Leita í fréttum mbl.is

Þessi samtök LÍÚ eru gjörsamlega óþolandi!

Finnst það með ólíkindum hvað þessum samtökum er leyft að varað hér uppi. Það er alveg sama hvað ákveðið er að gera eða reynt nýtt, alltaf láta þeir eins og verði sé að slíta úr þeim hjartað. Eins þá er með öllu óþolandi að þessir menn hafi einkaaðgang að fiskveiðum hér án þess að þeir greiði eigendum auðlinarinar krónu í gjald fyrir það. En geta að sama skapi selt öðurm aðgang að sömu auðlind.
mbl.is Misheppnaðar strandveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Natan Kolbeinsson

eru þeirr ekki að gera það sama og Así og allt það berjast fyri því sem er best fyrir fólkið.

Natan Kolbeinsson, 30.10.2009 kl. 17:50

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þeir eru ríki í ríkinu. Heimta og heimta með frekju eins og þú segir gersamlega óþolandi.

Finnur Bárðarson, 30.10.2009 kl. 17:55

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bíddu Natan er ekki viss um að mótmæli þeirra við að opna kerfið eins og með strandveiðum séu að gera neitt fyrir fólkið. Eins áróður gegn ESB sem helgast held ég helst á því að þeir vilja hafa hér krónur til að geta fellt gengið þegar þeim henta. Eins að hingað komi erlendir aðilar inn í greinina til þess að þurfa ekki að hagræða meira. Þeir vilja geta setið einir að kvótanum til að setja í veð fyrir fjárfestingum í óskildum greinum og braski.

Magnús Helgi Björgvinsson, 30.10.2009 kl. 18:02

4 Smámynd: Sigurður Helgason

magnús  þú ert ekki sanngjarn,

 Þeir þurfa að borga af lánunum úr óráðsíunni sem ekki var feld niður,

þeir áttu skuldabréf í bönkum, og búnir að senda svo mikið út af peningum að þeir eru blankir, við getum alveg borgað fyrir þá líka,

þú getur rétt ímyndað þér þyrlan farinn og allt, hvernig heldurðu að aumingja mönnunum líði.

Sigurður Helgason, 30.10.2009 kl. 18:10

5 Smámynd: Andrés Kristjánsson

Þeir eru eins og bandarísku rifla samtökin. Óþolandi

Andrés Kristjánsson, 30.10.2009 kl. 18:10

6 identicon

að sjálfsögðu sköpuðu strandveiðarnar ekki neina sátt um fisveiðistjórnunarkerfið- LIU er á móti þeim, enda sjálfsagt sama hvað hefði verið gert,veiðistangir á bryggjunum hefði flokkast sem innrás í FISKINN ÞEIRRA. og að sjálfsögðu fer gungan í sjávarútvegsráðuneytinu eftir þessum skilaboðum.

zappa (IP-tala skráð) 30.10.2009 kl. 18:19

7 identicon

Enn og aftur hjartanlega sammála

ASE (IP-tala skráð) 30.10.2009 kl. 18:32

8 identicon

Ekki er ólíklegt að eitthvað þurfi að endurskoða strandveiðikerfið. Flestir eru sammála því að það er ekki gallalaust en því fer fjarri að það hafi verið ómögulegt. En eins og fram hefur komið eru kvótakóngarnir á móti öllu sem er ekki runnið undan þeirra rifjum.

Það er nú aldeildis búið að hlaða undir botninn á þeim í gegnum tíðina. Þeir þurftu meðal annars nauðsynlega að fá að veðsetja óveiddan afla til að geta tekið lán til að hagræða í rekstri. Í ljós hefur komið að í það minnsta helmingur útgerðarmanna tóku lán út á kvótann og keyptu þeir hlutabréf í jafnvel í alls ótengdum rekstri í stað þess að hagræða. En að sjálfsögðu voru margir sem nýttu féð skynsamlega og keypu kvóta o.fl.

Já það er greinilegt að þeir vita alveg hvernig á að reka fyrirtæki, allavega þegar þeir geta látið hið opinbera bakka sig upp, svona þegar stykkin eru farin að kíkja upp um aftanvert hálsmálið.

Guðmundur (IP-tala skráð) 30.10.2009 kl. 19:35

9 identicon

Strandveiðarnar stuðluðu ekki að nýliðun, ekki að bættri aflameðferð, ekki að bættu öryggi sjómanna og stuðluðu alls ekki að sátt um fiskveiðistjórnina," segir í ályktun aðalfundarins, sem leggur til að strandveiðar verði ekki heimilaðar áfram.

Svona hljóðar seinni hluti greinarinnar á mbl og ályktun LíÚ, þessi rök eiga öll rétt á sér miðað við hvernig strandveiðarnar voru framkvæmdar í ár, þó er ég ekki að segja að ég sé alfarið á móti þeim, en þegar afli sem bátur má koma með í land á degi hverjum er takmarkaður eins og gert var í ár leiðir það til þess að sjómenn hirða einungis besta og verðmesta fiskin, henda hinu til baka, enda bara að hugsa um sína eigin hagsmuni, þetta er gott dæmi um það hvernig aflameðferð versnar við strandveiðar. Einnig er það nokkuð ljóst að öryggi sjómanna versnaði til muna með tilkomu strandveiðanna, þegar bátar sem að ekki höfðu verið notaðir í áraraðir sigldu aftur til sjós, margir hverjir í frekar slæmu ástandi, man einhver annars hvað það voru mörg útköll hjá björgunarsveitunum vegna aflvana strandveiðabáta. Og auðvitað verður engin sátt um fiskveiðistjórnina þegar einhverjir fá gefins kvóta á meðan hinir sem að eytt hafa milljörðum í kvótakaup og skuldsett sig, fjölskyldur sínar og fyrirtækin sín til margra ára hafa kvótann sinn tekinn til baka, út af misheppnuðum aðgerðum ríkistjórnar sem að mestu leiti virðist ekki hafa hugmynd um stöðu flestra útgerðarfélaga í landinu, auðvitað verður engin sátt um fiskveiðistjórnunina þegar mönnum er mismunað svona. Að mínu mati er það eina sem hægt hefði verið að gera til að bæta kvótkerfið á sínum tíma hefði verið að taka framseljanleika kvótans af, og láta þau fyrirtæki eða einstaklinga sem missa hann frá sér í gjaldþroti eða einfaldlega vegna þess að þau eru að hætta skila honum til baka til ríkisins sem myndi svo LEIGJA hann út til sjómanna eða útgerðarfélaga í stuttan tíma (1-5 ár) á einhverju stöðluðu verði. Mætti þá jafnvel skipta honum leigukvótanum upp milli landshluta og skipta honum svo á milli umsækjenda með tilliti til skipakosts, aflaheimilda í þeira eigu og svo fyrri veiða.

Sæþór (IP-tala skráð) 30.10.2009 kl. 20:47

10 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það er nú ekki undarlegt þó okkur finnist þeir vaða uppi ótæpilega. Þeir eiga nú greiða leið að okkur í gegnum moggann, sem þeir "keyptu" og svo éta fíflin á ríkisfjölmiðlunum upp þvaðrið.....

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 30.10.2009 kl. 20:49

11 identicon

Innkalla kvótann strax. Koma á sóknarkerfi eins og í Færeyjum. Bjóða út leyfin á Evrópska efnahagssvæðinu, eins og ríkinu er í raun skylt skv. þeim samningi, þegar það er búið að taka veiðileyfin til sín. Þá verða Þorsteinn Már og hvað þeir heita þessir kvótakóngar að borga upp skuldirnar sínar. Fólkið í landinu fær þá leigutekjur af veiðileyfunum, hver svo sem veiðir fiskinn. Þá fer fiskurinn ferskur á markað erlendis og gefur pening. Það er ekki það sem gefur best í kassann fyrir okkur að láta pólsku þrælana kvótakónganna eyðileggja hráefnið með því að "vinna það innanlands".

naggur (IP-tala skráð) 30.10.2009 kl. 21:06

12 identicon

smá umhugsunarefni til Sæþórs-nú er búið að margsanna að fiskur sem veiddur er á króka og sleppur eða er hent á mesta möguleika á að lifa af,meir en lensportin á togurunum eftir að vera búin að veltast um í móttökunni,og ef menn hafa fjárfest í kvóta fyrir "milljarða" fara þeir varla að birtast með hratið á markað,aðeins verðmesta fiskinn sem getur staðið undir verðinu sem greitt var fyrir sameignina,og menn fá nú ekki að draga hvaða sexæring sem er á flot þó kerfið heiti strandveiðar,þú færð nefnilega ekki haffærnarskirteini nema með blessun skipaskoðunar,síðan þarftu að uppfylla kröfur fiskistofu og annarra um að allt sé í lagi svo í guðannabænum kynntu þér málin áður en þú kemur með fróðleikinn beint frá liu í umræðuna.

zappa (IP-tala skráð) 30.10.2009 kl. 21:25

13 identicon

naggur ...

Ég ætla rétt að vona að þetta sé spaug hjá þér.
Að gefa kvótann frá okkur til €vrópu$ambandsins er það sama og að myrða alla sjómannastéttina á landinu.

Jón Ingi (IP-tala skráð) 30.10.2009 kl. 21:25

14 identicon

Mogginn, LÍÚ, Spillingarflokkurinn og Framsóknarspillingin eru vardhundar perversismans sem grefur undan efnahag og sidferdi thjódarinnar.

Kvótakerfid er krabbamein.  Kvótakerfid er rán.  Kvótakerfid er hrein spilling. 

Their sem verja thetta kerfi eru ómerkingar.

Gummi (IP-tala skráð) 30.10.2009 kl. 22:20

15 identicon

Rétt hjá Hafsteini.  Mogginn var "keyptur" af thessu gengi.  Ríkisfjölmidlar eiga ad átta sig á thví ad allt sem kemur frá Mogganum er hrein áródur sér og forréttinda.  Ad ímynda sér í eina sekúndu ad eitthvad thjódfélagslega uppbyggjandi komi frá áródurssneplinum sem Mogginn er í dag er firra.

Gummi (IP-tala skráð) 30.10.2009 kl. 22:30

16 identicon

Ég efast ekki um það að fiskur sem að veiddur er á króka og er hent eða sleppur á meiri möguleika á því að lifa af heldur en ef togari hefði veitt þá, en það var ekki það sem ég átti við, þegar bátar mega aðeins landa 800 kg af fiski en eru búnir að veiða jafnvel tvöfalt það þá velja þeir einfaldlega besta fiskinn úr, þegar um svona fáa fiska er að ræða þá er auðvelt og hagkvæmt fyrir einn mann að fara vel í gegnum aflann og flokka frá, þetta er ekki valkostur á stærri skipum eins og s.s. togurum þar er því einungis allra versti fiskurinn flokkaður frá og því það hlutfall sem fer aftur í sjóinn mun lægra. Ég stend enn þá við það að margir af bátunum sem tóku þátt í strandveiðunum í ár hafi ekki verið í nógu góðu ástandi til þess, jafnvel þó að báturinn hafi þótt haffær, þetta sanna hin fjölmörgu tilfelli aflvana strandveiðabáta.

Sæþór (IP-tala skráð) 30.10.2009 kl. 23:05

17 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

LÍÚ klíkan brínir klærna sem mest hún má og meira segja Jóni Bjarnasyni er nóg boðið. Hann talar um að láta skoða leigumarkaðinn þeirra og fær auðviðað bágt fyrir það. Innköllum kvótans er nauðsynjamál og ég persónulega hef ekki trú að fjölskyldur fari á höfuðið í stórum stíl. Það er borðleggjandi að breyta þarf rekstri margra útgerðarfyrirtækja og trúlega að fella eitthvað af lánasúpunni niður. En á móti kemur að tekjur ríkissjóðs og þjóðarbúsins munu aukast vegna leigugjalds. Að mínu álit er brýnt að far í frjálsar tilraunaveiðar í rannsóknarskyni í 6 til 9 mánuði á sömu forsendum og gert var nýlega í Barentshafi. Þar voru veiðiheimildir auknar um ca 70% í kjölfarið og það munar um minna.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 30.10.2009 kl. 23:17

18 identicon

Jájá. Þetta er fróðleg skrif hér á undan. Strandveiðar stuðluðu ekki að betri fiskmeðferð það er alveg augljóst. Auðvitað hugsa sjómennirnir nákvæmlega eins og krakkarnir í nammilandi í Hagkaup: Velja besta nammið og sleppa hinu. Hver kemur með verðlítinn undirmálsfisk að landi ef hann getur komið með stóran verðmikinn fisk? Brottkastið varð ekkert minna hjá strandveiðikörlunum, auðvitað ekki. Að sjálfsögðu komu þeir bara með rjómann í land. Ná sem flestum krónum útúr hverju kílói. Öryggi strandveiðisjómanna tjahh, jújú báturinn verður að vera með gilt haffærnisskirteini. Skoðunarmaðurinn kemur um borð og skoðar, ef skipið stenst kröfur hans á meðan heimsókninni stendur fær hann haffærni. Í sumar heyrði maður ótal oft um það að þessi og hin björgunarsveitin hafi verið að draga til hafnar vélarvana trillukarla á strandveiðum. Jú eitt varð að vera skilda að allir hefði STK-tæki sem er sjálfvirk tilkynningarskylda, s.s. sendir boð um staðsetningu til Rvk-Radíó í Skógarhlíðinni. Þetta tæki kostar einhverja hundraðþúsundkalla. Svolítil kaldhæðni því í sumar heyrði ég svo að því að STK-tækin eru að verða úreld og nýja græjan AIS er að riðja sér til rúms. Það tæki á að taka gildi á næsta ári að mig minnir. Hva? afhverju var ekki sett strax skilyrði um AIS búnaðinn í tryllurnar ? Var þetta smá trix til að losna við lagerinn af STK-tækjunum ? En þetta var smá útúrdúr. Hvað kvótakerfið varðar þá, finnst mér ekkert svo alvitlaust að haga kerfinu þannig að þú fáir úthlutaðan kvóta miðað við x-mörg ár aftur í tímann í aflagetu. Og það verði 100% veiðiskilda. Segjum að frystitogari getur verið að taka allt upp í 1000tonn af bolfiski á mánuði. Hann er samtals úti í 11 mánuði á ári. þá fær hann úthlutað 11.000tonn. Ef skipið hefur veitt 11.000 tonn áður en kvótaárinu lýkur getur það leigt sér smá skammt í viðbót og myndi þá koma nokkur prósent af því í úthlutunina næsta ár. Svo á t.d. 4 ára fresti yrði farið yfir aflatölur skipsins ef það gæti fiskað þessa sem er verið að úthluta þá skilast afgangurinn aftur inn í heildarpottinn hjá ríkinu. Og þessum heildarafla verði skipt í tegundir samkvæmt fyrri aflatölum. Það þarf að stokka verulega upp í kvótakerfinu og fella út allar mögulegar krókaleiðir. Einfaldar reglur eru bestu reglurnar. Það er erfiðara að snúa á þær. En þetta með kvótakerfið eru bara vangaveltur og hugmyndir í kollinum á mér. Kannski eru þessar vangaveltur gjörsamlega gangslausar. En það á auðvitað eftir að fínesera ýmsa vankanta. Kerfið yrði sniðið til að tryggja góða fiskmeðferð og tryggt hæsta mögulega verð fyrir hvert kíló sem kemur að landi. Og að allir sem sem viðkæmu fiskveiðum hefðu hag af því að koma hverju kílói sem kemur inn fyrir skipið að landi.

Birkir Ingason (IP-tala skráð) 30.10.2009 kl. 23:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband