Leita í fréttum mbl.is

Jæja öll þessi læti og margra mánaða þref og allt út af 75 milljörðum eftir 7 ár

Jæja nú geta menn væntanlega að geta andskotast til að ganga frá þessu fljótt. Líkur á að eignir Landsbankans dugi fyrir um 90% af Icesave. Held að menn sem hafa verið að tala um 1000 milljarða ættu nú að fara að biðja fólk afsökunar um leið og þeir biðja það sem hafa unnið í skilanefnd Landsbankans og NBI afsökunar fyrir allar ávirðingarnar. Eins á Indriði Þorláksson og Svavar Gestsson skilið að fólk biðji þá afsökunar. Indriði talaði um að niðurstaðan væri líkleg til að verða svona en menn sögðu hann ljúga.

Allt bendir til þess að níutíu prósent fáist upp í Icesave skuldbindingar Íslands miðað við uppgjör milli gamla og nýja bankans sem gert var um helgina. Um 75 milljarðar króna falla þá á íslensku þjóðina auk vaxta

Þór Saari og fleiri skulda ýmsum afsökunarbeiðni fyrir öll stóru orðin sem hann hefur látið falla í þeirra garð.


mbl.is 90% upp í forgangskröfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Gleymdi að bæta við Sigmundi Davíð, Höskuldi, Indefence hópnum og fleirum . Allt sem þeir hafa sagt er hér með bull!

Magnús Helgi Björgvinsson, 12.10.2009 kl. 18:47

2 Smámynd: Fannar frá Rifi

"Miðað við samninginn og það eignamat sem stuðst sé við megi gera ráð fyrir að tæplega 90% fáist upp í forgangskröfur að óbreyttu"

 hvaða eignarmat er það? að eignir baugs séu einhvers virði? að FL group og Sterling muni borga af lánum sínum? 

ef þetta eru svo miklar eignir þá geta Bretar og Hollendingar hirt Landsbankann.  afhverju vilja þeir það ekki? svarið er að þetta eru ofmetnar eignir. þetta er síðasta Sápúkúlan Magnús.

Fannar frá Rifi, 12.10.2009 kl. 19:00

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Magnús, ef rétt reynist að þetta verði raunverulegar tölur um uppgjör Landsbankans og þar með Icesaveuppgjörsins, þá þurfa allir sem hafa komið að Icesave málinu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar að biðja íslenskan almenning afsökunar - ekki öfugt!

Kolbrún Hilmars, 12.10.2009 kl. 19:06

4 Smámynd: Sigurður E. Vilhelmsson

Steingrímur og félagar semja við skilanefndina um eitthvað verðmat (sem margir sérfræðingar hafa reyndar sagt að ekki sé hægt að gera fyrr en eftir nokkur ár). Út frá því verðmati ætla menn svo að áætla hvað fáist upp í restina af eignum Landsbankans.

Ef þetta er ekki sápukúla, þá veit ég ekki hvað.

Sigurður E. Vilhelmsson, 12.10.2009 kl. 19:09

5 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

þetta hefur verið mat manna dáldið lengi eins og bent er á.  Sumir hafa viljað vera varkárari eins og gengur.

En er eitthvað minnst á icesave í moggagreininni ?

Ómar Bjarki Kristjánsson, 12.10.2009 kl. 19:10

6 identicon

sigurður og Fannar,



    T.d. Fannar, hann fær það einhvern veginn út að út af því að Bretar og Hollendingar vilji ekki taka þetta beint á sig þá sé það vísbending um að eignasafnið sé drasl. Mér finnst þetta ansi hentugt fyrir þig að líta þannig á máið  Málið er að það hefur ræst ansi mikið úr hlutunum á erlendum bönkum síðan hrunið var á Íslandi. Brennt barn forðast eldinn. Finnst þér það ekki líklegri skýring á því að Bretar treysta ekki Íslendingum, og sækja því málið af hörku. 

   Ef við þurfum bara að borga 200 milljarða, þá er það ótrúleg heppni, en 75, eru menn ekki að djóka

    Samt fyndið að fylgjast með fólki á blogginu, og sjá hvað það er á lágu plani. Sjálfstæðimenn og Framsóknarmenn tala bara um Icesave, en gleyma algjörlega að þeir hönnuðu kerfið, og þeirra klúður 

Jóhannes (IP-tala skráð) 12.10.2009 kl. 19:37

7 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

"Sjálfstæðimenn og Framsóknarmenn tala bara um Icesave"

Það er allt með vilja gert sjáðu til.  Hugmyndin er eldgömul.  Eitt elsta trikkið í sögunni.

Með þessu beina þeir athygli almúgans útávið - frá sjálfum sér, afglöpum og óreiðumennsku - útá við að "óvini" sem hægt er að sameinast um.  Og ekki nóg með það.  Nei sjallar eru svo lákúrulegir að þeir setja dæmið upp í própganda sínu eins og pólitískir andstæðingar innanlands séu að vinna með "óvininum"

Framkoma sjalla sumra er einfaldlega fáheyrð í pólitískri sögu vestanverðrar evrópu.  Eg er ekki að segja að allir sjallar séu þessu marki brendir en þeta er línan sem varð ofaná núna uppá síðkastið.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 12.10.2009 kl. 20:03

8 Smámynd: Fannar frá Rifi

heimskreppan er ekki búinn. að halda því fram er blekking. það er rétt lognmolla í dag eftir gríðarleg ríkisútgjöld vestrænna ríkja. Alþjóðabankinn stendur frammi gjaldþroti nema hann fái aukin útgjöld, sem þýðir að einhverstaðar þarf að prenta peninga. Prentun á peningum virkaði mjög vel hjá Weimar lýðveldinu við að greiða skuldir.

varðandi eignir Landsbankans. ef þetta eru svona góðar eignir, afhverju er listi yfir þær þá ekki birtur? nú því þá geta sjálfstæðir aðilar borið mat á þær og þá munu allir sjá að þetta er verðlaust drasl. 

hvernig eru heimturnar hjá t.d. Nýja Íslandsbanka úr sjóðunum sem ríkið lét bankann kaupa af Glitni? um Landsbankann veit engin neitt. það er bara hennt fram einhverjum þægilegum bjartsýnum tölum um að allt reddist og sé gott og fínnt. engar sannanir fyrir orðunum eru til staðar. 

þetta er uppblásin ríkissápúkúla sem mun springa framan í þjóðina sem 1000 milljarða skuld og mun fara hækkandi með hverjum mánuðinum vegna vaxtana. þeir einir munu sliga okkur. 

þangað til að eignarsafn Landsbankans hefur verið birt ýtarlega, þá eru allt tal um "góðar eignir" bull og kjaftæði.

Fannar frá Rifi, 12.10.2009 kl. 21:15

9 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Þetta var sagt af fleirum en Indriða H. Man eftir færslu frá Vilhjálmi Þorsteinssyni fljótlega eftir að ICESAVE fárið byrjaði og svo sagði Sigurjón Árnason eitthvað svipað á sama tíma. Þetta var allt afgreitt sem bull og hræðsluáróðurinn hélt áfram. Hvað sem segja má um SÁ er líklegt að hann kunni að reikna. Í guðana bænum elskurnar mína á Alþingi, klárið þetta mál og svo vil ég biðja þjóðina að nefna þetta ekki í langan langan tíma, plíssss.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 12.10.2009 kl. 22:56

10 identicon

Í seinna stríðinu var áróðusmeistari Hitlers Gobbels. Þannig er að þetta er Göbbelsfræði.

Sigurður Haraldsson (IP-tala skráð) 12.10.2009 kl. 23:42

11 identicon

Skemmtilegt hvað það er búið að leiðrétta fréttina án þess að taka það fram. Talið um ICESAVE er búið að taka úr fréttinni, enda þótti mér það eitthvað furðulegt.

Gunnar Þór Tómasson (IP-tala skráð) 13.10.2009 kl. 01:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband