Leita í fréttum mbl.is

Nokkrar góðar dæmisögur svona í tengslum við ástandið hjá okkur

Lexía 1:
Maður fer í sturtu rétt í þann mund, er konan hans er að ljúka sinni og dyrabjallan hringir.
Konan vefur um sig handklæði og hleypur til dyra.
Hún opnar hurðina og úti stendur Biggi úr næsta húsi.
Áður en henni tekst að koma upp orði segir Biggi: "Ég gef þér hundraðþúsund ef þú lætur handklæðið falla".
Hún hugsar sig um smá stund og lætur svo handklæðið falla og stendur nakin fyrir framan Bigga. Eftir nokkrar sekúndur lætur Biggi hana fá hundraðþúsund og fer.
Konan vefur handklæðinu aftur utan um sig og fer aftur inn.
Þegar hún kemur inn á bað spyr eiginmaðurinn: "Hver var þetta?"
"Þetta var Biggi í næsta húsi", svarar hún.
"Frábært", segir maðurinn, "nefndi hann eitthvað um þessi hundraðþúsund sem hann skuldar mér?"

Boðskapur sögunnar:
Ef þú deilir mikilvægum upplýsingum varðandi lán og áhættu með hluthöfum tímanlega geturðu verið í aðstöðu til að koma í veg fyrir óþarfa afhjúpun

Lexía 2:
Prestur bauð nunnu far. Hún settist inn og krosslagði fætur, sem varð til að bera fót hennar.
Presturinn missti næstum stjórn á bílnum. Eftir að hafa náð stjórninni aftur, strauk hann hendinni laumulega upp eftir fæti hennar.
Nunnan sagði þá: "Mundu eftir Orðskviðunum 10:4".
Presturinn dró að sér hendina, en þegar hann skipti um gír strauk hann hendinni aftur upp eftir fæti hennar.
Aftur segir nunnan: "Mundu eftir Orðskviðunum 10:4".
Presturinn afsakaði sig og sagði: "Fyrirgefðu systir, holdið er veikt".
Er þau renna í hlað við klaustrið andvarpar nunnan þunglega og fer sína leið.
Þegar presturinn kemur í kirkjuna flettir hann upp Orðskviðunum 10:4. Þar stóð: " Snauður verður sá, er með hangandi hendi vinnur, en auðs aflar iðin hönd".

Boðskapur sögunnar:
Ef þú ert ekki vel upplýstur í starfi þínu gætirðu misst af stórkostlegum tækifærum

Lexía 3:
Sölumaður, ritari og deildarstjóri eru á leið í mat þegar þau finna fornan olíulampa.
Þau nudda lampann og út kemur töfraandi. Andinn segir: "Ég veiti hverju ykkar eina ósk".
"Ég fyrst! Ég fyrst!", segir ritarinn. "Ég vil vera á Bahamaeyjum á hraðbát algerlega áhyggjulaus". Og púff! Hún er horfin.
"Næst ég! Næst ég!", segir sölumaðurinn. "Ég vil vera á Hawaii að slaka á með einkanuddara og endalausar birgðir af Pina Colada og ástinni minni". Og púff! Hann er horfinn.
"Allt í lagi, það er komið að þér", segir andinn við deildarstjórann.
Deildarstjórinn segir: "Ég vil að þessi tvö verði komin aftur á skrifstofuna eftir mat".

Boðskapur sögunnar:
Alltaf láta yfirmanninn tala fyrst.

Lexía 4:
Örn sat í tré og gerði ekki neitt.
Lítil kanína sá örninn og spurði hann: "Get ég líka setið eins og þú og gert ekki neitt?"
Örninn svaraði: "Auðvitað, því ekki".
Svo kanínan settist á jörðina fyrir neðan örninn og hvíldist. Allt í einu birtist refur og stökk á kanínuna og borðaði hana..

Boðskapur sögunnar:
Ef þú ætlar að sitja og gera ekki neitt skaltu gera það mjög mjög hátt uppi.

Lexía 5:
Kalkúnn var að tala við bola.
"Ég vildi að ég gæti komist á topp þessa trés, en ég hef bara ekki kraft til þess".
"Nú, því nartarðu bara ekki í delluna mína", svaraði boli, "hún er full af næringarefnum".
Kalkúnninn kroppaði í delluna og komst að því að það veitti honum í rauninni styrk til að ná neðstu grein trésins.
Næsta dag, eftir að hafa nartað í aðeins meiri kúadellu, komst hann á næstu grein. Að lokum eftir fjóra daga sat kalkúnninn stoltur á toppi trésins.
Bóndi nokkur tók fljótt eftir honum og skaut hann niður.

Boðskapur sögunnar:
Della kemur þér kannski á toppinn, en hún heldur þér ekki þar


Þessi átti einhvernvegin svo innilega við þetta mál að ég varð bara að setja hann inn.

Fékk nokkra svona í pósti:

Lítill fugl var á flugi suður fyrir veturinn.  Það var svo kalt að hann fraus og féll til jarðar á stóru engi.  Þar sem hann lá þarna kom kú og skeit á hann.
Þar sem fuglinn lá nú þarna í djúpt í skít varð honum ljóst hve heitt honum var.  Skíturinn var að þíða hann!
Þarna lá hann heitur og hamingjusamur og byrjaði fljótt að syngja af gleði.  Köttur sem átti leið hjá heyrði fuglasönginn og fór að rannsaka málið.
Hann fylgdi hljóðinu og uppgötvaði fuglinn í skítnum og gróf hann umsvifalaust upp og át hann.

Boðskapur sögunnar:
1.  Það eru ekki allir óvinir þínir sem koma þér í djúpan skít
2.  Það eru ekki allir vinir þínir sem draga þig upp úr skítnum
3.  Þegar þú ert í djúpum skít er best að halda kjafti.
 


mbl.is Bankastjórn hugsar sig enn um
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það bíður sérstaks saksóknara erfitt verk

Var að hlusta á pistil Sigrúnar Davíðsdóttur í Speglinum á ruv í gær. Og eftir það er ljóst að þetta verður svakalega erfið vinna sem býður þessa nýja embættis. Í gær var hún að fjalla um Baug og segir m.a. Það er ekkert áhlaupaverk að gera sér grein...

Ég hef spurt áður og spyr aftur!

Getur einhver sagt mér hvað fékkst fyrir kílóið af langreiðarkjötinu sem selt var til Japan. Og hversu mikið kostaði að geyma það í frystigeymslum hér í tæp 2 ár og í frystigámum í Japan í nokkra mánuði áður en það var selt? Það hlýtur að hafa verið mjög...

Hart barist um sæti í nýja framsóknarflokknum

Lýst reyndar vel á Friðrik Jónsson sem bloggar reglulega á www.eyjan.is Og baráttan verður því hörð í NV kjördæmi. En í Suðurkjördæmi er að færast fjör í leikinn hjá framsókn. Var að lesa á www.visir.is að þar var einn að bætast við í baráttunna: Sævar...

Það er eins með þessa ábendingu eins og aðrar - menn taka ekkert mark á henni!

Það er eins og þegar við vorum vöruð við að bankarnir og fjármálakerfið hér stæði á brauðfótum þá hlustuðu menn ekki á það frekar en nú. Menn alveg ákveðnir í því að hagsmunir Íslands séu svo allt öðruvísi en annarra, að aðrar lausnir eig hér við. Það er...

Furðuleg breyting á skömmum tíma!

Þetta er alveg makalaust hvað fólk er fljótt að breyta um skoðun hér á landi. Nú eru Vg Samfylking og Sjálfstæðismenn jafn stórir. Þótt að Sjálfstæðisflokkur sem flokkur í ríkisstjórn hér síðustu 17 árinn virðast 29% tilbúnir að kjósa hann. En þó er ekki...

Dæmi um mann sem er gjörsamlega út takti við þjóðina

Held að Birgir hafi þarna gjörsamlega gert út um sína pólitísku framtíð. Hefur hann ekkert hlustað á fólkið í landinu síðust 4 mánuði? Og ekkert hlustað á innlenda og erlenda sérfræðinga sem rætt hafa þessi mál. Það hafa allir krafist þess að fólk í...

Hvalveiðar aðrbærar?

Getur einhver svarað mér eftirfarandi varðandi hvalveiðar: Er tryggð sala á kjötinu? Eða stendur til að vinna að því næstu ár og fylla nokkrar frystigeymslur af kjöti eins og síðast þegar það voru veiddar langreiðar? Er einhver annar en Kristján Loftson...

Ekki sama hvernig þessi könnun er skoðuð

Samkvæmt www.ruv.is er þessi könnun markverð um margt t.d. hverning fylgið hreyfist eftir því sem líður á mánuðinn. Þannig er fylgir Vg að dala eftir því sem liður á mánuðinn og Sjálfstæðisflokkur er að ná auknu fylgi eftir að upp úr slittnaði úr...

Löggan

Mynd tekinn við Alþingishúsið í síðustu viku.

Göngufélagi minn 2 ára.

Hann Gutti er orðinn 2 ára. Hann er samt seinþroska og heldur enn að hann sé hvolpur. Við smelltum nokkrum myndum af garpnum í dag upp í Heiðmörk í tilefni dagsins.

Held að það sé rétt að slá á væntingar fólks. Þær eru úr hófi.

Held að fólk þurfi að átta sig á því að þessi ríkisstjórn gerir ekki kraftaverk. Það er ljóst að við erum stórskuldug og skuldirnar hverfa ekki. Ef þeim er létt af einhverjum þá lenda þær á öðrum. Eins þessi hugmynd fólk um að í næstu kosningum geti allt...

Leikflétta Framsóknar!!!!

Minni á að það var framsókn sem bauð upp á að styðja minnihlutastjórnina á Landsfundi sínum fyrir 2 vikum. Nú leika þeir sér að þvi að setja Vg og Samfylkingu hin og þessi skilyrði til að sýna að þar fari flokkurinn sem í raun ráði öllu. Formaðurinn...

Geir hefur ekki hlustað frekar en venjulega á þjóðina!

„Því miður Samfylkingin hefur, og kannski einhverjir fleiri, með ótrúlega skrýtnum hætti látið stjórnast af hatri á einum manni. Það virðist hafa úrslita áhrif í afstöðu þeirra til skipulagsbreytinga á stjórnkerfinu. Það er ekki góð ástæða til að...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband