Leita í fréttum mbl.is

Ætlum við að binda alla okkar orku í stóriðju nú á nokkrum árum.?Hvar eiga börnin okkar að fá orku fyrir sig

Af ruv.is:

Ísland er eitt af 15 löndum sem til greina koma. Þrír staðir eru í skoðun hér á landi, Eyjafjörður, Þorlákshöfn og Grundartangi. samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru landkostir á Grundartanga taldir hvað bestir undir verksmiðju af þessu tagi, m.a. vegna þess að framleiðsluferlið þolir ekki jarðskjálfta. Framleiðslan byggist á efnagreiningarferli sem er mjög raforkufrekt og því hefur verið slegið fram að raforkuþörfin verði svipuð og hjá báðum stóriðjuverunum á Grundartanga samanlagt. Sömuleiðis er framleiðslan mjög plássfrek og því ljóst að umtalsvert landsvæði þyrfti undir verksmiðjuna. Ekki liggur fyrir hversu mannfrek framleiðslan verður en ljóst er þar er þörf fyrir fjölbreytt vinnuafl, jafnt ófaglærða sem fólk með mikla háskólamenntun.

Var að hlusta á orkumálastjóra um daginn. Hann sagði að þegar álverið á Reyðarfirði yrði komið í gang værum við búin að nota um 60 til 70% af þeirri orku sem hann taldi að hægt væri að virkja í nokkurri sátt. Þar var hann að tala um að 50 teravattsstundir held ég væru í þeim virkjunum. En hann sagði líka að aðrir teldu þetta minna.

Síðan þegar búið væri að virkja þar yrði að snúa sér að öðrum svæðum sem væru umdeildari.

Það er nokkuð ljóst að þegar við erum búinn að binda alla okkar orku í stóriðjum nú á nokkrum áratugum lendum við í vanræðum þegar okkur fjölgar og við þurfum að skapa ný störf og skaffa komandi kynslóðum orku. EN þá er hún óvart bara bundin í stóriðju.  Og ekkert uppá að hlaupa. Hvernig yrði það t.d ef við eftir 10 til 20 ár færum að framleiða vetni í miklu mæli til að nota umhverfisvæna orku. Yrðum við þá að virkja Dettifoss, Gullfoss eða Geysi????


Mjólkur einokun

NFS, 16. Október 2006 20:05
Framkvæmdastjóri Mjólku ætlar að kæra Landbúnaðarráðherra

Framkvæmdastjóri Mjólku ætlar að kæra Landbúnaðarráðherra fyrir brot á jafnræðisreglunni eftir ummæli sem hann lét falla í gær um að hann myndi ekki beita sér fyrir breytingu á búvörulögum.

Í ummælunum hafnaði ráðherra sjónarmiði Samkeppniseftirlitsins um að breyta búvörulögum, en úrskurður eftirlitsins var birtur fyrir helgi og sagði ekki eðlilegt að undanþiggja afurðarstöðvar í mjólkuriðnaði samkeppnislögum. Mjólka, ostahúsið í Hafnarfirði og Bíóbú eru ekki undanþegin lögunum

Án þess að ég hafi sérstakan áhuga á málefnum MJÓLKU þá er ég dálítið undrandi á ráðherra landbúnaðarmála og þó ekki. Hann er náttúrulega með bakland sitt í einu mesta mjólkurframleiðslu svæði landsins. En mér finnst það alveg út í hött að ríkð hafi samið við bændur og framleiðslufyrirtæki þeirra um að vera undanþegin samkeppnislögum. Þá kom mér það á óvart að heyra það í kvöld að með beingreiðslum til mjólkurbænda þá hafa þeir um 70 til 80 kr fyrir hvern líter sem er svipað og við borgum.

Þá finnst mér gleymast í þessari umræðu að bændur eru þegar farnir að hasla sér völl með mjólkurvörur í útlöndum. Því skil ég ekki hræðslu þeirra við breytingar. Ég hef heyrt að mjólkurkvóti sé orðinn mjög verðmætur og nú þegar séu fyrirtæki farin að kaupa upp kvóta og jarðir til að græða á greiðslum frá ríkinu.

Ég man eftir umræðu um að grænmetisræktun mundi leggjast hér af við lækkun á tollum en ég er enn að versla innlent grænmeti. Þannig held ég að mundir líka fara ef að samkeppni yrði almennt komð á í landbúnaði. Landbúnaður er náttúrulega bara iðnaður eins og hvað annað. Menn eru að vinna úr hráefni, vörur á markað og þeir sem standa sig best gagnvart neytendum komast best af.


Að skjóta sig í fótinn!!!!!!!!!!!

Svona getur þetta stundum farið (þó maður sé ekki rjúpnaskytta) þá skaut ég mig gjörsamlega í fótinn með síðustu bloggfærslu minni. En það gerir þetta bara skemmtilegra. Maður fær athugasemdir og lærir af þeim

Er Bakkafjörður ekki um 100 km frá Fjarðabyggð? (Nei það er víst aðeins lengra)

Innlent | mbl.is | 15.10.2006 | 21:40 Fólksflótti frá Bakkafirði Á undanförnum mánuðum hefur ástandið í atvinnumálum á Bakkafirði verið með versta móti og þar af leiðandi hefur fólksflótti frá Bakkafirði verið mikill. Hátt í 40 manns hafa á síðustu...

Áhrifamáttur bloggsins

Erlent | mbl.is | 15.10.2006 | 6:38 Bloggari varð sænskum ráðherra að falli Sænskur bloggari átti stóran þátt í því að Maria Borelius neyddist til að segja af sér embætti viðskiptaráðherra í Svíþjóð í gær eftir að hafa aðeins setið í átta daga á...

Er þetta ekki farið að gerast full oft? Seinagangur hjá löggunni!

Innlent | Morgunblaðið | 15.10.2006 | 05:30 Sleppt úr haldi vegna seinagangs Hæstiréttur felldi á föstudag úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni, sem grunaður er um að hafa skipulagt fíkniefnainnflutning, vegna...

Ekki kannski heppilegasta manneskjan til að stinga upp á þessu

Rakst á eftirfarandi inn á visir.is. Fannst ég verða að koma með smá athugasemd. Þarna talar alþingsimaðurinn Ásta Müller.  EN hún er ekki bara alþingismaður heldur er hún eigandi að stóru fyrirtækið  Liðsinni ehf.  sem sérhæfir sig í að skaffa...

Bíddu er þetta prófkjör??????

Innlent | mbl.is | 14.10.2006 | 19:28 Lokað prófkjör hjá framsókn í SV-kjördæmi Framsóknarmenn í Suðvesturkjördæmi samþykktu í dag tillögu stjórnar kjördæmissambandsins að listi fyrir næstu Alþingiskosningar verði kosinn á tvöföldu kjördæmisþingi. Ég...

Hvalur 9 heldur til veiða eftir helgina

Fréttablaðið, 14. Október 2006 03:30 Hvalur 9 heldur til veiða eftir helgina Hvalveiðiskipið Hvalur 9 mun halda til veiða í næstu viku samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Til stóð að skipið færi út um helgina en því var frestað tímabundið. Er þetta ekki...

Ég mundi nú vilja staðfestingu frá öðrum

Bandarískar vísindarannsóknir staðfesta kjarnorkutilraunir N-Kóreu Erlent | mbl.is | 14.10.2006 | 9:44 Bráðabirgðaniðurstöður vísindarannsókna virðast staðfesta að Norður-Kórea hafi gert kjarnorkutilraun sl. mánudag líkt og N-Kóreumenn hafa haldið fram,...

Hverskonar þjóð erum við eiginlega

Við erum nú í áraraðir búin að taka á móti fólki erlendis frá sem vill setjast hér að í lengri eða styttri tíma. Á ég virkilega að trúa því að við þurfum að ræða í nokkur ár til viðbótar þá augljósu staðeynd að auðvita þurfum við að bjóða upp á markvissa...

Skrýtið að Bush skildi ekki fá "Friðarnóbelinn"

Þúsundir Íraka flýja landið á degi hverjum og segir Flóttamannahjálp SÞ fólksflóttann „stöðugan og hljóðlátan“. Írökum sem leita hælis á Vesturlöndum fer fjölgandi, og einnig þeim Írökum sem flosna upp frá heimilum sínum. Hafi um 365.000...

Ég hafði ekki gert mér grein fyrir að þetta væri í varnarsamningnum okkar við USA

Þjóðarhreyfingin mótmælir því einnig að í milliríkjasamningi af þessu tagi sé að finna skuldbindingar um að Alþingi komi á með lögum leynilegum stofnunum, sem frá upphafi er ætlað að starfa náið með bandarískum stofnunum að greiningu mála eins og...

Þar talar mannvitsbrekka mikil.

............og það mun Hálslón gera, og hafa áhrif á ferðaþjónustuna. Það hafa menn orðið varir við á Austurlandi. Nú þegar er Hálslónið farið að draga að sér ferðamenn sem hlýtur náttúrlega að vera áhugavert fyrir þá sem vilja styðja ferðaþjónustu í...

Já já komið þið bara! Hvað er ein verksmiðja enn!

Bjóðumst síðan til að geyma kjarnorkuúrgang og gamala  kjarnorkukafbáta fyrir Rússa. Síðan eru það álverinn. Setjum eitt í Vatnsmýrina við hliðina á flugvellinum. Annað í Heiðmörk . Kannski eitt á Þingvelli. Við erum hvort sem er á leiðinni með allt í...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Okt. 2006
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband