Leita í fréttum mbl.is

Þetta er þjóðin sem getur ekki leyst vandamál aldraðra eða geðfatlaðra

VIð Íslendingar þekkjum það að vanda mál aldraðra hafa verið í umræðunni um árabil. Það er vitað mál að þar skortir bara fjármagn til að geta skapað öldruðum búsetu og þjónustu við hæfi. Barna og unglinga geðdeild hefur þurft að bíða árum og áratugum saman eftir að fá að byggja og þar með að geta boðið þjónustu sem þarf nú að bíða eftir í ár eða meira.

Við léttum sköttum og opnuðum fyrir fjármagnsstreymi fyrir fyrirtæki landsins og hvað skeður. Þau eru sífellt að dæla hagnaði sínum og fjármagni til útlanda. Og nú á í annað skipti að leika sér að því að eignast Enskt fótboltalið. Og jú borga bara 75 milljónir punda fyrir það. Sú upphæð mundi duga til að byggja um hjúkrunarheimili með um 3 til 4 hundruð einstaklingsrýmum (Íbúðarígildum). Þetta er meiri upphæð en allur kostnaður ríkisins við lækkun matarskattsins.

Og þessa upphæð eru menn tilbúnir að leggja í leik með fótboltafélag af því að þeir nenna ekki að spila fotball manager!

Já ég er hræddur um að fyrirtækin fari að skila minna og minna inn í Íslenskt samfélag. Þau verða að mestu komin til útlanda nema að nafninu til innan skamms.


mbl.is Íhugar kaup á West Ham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú hefur verið bannað að auglýsa áfengi í áratugi en hverju hefur það skilað?

Þetta er vatn í flösku en einhver prakkari setti bjórmiða á--- Alls ekki auglýsingÞað hefur verið bannað að auglýsa áfenga drykki í áratugi. En ég leyfi mér að halda því fram að það hafi engu eða litlu skilað. Unglinglingadrykkja er en við lýði og hefur held ég aðeins aukist. Auk þess þá leita áfengisinnflytjendur í aðrar aðferðir eins og að bjóða upp á veitingar í partýum og böllum hvar sem þau geta. Ég held að hlutir sem er verið að pukrast með verði alltaf meira spennandi fyrir unglinga og ungt fólk sem er en í uppreisnarhug. Ég held að reynsla annarsstaðar sýni að það sé mun meiri skynsemi í að reyna að breyta menningu í kring um þetta.  Koma drykkjumenningunni á hærra plan!

Kenna fólki að hóflega drukkið vín, gleður mannsins hjarta!


mbl.is Dæmdur til að greiða sekt vegna áfengisauglýsinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bíddu var ekki farið að draga umtalsvert úr þennslu?

Bíddu hefur ráðherra síðustu vikur ekki verið að  tala um að þennslan væri í rénun. Og því væri hægt að hefja aftur vegaframkvæmdir eftir 3 mánaða stopp og nú er hægt að lækka matarskatta korter fyrir kosningar en svo les maður þetta í dag: Bankarnir spá...

Kominn tími til að skoða þetta.

Vona bara að þetta taki ekki mörg ár og verði síðan stungið undir stól  Þá var samþykkt einróma að láta gera úttekt á kjörum einstæðra og forsjárlausra foreldra.

Alveg er ég viss um að þetta á eftir að fara út fyrir allan þjófabálk.

Ég man í gamla daga þegar sögur gengu um að ákveðið fólk sem átti skyldmenni voru virk í Fylkingunni og þvílíkum félagsskap fengu ekki áritun til að fara til USA. Í ljósi nýjustu frétta þá leyfi ég mér að áætla að þessar upplýsingar hafi m.a. komið frá...

Hvernig væri að lækka gjöldin frekar

Ég er orðin dálítið þreyttur á allri góðmennskunni sem geislar af fyrirtækjum og þá sérstakalega þeirra sem eru í opinberri eigu. Orkuveitan er að hugasa um að stofna menningarsjóð til að styrkja listamenn. Hverning væri að þessi fyrirtæki hugsuðu...

« Fyrri síða

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Okt. 2006
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband