Leita í fréttum mbl.is

Höskuldur margsaga

Hér í síðustuviku er þetta haft eftir Höskuldi:

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokks, segir að Per Olaf Lundteigen, þingmaður norska Miðflokksins, hafi umboð formanns flokksins til að leggja til að norska ríkið veiti Íslendingum aðgang að allt að 2000 milljarða króna lánsfé.

Og nú segir hann:

„Jóhanna ætti að kynna sér málið áður en hún fer af stað og sendir bréf til Noregs um hvort Norðmenn séu tilbúnir að lána Íslendingum 2000 milljarða. Við höfum aldrei farið fram á slíka upphæð og því augljóst hvert svarið við slíkri spurningu yrði,“ sagði Höskuldur.

Svo ég held að Höskuldur gerði best í þvi að halda nú bara kjafti smá stund. 


mbl.is Mun ekki biðjast afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Allur málflutningur þingmanna Framsóknaflokksins síðustu vikur og mánuði er ekki EINU SINNI þeim samboðinn. 

Nú er nóg komið, það er ekki hægt að bjóða okkur Íslendingum upp á meira af þessu rugli.  Þó hafi ekki mikla trú á Framsókn almennt, þá bara trúi ég ekki öðru en að almennir félagsmenn séu líka búnir að fá nóg af þeim "félögum" og vonandi skipta þeim út hið snarasta.  Því meira að segja Framsóknarflokkurinn á þessa "snillinga" ekki skilið - og þá er nú mikið sagt!!!!

ASE (IP-tala skráð) 10.10.2009 kl. 15:54

2 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Getur verið að þú skiljir ekki venjulegt mannamál Magnús ? 

Skilurðu ekki að Per Olaf Lundteigen sagðist hafa umboð síns flokks að leggja til, að Norðmenn veittu okkur lán að jafnvirði allt að 2000 milljarða ? Höskuldur segist ekki hafa farið fram á þessa upphæð og hefur líklega ekki nefnt neina ákveðna upphæð.

Raunar skilst mér að Jóhanna hafi aukið í og talað um 2500 milljarða, svo að öruggt væri að svarið yrði neitandi. Er ekki undarlegt að meðhöndla jafn stórt mál með þeim hætti sem Jóhanna gerir ?

Er ekki eðlilegt að ríkisstjórn Norvegs og þing fjalli um neyðarhjálp frá vinaþjóð ? Bara meðhöndlunin á þessu máli, hefur sannfært Íslendinga að Jóhanna er vanhæf.

Þjóðin bíður eftir tölvupóstum Jóhönnu, ekki bara til Norvegs heldur til annara þjóða sem beðnar hafa verið að lána okkur EKKI.  Frammararnir eiga mikinn heiður skilinn, fyrir að galopna málið. Nú blæs um Jóhönnu. Nú gengur ekki lengur að halda blekkingum að landsmönnum. Upp á borð með tölvupóstana.

 

Loftur Altice Þorsteinsson, 10.10.2009 kl. 16:38

3 identicon

Að þetta séu 2000 milljarðar 1000 eða 3000 skiptir engu.  Meginmálið er það að Samfylkingin hefur engan áhuga á láni frá Norðmönnum.  Esb hraðlestin með Icesave króann í farangrinum er hennar eina mál..  Ofsatrú fylkingarinnar á þessu er orðin þjóðinni hættuleg.  ESB er reyndar að líkum brandari aldarinnar því samstarfsflokkurinni vinnur öllum árum á móti og þó svo einhver samningur verði lagður fyrir þjóðaratkv.greiðslu að þá kolfellur hann, það vita allur.  Þetta er því bara peningaaustur í boði Samfylkingarinnar.  Burt með svona vonlausa stjórnmálamenn sem eru í Samf. með örfáum undantekningum.

ÞJ (IP-tala skráð) 10.10.2009 kl. 16:40

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Loftur Höskuldur kom hingað frá Noregi í síðustu viku og með það að Norðmenn væru tilbúnir að lána okkur 2000 milljarða það þyrfti aðeins að biðja um það. Það fór ekki á milli mála. Síðar kom það í ljós að það voru hugmyndir þessa þingmanns sem hann var að kynna. Og jú einhverjir þingmenn eru tilbúnir að skoða það úr Norska meirihlutanum. Það er svona svipað og Guðbjartur færi til Grænlands og lofaði þeim 100 milljörðum.

Höskuldur kynnti þetta sem möguleika fyrir viku en segir nú að hann hafi aldrei nefnt upphæðir. Hvaðan heldur þú að þetta sé komið þá Loftur.

Og held að það gildir sama með ykkur sjálfstæðismenn Loftur! Ykkur færi betur að halda nú aðeins kjafti. Eydduð öllu sumrinu í að setja inn fyrirvara við IceSave ábyrgðir en gátuð svo ekki staðið að þeim. Og nú hrópið þið um að ekki eigi að kvika frá þeim. Frekar að láta allt draslið falla í innistæðutryggingarsjóð sem þar með yrði gjaldþrota. IceSave þar með komið í innheimtu og allar innistæður í bönkum hér ótryggðar þar sem innistæðutryggingarsjóður væri gjaldþrota. Eignir Lífeyrissjóða erlendis yrðu væntanlega fastar ef þær væru ekki gerðar upptækar. Allar greiðslur milli landa yrðu í hættu.

En þið ætlið að halda þessum sandkassaleik ykkar áfram og helst að loka Íslandi endanlega varðandi samskipti við önnur lönd. En ykkur væri það að skapi að vera háð Noregi næstu áratugina. Og þurfa að fylgja þeim á öllum sviðum.

Magnús Helgi Björgvinsson, 10.10.2009 kl. 17:23

5 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Eitthvað hefur skolast til hjá þér Magnús, en ekki er það undarlegt í ljósi þess að átrúnaðar-goð þitt Jóhanna er að gera sín stærstu mistök. Allir vita að Höskuldur sagði einungis frá því, að Senterpartiet væri reiðubúið að lána okkur allt að jafnvirði 2000 milljarða Króna. Það var meira að segja sjónvarpsviðtal sýnt hér heima við Per Olaf Lundteigen, sem staðfesti það sem Höskuldur hafði sagt. Það er hallærislegt að snúa út úr augljósu máli.

 

Skilyrðin sem Alþingi setti við ábyrgð á Icesave-samningnum var gott mál, miðað við engin skilyrði eins og Jóhanna ætlaði að þvinga í gegn. Ég hefði heldst viljað fella samninginn úr gildi. Það var VG sem knúði á um skilyrðin, þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafi hjálpað til við lagagerðina. Síðan voru það einungis stjórnarþingmenn sem greiddu skilyrðunum atkvæði. Hefði stjórnarandstaðan átt að greiða lagafrumvarpi atkvæði sitt, þótt hún væru alfarið á móti ? Ég átta mig ekki á svona hugrenningum.

 

Skylt er skeggið hökunni, þegar þú ferð að hóta hörmungum í anda Jóhönnu. Ef Tryggingasjóðurinn verður gjaldþrota, þá stofnum við bara annan tryggingasjóð. Það er gert ráð fyrir svona aðstæðum í Tilskipun 94/19/EB. Þú hefur ekkert fyrir þér um að eignir lífeyrissjóða erlendis verði gerðar upptækar, eða greiðslur milli landa verði í hættu. Þetta er hreint bull, sem er jafnvel ekki samboðið ykkur Sossunum.

 

Fremur vil ég vera háður Norðmönnum, en Evrópusambandinu. Þitt val er auðvitað augljóst !

 

Loftur Altice Þorsteinsson, 10.10.2009 kl. 18:28

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Veit ekki hvernig maður á að skilja svona skilaboð eins og höfð voru eftir Höskuldi:

Hann segir málið ekki hafa fengið framgang innan norsku ríkisstjórnarinnar vegna þess að Sósíalíski vinstriflokkurinn og Verkamannaflokkurinn beri því við að ekki hafi borist formleg beiðni frá Íslendingum. Þetta gjörbreyti stöðu Íslendinga í deilunni við Breta og Hollendinga um Icesave.

„Stjórnvöld og Samfylkingin hafa iðulega lýst því yfir að ef við samþykkjum ekki að borga Icesave þá fáum við ekki lánið frá Norðurlöndunum," segir Höskuldur. „Það má eiginlega segja að það sé eini rökstuðningurinn fyrir því að við eigum að taka á okkur þessar drápsklyfjar skulda."

Ég get ekki skilið þetta örðuvísi en svo að við þurfum bara að sækja um lánið og þá verði það afgreitt

Magnús Helgi Björgvinsson, 10.10.2009 kl. 18:57

8 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Þetta er ekki svo torskilið Magnús. Lestu það bara nokkrum sinnum.

Loftur Altice Þorsteinsson, 10.10.2009 kl. 20:11

9 identicon

´hehe rúst.

R (IP-tala skráð) 10.10.2009 kl. 20:43

10 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það er mikil óskhyggja og rangfærsla sem kemur fram hér í komentum að Jóhanna sé vanhæf.

Magnús, það er ekki bara Höskuldur sem talar í hringi, það gerið SDG líka og hefur raunar gert frá því hann tók við formennskunni. Þeir og aðrir Framsóknarmenn eru náttúrlega í sama liði og Íhaldið við að rangæfa hlutina og rægja ríkisstjórnina. Þar er ekki varið að hugsa um hag hins almenna borgar sem er bara vinnulið. Það er fyrst og fremst hagur þeirra sem skipa klíkurnar á bak við þessa flokka sem eru í einni bendu í krosseignatengslum sem starfsmenn Sérstaks saksóknara sitja nú sveittir við að rekja út um allan heim

Hólmfríður Bjarnadóttir, 10.10.2009 kl. 23:00

11 Smámynd: Dexter Morgan

Fáráðlega að þessu staðið af hálfu forsætisráðherra

Jóhann er með öllu vanhæf Hólmfríður, meðan hún tekur ESB fram yfir Íslenska þjóð. En þetta skiljið þið samfylkingarfólk ekki. Rúllið bara áfram í blindni yfir ESB inngöngu. Minnir orðið á hollustu Sjálfstæðismanna hér á árum áður.

Dexter Morgan, 11.10.2009 kl. 00:06

12 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Jóhanna hefur nú ekki svo ég hafi séð tekið ESB fram fyrir eitt né neitt. Þó við hefðum ekki sótt um aðild að ESB værum við í sömu vandræðum með IceSave. Svo það væri gaman að menn hættu að bulla svona. Þú veist Dexter að við erum búin að skuldbinda okkur til að greiða Icesave. Svo vinnsamlegast hættu að bulla hér. Og ég hef traustar heimildir fyrir því að Dexter tali ekki íslensku þannig að þú ert að villa á þér heimildir og því ekkert mark tekið á þér hér.

Magnús Helgi Björgvinsson, 11.10.2009 kl. 01:37

13 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Magnús, það er verst að þú skulir ekki fylgjast betur með. Jóhanna hefur lagt allt að veði, svo að hægt verði að koma landinu inn í ESB. Það er umsóknin um ESB sem veldur öllum okkar vandræðum, því að án hennar hefði Icesave verið hafnað fyrir löngu.

 

Íslendsk þjóð hefur ekki skuldbundið sig að greiða Icesave. Þvert á móti hefur þjóðin ítrekað sagt í skoðanakönnunum, að hún ætlar ekki að borga. Alþingi skuld-batt bara sjálft sig og það með skilyrðum, sem ullu því að Bretar og Hollendingar hafa ógilt Icesave-samninginn.

 

Við ætlum ekki að greiða Icesave !

 

Loftur Altice Þorsteinsson, 11.10.2009 kl. 05:20

14 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Loftur ríkisstjórnin hefur skuldbundið þjóðina að taka ábyrgð á innistæðutryggingu vegna Icesave marg oft.

Samkomulag milli Hollands og Íslands um IceSave
11.10.2008

Að loknum uppbyggilegum viðræðum hafa hollensk og íslensk stjórnvöld náð samkomulagi um lausn mála hollenskra eigenda innstæðna á IceSave-reikningum Landsbankans.

Fjármálaráðherra Hollands, Wouter J. Bos, og fjármálaráðherra Íslands, Árni M. Mathiesen, tilkynntu þetta.

Ráðherrarnir fagna því að lausn hafi fundist á málinu. Wouter J. Bos kvaðst einkum ánægður með að staða hollenskra innstæðueigenda væri nú skýr. Árni M. Mathiesen bætti við að aðalatriðið væri að málið væri nú leyst.

Samkomulagið kveður á um að íslenska ríkið muni bæta hverjum og einum hollenskum innstæðueiganda innstæður að hámarksfjárhæð 20.887 evrur. Hollenska ríkisstjórnin mun veita Íslandi lán til að standa undir þessum greiðslum og hollenski seðlabankinn mun annast afgreiðslu krafna innstæðueigendanna.

Reykjavík 11. október 2008

Yfirlýsing forsætisráðherra
8.10.2008

Ríkisstjórn Íslands metur mikils að bresk stjórnvöld hyggjast tryggja að eigendur Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi muni ekki tapa peningum á viðskiptum við Icesave.

Ríkisstjórnir landanna meta nú stöðuna og leita að viðunandi lausn fyrir alla aðila.

Með breytingu á lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta eru innstæður gerðar að forgangskröfum ef kemur til skiptameðferðar. Góðar líkur eru á að eignir Landsbankans muni standa undir stærstum hluta innstæðna á Icesave-reikningum Landsbankans í Bretlandi.

Ríkisstjórnin ítrekar að ríkissjóður mun styðja Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta við öflun nægjanlegs fjár.

Ríkisstjórn Íslands er staðráðin í að láta ekki núverandi stöðu á fjármálamörkuðum skyggja á áralanga vináttu Íslands og Bretlands.

Reykjavík 8. október 2008

Tilkynning frá forsætisráðuneytinu
13.11.2008

Að gefnu tilefni er rétt að taka það fram að íslensk stjórnvöld hafa engar áætlanir uppi um að falla frá áformum um að tryggja innstæður á bankareikningum hérlendis. Orðrómur um að íslensk stjórnvöld muni gefa þessi áform eftir í samningum við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn er rangur. Innstæðueigendur þurfa ekki að óttast um fjármuni sína sem geymdir eru á bankareikningum innlánsstofnana hérlendis. Í þeim efnum hefur ekkert breyst frá því að þessu var fyrst lýst yfir af hálfu ríkisstjórnarinnar.

Reykjavík 13. nóvember 2008

Samkomulag næst við Evrópusambandið fyrir hönd Hollendinga og Breta - Greiðir fyrir láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF)
16.11.2008

Mikilvægur áfangi hefur náðst til lausnar deilunnar um innstæðutryggingar vegna íslenskra bankaútibúa á Evrópska efnahagssvæðinu og stöðu sparifjáreigenda í þeim. Viðræður Íslands við nokkur Evrópusambandsríki, sem komust á fyrir tilstilli Frakklands sem nú fer með formennsku í Evrópusambandinu, leiddu til samkomulags um viðmið sem lögð verða til grundvallar frekari samningaviðræðum.

Samkomulagið felur í sér að íslensk stjórnvöld ábyrgjast lágmarkstryggingu þá sem EES-reglur mæla fyrir um til innstæðueigenda í útibúum bankanna erlendis. Endanlegur kostnaður ríkissjóðs vegna þessa mun ráðast af því hvað greiðist upp í innstæðutryggingar af eignum bankanna. Einnig er kveðið á um að Evrópusambandið, undir forystu Frakklands, taki áframhaldandi þátt í að finna lausnir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármálakerfi og efnahag.

Aðilar eru ásáttir um að hraða fjárhagslegri aðstoð við Ísland, þar með talið samþykkt lánafyrir­greiðslu sem beðið hefur samþykktar stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) undanfarnar vikur. Erindi Íslands hjá IMF verður tekið til afgreiðslu hjá sjóðnum miðvikudaginn 19. nóvember.

Umsamin viðmið

Ríkisstjórn Íslands hefur átt viðræðufundi með stofnunum Evrópusambandsins og hlutaðeigandi aðildarríkjum þess um skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að því er tekur til tilskipunar um innstæðutryggingar 94/19/EB. Aðilar komu sér saman um að tilskipunin um innstæðutryggingar hafi verið felld inn í lög­gjöf­ina um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við samninginn um Evrópska efnahags­svæð­ið og gildi því á Íslandi með sama hætti og hún gildir í aðildarríkjum Evrópusambandsins.
Viðurkenning allra aðila á þessari lagalegu stöðu greiðir fyrir skjótri niðurstöðu samninga­viðræðna þeirra sem nú standa yfir um fjárhagsaðstoð við Ísland, þ.m.t. við Alþjóða­gjald­eyris­sjóðinn. Þessar samningaviðræður skulu fara fram með samhæfðum og samræmdum hætti og skal þar tekið tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland er í og knýjandi nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt.

Stofnanir Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins munu taka áframhaldandi þátt í þessu ferli sem fer fram í samráði við þær.

Reykjavík 16. nóvember 2008

Magnús Helgi Björgvinsson, 11.10.2009 kl. 11:40

15 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Magnús, samkvæmt Tilskipun 94/19/EB megum við ekki greiða og öll minnisblöð um annað eru því ógild.

  • Að auki var okkur stillt upp við aftökuvegginn og allir samningar sem þannig eru þvingaðir fram, eru ógildir.
  • Að auki eru engar fjárskuldbindingar löglegar fyrr en hún hefur verið samþykkt af Alþingi.
  • Að auki hef ég sjálfur skrifað upp á minnisblað þar sem ég lofa fyrir mína hönd og allra afkomenda Ingólfs Arnarsonar, að greiða ekki Icesave.

Við ætlum ekki að greiða Icesave !

Loftur Altice Þorsteinsson, 11.10.2009 kl. 12:03

16 Smámynd: Gunnar Þór Sigbjörnsson

Eigum við ekki að spara stóru orðin og sjá hvernig þetta fer,  en fari svo að þeir félagar séu að opna samskipti við Norðmenn og fari svo að þetta endi þannig að Ísendingar geti fengið lánalínu frá Noregi óháð AGS og óháð Icesave   þá vona ég að Samfylkingin og allir hennar pennar hér í bloggheimum biðjist afsökunar á ummælum sínum.

Er rót vandans ekki að finna í ótímabærri umsókn að ESB ,,,erum við ekki að sjá núna að Samfylkingin verður að verja umsóknina með öllum ráðum og er það ekki skýringin á þvi að menn halda dauðahaldi ´AGS þvi þar á bæ stendur ekki til að afgr neitt fyrr en deilum um Icesave líkur og við vitum hvað þarf til þess að ljúka þeim en það er að lúta vilja Breta og Hollendinga og  bakka frá fyrirvörunum. Þetta er einnig að þvælast fyrir umsókninni og því er  Það   ekki óskastaða fyrir Samfylkingu að Framsókn sé að taka að sér utanríkismálin hér í landi og kanna aðrar leiðir fyrir okkur íslendinga.    því er ljóst að árás á þessa vinnu framsóknar er pólitísk nauðvörn.  Eigum við bara ekki  óska eftir þvi að samskipti Jóhönnu við Noreg verði gerð opinber líkt og símtal Árna Matt og Darling .

Gunnar Þór Sigbjörnsson, 11.10.2009 kl. 12:22

17 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bendi þér á að norðmenn sem og aðrar Norðurlandaþjóðir hafa fyrir löngu skilyrt aðstoð sína við lausn á Icesave og tengist því að þær eiga væntanlega banka út um allan heim og hræðast áhlaup á þá ef að við kæmumst upp með að bera ekki ábyrgð á  innistæðum í Íslenskum bönkum sem eru með útibú í öðrum löndum. Bendi þér á þetta bréf sem stjórnvöld allra Norðurlanda létu fylgja með lánsloforðum http://www.island.is/media/frettir/55.pdf

Eins bendi ég á að ef við ætlum að breyta einhverju hér til frambúðar eins og gjaldmiðli, samstarfi við Evrópu þá er eins gott að byrja strax því við erum að tala um ferli sem tekur langan tíma. Þannig að frestun er bara framlenging á núverandi stöðu.

Sem og að langtímahorfur okkar mundu breytast verulega við inngöngu í ESB. T.d. eru líkur á að vöruverð mundi læka hér strax þegar að kvótar á innflutning hér mundu falla niður. Og þar með mundi verðbólga hrapa niður.

Magnús Helgi Björgvinsson, 11.10.2009 kl. 13:05

18 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Magnús er iðinn við að birta pappíra sem lítið hafa með málið að gera. Ég bendi honum frekar á að lesa Símaskrána.

 

Núna vísar hann á minnisblað sem embættismenn á Norðurlöndunum sendu til einhvers Sigurðsson, sem líklega er Íslendskur embættismaður.

 

Þarna eru tilgrein atriði sem að þeirra mati þurfa að vera uppfyllt, áður en til kemur: “next IMF review of Iceland’s IMF-programme”

 

Hvaða máli skiptir þetta minnisblað, Magnús ?

 

Loftur Altice Þorsteinsson, 11.10.2009 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband