Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2012

Orðsending til bæjarfulltrúa í Kópavogi frá útsvarsgreiðanda!

Ég undirritaður hef nú um skeið fylgst með bæjarstjórnarfundum í Kópavog. Svoan til að koma í veg fyrir meinlegar athugasemdir um að ég sé nú bara að draga taum Samfylkingarinnar, þá er rétt að ég viðurkenni að það er rétt að ég kýs Samfylkinguna en það kemur þessu máli bara ekkert við því þessu er beint til fulltrúa hennar í bæjarstjórn líka.

En sem sagt ég hef nú fylgst með þessum bæjarstjórnarfundum nú um nokkuð skeið bæði í útvarpi og á netinu. Og þvílík upplifun. 

  • Til að byrja með er útsending á netinu með miklu suði. Þannig að stundum heyrist varla í fólki
  • Hljóðnemar eru lágt stilltir þannig að það heyrist varla í sumum ræðumönnum
  • Fundarstjórar/forsetar bæjarstjórnar eru óöruggir og halda mjög illa utan um störf fundarins
  • Ræðumenn eru illa undirbúnir og muna ekki númer mála sem þeir eru að ræða um og fer mikill tími í að tilgreina og leita að þeim.
  • Fundir taka iðulega upp undir 8 tíma, þó að maður sem hlustar telji að þeim mætti ljúka á mun skemmri tíma miðað við málin sem talað er um.
  • Nú í dag eru auðveldlega hægt að senda þessa fundi út með mynd. Þannig eru t.d. fundir hjá stéttarfélögum sendir út með þannig útbúnaði sem er stjórnað með einni fjarstýringu.  Og þetta væri sérstaklega til bóta þar sem oft á tíðum er verið að fjalla á fundinum eitthvað sem skýrt er á glærum.  Þarna væri hægt að t.d. fá fyrirtæki eða bara starfsmann bæjarins til að læra á svona græjur og senda út á netinu án mikils kostnaðar en til mikils hagræðis fyrir okkur bæjarbúa.
  • Fundarstjórn þarf að batna mikið. Það þarf að finna að því strax við fólk þegar það fer út fyrir efnið sér í lagi þegar verið er að ræða fundargerðir nefnda og ráða.
  • Væri sniðugt að hafa fyrsta hálftíma í frjálsar umræður.
  • En fáir bæjarbúar nenna að fylgjast með svona fundum í 8 tíma.
  • Væri kannski vit í að fjölga fundum og hafa þá styttri.
  • Stytta kannski ræðutíma nema við sérstakar aðstæður.
  • Fækka þessum fundarhléum fyrir bóknair og leyfa þeim bara að koma seinna væri gott

Eins finnst mér fuðurlegt að nær öll umræða í bæjastjórn fer í að ræða útþennslu Kópavogs, húsbyggingar og skipulag. Af hverju er ekki megin áhersla á innrastarf bæjarins, þjónusta við okkur sem búum í Kópavogi ekki þá sem gætu flutt ef að lóðum fjölgar.  T.d. stefnur og hugmyndafræði. Er það ekki það sem bæjarstjórn á að gera. Þ.e. móta stefnu og setja ramma og það eru starfsmenn sem skipuleggja hvernig það er gert?

En að ef að þið bæjarfulltrúar í Kópavogi viljið að við bæjarbúar fylgjumst með því sem þið eruð að gera þá verði þið virkilega að taka ykkur tak og breyta þessu bæjarstjórnarfundum. Gera þá markvissari, skemmtilegri að fylgjast með. Og það fljótlega endar eru menn og konur að eyða á þessum fundum orku í hluti sem fáir nema innvígðir flokksmenn frétta af.  Og fullt af klst sem væri betur varið í annað fara til spillis. 

  •  P.s.og almennilegar fundargerðir og aðgengi að þeim takk fyrir. Þessi stykkorðastíll segir fólki sem ekki þekkir til nákvæmlega ekkert.
  • Hafnafjörður er komin með fundi á netið myndrænt sbr http://www.hafnarfjordur.is/vefveitan/

mbl.is Fjárhagsáætlun Kópavogs samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er eiginlega að mönnum?

 Nú skulu þingmenn þá skýra út fyrir okkur hverjir aðrir eiga þá að borga þessa skatta? Af hverju grein sem hefur áður rukkað  14% vsk. getur það ekki núna þegar gengið hefur fallið um helming? Afhverju þessi gren sem vissi að lækkun vsk. niður i 7% lætur nú eins og þetta komi á óvart? Eins væri gamana að vita hversu víða verð fyrir næsta sumar t.d. er komið erlendis og hvort að þar gerist aldrei að verð hækki. Mig minnir að á flestum stöðum séu fyrirvarar nema að maður staðgreiði við pönntun. 

Nú hefur komið í ljós skv. fréttum að í ferðaþjónustu er einna mest um svarta starfsemi sem lýtur að því að komast hjá að borga skatta. 2007 var viðisauki lækkaður á gistiþjónustu. Nú er meirihluti þingmanna á móti því að hækka á þessari grein virðisaukan upp í 14%. Það verðu því nauðsynlegt að þessir sömu þingmenn bendi þá á leiðir til að ná þessum peningum inn í Ríkiskassan í staðinn

Eins að skýra út fyrir okkur af hverju nær allir fjárfestar eru tilbúnir að kaupa nærri hvaða hús sem er og breyta í hótel. Ef að þessi grein standur á þvílíkum brauðfótum að hún þarf að svindla á sköttum, getur ekki þrátt fyrir gengisfall rukkað inn vsk. sem þeir vissu að yrði endurskoðaður í þessu ári. 

Hvaða tök hefur hún á þingmönnum Eins grein sem borgar yfir höfuð lágmarkslaun er það æskilegt að mylja undir hana og þá á kostnað hverra? Einhver þarf að borga. Ekki ætlum við að reka ríkið með halla enda getum vð það ekki. 

Bara í fréttum í dag eru hugmyndir um griðarlegar fjáfestingar í hótelum m.a. Laugarvegur 77 sem hugmyndin er að verði Hótel  Niceland  og svo hótel upp á 88 herbergi í Grímsnesi.


mbl.is Styðja ekki 14% skatt á ferðaþjónustuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já miklu betra að þegja um vandamálin

Finnst nú að ríkisstjórn og framkvæmdarstjóri Íbúðalánastjóðs ættu nú kannski að átta sig á að það er einmitt þessi ömurlega leyndarhyggja sem hér er allt að drepa. Ef það það er ekki rætt um þennan vanda þá verður aldrei neitt gert. Og Íbúðalánastjóður getur ekki endalaust verið rekin með tapi í ríkisábyrgð.

Tölum um hlutina og leysum þá. Ekki reyna að þegja málin í hel. 


mbl.is Óheppileg ummæli Sigríðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið ofboðslega er þessi kona ódýr pappír.

Það væri t.d. hægt að minna hana á að þegar sótt var um var fylgið við það um 65% hjá þjóððinni. Síðan hefur dunið linnulaus áróður frá hennarflokki og fleirum aftuhald (íhalds) hópum. Fólk sem áttar sig ekki á að það er að vinna með auðvaldinu gegn því að hingað komi erlend samkeppni bæði um vörur og framleiðslu sem við neyendur myndum njóta góðs af. Það verður svo eftir nokkur ár þegar að krónan fellur alvarlega næsgt að fólk ríkur aftur upp og vill ganga í ESB.

EN þá kannski horfir ESB á reynslu sína af því að semja við okkur nú áður en það ákveður að ganga aftur til samninga við okkur. Því að gróði okkar af þessu samstarfi yrði mun meiri en ESB og þau 27 ríki sem mynda það hefðu af okkur. Sbr. hér er ekki stór markaður að sækjast eftir, við erum búin að virkja meira enn 2/3 af allri orku sem við höfum. Við höfum engin bein tengsl við Norðuskautið og engin réttindi þar. það eru önnur ríki.

Held að fólk hér þjáist af mikilmennskubrjálæði ef fólk heldur að við getum staðið sjálfstæð utan bandalaga þegar að völd Asíu fara að aukast í heiminum mæstu áratugi. Eða að við getum haldið út krónu áfram um lengri tíma fyrir örhagkerfið hér. Krónu sem hefu rýrnað um 99,5% frá því henni var komið á.  Algjörlega ljóst að þegar við yrðum fullgildur aðili að markaðsvæði ESB bæði með inn og útflutning myndum við neytendur græða á lækkuðu vöruverði.

Og þegar Sigríður talar um kostnað við viðræður þá ætti hún hugsandi konan að vita að við höfum fengið mun hærri styrki frá ESB vegna þessara viðræðna en við höfum fengið. 


mbl.is Vond umsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Annað hvort er Bjarni Ben lýðskrumari eða hann les ekki fréttir.

Þessi ræða hans um að stjónvöld geri ekkert til að koma upp iðnaði í Norðausturlandi eru í algjöru ósamræmi við það sem forstjóri Landsvirkjunar sagði í gær. Það var að 5 fyrirtæki eru nú með ramma samning við Landsvirkjun en flest fyrirtæki í þessari framleiðslugreinum /stóriðju halda að sér höndum varðandi fjárfestingar vegn lækkunar á heimsmarkaði m.a. með ál og kísilmálma. Sbr. hér http://www.ruv.is/frett/kreppan-hefur-ahrif-a-vidsemjendur
mbl.is Tekist á um stóriðju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Bjarnason er nú ekki ábyggilegasta heimildin.

Það er nú alvega átakanlegt að vera að hafa svona hluti eftir Jóni Bjarnasyni. Hann er jú gjörsamlega forfallinn andstæðingur ESB og sér ekkert jákvætt við það. En verra er að hann talar oft sennilega þvert gegn  því sem hann veit t.d. varðandi þessar undanþágur. Svona til að byrja með þá nægir að nefna þann stuðning og undanþágur sem landbúnaður í Svíþjóð og Finnlandi fengu vegna þess sem er nefnt "landbúnaður á Norðlægum slóðum" sem m.a. veitir undanþágur fyrir ríkð að styrkja landbúnað sérsaklega sem og styrkir frá ESB beint til þeirra sem búa á norðlægum og harðbýlum svæðum. Og þessar undanþágur og samningar hafa jú staðið í tæp 20 ár án þess að farið sé að tala um að aflétta þeim.
mbl.is Engar varanlegar undanþágur í boði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða fréttir eru þetta. Bretar hafa alltaf talið sig stórveldi og ekki viljað vera í ESB en gera ekkert í því

Man ekki betur en að Bretar hafi alltaf verið frekar andsnúnir ESA. Og yfirleitt mælst meirihluti þar fyrir að segja sig úr ESB. Íhaldsflokkurinn m.a talað mikið fyrir því en þegar hann kemst til valda þá tekur við kalt hagsmunamat sem veldur því að þeir gera ekkert í því.
mbl.is Meirihluti Breta vill úr ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður horfir á sögu manna þegar þeir tala.

Tryggvi Þór verður að búa við það að hann stýrði litlum banka eða fjárfestingarfélagi fyrir hrun og það fór rækilega í þrot. Á meðan hann talaði um að allt gengi vel þar. Hann vann að fyrstu ráðstöfunum sem efnahagsráðgjafi Ríkisstjórnar Geirs Haarde eftir hrun og því hefur að mestu verið fylgt Og ég held að umheimurinn sé ekkert búinn að gleyma Icesave og við fáum ekki mörg svona tækifæri að fresta uppgjörum. Enda Icesave ekki búið. Argentína er í þeirri aðstöðu og hann er að leggja til að við förum í og þeir eru búinir að vera í 10 ár nærri því að berjast við aleiðingar þess að ætla að sniðganga skuldir sínar. Íslendingar eru vertíðarþjóð og þola ekki að þurfa að herða að sér um lengri tíma en eitt til 2 ár.
mbl.is Að steðjar vá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sé ekki í fréttinni um skattalækkanir hvar á að skera niður.

Veit að það er öruggt að þar sem Kópavogur er skuldugur að ekki verða lækkaðir skattar án þess að eitthvað sé skorið niður eða þjónustugjöld hækkuð. Því væri nú fengur í að bæjarstjóri Kópavogs væri ekki að senda út svona yfirlýsingar nema að segja okkur útsvarsgreiðendum og þjónustukaupendum alla söguna.
mbl.is Skattar lækka í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gæti ekki líka verið?

Gæti ekki líka verið að flokksmenn Sjálfstæðisflokks hafi horft í:

  • Hvaða árangri hefur Bjarni að státa af í pólitík?
  • Hvaða árangri hefur Bjarni náð t.d. sem stjórnaformður N1 og Vafning? Er það ekki ekki merki um gríðarlega áhættusækni og því að steypa fyrirtækjum í skuldasúpur. Fyrirtæki keypt upp hægri og vinstri og skuldsett til andskotans. 
  • Hvað með t.d. að hann hefur á nokkrum árum skipt um skoðun í flestum málum?
  • Hvað hefur hann t.d. skv. ofantöldu sem geri hann að heppilegum leiðtoga ríkisstjórnar eftir næstu kosningar? 

Bara svona að velta þessu fyrir mér.


mbl.is Glímir við „arfleifð hrunsins“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband