Leita í fréttum mbl.is

Líst ágætlega á að InDefence einbeiti sér að baráttu fyrir málstað Íslendinga

Eftir allt hrunið er það einmitt þetta sem InDefence á að einbeita sér að:

Um þessar mundir segir Ólafur samtökin einbeiti sér meira af því að kynna málstað Íslendinga erlendis með greinaskrifum og öðru. „Nú þurfum að fylgja þessu eftir með málflutningi, það er það sem við setjum mest púður í,“ segir hann og kveður um fimmtíu sjálfboðaliða koma að þeirri vinnu.

Því þetta er einmitt það sem við þurfum. Annað í þessari frétt hljómar eins og InDefence sé eitthvað afl sem geti ráði hvað Alþingi og stjórnvöldi gera. T.d. finnst manni þetta hljóma furðulega:

Hann segir að málið verði skoðað ofan í kjölinn og borið undir hagfræðinga og lögfræðinga, hér á landi og erlendis.

InDefence mun að sögn Ólafs taka afstöðu til frumvarpsins í núverandi mynd þegar það hafi verið gaumgæft í bak og fyrir.

Þeir geta náttúrulega skoðað málið aftur á bak og áfram en samt sem áður eru þeir bara hópur manna sem hefur skoðun á málinu. Það er meirihluti Alþingis sem er búinn að taka ákvörðun og nú er þetta í höndum Alþingis og stjórnvalda.

Þeim veitir samt ekki af stuðuningi við málið og Íslandi veitir ekkert af því að rétta álit annarra á okkur erlendis. Því vona ég að InDefence einbeit sér að því.

P.s. bendi fólki á stórmerkilega grein Jóns Baldvins um icesave á pressan.is

Þar svarar hann grein Sigurðar Líndal og tekur ábyrgð okkar vegna icesave ágætlega fyrir.


mbl.is InDefence mun gaumgæfa málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

InDefence er ekki bara "einhver hópur", heldur öflug samtök sem hafa oftast reynst hafa miklu meiri samhljóm með skoðunum þjóðarinnar en ríkisstjórninni hefur nokkurntíma tekist.

Og afsakaðu mig meðan ég æli yfir því sem evrópumaðurinn Jón Baldvin kallar lagalega túlkun á ábyrgð Íslands. Hann blandar saman íslenska ríkinu og sjálfseignarstofnuninni Tryggingasjóði Innstæðueigenda án þess að gera greinarmun á því að þetta er tveir aðskildir lögaðilar. Auk þess voru það stjórnendur Landsbankans sem báru ábyrgð á starfsemi hans, hafi þeir gerst brotlegir var það ekki íslenskum yfirvöldum að kenna þó þau hafi vissulega klúðrað eftirlitinu. Annars væri það eins og að segja að lögreglan sé ábyrg fyrir því þegar einhver fer yfir á rauðu ljósi.

Guðmundur Ásgeirsson, 16.8.2009 kl. 01:45

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sorry ég fór eftir upplýsingum af síðunni þeirra þar sem stendur undir tengil sem heitir "Um okkur"

Um okkur

Markmið þessarar vefsíðu er að auka gagnkvæman skilning á milli þjóða Brelands og Íslands á þessum erfiðu tímum efnahagskreppu. Síðunni var hleypt í loftið 20. október 2008 af hópi Íslendinga sem hafa búið og lært á Bretlandseyjum og hafa áhyggjur af því hvernig breska ríkisstjórnin og fjölmiðlar hafa fjallað um íslenska þjóð á undanförnum vikum.

Fulltrúar hópsins eru:

  • Guðmundur Auðunsson
  • Eiríkur Bergmann
  • Ólafur Elíasson
  • Elsa Herjólfsdóttir
  • Sigmundur Gunnlaugsson
  • Sigurdur Hannesson
  • Agnar Helgason
  • Snorri Kristjánsson
  • Magnús Árni Skúlason
  • Sigurður Darri Skúlason
  • Gísli Pálsson
  • Anna Rún Atladóttir
  • Sigríður Helga Hauksdóttir
  • Torfi Þórhallsson
  • Guðrún Edda Þórhannesdóttir
  • Davíð Pitt
  • Kolbeinn Stefánsson
  • Margrét Helga Ögmundsdóttir
  • Sigurjón Oddsson
  • Þóra Kristín Þórsdóttir
  • Aino Freyja Jarvela
  • Anna Pálsdóttir
  • Ása Ólafsdóttir
  • Bergþór Ólason
  • Andri Thorstensen
  • Völundur Jónsson

Athugið

Ofangreindir einstaklingar bera ábyrgð á ávarpi því sem kemur fram á þessari vefsíðu, en bera enga ábyrgð á athugasemdum sem aðrir setja inn á þessa vefsíðu. Við áskiljum okkur rétt til að eyða sérhverri athugasemd sem telst óviðeigandi.

Magnús Helgi Björgvinsson, 16.8.2009 kl. 02:15

3 identicon

Heill og sæll Magnús

Ég heiti Ólafur Elíasson og er meðlimur í hinum svokallaða indefence hópi.  Það er alveg hárrétt hjá þér að þetta kom eitthvað einkennilega út þarna á mbl.is. Blaðamaðurinn spurði mig bara um álit okkar á fyrirvörunum sem liggja nú fyrir. Okkar starf að undanförnu hefur fyrst og fremst snúist um það að fá icesave samninginn og fylgiskjöl hans upp á yfirborðið og stuðla að málefnanlegri og upplýstri umræðu um þetta mál sem snertir okkur öll. Okkar hlutverk er því auðvitað fyrst og fremst að taka þátt í málefnalegri umfjöllun um málið en að öðru leyti eigum við ekki aðild að störfum þingsins þótt það hafi leitað leitað til okkar um álit.Við höfum þó líklega haft einhver áhrif á framvindu mála þar sem ekki má gleyma því að áður en við fórum að taka þátt í umræðunni stóð ekki einu sinni til að sýna þingmönnum okkar samninginn heldur átti bara að skrifa undir. Við höfum einnig lagt á það áherslu að verja hagsmuni íslands með því að kynna sjónarmið íslendinga í erlendum fjölmiðlum.Ef þú vilt fá hugmynd um starf okkar á þeim vettvangi hvet ég þig til að líta á eftrifarandi greinasafn í erlendum fjölmiðlum sem má að miklum hluta rekja til okkar baráttu: http://indefence.is/Greinar-og-hlekkir Kær kveðja. 

Ólafur Elíasson

Ólafur Elíasson (IP-tala skráð) 16.8.2009 kl. 02:38

4 identicon

Ekki veitir af að einhver taki upp varnir fyrir okkur erlendis. Ekki hafa stjórnvöld gert það og allra síst heilög Jóhanna.

Sigurður (IP-tala skráð) 16.8.2009 kl. 10:06

5 identicon

Mér finnst Indefence hópurinn búinn að standa sig alveg frábærlega og ég man bara vel þegar samningurinn var samþykktur af ríkisstjórninni og engir alþingismenn áttu að fá að sjá hann hvernig þessi hópur greip inn í.

 Núna bíð ég eftir áliti þessa hóps um nýju fyrirvarana því ég trúi því og það hefur ekkert sýnt mér annað en að þessi hópur sé að vernda hagsmuni Íslands og ég treysti þeim annað en stjórnmálaflokkunum og fólkinu sem stjórnar landinu. 

Flott starf - Áfram Indefence -) Áfram Ísland

Auðbjörg (IP-tala skráð) 16.8.2009 kl. 11:12

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég vil þakka Ólafi Elíassyni fyrir skýringarnar. Ég kaup þær alveg. Ég er einn af þeim sem skrifaði mig á listann þeirra í haust og fannst og finnst það rétt hjá þeim að við megum vera duglegri að kynna málstað okkar erlendis. Ég hinsvegar hef deilt á þá skoðun þeirra að við eigum ekkert að borga eins og þeir kynntu lengi vel. Og eins hef ég deilt á málflutning þeirra gagnvart þeim sem unnu að samningum fyrir okkur. Fannst þeir ekki hafa rétt á að gera jafn lítið úr samninganefnd, sérfræðingum sem unnum með þeim sem og starfsfólki ráðuneyta. Eins hef ég deilt á það sem þeir kynntu í upphafi að það ætti bara fella samninginn. En það má samþykkja það að þeir hafa átt þátt í að kalla fram ýmsar upplýsingar sem við hefðum kannski ekki í dag ef ekki væri fyrir þá

Finnst að þeir sem vel tengdur hópur eigi að halda áfram að vinna málstað okkar fylgi erlendis sem ætti kannski að byggjast á því að fá ESB í framtíðinni til að koma meira inn í þetta mál og styðja við bakið á okkur í framtíðinni til að komast fyrr út úr kreppunni. T.d. með stuðning við krónuna sem á móti tryggir að við eigum meiri möguleika á að standa við skuldbindingar okkar.

Magnús Helgi Björgvinsson, 16.8.2009 kl. 12:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband