Leita í fréttum mbl.is

Bara svona af gefnu tilefni: Ég er ekki talsmaður Samfylkingarinnar!

Hef tekið eftir því oft og iðulega að í athugasemdum hér við bloggið mitt og eins að facebook er fólk svo grunnhyggið að telja að ég sé að tala í nafni Samfylkingar eða sé að miðla einhverju sem mér er sagt að segja.  Mér er ljúft og skilt að benda á að þetta er algjört bull. Og þessi hugmynd fólks að fólk sem tekur afstöðu með einum flokk eða máli og talar fyrir því sé þá sérstakir útsendarar flokka. Ég hef aldrei verið beðinn um slíkt enda held ég að flokkar myndu biðja ritfærari mann en mig um það.  Hér tala hundruð bloggara gegn ESB en fæstir þeirra eru stimplaðir útsendarar eða talsmenn Heimssýnar, Framsóknarflokksins eða einhvers annars.

Nú hef ég ekki farið leynt með að ég styð ríkisstjórnina. Ég er flokksbundin Samfylkingarmaður en skrif mín hér og annarsstaðar eru bara mín innlegg í umræðunn. Ég hef aldrei farið leynt með að mér er illa við stefnu Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins og því mótast mín skirf af því. En menn hafa bullað um:

  • Að ég sé á launum frá Samfylkingunni
  • Að ég sé i einhverrjum bloggher Samfylkingarinnar
  • Að ég sé að skrifa að beiðni einhverra

En ég verð að hryggja menn held að fæstir flokkar ef nokkrir séu með skipulagt lið bloggara. Held að flestir eins og ég bara tjái sig á eigin spýtur og standi með þeim málstaði sem þeir trúa á. Það má einstaka sinnum finna á netinu einhvern hóp manna sem hugsanlega vinna saman og nota blogg sem hluta af því að koma málstað sínum til skila en það er afar sjaldan og yfirleitt mjög augljóst.  Held að fólk geri stundum of mikði úr samsærum og skipulagðir bloggstarfsemi. Sem og fleiru sem bara stenst ekki rök.  T.d. vantar mig alltaf skýringar á því að Steingrímur og Jóhanna hafi átt að vera í einhverju samsæri gegn heimilum en með fjármagnseigendum.  Og hvaða hag þau hefðu átt að hafa af því . 


Að lofa ekki meiru en hægt er að standa við gengur ekki í kjósendur

Nú fyrir þessar kosningar tók Samfylkingin ákvörðun um að lofa ekki meiru en hægt er að standa við. Engin loforð um peninga af himnum ofan eða eitthvað sem svo auðvelt er að svíkja eftir kosningar. Formaðurinn boðaði ný vinnubrögð í stjórnmálum og auka...

Það stefnir hraðbyr í kjörtímabil Sérhagsmuna!

Það er auðvita tímabært að átta sig á að nú stefnir þjóðin hraðbyr í átt að kjörtímabils sérhagsmuna þar sem hagsmunir útgerðamanna og bænda verða öllu ofar. Allar líkur á að nú stefni í 4 ára töf á því að okkur Íslendingum bjóðist svipuðu kjör á...

Er farinn að halda að Bjarni og Sjallar hafi ákveðið að nota þessa könnun til að snúa fylginu til baka

Finnst nú í dag eftir viðtalið við Bjarna að þetta sé hönnuð atburðarrás til að snúa við fylgisflótta af Sjálfstæðisflokknum. Það er einhvernvegin einhver skítalykt af þessu. Og kæmi verulega á óvart að svona könnun sé framkvæmd af Sjálfstæðismönnum á...

Nokkur atriði sem eru að verða ljóst að þjóðin vill:

Stór hluti þjóðarinnar vill: alls ekki að útgerðinn borgi auðlindagjald nema til mála mynda.Framsókn ætlar að afnema það skv. ræðum á Alþingi vill alls ekki nýja gjaldmiðil heldur halda áfram með krónuna vill að virkjað verði hér eins og aldrei sé...

Þetta er ekki í lagi!

Hér einangruð á hjara veraldar komast fiskvinnslufyrirtæki og útgerðamenn upp með að halda kaupinu niðri í þeirri grein sem nú malar gull. Og þetta hefur viðgengis um ár og áratugi. Ef að fólki dreymir um hærra kaup þá koma þeir aumir og fátækir og...

Nýtum peningana okkar í velferð frekar en vexti

Nýtum peningana okkar í velferð frekar en vexti from Samfylkingin XS on Vimeo .

Af hverju hef ég trú á stefnu Samfylkingarinnar.

Frá því 1920 hefur krónan rýrnað 2100 fallt gagnvart Dönsku krónunni. Frá lýðveldisstofnun hefur krónan verið í höftum öll árin nema í hvað um 15 ár fyrir og eftir 2000. Allar ríkisstjónrir sem hér eru fyrir neðan hafa lofað stöðugleika með krónunni en...

Smugan ekkert að skafa af þessu.

Í pistli á Smugan.is segir: Skömmu eftir janúarbyltinguna 2009 spratt formaður Framsóknarflokksins upp eins og túnfífill að vori. Hann gerðist flokksbundinn framsóknarmaður mánuði fyrir formannskjör í þessum flokki sem var hálf munaðarlaus, eftir...

Bíddu er Framsókn að draga í land með afnám verðtryggingar?

Jæja kominn aftur og byrjaður að pirra mig á Framsókn. Kosningaloforð þeirra var fyrir nokkrum vikum skilyrðislaus afnám verðtryggingar en er nú komið niður í þetta. Finnst þetta orðið hljóma eins og aðrir flokkar. Þ.e. draga úr vægi...

Eitthvað svo miklu mikilvægara en dægurþrasið.

Suma daga nennir maður ekki að standa í dægurþrasinu hér. Það eru mikilvægari hlutir til eins og fjölskyldan. Auðvita er mín fjölskylda að ganga í gegnum kreppuna eins og aðrir og því hef ég barist eins og ég hef getað að við förum að breyta hér...

Hér með lýsi ég því yfir að Sigurður Þorsteinsson er óvelkominn á mína síðu!

Eftir að mér var bent á að óþvera athugasemd Sigurðar Þorsteinssonar http://ziggi.blog.is/blog/ziggi/ á blogginu mínu þar sem hann m.a. kallaði dóttur mína " svefnherbergisskattur. Dráttarvextir mánaðarlega í 18 ár" Þá er hann hér með útilokaður frá því...

Munar þig um heila íbúð?

Munar þig ekki um heila íbúð? from Samfylkingin XS on Vimeo .

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband