Leita í fréttum mbl.is

Já Bjarni eins og við vorum dugleg að hjálpa þeim í sinni kreppu!

Mönnum væri kannski nær að skoða hvernig við höfum staðið okkur í að hjálpa öðrum! Það hefur komið upp kreppa hjá öllum þessum norðurlandaþjóðum nema Dönum af því þeir voru í ESB.

Buðum við þeim aðstoð á þeim tíma? Held ekki! Hér grenja margir yfri þeim milljónum sem við notum í þróunaraðstoð. En svo kvarta menn yfir að aðrir skuli setja skilyrði fyrir að aðstoða okkur með lánsfél

Og eins þá hafa þessar þjóðir bent á að helsta hjálp sem við þurftum var að einhverjir aðstoðuðu okkur að komast út úr þeirri vitleysu sem við vorum komin í. Hvað hefðu menn gert ef við hefðum fengið þessi lán öll skilyrðislaust. Menn hefðu farið í að heimta hér óbreytt ástand og notað lánin til að fjármagna það.

Og það er ómögulegt að þingmenn héðan fari um heiminn og helli sér yfir þjóðir sem þó eru að hjálpa okkur núna. Hann er sennilega búin að gleyma að það voru Svíar sem fengu önnur norðurlönd til að koma með að þessum lánapakka til okkar.


mbl.is Ísland stóð eitt í hvirfilbylnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Reynir Jóhannesson

Þannig að þér finnst sem sagt allt í lagi að Norðurlöndin tóku þátt í misnota Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og þar með kúga Ísland í Icesave málinu?

Þessi lán frá þeim í gegnum AGS skipta okkur engu máli ef við verðum látin samþykkja Icesave pakkann eins og Jóhanna og Steingrímur leggja hann fram nú á dögum.

Reynir Jóhannesson, 27.10.2009 kl. 17:02

2 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Þvílíkt bull í stráknum honum Bjarna.

Maður bara: Æ æ Bjarni !

Ómar Bjarki Kristjánsson, 27.10.2009 kl. 17:11

3 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

hjálpuðum við þeim ekki í seinni styrjöldinni ?

Jón Snæbjörnsson, 27.10.2009 kl. 17:14

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Já var það ekki Jón. Hjálpuðum við Svíum og Finnum þá? Held ekki!

Magnús Helgi Björgvinsson, 27.10.2009 kl. 17:17

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Norðurlöndin tóku ekki þátt í að misnota AGS. Þau sömdu við okkur um að lána okkur í tengslum við AGS áætlun. Í áætlun okkar og AGS var liður sem sagði að við skuldbundum okkur til að leysa Icesave. Skil ekki hvað er verið að kenna einhverjum öðrum um það. Við samþykktum að ganga frá þessu á fyrstu mánuðu áætlunarinnar sem við löguðum fyrir AGS. Það er svo allt annað mál að stjórn AGS er náttúrulega skipuð fulltrúum Breta og Hollendinga sem hefðu fellt að mál okkar væri tekið fyrir án þess að þessi mál væru frágengin.

Minni menn líka á að a.m.k. Svíar, Finnar og Danir þurfa að taka lán til að geta lánað okkur. Þeir eiga ekki peniga á lager. Og hverjir hefðu lánað hingað ef að lánin hefðu kannski með dómi um icesave, farið beint til Breta og Hollendinga?

Magnús Helgi Björgvinsson, 27.10.2009 kl. 17:33

6 identicon

Mér finnst þetta flott hjá honum! Hann sagði bara það sem meirihluti Íslendinga hugsar. Allt í lagi að leyfa Norðurlandabúum að heyra það. Svíar hafa verið verstir og mér finnst nánast hjákátlegt í þessu sambandi að heyra þetta lið tala um samstöðu Norðurlandaþjóðanna.  Svíar sögðu að þeir myndu ekki afgreiða lán til okkar nema eftir stefnu AGS  - ókey  - en .... þeir hefðu nú kannski aðeins getað látið AGS heyra það hve ósanngjarnt það er að AGS gangi hreinlega erinda Breta og Hollendinga í svona máli.

Skil ekki í þér Magnús hvernig þú getur aldrei nokkurn tímann tekið undir málflutning í þágu Íslendinga en ert tilbúinn að tala máli flestra annarra þjóða! Þú ert fyrst Íslendingur -  svo samfylkingarmaður.

Soffía (IP-tala skráð) 27.10.2009 kl. 17:52

7 Smámynd: Haraldur Huginn Guðmundsson

Hvaða sjónarmið eru þetta?það má ekki styggja þessa Svía svo við getum fengið nýja höfuðborg Brussel.Ég varð ekki var við að við settum stein í götu Svía í þeirra kreppu.

Haraldur Huginn Guðmundsson, 27.10.2009 kl. 17:55

8 Smámynd: Ár & síð

Svo ekki sé nú minnst á Verslunarráð Íslands (sem er eins og það leggur sig í flokki Bjarna og stýrir honum beint og óbeint). Þar sögðu menn að við ættum enga samleið með öðrum norrænum ríkjum því við værum komin svo langt fram úr þeim í tærri snilld!
Matthías

Ár & síð, 27.10.2009 kl. 17:58

9 identicon

Hjartanlega sammála þér.  Ekki hitt neinn Íslending sem einu sinni vissi af kreppunni í Finnlandi á tíunda áratug síðustu aldar, hvað þá gerði eða vildi gera eitthvað til að aðstoða þá.

ASE (IP-tala skráð) 27.10.2009 kl. 17:59

10 Smámynd: Reynir Jóhannesson

Það er einmitt málið, góður punktur Haraldur!

Reynir Jóhannesson, 27.10.2009 kl. 17:59

11 Smámynd: Reynir Jóhannesson

Þegar Bretar og Hollendingar nota AGS sem innheimtustofnun án þess að Norðurlöndin gera athugasemd við það... hvernig eigum við Íslendingar að mótmæla slíku ofbeldi? Geta Samfylkingarmenn útskýrt það? Að mínu mati dugar ekki að "nefna það" á nokkrum fundum og í nokkrum stuttum greinum. Það þarf að gera meira.

Óþolandi hvernig kratar nota einhverja óvild í garð Sjálfstæðisflokksins til að ná málum í gegn á hraðferð og með skelfilegum afleiðingum. Þegar öll mistökin koma svo á yfirborðið, hver er þá útskýringin? Jú að þetta sé allt leifar af stjórnartíð Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna.

Ef þeir sem sitja í stjórn í dag hafa engan áhuga á að vinna fyrir hönd Íslendinga og axla ábyrgð á gjörðum sínum... þá er ekkert sem kemur í veg fyrir að þau segi af sér embætti.

Reynir Jóhannesson, 27.10.2009 kl. 18:10

12 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Auðvitað hefur kreppan í hinum norðurlöndunum verið Sjálfstæðisflokknum að kenna.

Ragnar Gunnlaugsson, 27.10.2009 kl. 18:18

13 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Við erum allavegana sammála því að Bjarni stóð sig vel og stendur sig vel - nú og svo kann hann útlensku sem sumir kunna ekki - þykir kostur víða að geta talað málefnalega

árfam svo strákar - upp með baráttuna - áfram Ísland

Jón Snæbjörnsson, 27.10.2009 kl. 20:11

14 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Í rauninni er þessi undrun íslendinga og steinhissun á að IMF aðstoðin þ.m.t. lán frá n-löndum sé tengt því að landið standi við skuldbindingar sínar varðandi innstæðutryggingar, algjörlega óskiljanleg.  Gjörsamlega óskiljanleg.

Það hefur bara legið fyrir í eitt ár að svo væri.  Aðeins.

það kemur tandurskýrt fram í samkomulaginu sem gert var við IMF í fyrra og signerað og vottað fram og til baka af Sjöllum.

Síðan líður tíminn.  Haa ?  þurfum við að standa við skuldbindingar okkar ?  Steinhissa.

Atriði sem legið hefur fyrir allstaðar frá byrjun.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 27.10.2009 kl. 23:44

15 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

ps. en varðandi það að Bjarni tali útlensku - þá segist hann hérna vera að tala "gammel norsk" - og fer svo að tala íslensku ! 

http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4498134/2009/10/27/2

Meina, þessir menn bara skandalisera þarna úti og eru íslendingum til stórskammar. 

Nú,  Framsóknarmenn enn einu sinni með norska ofurlánið.  

Held að Johanna standi sig einna best.  Held það.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 28.10.2009 kl. 00:16

16 Smámynd: Jón

Ómar, Jóhanna er bráðum komin í sama ógeðispott og sjálfstæðismenn hjá mér. Hún er að ríða endurbót íslands í kaf með þessa blessuðu ESB bólu sem er föst á bakinu á henni. Hún hefur ekki meirihluta landsins á bakvið sig og nú verður öllum brögðum beitt til að reyna að plata almúginn í að velja ESB.

 Og þú talar um að ísland þurfi að standa við skuldbindingar sínar, það sem var lofað IMF var að málið yrði afgreitt, því hefur verið afgreitt fram og tilbaka, hægri og vinstri og loksins þegar við vorum komin með lausn sem var í raun sanngjörn fyrir alla aðila og einnig passaði að ef að dómstóll dæmdi okkur í hag þá myndi lánin falla niður. Þegar þessi lausn var loksins komin þá var henni auðvitað neitað og eins og áður héldu Bretar, Hollendingar, þjóðir ESB og IMF að þrýsta á okkur að bara taka á okkur þessa skuld. Það er ekkert samkomulag, það er einelti og kúgun og fjandinn hafi það ef að ÍSLENDINGUR fer til útlanda og skammar okkar "vini" fyrir að standa ekki á bakvið okkur og hjálpa, þá er það bara helvíti gott og fínt sama hver sá maður er. Ekki sé ég þig fara þangað út eftir og talar okkar máli þannig að ég myndi aðeins fara hægar í sakirnar.

Jón, 28.10.2009 kl. 02:46

17 Smámynd: Jón

smá leiðrétting: *þá myndi skuldin falla niður*

Jón, 28.10.2009 kl. 02:47

18 identicon

"Það hefur komið upp kreppa hjá öllum þessum norðurlandaþjóðum nema Dönum af því þeir voru í ESB."

Sorrí kallinn en þetta er mesta bull sem að ég hef lesið.   Fasteignamarkaðurinn tók dýfu, matvöruverð hækkaði og hér er bullandi atvinnuleysi sem ekki sér fyrir endan á.  Það getur vel verið að það hefði farið verr ef danir væru ekki í ESB, ég hef ekki hugmynd um það.  En það er Noregur sem hefur komið best norðurlandanna út úr þessu......og hananú.

ólidanski (IP-tala skráð) 28.10.2009 kl. 07:45

19 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Jón, nei.  Málið var nefnilega ekki afgreitt - og ekki búið enn !

Hvað gerðist ?  Jú, einhverjir rugludallar á þingi upphófu ýmsar hundakúnsti og fíflagang.  Eitthvað á þá leið að "við ætlum  etv. kannski en bara þá hugsanlega að standa vð alþjóðlegar skuldbindingar landsins"

En hann Bjarni flokksformaðurþinn má eiga það að hann er andsk. serkur í "gammel norsk"  Hahahaha "gammel norsk"

Er hann líka svona fær í "gammel dansk" ??

Ómar Bjarki Kristjánsson, 28.10.2009 kl. 13:07

20 Smámynd: Jón

Það var bara engan veginn þannig og þú veist það vel. Land á stærð við okkar getur ekki borið byrðina af því að hafa skuld á bakinu sem er nokkur hundruð 100% af vergri landsframleiðslu. Spurðu bara allt fólkið í landinu sem er að fara á hausinn vegna afborgana sem eru langt fyrir ofan greiðslugetu þess. Því sem var búið að samþykkja amk. gerði þá ráð fyrir að ef þessi lán væru að draga okkur á bólakaf þá á endanum myndu þau hverfa svo við myndum jú ná að anda einhvern tímann.

Ég er hins vegar á móti icesave með öllu og vil ekki samþykkja né skuldbinda okkur við neitt þar sem það hefur ekkert enn verið dæmt í þessu máli og þetta er bara fásinna. Ef að dómstóll dæmir gegn okkur þá getum við skrifað undir þessa pappíra segi ég.

Svo veit ég ekkert hvað þú ert að blaðra um gammel norsk og gammel dansk en ég er enginn flokksbróðir sjálfsstæðismanna og held að það muni aldrei gerast fyrr eða síðar og mér líkar mjög illa við það að þú dragir einhverja bullályktun útúr loftinu og kallir hann Bjarna flokksformanninn minn.

Jón, 29.10.2009 kl. 07:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband