Leita í fréttum mbl.is

Bara svona vangaveltur! Hver borgar fyrir þessa sendinefnd?

Ég ætla að vona að LÍÚ og fleiri samtök séu ekki að styrkja þessa ferð. Því að þarna fara þingmenn þjóðarinnar nokkrir. Og þeir mega ekki stöðu sinnar vegna fara á slíkan fund ef það er í boði hagsmunaaðila. En skv. www.heimsyn.is er þetta:

Ásmundur Einar Daðason alþingismaður og formaður Heimssýnar
Vigdís Hausdóttir alþingismaður
Unnur Brá Konráðsdóttir alþingismaður
Kolbrún Halldórsdóttir fv. umhverfisráðherra
Reynir Jóhannesson starfsmaður Heimssýnar og félagi í SUS
Páll Vilhjálmsson blaðamaður
Ragnar Ólafsson sálfræðingur
Guðjón Ebbi Guðjónsson frá ungum framsóknarmönnum
Brynja Björg Halldórsdóttir fv. formaður Ungra vinstri grænna

Þetta er ferðakostnaður upp á meira en milljón


mbl.is ESB óttist að vera hafnað af Íslendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Þessi ferð er í boði Norðmanna, og kosta þeir hana í einu og öllu.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 28.11.2009 kl. 13:40

2 Smámynd: Egill Helgi Lárusson

Langar þig ekki að velta því fyrir þér hver borgar fyrir þingmenn og ráðherra sem fara á fundi í ESB?

Egill Helgi Lárusson, 28.11.2009 kl. 13:47

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ekki ef þeir fara í opinberum erindum. Þá veit ég það.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.11.2009 kl. 14:01

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það gildir allt annað ef að þingmenn fara í boði einhvers hagsmunaaðila! En þar sem Alþingi er búið að ákveða umsókn að ESB þá er eðlilegt að þingmenn vinni að því

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.11.2009 kl. 14:02

5 Smámynd: Víðir Benediktsson

Sem sagt, ef Alþingi hefði ákveðið að sækja ekki um aðild, þá hefði mátt taka þátt í kostnaði við þetta. Held annars að það eigi að henda þessu í þjóðaratkvæðagreislu strax og afgreiða þetta út af borðinu svo þessir draumórar Samfylkingarinnar (sem þjóðin vill ekki) séu ekki að trufla dagleg störf Alþingis.

Víðir Benediktsson, 28.11.2009 kl. 14:11

6 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Magnús það sem málið snýst líka um er að það var bara einn flokkur sem vildi inn í ESB, hinir hlutu kosningu meðal annars fyrir að vilja ekki inn í ESB. Meiri hluti þjóðarinnar hefur aldrei viljað inn í ESB.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 28.11.2009 kl. 14:13

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ha Ingibjörg? Það voru  Þingmenn innan framsóknar a.m.k. 2 og Borgarahreyfingarinnar 1 og hinir voru á móti til að þrýsta á Icesave. Líka innan Sjálfstæðisflokksins og meirihluti Vg.

Framsókn, Samfylking, Sjálfstæðisflokkur svona óljóst og Borgarahreyfingin töluðu öll um að sækja ætti um aðild að ESB. Og sumir bættu við að síðan væri það þjóðarinnar að meta þann samning sem fyrir hana yrði lagður.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.11.2009 kl. 14:21

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Víðir mer er alveg sama þó menn fari og hitti skoðanabræður sína um allan heim. En ef það hefði verið í boði t.d. bændasamtakana og Líú þá hefði mer ekki fundist við hæfi að það væru Alþingismenn. Sbr umræður um styrki til stjórnmálaflokka og alþingismanna. Og hættu svo að snúa út úr því sem ég er að segja.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.11.2009 kl. 14:23

9 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það sem ég var að meina er t.d. að Heimsýn hefði örugglega gert athugsemd ef að Alþingismenn færu á fund ESB sinna í Noregi í boði Samtaka Iðnaðarins.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.11.2009 kl. 14:25

10 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

En skv. Ingibjörgu hér að ofan er þetta í boði NEI sinna í Noregi og þá geri ég ekki athugasemdir við þetta

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.11.2009 kl. 14:27

11 identicon

Heimsýn notar stuðningspeninganna og það er í góðu lagi.Ég er stolt af þeim að far þarna út og hitta NEI sinna.

Sigurbjörg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 28.11.2009 kl. 14:39

12 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Íslensk hafa lofað að styrkja hagsmunasamtök vegna aðildarumsóknar að ESB, bæði þau sem eru með (eins og Evrópusamtökin) og á móti (eins og Heimssýn). Þess vegna væri akúrat ekkert athugavert við það að þessi ferð væri að einhverju leyti á kostnað íslenska ríkisins þó að svo sé reyndar ekki í þessu tilviki. Fylgismenn aðildar fá hinsvegar fullt af styrkjum frá Brüssel til að fjármagna sína hagsmunabaráttu, væri ekki nær að gera athugasemd við það ójafnvægi sem í því felst?

Guðmundur Ásgeirsson, 28.11.2009 kl. 14:51

13 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

"Íslensk stjórnvöld hafa lofað...." átti auðvitað að standa þarna fyrir ofan.

Guðmundur Ásgeirsson, 28.11.2009 kl. 14:52

14 Smámynd: Sigurjón

Skál Maggi!

Sigurjón, 28.11.2009 kl. 15:04

15 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Já það er allt í lagi Guðmundur. En í þeim tilfellum er það ríkið sem styrkir það: Ég var að tala um ef að fyrirtæki eða hóur hagsmunaaðila sé að styrkja Alþingismenn til ferða. En ég ítreka að einhver hér að ofan upplýsti það að svo er ekki í þessu tilfelli. En ef að ríkið styrki t.d. bæði Evrópusamtökin og Heimssýn til að kynna málið þá er það í lagi nema að viðkomandi þingmenn séu að ákveða sjálfir upphæðir.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.11.2009 kl. 15:06

16 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sigurjón ég fer að hafa áhyggjur af þér. Ég held að þetta endi með því að þú færð bjór á heilann. En ég nenni ekki enn að skipta um mynd. En ætti kannski að setja viðvörun á síðuna að hún kunni að valda fólki áfengisfíkn.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.11.2009 kl. 15:13

17 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég er sammála Guðmundi Ásgeirssyni

Axel Jóhann Hallgrímsson, 28.11.2009 kl. 15:32

18 Smámynd: Sigurjón

Maggi minn, eins og ég hef áður sagt, hef ég engar áhyggjur af þér og tek þessari mynd af þér ekki sem svo að þú sért einhver drykkjusjúklingur og þaðan af síður að það komi mér eitthvað við.  Auk þess höfum við áður talað um að ég hafi bara gaman af lífinu og tilverunni og finnst gaman að skála við menn hingað og þangað.

Það vill svo til að ég er í fríi og er búinn að drekka nokkra bjóra á undanförnum dögum.  Ég hef bara gaman af svona umræðum og vil endilega færa þetta upp á æðra plan, eins og Laxness sagði...

Því endurtek ég: Skál!

Sigurjón, 28.11.2009 kl. 15:36

19 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sigurjón!

Skál!

Skál og hafðu það gott í fríinu!

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.11.2009 kl. 15:45

20 Smámynd: Sigurjón

Takk fyrir það!  Er reyndar að slátra rommi í kóki þessa stundina og hlusta á íslenzka útvarpið úti í Thailandi.  Mjöööög gott!

Kv. Sigurjón

Sigurjón, 28.11.2009 kl. 15:52

21 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Öfunda þig

rum-and-coke-25254_937140.jpg

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.11.2009 kl. 16:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband