski eitthvað sem við vitum ekki...?

Gunnar (IP-tala skráð) 1.8.2009 kl. 09:33

3 identicon

Bretar og Hollendingar fá helming af eignum bankans til þess að standa straum af því sem þeir ákváðu að greiða umfram 20 þús evrurnar. Við fáum helminginn til að standa straum af 20 þús per reikning.

Sumir spyrja af hverju við fáum ekki allar eignirnar til þess að greiða skyldugreiðslunar, 20 þús evrur, en umframgreiðslur Breta og Hollendinga eru á ábyrgð þeirra sjálfra því að tilskipun 94/19 áskilur einungis þessar 20 þús. og hafði þessar þjóðir viljað greiða meira þá er það einfaldlega mál þeirra sjálfra.

Siggi (IP-tala skráð) 1.8.2009 kl. 09:45

4 identicon

Takk fyrir Siggi, ég hafði ekki áttað mig á þessu.  Þetta er náttúrulega alveg út í hött ef þetta er svona.

Gísli Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 1.8.2009 kl. 11:50

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Hefur Samspillingin ekki blindað þig nafni.  Það er mun trúverðugra að halda með fótboltaliðum en stjórnmálaflokkum.

Magnús Sigurðsson, 1.8.2009 kl. 12:37

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

En Siggi við lýstum því einmitt yfir að við ábyrgðumst allar iinnistæður í Íslenskum bönkum og útibúum. Þannig að ég hef litið svo á að Hollendingar og Bretar hafi getað greitt þetta út í ljósi yfirlýsinga okkar.

Magnús Helgi Björgvinsson, 1.8.2009 kl. 12:38

7 identicon

Maggi. Geturðu sýnt fram á að að það hafi verið fest í lög að "við ábyrgðumst allar innistæður". Alþingi hefur ekki samþykkt þá skuldbindingu. Hvað yfirlýsingar fyrrverandi ríkisstjórnar (og núverandi) um fjárskuldbindingar Íslenska ríkisins varðar, þá eru þær ónýtur pappír. Ef að það er rétt að Hollendingar og Bretar byggi sitt á slíkum yfirlýsingum fyrrverandi ríkisstjórnar (og núverandi), þá er það líka ónýtur pappír.

Kristinn (IP-tala skráð) 1.8.2009 kl. 13:08

8 identicon

Miða við þær upplýsingar sem ég hef lesið um málið í gegnum tíðina bæði á ísl. sem erlendri tungu, þá ætlast þeir einmitt til að það séu allar innstæður tryggðar og að þessar 20 þús. evrur séu nú ekki mörkinn fyrir því. Ekki bara þær sem lögin ná yfir, þ.e.a.s. í þeim ná tryggingarnar ekki yfir innistæður fyrirtækja og félaga, heldur aðeins almennings. En alla vegna eru Bretar víst gall harðir á því að allir eigi að vera tryggðir, þar sem sveitarfélögin hjá þeim ákv. að hunsa (eða eru ekki greindari en það) að þegar boðið er á mun betri vexti af innlánum í bönkum þýðir það aukna áhættu og þá ná tryggingarnar ekki yfir þau. En þeir ætla að fá sinn pening sama hvað lögin segja til um tryggingarvernd þegar slík katastrófía verður að veruleika eins og fall bankanna varð.

Því er þetta alveg rétt hjá Evu um kúgun þeirra... þeir ætla ekki að sætta sig við lögin, þeir ætla sér mun meira án þess að hugsa nokkuð en um sinn eigin hag, þótt það þýði hið svartasta hol fyrir íslenskan almenning.

Linda (IP-tala skráð) 1.8.2009 kl. 13:10

9 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Kristinn það var verið að tala um það í síðustu viku að það er enn í gildi yfirlýsing Ríkisstjórnar Íslands um að allar innistæður séu tryggðar! Ef að ríkisstjórn lýsir skilyrðislaust yfir einhverju þá gildir það því annars mundu öll kerfi hrynja.

Úr frétt af mbl.is

innlent | mbl.is | 23.7.2009 | 11:18

Innistæður tryggðar til fulls þar til annað verður boðað

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði á Alþingi í dag að yfirlýsingar stjórnvalda frá því í haust, þess efnis að innstæður í íslensku bönkunum séu tryggðar til fulls, séu í fullu gildi þar til annað verður boðað. Fyrr eða síðar munu þær hins vegar koma til endurskoðunar, og óvíst hvort þær verði tryggðar umfram það sem tryggingasjóður ábyrgist.

Steingrímur benti á að hafa beri í huga að yfirlýsingar stjórnvalda frá því í október hefðu verið sökum tímabundinna og sérstakra aðstæðna í þjóðfélaginu. Fyrr eða síðar muni fyrirkomulagið þó koma til endurskoðunar til framtíðar.

Magnús Helgi Björgvinsson, 1.8.2009 kl. 13:35

10 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

"Bretar og Hollendingar fá helming af eignum bankans til þess að standa straum af því sem þeir ákváðu að greiða umfram 20 þús evrurnar. Við fáum helminginn til að standa straum af 20 þús per reikning.

Sumir spyrja af hverju við fáum ekki allar eignirnar til þess að greiða skyldugreiðslunar, 20 þús evrur, en umframgreiðslur Breta og Hollendinga eru á ábyrgð þeirra sjálfra því að tilskipun 94/19 áskilur einungis þessar 20 þús. og hafði þessar þjóðir viljað greiða meira þá er það einfaldlega mál þeirra sjálfra."

Siggi, þetta er hugsanavilla.  Þessi villa er í rauninni partur af ástæðunni að svona er komið fyrir íslandi. Þetta endalausa: Ég ég ég - og ekki hugsuð hálf hugsun til enda.  Ekki hugsað útfyrir nefbroddinn á sér.

Bretar höfðu td. ""Top up" tryggingu.  Það er, líklega  sú upphæð sem Eva nefnir.

Þesskonar trygging er nákvæmlega sama eðlis og trygging sú sem íslenski sjóðurinn tryggði.  Tryggð upphæð.

Nú that said,  þá er augljóslega ekki hægt að veita einum tryggingarsjóði forgang umfram annan sjóð.  Það heldur engu vatni og er klárlega brot á Evrópureglum.  Klárlega.

Það að ísland bar ábyrgð á fyrstu 20.000 evrunum kemur forgangi í eignir málinu ekkert við.   Ísland getur ekkert valið sér bara hvaða lög og reglur gilda !

Svona eru öll atriðin sem komið er með gegn þessum blessaða samningi.  Falla við fyrstu lágmarksskoðun og er mikil furða að Hr. Hall skuli koma fram með svona óathugað mál.

Annars skýrir Indriði Þorláks þetta miklu betur út.

http://dagskra.ruv.is/ras1/4463046/2009/07/29/1

Ómar Bjarki Kristjánsson, 1.8.2009 kl. 18:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Af mbl.is

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband