Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010

Um að gera fyrir Samfylkingu að bjóða krafta sína fram í alla meirihluta!

Ef að Samfylkingin ætlar að reka af sér sliðru orðið er um að gera að bjóða sig fram og sækjast eftir að komast í meirihlutasamstarf allstaðar sem það er hægt. Og síðan að standa sig og standa við öll stóru orðin eins og að koma á íbúalýðræði.

  • Væri ekki hægt á hverju hausti að gera könnun eða kjósa um áhersluatriði í næstu fjárhagsáætlun. Þannig að íbúar gætu forgangsraðað innan einhverja marka.
  • Kosningar um öll meiriháttar skipulagsmál

Eins að Samfylking beiti sér fyrir því að spilling og vafasamar aðgerðir séu upprættar.

Auðvelda fólki þátttöku í starfi flokksins og eins að geta boðið sig fram fyrir hann

Þetta ásamt því að umbótanefnd Samfylkingar standi sig og komi með raunhæfar aðgerðir myndu hjálpa til að auka aftur traust á því að Samfylkingin sé traustsins verð.

Síðan þarf ríkisstjórnin að keyra í gegn frumvarp um stjórnlagaþing og hraða vinnu þess. Ekki láta úrtölufólk eins og Hreyfinguna sem alltaf finnur eitthvað til að tortryggja seinka því.

Ég vildi að Samfylking færi í samstarf í Reykjavík, Kópavog og í Hafnarfirði. Þá væri flokkurinn í raun að auka áhrif sín í sveitarstjórnum á Höfuðborgarsvæðinu.

Eins þarf að flýta lögum um þjóðaratkvæðagreiðslur og gera þær að raunhæfum kost.


mbl.is Ræddu við Samfylkingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hef verið að rýna í kosningaúrslit í Kópavogi síðustu áratugi.

Ég fann síðu á wikipedia.org þar sem koma fram öll kosningaúrslit í Kópavogi frá 1955. Og margt fróðlegt að sjá þar. T.d. eru óháð framboð og ný ekki óþekkt í Kópavogi. Eins má sjá að t.d. þar að síðast þegar félagshyggjuflokkarnir voru hér í meirihluta þá t.d. var ráðinn Bæjarstjóri í Kópavogi og var hér í 2 kjörtímabil þar til að Sjálfstæðismenn og Framsókn tóku við. Eins má sjá að árangur Sjálfstæðismanna er sá versti sem þeir hafa fengið síðan 1986.

Fróðlegt að skoða þetta hér

Hér er útkoma síðan 1978 en ýmis annar fróðleikur á þessari wikipediasíðu m.a. hverjir voru kjörnir og hvaða meirihlutar voru myndaðir.

1978     
ListiFlokkur Atkvæði %Bæjarf.
AAlþýðuflokkurinn 99015,232
BFramsóknarflokkurinn 1.15017,692
DSjálfstæðisflokkurinn 975152
GAlþýðubandalagið 1.73826,733
KBorgaralistinn 81112,481
SAlmennt borgaraframboð 70910,911
 Auðir og ógildir 1281,97 
 Alls 6.50110011
Kjörskrá og kjörsókn7.87782,53 
      
1982     
ListiFlokkur Atkvæði %Bæjarf.
AAlþýðuflokkurinn 1.14515,622
BFramsóknarflokkurinn 1.25017,052
DSjálfstæðisflokkurinn 2.92539,95
GAlþýðubandalagið 1.62022,12
 Auðir og ógildir 3915,33 
 Alls 7.33110011
Kjörskrá og kjörsókn8.91882,2 
      
1986     
ListiFlokkur Atkvæði %Bæjarf.
AAlþýðuflokkurinn 1.90023,83
BFramsóknarflokkurinn 1.05313,191
DSjálfstæðisflokkurinn 2.48331,14
GAlþýðubandalagið 2.16127,073
MFlokkur mannsins 1491,870
 Auðir og ógildir 2382,98 
 Alls 7.98410011
Kjörskrá og kjörsókn10.21378,17 
      
1990     
ListiFlokkur Atkvæði %Bæjarf.
AAlþýðuflokkurinn 1.90121,183
BFramsóknarflokkurinn 1.14012,71
DSjálfstæðisflokkurinn 3.45238,475
GAlþýðubandalagið 1.74019,392
VKvennalistinn 4805,350
 Auðir og ógildir 2612,91 
 Alls 8.97410011
Kjörskrá og kjörsókn11.19080,2 
      
      
      
      
1994     
ListiFlokkur Atkvæði %Bæjarf.
AAlþýðuflokkurinn 1.58015,582
BFramsóknarflokkurinn 1.42814,081
DSjálfstæðisflokkurinn 3.78737,345
GAlþýðubandalagið 1.99319,652
VKvennalistinn 1.116111
 Auðir 2011,98 
 Ógildir 380,37 
 Alls 10.14310011
Kjörskrá og kjörsókn12.05984,11 
      
1998     
BFramsóknarflokkurinn 2.44221,832
DSjálfstæðisflokkurinn 4.32638,675
KKópavogslistinn 4.05236,224
 Auðir og ógildir 3663,27 
 Alls 11.18610011
Kjörskrá og kjörsókn14.34979,62 
      
      
      
2002     
ListiFlokkur Atkvæði %Bæjarf.
BFramsóknarflokkurinn 3.77621,413
DSjálfstæðisflokkurinn 5.097375
SSamfylkingin 3.82127,733
UVinstrihreyfingin – grænt framboð 8316,030
 Auðir og ógildir 2521,83 
 Alls 13.77710011
Kjörskrá og kjörsókn17.58079,72 
      
      
      
2006     
ListiFlokkur Atkvæði %Bæjarf.
BFramsóknarflokkurinn 1.78911,981
DSjálfstæðisflokkurinn 6.61044,275
SSamfylkingin 4.64731,134
VVinstrihreyfingin – grænt framboð 1.54610,351
 Auðir og ógildir 3382,26 
 Alls 14.93010011
Kjörskrá og kjörsókn19.35177,15 
      
2010     
 Framsóknarflokkurinn 9916,741
DSjálfstæðisflokkurinn 4.14228,174
FFrjálslyndi flokkurinn 990,670
SSamfylkingin 3.85326,213
VVinstrihreyfingin – grænt framboð 1.3419,121
XNæst besti flokkurinn 1.90112,931
YListi Kópavogsbúa 1.4079,571
 Auðir og ógildir 9706,59 
 Alls 14.70410011
Kjörskrá og kjörsókn21.39668,72 


mbl.is Meirihlutaviðræður í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og þá verður það bara 4 flokka stjórn Ármann!

Það er nokkuð ljóst að fólk vill að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn fái frí. Enda í ljósti vilja allra núna um samvinnu flokka þá ætti það ekki að vera erfitt. Næstbesti flokkurinn hafði það á stefnuskrá sinni að fella meirihlutan. Samfylking og Vg hafa unnið mjög saman í minnihluta og Listi Kópavogsbúa finnst mér að hafa svipuð gildi og félagshyggju flokkarnir. Það verður því 4 flokka stjórn í Kópavogi á næsta tímabili. Og ég held að það verði ekki erfitt að samræma stefnumál þessara flokka.

Flokkur sem tapar 14% atkvæða sem og Framsókn sem rétt kom manni inn eiga að meðtaka skilaboðin og fara í endurhæfingu. Minni á að Gunnar Birgirsson er komin aftur í bæjarstjórn. Nema það hafi verið hann sem var strikaður út.


mbl.is „Fjögurra flokka stjórn án Sjálfstæðisflokks"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er nú furðuleg skýring!

Hann talar um að það sé skýrt merki um að Samfylkingin sé að tapa í þessum kosningum að missa mann í Kópavogi. En það var bara á nokkrum atkvæðum. Bíddu er maðurinn ekki í lagi. Maðurinn hlýtur að vera eitthvað skrýtinn. Samfylkingin tapar um 3% sem er vissulega slæmt en sjálfstæðisflokkur tapar í Kópavogi um 15% sem og að það eru 3 ný framboð í Kópavogi.

Það er ljóst að Framsókn er að tapa miklu og hefur verið sá flokkur sem segist vera búin að gera upp fortíðina.


mbl.is „Samfylkingin er tapari þessara kosninga“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað á að kjósa í Reykjavík?

Bendi á frábæran pistil Illuga þar sem hann fer yfir álit sitt á oddvitum flokkana í umræðunum í Sjónvarpinu í gær.

Hann segir m.a.

Ég skal viðurkenna að ég hef ekki verið mjög veikur fyrir framboði Besta hingað til, sjá hér. En ef ég hefði nú verið það, þá er ég smeykur um að öll hvöt til að kjósa hann hefði verið alveg í andarslitrunum eftir að hafa horft upp á furðulega slappa frammistöðu Jóns Gnarr í gærkvöldi.
 
Auðvitað geta menn ekki alltaf átt stórleik, og auðvitað er Jón Gnarr ekki vanur að taka þátt í svona umræðum, en mér er sama: Ástríðu- og áhugaleysið sem einkenndi Jón gerði að verkum að ég skildi enn síður en áður hvaða erindi maðurinn ætti í borgarstjórn Reykjavíkur.
 
Það var ekki í honum neinn eldmóður, engin ástríða, engin ný hugmynd, engin ný hugsun, og hann var ekki einu sinni fyndinn og hann var ekki ósvífinn, ekki prakkaralegur, ekki neitt.
 
Allir sem hafa bundið vonir við að Jón Gnarr hefði eitthvað nýtt fram að færa í stöðnuðu flokkakerfi borgarinnar hljóta að hafa orðið fyrir afar djúpum vonbrigðum.
 
Það var eiginlega hálf hrollvekjandi tilhugsun að tugþúsundir borgarbúa ætluðu að fara að fela atkvæði sitt þessum manni, sem hafði svo bersýnilega ekkert fram að færa.
 
Mér fannst nánast móðgandi að horfa upp á þetta hugmyndaleysi, andleysi, stefnuleysi – þetta var eins og brandari sem var genginn allt, alltof langt


Og brandarinn að þessu sinni var allur á kostnað kjósenda; flokkakerfinu stóð engin ógn af þeim manni sem þarna birtist. Allur vottur þess að í þessu framboði fælist einhver ný hugsun, ný vinnubrögð var gufaður upp.

Illugi eins og mér finnst hinsvegar að málflutningur Reykjavíkurframboðsins sé með ágætum. Þar hafi Baldvinn einn af fáum komið vel út og verið með mótaðar tillögur um lausnir og því er furðulegt að þetta framboð fái ekki meira fylgi.

En í heild er þetta frábær úttekt sem fólk getur lesið hér.


mbl.is Gleymdi persónuskilríkjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kópavogsbúar ekki eyða "X" inu ykkar á D og B

Undirritaður ætlar að stuðla að því að niðurstöður liggi fyrr en ella í Kópavogi með því að mæta untitled snemma á kjörstað að þessu sinni.

Eins og þeir sem hafa lesið þetta blogg verður það X við S hjá undirrituðum. Finnst að Samfylkingin í Kópavogi hafa staðið sig vel í að benda á síðasta kjörtímabil hversu stjórn Kópavogsbæjar hefur verið gegnsýrð af:

  • Einræðistibuðum Gunnars
  • Verkefnum til vina og ættingja
  • Vanhugsuðum skipulagsmálum
  • Greiðasemi við verktaka.
  • Óvönduðum ákvörðunum sem hafa kostað okkur Kópavogsbúa milljarða
  • Stríði við Íbúa til að hjálpa verktökum og fjárfestum.

Eins tel ég að Samfylkingin boði raunhæfar aðgerðir til að koma bænum upp úr Kreppunni.

Elsku Kópavogsbúar!

Ég veit að þið eruð ekki öll sammála mér varðandi Samfylkinguna. Allt í lagi en gerið það að Kjósa nú ekki þá flokka sem hafa komið okkur út í skuldafen. Og þá sér í lagi ekki flokk sem velur aftur í oddvita sæti mann sem hefur verið inn í öllum þessu vafasömu málum og hefur ekkert vitrænt lagt til í þessu bæjarfélagi! En það er Ómar Stefánsson. Kjósið Samfylkingu Vg, Lista Kópavogsbúa, Næstbesta flokkinn. Bara ekki eyða "X" inu ykkar á Sjálfstæðisflokk eða Framsókn. Þau þurfa frí og þar eru líka enn Ómar og Gunnar sem þarf að halda utan Bæjarstjórnar Kópavogs.


mbl.is Sveitarstjórnakosningar hafnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í kjölfar þessarar fréttar er rétt að vísa á ágæta greiningu á þessu framboði

Illugi Jökulsson fjallar um framboð Besta flokksins á blogginu sínu sem og í DV

Þar segir hann m.a.

En auðvitað fer ekkert milli mála að í upphafi var framboðið tómt grín. Eiginlega bara prívatbrandari Jóns Gnarr, eða ein þeirra eins manns leiksýninga sem hann hefur áður haldið úti. Þekktust þeirra er vitaskuld leikritið “Þegar Jón Gnarr varð trúaður” en það gekk heillengi í ýmsum fjölmiðlum og um var um tíma leikið af heilmiklum sannfæringarkrafti af höfundinum og eina leikaranum.

 

Honum tókst þá (eins og nú) að útvega sér aukaleikara sem óafvitandi tóku þátt í gríninu með því að fjalla af mikilli alvöru um hina nýfundnu trú hans og merkingu hennar.

 


Þetta leikrit hafði hins vegar þann galla – að minnsta kosti fyrir aðra en Jón Gnarr sjálfan - að það vantaði eiginlega pönsið, það fjaraði bara hægt og rólega út án þess að áhorfendur fengju mikið fyrir snúð sinn.

 

Fyrir þetta nýja leikrit var Jón hins vegar búinn að tryggja sér pönsið fyrirfram – það er að segja kosningarnar. Þær yrðu sjálfkrafa hápúnktur leikritsins “Jón Gnarr fer í framboð”.

 

Leikritið, sem mér skilst að hafi verið kvikmyndað alveg frá upphafi, átti líklega að verða einskonar skemmtimynd um einfeldninginn sem dettur óvænt inn í pólitík – eins konar íslensk útgáfa af Mr.Smith Goes to Washington.

 

Nema hvað einfeldningur Jóns Gnarr átti ekki að vera vammlaus og prúður skátaforingi og bláeygur baráttumaður gegn spillingu og hræsni, heldur þvert á móti óður og uppvægur að taka sjálfur þátt í spillingunni – bláeygur bitlingagosi ef þannig má að orði komast.

 

Þetta var frábær hugmynd og hefði getað orðið – og getur auðvitað enn orðið – stórkostleg ádeila á samfélag okkar og stjórnmál, þar sem “siðbót” eftir spillingartímann er til dæmis fólgin í því að Sjálfstæðisflokkurinn þykist hafa gert upp við Hrunið með því að kjósa sér formann, sem var á kafi í allskonar Vafningum með þeim sem nú lítur út fyrir að hafi verið einhverjir óforskömmuðustu þrjótar útrásarinnar.

Og síðar:

FJÖGURRA ÁRA LANGUR BRANDARI
 
 
Þannig virðist upphaflegur brandari Jóns Gnarr óðum að verða eitthvað allt annað en í byrjun – rétt eins og flakk Jeshúa frá Nasaret um sveitir Galíleu og rabb hans við fylgismenn sína varð að hátimbruðum trúarbrögðum, og hann sjálfur að guði – sem hann hefði alveg áreiðanlega sjálfur talið argasta guðlast.
 
Tiltölulega beinskeytt grín um spillingu og hallærislega orðræðu stjórnmálamanna er orðið að ansi þokukenndum hugmyndum um nýtt líf, nýja tíma og minna sjónvarpsgláp.
 
Og pönsið, sem kosningarnar á morgun áttu að verða, virðast nú bara vera lok á fyrsta þætti – leikurinn stefnir í að verða að minnsta kosti fjögurra ára langur.

 


Kannski verður þetta samfelld gleði, og kannski það glæsta upphaf á splúnkunýjum degi sem margir virðast vonast eftir. Ja, það gæti farið svo, auðvitað vona ég það, en ég verð að viðurkenna að ég efast.

En endilega lesa þessa færslu Illuga hún heitir:JÓN GNARR ER BARA ALVEG EINS OG JESÚS!


mbl.is Besti flokkurinn fær 7 borgarfulltrúa samkvæmt könnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær tíðindi úr Kópavogi

Loksins loksins þá er útlit fyrir að Kópavogur fái nýjan meirihluta. Það vekur reyndar furðu að 9%  Kópavogsbúa vilji hafa Ómar Stefánsson áfram. Sýnist að 4 maður sjálfstæðismanna sé tæpur og því þarf minn flokkur ekki að bæta við sig nema 3% til að verða stærsti flokkur Kópavogs með 4 menn og gæti myndað meirihluta með Vg og Lista Kópavogbúa. Sem og að Hjálmar Hjálmarsson held ég að innst inni sé félagshyggjumaður. Bauð hann sig ekki fram fyrir Borgarahreyfinguna?

könnun kopavogur
Mynd af www.visir.is

Svona var t.d. staðan í Kópavogi rétt fyrir kosningar 2006

Innlent | mbl.is | 23.5.2006 | 18:50

Sjálfstæðisflokkurinn fær hreinan meirihluta í Kópavogi samkvæmt nýrri könnun

Samkvæmt nýrri könnun Félagsvísindastofnunar fyrir NFS fréttastöðina, á fylgi stjórnmálaflokka fyrir sveitastjórnarkosningar í Kópavogi, myndi Sjálfstæðisflokkurinn líklega rétt ná hreinum meirihluta atkvæða, fengi sex bæjarfulltrúa en Samfylkingin bætir einnig við sig fylgi. Flosi Eiríksson myndi ná sæti í bæjarstjórn. Framsóknarflokkurinn mælist með 11,7%, en var með 27,9% í seinustu sveitastjórnarkosningum. Vinstri-grænir fá tæp 7%. Sjálfstæðisflokkurinn er með 46,8% fylgi og Samfylkingin 34,7%.


mbl.is Meirihlutinn fallinn í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning varðandi þessa könnun

Hvað er átt við með?:

Þátttakendur í könnuninni voru 517 og lýstu 61,9% yfir stuðningi við einhvern flokk, en aðrir voru óákveðnir, ætla að skila auðu eða vildu ekki svara. Spurt var: »Hvaða flokk eða framboð mundir þú kjósa ef borgarstjórnarkosningar færu fram í dag?

Þ.e." Þátttakendur" var þetta einhver ákveðinn hópur sem var spurður? Var þetta þeir sem svöruðu? Og af hverju hvoru það 517 spurðir? Er þetta hluti af stærra úrtaki? Eða var úrtakið 517?  Og ef að úrtakið var 517 af hverju er sú tala valin?

Og enn eru 38% sem eru ekki búin að taka ákvörðun eða vilja ekki svara!

Finnst vanta frekar útskýrigar á þessu?  Maður þarf að vita úrtakið, hvort að þetta sé fólk af einhverjum póstlista eða hvað.


mbl.is Mikið forskot Besta flokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband