Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Þriðjudagur, 8. júlí 2014
Hvað er formaður Sjálfstæðisflokksins að hugsa?
Nú hefur Hannes Hólmsteinn og vinir verið ráðnir til að skrifa skýrslu um af hverju vondu útlendingarnir settu Ísland á hausinn og neituðu að lána okkur neyðarlán á sínum tíma. Þó er það held ég flestum ljóst. Og eins er verið að ráða nýjan Seðlabankastjóra. Í þessu sambandi er rétt að fólk geri sér grein fyrir hvaðan þessir menn eru að koma. Þessar aðal persónur í þessum 2 málum sem nú eru mest í umræðunni eru t.d. aðalsprauturnar í rnh.is sem er hugveita og (rannsóknarsetur) sem er í beinum tengslum hefur maður heyrt við hugveitur í Bandríkjunum sem reknar eru af Koch bræðrum sem m.a. fjármagna Teboðshreyfinguna. Í stjórn RNH eru:
Rannsóknarráð: Dr. Ragnar Árnason hagfræðiprófessor, formaður, dr. Hannes H. Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor, dr. Birgir Þór Runólfsson hagfræðidósent. Hannes Hólmsteinn er forstöðumaður rannsókna og ritstjóri rita frá RNH. Hér er ræða, sem hann hélt í febrúar 2012 um verkefnin framundan. Þeir Birgir Þór og Hannes Hólmsteinn blogga báðir reglulega.
Þarna eru 2 sem eiga að vinna þessa skýrslu um vondu útlendingana og svo Ragnar Árnason sem er jú frægur fyrir vinnu sína m.a. fyrir LÍÚ um kvótan og svo hugmyndir um að ríkið eigi ekki að reka heilbrigðiskerfi heldur eigi þeir sem þurfa þá þjónustu að kaup hana sjálfir af einkareknum stofnunum eða kaupa til þess sérstakar tryggingar ala USA.
Hvernig dettur Bjarna í hug að þetta verði til að auka álit fólks á Sjálfstæðisflokknum? Bara skil þetta ekki. Hef lesið blogg eftir Birgir Þór og Hannes og heyrt viðtöl við Ragnar og nær allt sem þeir segja og leggja til er þvert á það sem samkomulag er með nærri allri þjóðinni um samtryggingu og samhjálp sem og jöfnuð.
Fimmtudagur, 19. júní 2014
ESB er málið!
Bara varð að setja þessa færslu inn því það hefur verið frekar dauft yfir þjóðernisrembum og besservissum hér á blog.is síðustu vikur
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Miðvikudagur, 18. júní 2014
Eitthvað rímar þetta illa við það sem Heimssýn og Páll Vilhjálmsson hafa verið að segja!
Skv. Heimssýn og bloggurum á þeirra línu er Bretlands rétt um það bil að kveðja ESB! En úps:
Samkvæmt könnuninni eru nú 44% Breta hlynnt verunni í Evrópusambandinu en 36% henni andvíg. Þetta mun vera mesta fylgi við áframhaldandi veru í smabandinu frá því í september 2010.
Hvernig væri svo að menn sem eru andvígir samvinnu okkar við önnur lönd reyndu nú að segja okkur rétt frá. SKv. því þetta lið hér hefur verið að blása yfir bloggið og fleiri staði var svo yfirgnæfandi Brata sem vildu ekki vera í ESB áfram að þetta væri bara spurning um dagsetningu á brotför. Og þeir hafa komist upp með að ljúga þá sem ekki nenna að kynna sér málin fulla um þetta mál.
![]() |
Fleiri vilja vera áfram í ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 3. júní 2014
Ríkisstjórnin bjargar laxveiði!
Hélt að svona hefði nú hætt eftir hrun. Fyrri ríkisstjórn var með siðareglur sem bönnuðu svona. En Bjarni og Sigmundur Davíð ætla að fórna sér og þiggja veiði í rándýrri á. Sbr.
Forsætisráðherra og fjármálaráðherra hafa báðir þegið boð um að opna Norðurá á fimmtudagsmorgun. Sölustjóri Norðurár segir það til fyrirmyndar og til þess gert að breyta til batnaðar ímyndarvanda sem laxveiði á Íslandi hefur glímt við eftir hrun í hagkerfi þjóðarinnar.
Og svo þetta óborganlega:
Hann segir að laxveiðin hafi verið komin með ímynd bruðls og óhófs en því ættu Sigmundur Davíð og Bjarni að geta breytt með nærveru sinni.
Hélt fyrst að þetta væri óvart frétta af baggalutur.is sem mbl.is hefði tekið sem raunverulega fyrir mistök.
![]() |
Ráðherra að bæta ímynd laxveiði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.6.2014 kl. 01:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 1. júní 2014
Veit Sigmundur Davíð ekkert hvað flokksfélög hans eru að gera? Held að hann viti það alveg!
Eftirfarnandi var haft eftir Guðfinnu sem var númer 2 á lista framsóknar á kosninganótt:
Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, önnur kona á lista Framsóknarflokksins og flugvallavina, segir að borgarstjórnaflokkur Framsóknarflokksins muni leggja til að lóðaúthlutun til byggingar Félags múslima á Íslandi verði dregið til baka komist flokkurinn í borgarstjórn.
Svo hann getur ekki falið sig bakvið að þær væru bara að opna á umræður! Þetta var eitthvað sem var ákeðið í flokknum og mundi standa til ef flokkurinn kæmist í aðstöðu til þess. Alveg sama hvað Sigmundur reynir að ljúga sig út úr þessu. Og þetta er ekki að koma einhverri umræðu af stað, heldur er þetta að draumur þeirra var að múslimar einir trúarbragða yrðu sviptir lóð sem var búið að úthluta þeim fyrir nokkrum árum eftir um 14 ára vandræðagang. Lóð sem engin hefur viljað vegna mengunar af hraðbrautum. Um 800 fm hús með 9 metra turni sem er lægri en ljósastaura almennt.
Sjá t.d. hér http://kvennabladid.is/2014/05/28/er-thetta-framsokn-framtidarinnar/
![]() |
Sigmundi Davíð misboðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 31. maí 2014
Kjósendur góðir! Flokkarnir ykkar kjósa sig ekki sjálfir!
Allir út á að kjósa! Það verður hræðilegt ef að flokkar sem þið viljið ekki við völd komast að af því þið mættuð ekki til að kjósa!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 30. maí 2014
Nokkur góð ár án Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi! Er það til ofmikils mælst?
Af hverju að kjósa Samfylkinguna í Kópavogi ?
Finnst nauðsynlegt að fólk muni það að síðustu ár hefur Samfylkingin ásamt fleirum tekið nokkra slagi í bæjarstjórn Kópavogs sem hafa leitt til þess að hlutir hafa færst til betri vegar. Allir Kópavogsbúar hljóta að muna eftir spillingarorðinu sem lág yfir Kópavogi. Við munum öll eftir fjölmiðlaumræðum þegar Samfylkingin hefur bent á tengsl t.d. velunnarra Sjálfstæðisflokks sem fengu án mikilar fyrirhafnar lóðir og verk í Kópavogi. Fyrirtæki jafnvel kjörinna fulltrúa fengu að margra mati óeðlilega mikið af verkum án útboða. Og jafnvel fjölskyldur kjörina fulltrúa fengu óeðlilega mikð af ýmsum verkum og úr varð mikil fjölmiðlaumræða. Þeir sem fóru fremstir í flokki Samfylkingarinnar þurftu að taka á sig hreinlega hatur frá Sjálfstæðismönnum og orðbragðið var ekki vandað í garð þeirra. En þau stóðu það af sér! Jafnvel málaferli!
Með því að vera dugleg að benda á þettta virðast ríkjandi flokkar láti að mestu af þessu og ekki þorað að hverfa til baka. Enda fundu þeir fyrir þessu í kosningunum 2010.
Samfylkingin ásamt fleirum tók við bænum þegar hann var næstum gjaldþrota 2010. Lögðust i mikla tiltekt sem Sjálfstæðismenn ásamt hækjum sínum hrósa sér nú af.
Ég má ekki til þess hugsa að sjálfstæðismenn og framsókn fái góða kosningu aftur og hverfi til fyrri iðju að hygla ættingjum og vinum.
Því held ég að fólk ætti að horfa til fyrri kjörtímabila þegar Sjálfstæðismenn og Framsókn réðu hér um áratugi og muna hvernig þetta var hér í bæ. Þegar að aðalmetnaðurinn var að þenja út bæinn minnir að þeir hafi verið farnir að láta sér dreyma um byggðir upp í Lækjabotnum. Byggðu iþróttahallir eða þurftu að taka þær fyrir vegna gjaldþrota ævintýramanna. Keyptu ónýt hesthús á okurvirði til að redda fjárfestum og svo mætti lengi telja. Fólk ætti að muna að þetta skildi bæinn eftir i skuldasúpu!
Held að það sé Samfylkingunni að þakka að hér hefur þó orðið betri stjórnsýsla og vinum er ekki hyglað eins og var. Þau hafa verið óhrædd að taka slagin og náð árangri.
Framsókn og Sjálfstæðismenn hafa sýnt það í kosningabaráttu sinni að þeir hafa engar hugmyndir varðandi velferð bæjarbúa heldur þurfa að fá þær lánaðar frá stefnskrá Samfylkingarinar. Öll þeirra sýn snýst um að halda völdum og byggja bæinn upp í fjöll!
Er þá ekki betra að kjósa flokkinn sem er þó með frumhugmyndirnar
Ég set X við S
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 30. maí 2014
Hugmyndasnauðir Sjálfstæðismenn - Kosningabaráttan í Kópavogi kafli 2
Í fyrri færslu fjallaði ég um að Framsókn í Kópavogi hefði stytt sér leið varðandi kosningastefnuskrá sína og bætt við hana nærri því beint frá Samfylkingu þegar þeir sáu að ekki dugði að bjóða Kópavogsbúum bara að þeir ætluðu sko að tryggja að Sjálfstæðisflokkurinn héldi hér völdum. Því er ekki úr vegi að fjalla aðeins um Sjálfstæðisflokkinn og kosningabaráttu hans!
Nú Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið sömu leið og Framsókn. Svona um það bil þegar hann fattaði að bæjarbúar væru ekki ginkeyptir fyrir að nýjar lóðir og flott íþróttarhús væru það sem væri nauðsynlegt til að auka lífsgæði þeirra sem þegar búa í Kópavogi. Sérstaklega þar sem nær allar íbúðir sem byggðar hafa verið í Kópavogi síðustu ár og áratugi hafa verið langt fyrir ofan kaupgetu þeirra sem ekki eru með mjög há laun og sérstaklega þeirra sem eru að kaupa í fyrsta skipti. Fólk vill fá stuðning við börnin og þétta innviðina m.a. þjónustu við aldraða.
Eins og með Framsókn er hægt að fara yfir það að þeir hófu kosningabaráttunna og kynningu á henni og þegar þeir fengu ekki nægar undirtektir þá fóru þeir að tíma upp atrið úr stefnuskrá Samfylkingarinnar a.m.k. hef ekki skoðað hvernig þeir nýttu sér stefnu annarra flokka.
Þannig hafa Sjálfstæðismenn um árabil lagst gegn því að frístundakort/styrkir til barna væru hækkaðir eða nýta mætti þá í fleiri en eina grein en viti menn - Síðustu vikur hefur þetta þróast hjá þeim úr að fjalla ekkert um það í að það þurfi að endurskoða þá! Og svo hefur þetta þróast áfram í það að nú eru þeir komnir upp í 54 þúsund svona til að toppa Samfylkinguna! Auðvita ágætt að menn vakni en er þetta trúlegt þegar flokkar hafa verið við völd í áratugi og ekki viljað breyta þessu í a.m.k. áratug.
Eins gæti ég sýnt ykkur dæmi um þegar sjálfstæðismenn gleypa upp leiðir Samfylkingar við að kynna sig fyrir kosningar. Þannig koma þeir með sömu viðburði og videó alltaf nokkrum dögum eða vikum eftir að Samfylkingin hefur framkvæmt eitthvað. Ég sýndi þetta í fyrri færslu með Framsókn og þetta er alveg eins.
En lengst ganga þeir í að stela leturgerð sem Samfylkingin notar í öllum sýnum gögnum og hefur gert síðan 2013 m.a. man ég að það byrjaði á landsfundi. Þetta er sérstök leturgerð og það vekur furðu mína að Sjálfstæðisflokkur hafi ekki meira hugmyndaflug en þetta.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 29. maí 2014
Þetta er dálítið fyndið!
Veit ekki betur en að Ómar Stefánsson hafi nú síðasta misseri haft allt á hornum sér gagnvart þeim meirihluta sem hann er í. Þetta vitum við sem hlustum reglulega á bæjarstjórnafundi í Kópavogi. Og annars höfum við ekki heyrt í Framsókn í rúm 2 ár. Jú þegar þeir vildu kanna hvort breyta ætti Kópavogsbæ í borg og setja Silung í Kópavogslækin.
Eins er þetta fyndið þegar við horfum til þess að þessi trausti meirihluti þeirra og Sjálfstæðismanna sigldu Kópavogi nærri í þrot 2009 eftir meira en 2 áratugi við völd. Kópavogur á kafi í skuldum og mest af þeim komnar til vegna þess að fulltrúar Sjálfstæðismanna og Framsóknar fengu mikilmennskubrjálæði og stóðu í ótrúlegum lóða og braskæfingum. Þetta eiga Kópavogbúar að vita.
Þetta heitir á mannamáli að þeir eru að lofa sama meirihluta áfram og í raun að þeir styðji Sjálfstæðisflokkinn áfram. Því þeir hafa um árabil verið hækja hans.
![]() |
Snýst um traustan meirihluta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 29. maí 2014
Hugmyndaskortur Framsóknar í Kópavogi! - Kosningabaráttan í Kópavogi kafli 1
Eins og ég hafði boðað í fyrra bloggi ætla ég að fjalla um ótrúlegt hugmyndaleysi sumra flokka í Kópavogi. Byrjum á Framsókn. Það er nokkuð ljóst að þeir hafa í stað þess að vinna að sínum hugmyndum um stefnu og markmið fyrir Kópavog, sparað sér sporin og þess í stað bara lesið efni sem hefur komið frá Samfylkingunni og coperað það eða reyna að toppa það.
Kíkjum á dæmi.
Í byrjun mars þá birtist grein eftir oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi þar sem hann talaði um Betri Kópavog sem síðar varð slagorð og stefna Samfylkingarinnar í Kópavogi. t.d. má nefna þessa grein:
Og síðar hefur allt efni frá Samfylkingunni sem ég hef séð verið merkt þessu slagorði
Framsókn var ekki að flækja hjá sér málin. Höfðu reyndar gefið út flokksblaðið sitt Framsýn í apríl þar sem þar sem ekkert slíkt stóð. En allt í einu í mái fara þeir að birta auglýsingar og slagorð þar slagorðið þeirra er. X B fyrir ennbetri Kópavog. Ekki voru þeir að leita langt heldur stunda það sem þeir eru vanir að toppa allt hugsunarlaust sem aðrir segja og treysta á að fólk gangi ekki á þá um hvernig þeir hafa unnið skv. þessu t.d. á kjörtímabilinu. Hvar er þeirra árangur?
Hér sjáið þið svo hvernig Framsókn auglýsir nú í Maí Eins foringi, einn flokkur og svo toppum við Samfylkinguna því við höfum aðeins hugmyndir um að breyta nafni Kópavogsbæ í borg, silung í Kópavoglæk og svo smá læti í lok tímabilsins til að sýna eftir veru okkar í meirihluta síðustu tæpu 3 árin. Og svo 20 ár þar á undan.
Eins þá er vert að velta fyrir sér öðru úr kosningabaráttunni áður en fjallað er nánar um stefnumálin hjá Framsókn
Nú skulum við aðeins kíkja á videó. Samfylkingin hóf 15 maí að birta á youtube stutt grínmyndskeið með frambjóðendum. Sem ekkert framboð hafði gert áður. En viti menn um 3 dögum síðar byrja Framsóknarmenn á því sama. Hér er held ég fyrsta myndband frá Samfylkingu
Hér má svo sjá nokkrum dögum seinna að Framsókn vaknar og fera að gera svipað
https://www.facebook.com/photo.php?v=641311039277904&set=vb.605178106224531&type=2&theater Vildi síður birta það enda styð ég þau ekki þannig að þið kíkið bara á hlekkinn.
Kíkjum nú aðeins og á stefnumálin. Samfylkingin samþykkti stefnuskrá sína fyrir komandi kosningar 14 apríl og birti hana á heimasíðu sinni þann 22 apríl! Þar skulum við taka nokkur dæmi um vinnu framsóknarmanna.
Í stefnuskrá Samfylkingarinnar segir:
Hækka frístundastyrk á árinu 2015 í 30.000 krónur. Hvert barn á aldrinum 5 18 ára í Kópavogi fái frístundastyrk til íþrótta, tómstunda eða listnáms, óháð fjölda greina. Á kjörtímabilinu skal stefnt að því að frístundastyrkur verði 50.000 krónur á ári.
Framsókn hafi ekki minnst á þetta í sínum ritum fram að þessum tíma. Þeir höfðu talað um Íþróttabæinn Kópavog en ekki um styrki til annars frístundastarf. En úps. eftir að fréttir fóru að birtast af þessu kosningamáli Samfylkingarinnar þá fóru að birtast fréttir og auglýsingar þar sem Framsókn lofar hækkun á frístundastyrk upp í 40 þúsund og fjölga þeim greinum sem eru styrkhæfar. Höfðu ekkert hugsað um þetta áður. Og kannski verst er að Framsókn hefur verið við völd í Kópavogi með smá hlé vegna hruns bæjarins í 2 ár meðan var tekið til eftir þá og vini þeirra. Og um frístundastyrki má segja að þeir sem hafa fylgst með í Kópavogi vita að þessir styrkir hafa verið veittir hér í Kópavogi í hvað um 10 ár. Ítrekað hefur verið lagt til að þeir yrðu bæði hækkaðir og gætu nýst t.d. í við iðkun fleiri en einnar greinar og fleiri greinar væru styrkhæfar. En Framsókn og Sjálfstæðisflokkur hafa allaf fellt þetta.
En nú skv. skrifum Framsóknar er þetta orðið forgangsmál hjá þeim
http://kfrettir.is/40-thusund-krona-fristundarkort-kopavog/
Samfylkingin segir í stefnuskrá sinni:
Samfylkingin í Kópavogi mun stofna öldungaráð sem skipað verður fulltrúum frá hinum ýmsu samtökum aldraðra í Kópavogi. Öldungaráðið á að vera ráðgefandi við öll málefni sem snerta málefni eldri borgara og getur komið með tillögur um úrbætur og skipulag mála til bæjarstjórnar.
Framsókn stelur þessu nærri orðrétt og segir:
Og hafa síðan bætt um betur. En úps ekki orð um þetta á kjörtímabilinu sem er að ljúka og ekkert um þetta fyrr en þeir lásu þetta hjá Samfylkunni.
En nú er ég hættur að velta mér upp úr Framsókn! Þeir hafa sýnt sig sem hugmyndasnauður flokkur í Kópavogi. Hafa um árabil verið hækja Sjálfstæðisflokks og virðast ekki hafa neinar hugmyndir heldur þrífast á að taka loforð annarra og nota þau án þess að hafa hugsa eitt einasta mál til enda.
Sjá fyrstu færslu mína um þett mál
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Af mbl.is
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
Augnablik - sæki gögn...
DV
Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
Augnablik - sæki gögn...
Pressan
Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson