Leita í fréttum mbl.is

Svona að velta fyrir mér - Hvað ef?

Ef við segðum að að Vaskurinn yrði áfram 7% en á móti myndi krónan hækka í gengi um 17% - Hvað þá?  Á ég að trúa því að um 50% lækkun á gengi krónunar og þar með mun hagstæðari skilyrði hafi ekki gefið hótelum neitt tækifæri á að taka eitthvað af hækkun vsk. á sig. Hvernig var þetta þá 2006 þegar krónan var 50% hærri og það var 14% vsk að minnstakosti? Þá hljóta þessi hótel og gististaðir að hafa verið tómir.
mbl.is Afbókanir gesta dynja yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni farin að stunda : „Let them deny it" Þ.e. ljúga þar til annað er sannað

Í þessir frétt lýgur hann bara blákalt vitandi betur. Sbr.

26.9.2012

Í Morgunblaðinu í dag er viðtal við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, um skattbyrði.

Viðtalinu fylgir línurit þar sem sýnt er að skattbyrði hafi vaxið hjá öllum tekjuhópum frá árinu 2007. Þetta línurit og þeir útreikningar sem það byggir á eru alrangir enda munu hinir tekjulægri að minnsta kosti ekki kannast við það sem þar er verið að sýna.

Línuritið sýnir skattbyrði eftir tekjum fyrir árið 2012 annars vegar og árið 2007 hins vegar.  Línan um skattbyrði ársins í ár er rétt og engar athugasemdir við hana. Það er útreikningurinn fyrir árið 2007 sem er meingallaður. Hann er gerður þannig að í stað þess að reikna skattbyrði miðað við skatthlutfall ársins 2007 og þann persónuafslátt sem þá var í gildi hefur sú tala verið færð upp til verðlags dagsins í dag með vísitölu neysluverðs. Þannig greiddi enginn maður skatt árið 2007. Línuritið hér fyrir neðan sýnir skattbyrði þessara tveggja ára eins og hún var í raun og veru:

Skattbyrði í staðgreiðslu (tekjuskattur og útsvar) 2007 og 2012
 
Þarna sést svo ekki verður um villst að skattbyrði fólks með tekjur allt að um 500 þúsund krónur á mánuði er lægri nú af hverri krónu í tekjur en hún var árið 2007 og munar mestu hjá þeim sem lægstar hafa tekjurnar. Skattbyrðin hefur vaxið hjá þeim sem hafa hærri tekjur enda hefur það verið ætlun ríkisstjórnarinnar að nota skattkerfið til að jafna ráðstöfunartekjurnar. (http://www.fjarmalaraduneyti.is/almennar_frettir/nr/15876)

 


mbl.is Allir borga hærri skatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski rétt að benda á Birni Bjarnasyni á að kynna sér málin.

Svona til að byrja með er hægt að benda honum á að lesa eftirfarandi rit.: ÁGRIP AF ÞRÓUN STJÓRNARSKRÁRINNAR Þar segir m.a. á bls 14 og 15 Samkvæmt endursamþykkt þingsályktunartillögunnar um skipun milliþinganefndarinnar í stjórnarskrármálinu, er gerð...

Er þetta það sem Birni finnst vera aðalhlutverk þingamanna?

„Hið undarlega er að þingmönnum flokksins tekst ekki að ná þeim vopnum sem þeim eru rétt á hverjum degi til að berja á ríkisstjórninni. Þá var kjörinn sérstakur varaformaður flokksins síðla síðasta vetrar með það sem höfuðverkefni að blása lífi í...

Guðlaugur Þór - Kann hann ekki að lesa?

Sagði Björn Valur ekki að Ögmundur ætti að hafa frumkvæði að því að leita sátta, fara með málið fyrir dóm. En ef hann tapaði málinu fyrir dómi bæri honum að segja af sér. Svo fer Guðlaugur að blanda Jóhönnu í málið. Jóhanna viðurkendi úrskurð kærunefndar...

Sorry er ekki að ná þessu

Hlustaði nú ekki á þennan þátt! En er að velta fyrir mér eftirfarandi: Ríkið á ekki lífeyrissjóði og hefur ekkert aldræðisvald yfir neinum þeirra. Ríkið á ekki einu sinni lífeyrissjóði opinberrastarfsmanna því að þeir eru eign þeirra sem greiða í þá. Og...

Er að fá upp í háls á þessum bændum í þessu máli.

Væri rétt að minnna þessa labbakúta á þær milljónir sem þeir voru að fá út bjargráðasjóði eða hvað sem þessi hamfarasjóður heitir vegna gosins í Eyjafjallajökli. Og eins að þessar nokkur þúsunund sjátur sem þeir eru með eru minna virði fyrir okkur sem...

Fólk ætti að skammast sín - Það er ýmis vitleysa í gangi í umræðu um þetta mál.

Alþingismenn ættu að skammast sín fyrir að vera ekki búnir að innleiða hér á landi sáttmála um mannréttindi fatlaðra Fólk ætti að skammast sín að ræða um þetta mál varðandi kosningar og fólk með fötlun án þess að vita nokkuð um þetta má. Það er rætt um...

Ragnar Arnalds hefur nú alltaf verið á móti öllu erlendu samstarfi og samningum

Hann barðist á móti EFTA og hann barðist á móti EES. Hann og hans mátar hafa alltaf gengið með það á heilanum að hér muni allt fyllasta af útlendingum sem muni stela öllu af okkur. En ekkert af því hefur staðist.

Já en kæri Ragnar. - Kreppunni er víst lokið!

Kreppa þýðir samdráttur og niðursveifla. Þ.e. að allar hagtölur verða neikvæðar. Nú eru þær allar á uppleið og ef við miðum við stöðuna fyrir Bólu. Þ..e. stöuna hér milli 2004 og 2008 þá erum við komin upp úr kreppunni. Það er bara búð að leiðrétta fyrir...

Þetta er ekki boðlegur fréttaflutningur

Þarna eru menn að biðja fólk ekki að vera skrifa svona inn á síðu Ara. Finnst það andskoti hart að tengja það við framboð Þóru þó einhverjir sem ætla að kjósa hana séu að skrifa inn á síðu Ara. Enda segir Friðjón Friðjónsson sem er starfandi fyrir Þóru:...

Sagan endalausa.

Man þessa sögu svona: Það var laus staða í Forsætisráðuneyti Jóhanna ákvað að koma ekki að þessari ráðningu sjálf. Heldur skipa til þess nefnd sem með sérfræðingi mátu umsækjendur og röðu þeim. Jóhanna réð þann sem hópurinn raðaði efst. Einn umsækjandi...

Þegar ég hugsa um málflutning Heimssýnar þá eiga þessar tilvitnanir vel við

Vésteinn Ólason fyrrverandi prófessor Vésteinn Ólason skrifar: Um aldir höfðu Evrópuþjóðir þann hátt á að „leysa“ ágreiningsmál með átökum: hver stóð fast á sínu og að lokum varð stríð. Eftir hroðalegt manntjón og eyðileggingu í tveim...

Það eru til útgerðir sem:

Var að hlusta á Alþingi við atkvæðagreiðslu um þetta mál. Þar talaði Þór Saari og benti á að það eru útgerðir í dag sem geta gengið með því að leigja sér kvóta á um 280 kr. á Þorskkíló. Veiðigjaldið sem er sett á núna er um 30 kr. á kílóið. Bendi á að...

Þetta er furðuleg frétt!

Manni hafði nú skilist á ræðum framsóknarmanna í málþófinu að best væri að henda öllum breytingum á fiskveiðifrumvarpinu og veiðigjöldum og breyta ekki neinu. En nú talar Sigmundur Davíð um: „Það ætti ekki að þurfa að vera langt í land vegna þess...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband