Leita í fréttum mbl.is

Auðvita verður að klára Icesave! Þó ekki væri nema vegna þess:

  • Að stjórnarandstaðan hætti að láta eins og biluð plata og hagi sér eins og vitleysingar. Með sömu ræðuna hver eftir öðrum og endurnýta ræðurnar síðan í sumar.
  • Nokkuð ljóst að Steingrímur er að vitna í að Norðurlöndin er ekki að afgreiða lánin sín með Icesave ófrágengið. Þau fara ekki að gera það í andstöðu við Breta og Hollendinga. Það er svo miklir hagmunir þeirra undir. Sem og að bankakerfi þeirra yrði ótraustara ef að vafi kæmi á að innistæður væru tryggðar.
  • Eins gæti þetta verið að standa í AGS:
  • Eins gæti þetta verið að fella okkur endanlega í ruslflokk hjá lánshæfismats fyrirtækjum.

Rök sem þeir nota núna t.d. varðandi Hollenska ráðherrann sem sagið að innistæðutryggingarkerfið væri ekki hannað til að bregðast við kerfishruni er jú eitthvað sem við erum löngu búin að tala um. T.d. í frönskuskýrslunni frá 2000 sem segir líka að í þeim tilfellum sem um kerfishrun væri að ræða þyrftu viðkomandi ríkisstjórnir og seðlabankar að koma inn í málin.

En aðallega þyrftu menn að klára þetta vegna virðingar Alþingis.


mbl.is Verður að klára Icesave af ótilgreindum ástæðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón

Sæll Maggi.

Eitt verð ég að gera athugasemd við: Orðið er ,,auðvitað"; ekki ,,auðvita".  Líklega klaufavilla þar á ferð.

Svo finnst mér líklegt að þá og þá fyrst verði Ísland sett í ruslflokk þegar við tökum á okkur skuld sem næsta víst er að verði seint eða aldrei greidd, heldur lítið nema vextir.  Áttum okkur á því að þessir djöflar sem Bretar og Hollendingar eru, hafa krafist þess að við greiðum vexti frá síðustu áramótum og þrátt fyrir að ekki verði farið að greiða af láninu fyrr en eftir 7 ár, þá safnar höfuðstóllinn vöxtum á meðan.  M.v. 5,55% vexti á þessum 7 árum, þá mun skuldin vaxa úr 700 milljörðum í ársbyrjun 2009 í 1.021.658.384.543 krónur, eða yfir þúsund milljarða.  Ég veit að það verður hægt að greiða eitthvað inn á höfuðstólinn á meðan, en sú upphæð er alveg á huldu.

Svo segi ég úr sólinni og hitanum: Skál!

Sigurjón, 30.11.2009 kl. 17:07

2 Smámynd: Sigurjón  Benediktsson

Veist þú hvað er "kjánahrollur"...eða að "hafa stein í maganum" ...ef ekki - lestu þá þetta blogg þitt eftir tvö þrjú ár ..þá veist þú hvað við er átt

Sigurjón Benediktsson, 30.11.2009 kl. 17:09

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sigujón ef þú mundir lenda í þeirri stöðu að lenda í því að fá á þig skuld sem þú kæmist ekki frá því að greiða. Mundir þú þá kjósa lausn að láta allt hrynja hjá þér núna og lenda í alvarlegum vanda strax? Eða mundir þú kjósa að fá frest í 6 ár til að reyna að koma þér í þá stöðu að geta ráðið við vandan?

Bendi þér á að lesa pistilinn hans Gautab  Eggertssonar. Hann segir m.a.

“Tryggingarsjóður virðist í raun ekki hafa getað staðið við nánast neins konar þroti banka af stærðargráðu Glitnis, Kaupþings, eða Landsbanka. Hann hefði kannski getað ráðið við Sparisjóð Norður-Múlasýslu? Ef það hefði ekki verið kerfishrun, hefði það aðeins breytt því að í staðinn fyrir að Tryggingasjóður Innistæðueigenda ætti örfáa milljarða uppí icesave, hefði sjóðurinn í staðinn átt örfá milljarða plús örfáa milljarða viðbót, það er, eftir sem áður örfáa milljarða uppí um tröllvaxna 700 milljarða kröfu.

Með öðrum orðum: Mér sýnist að vandinn vegna icesave hafi aldrei verið kerfihrun á Íslandi. Vandinn var að íslensk stórnvöld, Seðlabanki og Fjármálaeftirlitið, létu Landsbankann (sem virðist í raun hafa verið orðinn tæknilega gjaldþrota) safna hundruðum milljarða innlána árin 2007 og 2008 frá grandalausum almenningi í Bretlandi og Hollandi í krafti auglýsingar um íslenska ‘innlánstryggingu’ með gæðastimpli frá ESB (auglýst — nóta bene — bak og fyrir í margverðlaunaðri auglýsingaherferð og predikuð af talsmönnum ríkisstjórnar Íslands í bresku útvarpi, blöðum og sjónvarpi). Þessar tryggingar virðist enginn hafa ætlað að borga ef illa færi, enda engar sérstakar ráðstafanir gerðar til slíks. Þessu fé sem safnaðist var svo eytt í að halda spilaborginni uppi örlítið lengur, og í mjög áhættusamar fjárfestingar, í þeirri von að þetta myndi ‘bara reddast’.

En vandinn var alltaf þessi: Það voru litlar eignir til að bakka þetta upp hjá Landsbankanum, og því er ákaflega erfitt að borga kröfuhöfum neitt til baka. Það var skylda stjórnvalda að hafa eftirlit með að einhverjar eignir lægju að baki ævintýrinu, amk nægar til að tryggja þær lágmarks skuldbindingar sem ríkið hafði kvittað undir þegar það tók tilskipum ESB í gildi, ef allt færi á versta veg. Þetta var ekki gert.”

 Það er að innistæðutryggingarsjóður hefði ekki dugað til að standa við innistæðutrygginar fyrir innlendum innistæðum í einum banka hvað þá 3 vegna þess að við höfðum ekki haft rænu á að fylgjast með því sem var að gerast. Og það var okkar að fylgjast með Icesave því það var starfrækt skv. okkar bankaleyfum og reglum

Magnús Helgi Björgvinsson, 30.11.2009 kl. 17:22

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

blank_page

Teitur Atlason segir:

"Icesave í hnotskurn

Ég furða mig endalaust á málflutningi Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og þessarar Hreyfinar eða hvað sem þau heita í dag.

Já ég ætla að tala um Icesave.

Ég var í Hollandi fyrir nokkrum vikum og fann vel andúðina gagnvart Íslandi í landinu mjúka. Ástæðan er einföld. Svikareikningar Icesave. Hollendingar voru narraðir til þess að festa fé í þessari svikamillu undir dyggri meðstjórn Kjartans Gunnarsonar þáverandi framkvæmdastjóra FLokksins og innmúraðasta Íslendings sögunnar.

Jæja. Leikar fóru eins og við vitum öll. Innistæður sparifjáreigenda hurfu eins hratt og maður ýtir á enter. Hollendingar eru brjálaðir. Alveg band-fokkíng-brjálaðir.

Þeir leita réttar síns. Skoða hvaða reglur eru í gildi og sjá að Íslendingar hafa skuldbundið sig að greiða 20.880 þús evrur. -Lágmarkið.

Þessa peninga vilja þeir fá. Og ekkert helvítis múður.

Nú skal froðufellandi Framsóknarmönnum, ríkisspena-sjúgandi Sjálfstæðismönnum og hrifnæmu Hreyfingarfólki bent á að snúa dæminu aðeins við. Nota ímyndunaraflið og hugsa dæmið aðeins út frá sjónarhóli Hollendinga. Hvað myndu Íslendingar gera, hvað myndi þeim finnast ef að Hollenskur svikabanki, með beina tengingu inn í stærsta stjórnmálaflokk Hollands ef að Hollenskur banki, Robabank (rob a bank) myndi haga sér eins og LB í Hollandi. Já hvað?

HVAÐ!

Ég er hræddur um að froðufellingarnir, og ríkisspenatottararnir myndu fara hamförum í vandlætingu sinni gangvart Rob-a-bank og krefjast þess sama eins og Hollendingar eru að krefjast af okkur.

-Sem er þó BARA það að farið sé eftir samningum!!

Nú er það svo að í Hollandi eru lög sem ábyrgjast að hollenska ríkið greiði allt að 100.000 evrum fyrir hvern einasta reikning. Málið lítur því þannig út að íslendingar ábyrgjast 20 þús evrur en Hollendingar ábyrgjast 80 þúsund evrur.

-Vel sloppið gætu sumir sagt.

Þeir sem áttu hærri upphæðir á svikareikningum Landsbankans (sem Kjartan Gunnarson framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins tók þátt í að opna) tapa öllu umfram 100 þúsund evrurnar. Átakanleg dæmi um fólk sem lét narrast af velheppnaðri auglýsingaherferð Landsbankans (undir dyggri stjórn Þórlinds Kjartanssonar varaþingmanns Sjálfstæðisflokksisn) tapa því stórum upphæðum. Mér er sérstaklega minnstætt dæmi manns sem var að geyma peningana sína á svikareikningunum eftir íbúðakaup. Hann var s.s búin að selja íbúðina sína, lét narrast, og tapaði stórfé. Fórnarlömb Landsbankans voru því venjulegt fólk.

Venjulegt fólk sem er brjálað út í Íslendinga.

Stærsta tjónið af völdum svikareikninganna voru samt hollensk sveitarfélög sem létu narrast. Miljónnir, eða miljónatugir evra af af skattfé venjulegra Hollendinga töpðuðst á svikareikningunum.

Svo heyra Hollendingar að þeir sem stóðu bak við hrunið, stórnmálamennirir, Sjálfstæðsmennirir, eftirlitshyskið sem brást og síðast en ekki síst, Kjartan sjálfur Gunnarsson berjist nú eins og afkróaðir villikettir í þeirri viðleytni að borga EKKI!

Þetta er svívirðileg afstaða. Huglaus afstaða. Allskonar útskýringum og afsökunum hefur verið fleytt af stað í þeirri von að skreyta hugleysið einhverjum rökum. Þekktust eru "kerfisvillu-rökin", sem ganga út á það að þessi lágmarkstrygging falli um sjálfa sig ef að fjármálakerfið hrynur eins og það leggur sig.

Ha! Hvaða fífli datt þetta í hug sem alvöru rök í stöðunni. Þetta er álíka og að settar séu reglur í fótbolta þess eðlis að ef að allir leikmenn sem eru númeraðir með oddatölum og fái í sig eldingu í miðjum leik þá skuli leikurinn enda sem jafntefli. þarna er svo langt seilst út í hið óorðna að undrum sætir.

Nú verður mér örugglega núið um nasir að vera ekki Íslendingur og svoleiðis. En skoði menn söguna, skoði menn dyggðirnar sm prýddu forfeður okkar þá var það einmitt heiðurinn sem öllu skipti.

Orðheldni og heiður ágætu lesendur. Orðheldni og heiður.

Því er öllum þjóðsvikabríkslum vísað á bug og snúið samstundis upp á bríkslarana sjálfa. Það eru einmitt þeir sem eru svikarar við landið okkar. Viðhafandi málflutning sem er allt í senn, aumingjalegur, dusilmennislegur, rætinn, hyskinn og hræsinn."

Magnús Helgi Björgvinsson, 30.11.2009 kl. 17:32

5 Smámynd: Sigurjón

Sæll aftur Maggi.

Það breytir í raun litlu hverjum er um að kenna: 700 milljarða skuld sem safnar 5,55% vöxtum frá síðustu áramótum er meira en þjóðin fær ráðið við.  Ef við samþykkjum þetta, þá munum við verða bananalýðveldi næstu áratugina og jafnvel aldirnar.

En, þetta breytir mig svosem litlu, ég er fluttur út um leið og þetta verður samþykkt.  Ætla ekki að taka þátt í þessu, enda tók ég ekki þátt í hinu svk. góðæri eða skuldsetti mig.  Ég tek bara peningana mína og fer til Ástralíu...

Kveðja, Sigurjón

Sigurjón, 30.11.2009 kl. 17:40

6 Smámynd: Sigurjón

...svo mætti taka Teit Atlason í smá íslenzkukennslu.

Þar sem hann skrifar: ,,Bríkslum" á í raun að skrifa ,,brigslum" og svo virðist hann ekki skilja hvað ,,hyskinn" þýðir, en það þýðir ,,latur".  Passar varla inn í samhengið þarna.  Þetta skilningsleysi Teits á íslenzkri tungu setur neikvætt formerki við pistil hans og gerir hann ótrúverðugan.

Kv. Sigurjón

Sigurjón, 30.11.2009 kl. 17:44

7 Smámynd: Sigurjón

...og af hverju ertu að vísa í svona illa skrifaðan pistil sem er ekki til þess fallinn til annars en að þeir sem lesa fá kjánahroll vegna gelgjulegs og lélegs málfars og orðfæðar?  Þessi Teitur verður sér bara til skammar með svona skrifum...

Sigurjón, 30.11.2009 kl. 17:47

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Við ráðum bara víst við þetta Sigurjón. Menn gleyma alltaf að eignir landbankans gamla eru lán sem að mestu verða greidd 2016 og þar af leiðandi inn á höfðustólinn jafnvel allt að 90% og þar af leiðandi verður til greiðslu þegar við byrjum að borga aðeins þeir vextir sem hafa safnast á höfðustól frá því í byrjun þessa árs. Og af þvi höfðustóllinn fer minnkandi þá minnka vextirnir. sbr. Ingólfu í spara.is sem er alltaf að benda fólki á kosti þess að borga niður höfðustólinn og lækka þar með vaxtargreiðslur. Þá mál líka nefna að líkur eru á að verðbólga á ESB svæðinu verði á næstu árum komin upp í 2 til 3% sem lækkar lánin af því þau eru ekki verðtryggð. Eins þá eru líkur á þvi að krónan hækki áður en við förum að borga og því lækkar skuldin sem því nemur.

Og ég vitna í Teit af því að hann býr ekki hér er í samskiptum m.a. við Hollendinga og hefur mjög raunsanna sýn á málið. Ég get líka vitnað í ræður t.d. Illuga Gunnarssonar frá því í dag þar sem hann sagði að Sjálfstæðisflokkurinn vildi standa við okkar skuldbindingar bara ekki svona. Hann dreymir enn um að Icesave gufi upp ef það verður ekki greitt 2024. Þetta er almennt skoðun Sjálfstæðisflokks að þeir setja sig helst á móti því að lánið gufi ekki upp og að Breta sætta sig ekki við að deilumál séu leyst fyrir Breskum dómsstólum. Þannig að þeir eru ekki á því að við ráðum ekki vð að greiða þetta. Og vilja ekkert breyta því því að upphæðin sem við greiðum að hámarki á ári er enn sú sama og í fyrirvörunum frá því í sumar.

Magnús Helgi Björgvinsson, 30.11.2009 kl. 18:05

9 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Svopna túlkar www.jonas.is þetta:

"30.11.2009
Gæludýr er ekki kerfishrun
IceSave fól ekki í sér neitt kerfishrun og verður aldrei túlkað sem slíkt af dómstólum. IceSave var mál eins banka einkavinavædds. Davíð Oddsson trassaði að stöðva útgerð Landsbankans erlendis, svo einfalt er það. IceSave varðar ekki Kaupþing og Glitni, sem áttu banka erlendis á erlendri ríkisábyrgð. Aðeins reikningar Landsbanka Davíð voru reknir á íslenzka ábyrgð. Raunar var bankinn gæludýr Davíðs og Sjálfstæðisflokksins, meðan Kaupþing var gæludýr Halldórs Ásgrímssonar og Framsóknarflokksins. Ef Ísland hygðist neita að borga IceSave Davíðs á forsendu kerfishruns, verður bara hlegið erlendis."

Magnús Helgi Björgvinsson, 30.11.2009 kl. 18:33

10 Smámynd: Sigurjón

Blessaður Maggi.

Það er stórkostleg óskhyggja að það fáist 90% upp í lánin sem Lb hefur undir höndum.  Hvaða tryggingar eru á bakvið?  Fasteignir?  Nei, heldur hlutabréf og drasl sem er alveg eins líklegt að verði verðlaust eftir þennan tíma.

Það er jafn líklegt að Lb. fái 10% upp í skuldina eins og 90%.  Þetta er bara leikur að tölum.  Það sem er ekki leikur að tölum er að við skuldum frá síðustu áramótum 700 milljarða og greiðum 5,55% vexti af því árlega.  Það er fast í hendi, hitt er bara óvissa dauðans!

Það breytir engu, eins og áður sagði hvort þetta er Davíð eða öðrum að kenna, við höfum ekki bolmagn til að standa undir þessu og verðum dæmd í eilífa þrælkun ef þetta verður að veruleika.

Þér að segja, þá er ég þegar farinn að undirbúa mig undir að taka allt mitt hafurtask og flytja til Ástralíu ef þetta verður svona.  Í alvöru...

Sigurjón, 30.11.2009 kl. 18:49

11 Smámynd: Sigurjón

Heyrðu, já:

Þó að það verði 2-3% verðbólga á Evrusvæðinu, þá lækka ekki lánin sem því nemur, þar sem við erum ekki með eignir á því svæði, heldur eru þau háð gengi gagnvart okkar gjaldmiðli, sem hefur ekki neitt með verðbólgu á Evrusvæðinu að gera.

Auk þess er það bjartsýni mikil að halda að krónan muni hækka á tímabilinu og er í öllu falli óvissa í útreikningum og gæti jafnvel verið til þess að lánið muni hækka.

Ekki vera svona grænn Maggi minn.  Ef þú ert svona trúaður á Evrópu, þá flyttu frekar þangað en að halda uppi áróðri í þá átt gagnvart þjóð þinni.

Ég er alla vega reiðubúinn að flytja og ætla að gera það ef við verðum í ESB eða að Iceslave verður samþykkt með því að hunza fyrirvarana sem Alþingi setti í sumar...

Kv. Sigurjón

Sigurjón, 30.11.2009 kl. 18:55

12 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sá að þú ert enn í Thailandi hafðu það bara gott þarna. Og hafðu bara þína hentisemi! Ég er að nota mína!

Af hverju ætti ég að flytja þegar ég er marg búin að segja að ég tel að við séum á réttri leið.  Það er þú sem ert að kvarta þannig að þú ættir kannski bara að seinka heimferðinni.

Magnús Helgi Björgvinsson, 30.11.2009 kl. 19:00

13 Smámynd: Sigurjón

Vildi gjarna gjöra svo.  Hins vegar er ekki hlaupið að því að fá atvinnuleyfi og slíkt, þannig að brottflutningur krefst undirbúnings og tíma.

Launin hér eru reyndar þannig að ekki er beinlínis gustuk að vera hér til lengdar, nema eiga fyrirtæki.

Hins vegar endurspegla ég kveðjur til þín Maggi og vona að þú hafir það gott.  Ég sé hins vegar að þú átt enn eftir að laga fyrirsögnina...

E.S.

Ég held reyndar samt að þú ættir að flytja, þar sem það er betra að vera í landi sem skuldar ekki djöflinum sálu sína...

Sigurjón, 30.11.2009 kl. 19:09

14 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég ætla að vera hér áfram og una glaður með mitt. Enda verður nóg pláss fyrir mig ef að fólk fer almennt að flytja. Ég skoða bara ef það herðir að hjá mér að koma mér upp kindum og garði til að rækta gærnmeti.

Magnús Helgi Björgvinsson, 30.11.2009 kl. 19:14

15 Smámynd: Sigurjón

Já. Það er gott.

Hins vegar ætla ég að biðja þig endilega að laga fyrirsögnina.  Hún er enn röng...

Kv. Sigurjón

Sigurjón, 30.11.2009 kl. 19:28

16 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Tveir Íslenskir rugludallar fóru til Danmerkur fyrir nokkru og voru teknir fyrir að nauðga kvenfólki. Mér finnst full ástæða til þess að setja þá inn fyrir verknað sinn. Maggi vill hins vegar að öll íslenska þjóðin sitji inni fyrir glæpinn. Hann um það hann getur örugglega fengið að kúra í dönsku fangelsi með þeim kauðum, en það kemur ekki til greina að við hin tökum glæpinn á okkur, og heldur ekki Icesave glæpinn.

Sigurður Þorsteinsson, 30.11.2009 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband