Leita í fréttum mbl.is

Bið fólk að anda með nefinu!

Sé hér á blogginu að verið er að tengja Jón Sigurðsson og ráðningu hans sem formann bankastjórnar við Samfylkinguna.

En fólki væri nú holt að átta sig á því að við eigum ekki lengur  nema um 5% í þessum banka í dag. Það eru væntanlega inn- og aðallega útlendir kröfuhafar sem hafa eignast bankann. Og þeir hafa sameinast um val á formanni bankaráðs og horfa kannski til þess að Jón Sigurðsson var bæði Seðlabankastjóri sem og bankastjóri Norræna bankans um áraraðir. Hann er hagfræðingur með mikla reynslu og menntun.  Þá er það skilanefnd og bankasýsla sem fara með þessi mál ekki ríkisstjónin.

Ríkið kemur ekkert að þessari ráðningu og þaðan af síður Samfylkingin. Þá var hann ekki búinn að vera í FME nema fram janúar/febrúar 2008 þ.e. í 7 eða 8 mánuði þegar bankahrunið varð. Og hann var stjórnarformaður FME en það þýðir að hann var ekki í daglegum rekstri FME það var í höndum framkvæmdarstjóra.


mbl.is Ný stjórn Íslandsbanka skipuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, já Paradísarheimt ;-)

Það er nú einu sinni Samfylkingin sem er á bakvið þetta allt saman, VG hafa ekki hugmynd og kunna þetta einfaldlega ekki, þeir geta ekkert gert að því.  Samfylkingin er með forsætisráðuneytið og formann fjárlaganefndar og þá er málið dautt ;-)

Það er svo einfalt hvað er í gangi hérna hjá okkur á landi guðs "Ísland"!  Við stefnum á ljóshraða inní ESB hvað sem það kosta með fyrrum Sovételítunni á Íslandi í broddi fylkingar, þ.e. Ólafur Ragnar, Svavar Gestsson, Svandís Svavarsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Indriði ..., Steingrímur J Sigfússon, Össur Skarphéðinsson,  Ingibjörg Sólrún, Jón Sigurðsson o.s.frv.

Sólin hefur alltaf verið björt í austri, þurfum við að fara eitthvað nánar út í þetta?

Lifið heil og áfram sjálfstæð hugsun með frelsi einstaklingsins í huga ;-)

Kv.

Atlinn 

Atli (IP-tala skráð) 27.12.2009 kl. 16:59

2 Smámynd: Guðmundur Guðmundsson

Það er alveg furðulegt að reyna að hvítþvo Jón Sigurðsson af bankahneykslinu á þeirri forsendu að hann hafi BARA verið STJÓRNARFORMAÐUR fjármáleftirlitsins!

Í guðanna bænum leggðu frá þér bjórkönnuna!

Guðmundur Guðmundsson, 27.12.2009 kl. 18:31

3 identicon

Rétt er að halda því til haga að Jón Sigurðsson var auk þess að vera formaður hrunsstjórnar Fjármálaeftirlitsins og varaformaður hrunsstjórnar Seðlabankans, og að hann var aðal talsmaður og logo Icesave í herferðum Landsbankans erlendis. Jón kom fram í kynningarefni sem fyrrum Seðlabankastjóri, ráðherra og stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins og dásamaði Landsbankann og glæfrareikninginn, undir þessum ljómandi traustvekjandi myndum af sér í söluefninu. Hann er einn aðal hugmyndafræðingur Samfylkingarinnar í Icesave samningamálunum hvað fjárhagshliðina varðar og fór á kostum sem jólasveinninn lánasníkir erlendis að undanförnu sem var sagt frá í leiðara Morgunblaðsins fyrir skemmstu:

"Loks má geta þess að Jón Sigurðsson, fyrrum formaður stjórnar FME og eðalkrati, þiggur ríflega 8 milljónir króna fyrir „ráðgjöf um gjaldeyrislán frá öðrum ríkjum“. Þær greiðslur voru víst ekki árangurstengdar.”

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 27.12.2009 kl. 19:16

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sæll Magnús. Ráðning Jóns Sigurðssonar sem formanns bankastjórnar er bæði fagleg og skynsamleg. Það eru trúlega málaliðar stjórnarandstöðunnar sem reyna að blása þetta út eins og svo margt skynsamlegt sem gert er af núverandi ríkisstjórn. Pólitískar vinaráðningar eiga og verða að tilheyra fortíðinni.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 27.12.2009 kl. 20:41

5 identicon

Er þetta virkilega framtíðin ?  Mundirðu vera sama sinnis ef Xd væri í stjórn og Jónas Fr væri ráðinn ? Eflaust má færa rök fyrir því að það sé ekki nákvæmlega sami hluturinn en grundvallaratriðin eru þau sömu.  Við samfylkingarmenn eigum ekki að verja í blindni allt sem stjórnin gerir.   Verður þetta svona hjá þér þegar skýrslan birtist  - að þú finnir rök til að verja allar ávirðingar gegn Samfylkingu.

Það er þreytandi það fólk í öllum flokkum sem hugsar ennþá allt eftir flokkslínum.

Geir (IP-tala skráð) 27.12.2009 kl. 21:56

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Geir og þið hin. Ég var að segja að það eru kröfuhafarnir sem eru að ráða í bankastjórn. Þeir eiga bankan að mestu. Og hvern viljið þið ráða? Hvaða maður með reynslu af bankamálum Íslenskur hefur ekki komið að einhverju í þessu bölvaða hruni? Já hver? Sorry ég held að fólk ætti stundum aðeins að hugsa!

Stúdentspróf MA 1960. Fil. kand. í þjóðhagfræði, tölfræði o. fl. frá Stokkhólmsháskóla 1964. M.Sc. Econ. í þjóðhagfræði frá London School of Economics and Political Science 1967.
Hagfræðingur við Efnahagsstofnun 1964—1967, deildarstjóri hagdeildar þar 1967—1970, hagrannsóknastjóri þar 1970—1971. Forstöðumaður hagrannsóknadeildar Framkvæmdastofnunar ríkisins 1972—1974.

Forstjóri Þjóðhagsstofnunar 1974—1986. Fastafulltrúi Norðurlanda (executive director)

í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 1980—1983. Skip. 8. júlí 1987 dóms- og kirkjumála- og viðskiptaráðherra, einnig ráðherra Hagstofu Íslands, lausn 17. sept. 1988, en gegndi störfum til 28. sept. Skip. 28. sept. 1988 viðskipta- og iðnaðarráðherra, lausn 23. apríl 1991, en gegndi störfum til 30. apríl. Skip. 30. apríl 1991 viðskipta- og iðnaðarráðherra, lausn 14. júní 1993.

Bankastjóri Seðlabanka Íslands og formaður bankastjórnar 1993—1994. Aðalbankastjóri Norræna fjárfestingarbankans 1994—2005.
Dómandi í kjaradómi 1970—1980. Varafulltrúi Íslands í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 1974—1987. Fulltrúi Íslands í stjórn Norræna fjárfestingarbankans 1976—1987, stjórnarformaður 1984—1986.

Fulltrúi Íslands í hagþróunar- og hagstjórnarnefnd OECD 1970—1980 og 1983—1986. Formaður ráðherrafunda OECD 1989. Formaður framkvæmdanefndar um framtíðarkönnun á vegum forsætisráðuneytis 1984—1987. Í Þingvallanefnd 1992—1993.

Alþm. Reykv. 1987—1991, alþm. Reykn. 1991—1993 (Alþfl.).
Dóms- og kirkjumála- og viðskiptaráðherra 1987—1988, iðnaðar- og viðskiptaráðherra 1988—1993.

Og svo varð hann Seðlabankastjóri og síðan bankastjóri Norræna Fjárfestingabankans um ára raðir.

Þetta er maður sem reynslu sem eru mun meiri en annarra hér á landi og ekkert skrýtið að menn sættist um það. Þeim er sama hvað einhverjum bloggurum finnst um þetta mál. Þetta er jú að stórum hluta erlendir eigendur sem eiga Íslandsbankann nú.

Magnús Helgi Björgvinsson, 27.12.2009 kl. 23:02

7 identicon

Menn farar ekki langt á lakkinu einu saman.  Má vera að það hafi þótt gott þá en ekki lengur.  Sem stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins bar hann ábyrgð á störfum stofnunninnar en svaf á verðinum og ber ábyrgð á stórkostlegum afglöpum starfsmannanna og afleiðingum þeirra.  Sem varaformaður stjórnar Seðlabankans ber hann stórkostlega ábyrgð á þætti stofnunninnar í hruninu.  Sem stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins og varaformaður stjórnar Seðlabanka Íslands lagðist hann í Icesave víking með fjárglæframönnum Landsbankans sem nokkurskonar ábekkingur Icesave óhroðans fyrir hönd ríkistjórnarinnar í kynningarefni Landsbankans um Icesave.  Þar nýttist vel ferilskráin sem blogghöfundur tjaldar Jóni til dýrðar, sem að vísu er marklaus eins og málum er fyrir komið.  Það gerði hann allt að hruni þegar hann átti að vita mun betur.  Hann kaus að sofa á verðinum.  Segir allt um spillinguna að það dugir 5% eignarhlutur að tryggja sér stjórnarformann plús 2 menn í stjórn á móti 3 sem þá sitja fyrir 95% eignarhlutans.  Það vita allir hversu þýðingarmikið er að tryggja pólitíska vernd og allt til þess vinnandi.  Líka 95%.

Gott blogg manneskju sem varla telst til stjórnarandstæðinga, enda málið þverpólitískt hvað andstöðu varðar.  Icesave dýrðarboðskapur Jóns Sigurðssonar sem erlendir aðilar féllu fyrir í umvörpum er aðgengilegur á síðunni:

http://blog.eyjan.is/larahanna/2009/12/27/me%C3%B0-kusk-a-hvitflibbanum/

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 27.12.2009 kl. 23:30

8 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Magnús það fer þér ekki vel að halda á ölkrús á myndinni einfaldlega vegna þess að það sem þú skrifar mætti ráða að væri eftir ölvaðan mann eða allavega í vímu hverslags endemis bull og vitleysa sem frá þér kemur. Þessi ráðning Jóns á ekki að eiga sér stað við þurfum að skipta við bankann því miður og ekki er þetta traustyfirlýsing að ráða Jón hvað kemur næst Björgólfur forseti og Sigurður Einarsson biskup Íslands nei svona á ekki að líðast.

Sigurður Haraldsson, 28.12.2009 kl. 02:20

9 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Heyrðu Sigurður. Þó ég sé ekki fullur þegar ég blogga þá hlýtur það að vera mitt mál hvort ég held á bjórkrús á myndinni. Alveg eins og það er mín skoðun að það sé eigenda bankans að ákveða hver þeir telja að sé heppilegur stjórnarformaður bankans. Ég er ekkert að halda því fram að Jón hafi ekki gert mistök. En óvart hefur hann verið ráðinn t.d. í framkvæmdarstjórn AGS. Bankastjóri Norræna Fjárfestingarbankas og í fleiri ábyrgðarstörf. Hann var ekki búinn að vera nema nokkra mánuði í FME þegar allt hér hrundi. En hann hafði strax í febrúar 2008 byrjað að reyna að koma Icesave úr landi sbr.

.......... Jón Sigurðsson tók við stjórnarformennsku FME snemma árs 2008.

Nokkrum vikum síðar birtist viðtal við Jón í viðskiptablaði Moggans. Jón Sigurðsson er afar gætinn og orðvar maður, en ein helztu skilaboð stjórnarformanns FME í viðtalinu voru þó þessi: Það þarf að koma böndum á starfsemi bankanna erlendis og sérstaklega að koma innlánsreikningum (Icesave) frá útibúum yfir í dótturfélög, svo að lögsaga, eftirlit og innlánstryggingar flytjist frá Íslandi til viðkomandi lands.
(www.herdubreid.is )

Heldur þú t.d. að Samfylkingin hefði ekki kosið að annar væri valinn. Flokkurinn hefði örugglega gjaran viljað vera laus við þessa uppá komu. En kröfuhafar og eigendur bankans hafa sammælst um þennan mann örugglega vegna reynslu hans.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.12.2009 kl. 13:20

10 Smámynd: Einar Guðjónsson

Ekkert af  ferlinum eru verðleikaráðningar heldur hefur hann aðeins verið ráðinn annað hvort fyrir sakir pólitískra tengsla eða á Íslandskvóta. Það kann vel að vera að hann hefði verið ráðin í einhver störf fyrir eigin verðleika en á það hefur bara aldrei reynt og reynir varla á það héðan af. Hann hefur fyrir sakir pólitískra tengsla lifað  vinnulífi sínu vafinn inn í bómul. er hinsvegar viss um að hann hefur staðist þessi sænsku háskólapróf og skal ekki gert lítið úr þeim.

Sjálfsagt upplifir hann sig eins og þú upplifir hann, sem ´´afburðamann´´ enda er það einmitt einkenni hinna spilltu að þeir upplifa sig  sem þá allra bestu. Þess vegna þurfti ekki að auglýsa stöðurnar sem þeir eru alltaf ráðnir í. Þess vegna finnst þeim svo mikilvægt að ráða sjálfa sig því það er engum betur treystandi en þeim sjálfum.

Að lokum: Það eru ekki kröfuhafarnir sem eru að ´´ kalla´´ Jón í starfið heldur skilanefndin. Sú skilanefnd var einmitt ráðin af Jóni nokkrum Sigurðssyni formanni FME. 

Einar Guðjónsson, 28.12.2009 kl. 16:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband