Leita í fréttum mbl.is

Hverju á maður svo að trúa

Það væri nú gaman að vita hverjir það voru sem gáfu Dv þessar upplýsingar. Því nú kemur fram hjá Landsbanka að ekki verði um neinra afskriftir að ræða fyrr en gengið hafi verið að öllum veðum. Sbr.

n eru þau lán sem um ræðir með tryggum veðum?

„Það var ég ekki að segja, það á eftir að koma í ljós en ég gef ekki upp um hversu háar fjárhæðir er að ræða eða hvernig þau veð sem liggja að baki lánunum er háttað eða hversu mikið Skilanefndin fær fyrir veðin. Það á allt eftir að koma í ljós. Skilanefndin leggur mikla vinnu á sig til þess að ná eins miklum verðmætum út úr þeim eignum og kröfum sem Skilanefndin hefur til meðferðar. Ég get fullyrt það," segir Páll.

Er Magnús í persónulegri ábyrgð fyrir þeim lánum sem hann fékk hjá Landsbankanum?

„Hann er í persónulegri ábyrgð fyrir sumum lánum en ekki öðrum eins og gengur og gerist. Félög í hans eigu voru til að mynda sett sem veð fyrir ákveðnum lánum," segir Páll en hann vildi ekki tjá sig frekar um upphæðir þeirra lána sem um ræðir né hversu góð veðin væru fyrir lánunum.

„Það er einfaldlega verið að vinna í þessum málum og verið að leysa þau vandamál sem við stöndum frammi fyrir, hvort sem það sé varðandi lán til Magnúsar eða annarra en ég fullyrði að engin lán hafa verið afskrifuð eða koma til með að vera afskrifuð fyrr en gengið hefur verið að veðum viðkomandi lántaka í hverju tilfelli fyrir sig," segir Páll að lokum.

DV verður að muna að hér er ástandið eins og í púðurtunnu og því nauðsynlegt að hafa þetta á hreinu.

Annars kom mér á óvart sem ég heyrði í dag. Að þessi Magnús er búinn að kaupa m.a. Dominos og fullt af fyrirtækjum. M.a. Sólningu og svo í kjölfarið nær annað hvort  dekkjaverkstæði. Og hin er N1 búinna ð kaupa. Hvað vakri eiginlega fyrir þeim nema að með þessu geta þeir okrað á okkur þar sem þeir væntanleg flytja inn dekkinn, selja þau og sjá um að setja þau undir. Og með því að kaupa gróin verkstæði þá treysta bílstjórar þeim og þeirra mati. Og hafa því lítið val.

Þarna er kannski skýrasta dæmið um hvernig arðinum af kvótanum er ráðstafað í brask. Og notað til að reyna að komast í markaðsráðandi stöðu.


mbl.is Gamli Landsbankinn afskrifar skuldir Magnúsar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað kallast það annað en afskriftir þegar gengið er að þeim verðlausu eignum sem settar voru sem veð á meðan viðkomandi fær að halda öllu sem einhvers virði er, eins og kvóta, útgerð, dekkjaverkstæðum og bílaumboði?

Sigurður E. Vilhelmsson (IP-tala skráð) 18.8.2009 kl. 15:25

2 identicon

Mér finnst skína í gegn að veðin dugi engan vegin fyrir skuldunum og hann persónulega ábyrgur fyrir mjög litlu.  Sem þýðir væntanlega að lokum verður stór hluti afskrifaður og hann heldur enn þeim eignum sem voru ekki veðsettar fyrir þessum skuldum.  Nú veit maður ekki hvort kvótinn hafði verið lagður undir eða bara verðlaus hlutabréf.

Það á að taka kvótann af þeim aðilum sem þurfa á niðurfellingu skulda að halda.  Annað er ekki sanngjarnt.

Fiskinum er nákvæmlega sama hver veiðir hann. Mér hins vegar ekki.

ASE (IP-tala skráð) 18.8.2009 kl. 15:42

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Málið er kannsi að DV kynnir þetta sem afskrifir sem búið er að semja um en skv. bankanum ekki búið að semja um þær. Og ef að þetta er t.d. Toyota þá eru skuldir væntanlega á Toyota sem hlýtur þá að vera veð í fyrirtækinu - eða hvað? Og eins með Dominos, Sólningu og fleira. Maður verður að gera ráð fyrir því a.m.k. að eftir lætinn í dag fari þessi skilanefnd varlega í sakirnar.

Magnús Helgi Björgvinsson, 18.8.2009 kl. 15:49

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Nú hefur komið fram í DV (áðan) að ekki væri búið að taka ákvörðun um afskriftir. En þær eru í farvatninu.

Finnur Bárðarson, 18.8.2009 kl. 16:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband