Miðvikudagur, 26. desember 2007
Ég er og hef verið síðustu áratugina. Og með því að fylgjast með um ræðu um trú þessa dag hef ég algjörlega samfærst um að leið mín og kristinnar trúar á ekki saman. Þetta á reyndar við um flest og í raun öll trúarbrögð sem ég þekki eða hef heyrt af.
Mér er það lífsins ómögulegt að skilja nokkur megin atriði í kristinni trú:
- Guð er almáttugur: Og hann skapaði heiminn og manninn í sinni mynd. Og hefur síðan með einni undantekningu horft upp á allar þær hörmungar sem hafa dunið yfir manninum. Jafnt trúuðum sem þeim sem trúa ekki á Guð. Hann sendi son sinn til jarðar til að boða manninum kærleik og taka á sig syndir manna. En mér finnst það lélegur árangur því að heimurinn hefur andskotans ekkert batnað síðan að Jesús var og hét.
- Allar þær túlkanir sem hafa verið á því hvað Guð og Jesú eiga að hafa sagt og meint. Þannig byggjum við hér á landi á túlkunum Lúters frá því á 15 öld. Kaþólikkar byggja á trú sem hefur í veigamiklum atriðum breyst á síðustu öldum.
- Fjöldi kirkjudeilda hver með sína skýringu á biblíunni.
- Gamlatextamennið sem flestir sagnfræðingar eru sammála um að séu að stórumhluta saman safn flökku - og þjóðsagna sem er raðað saman til að mynda eina heild.
- Furðulegt hversu Guð hin almáttugi skipti gjörsamlega um skoðun þarna fyrir 2007 árum og umturnaði öllu sem hann hafði áður sagt.
- Furðulegt að kristnir líta á Ísrael sem fyrirheitnalandið sem lifir af heimsendi sem allir bíða eftir. EN það er bara alls ekki kristið land. Og hagar sé bara alls ekki sem slíkt.
- Þá finnst mér furðulegt miðað við að Guð sé almáttugur að hann skuli drita kraftaverkum svona hér og þar en lætur síðan foreldra deyja frá ungum börnum og ung börn veikjast og kveljast og jafnvel deyja.
- Held að trúarbrögð sé tæki fólks sem getur ekki sætt sig við að við fæðumst lifum og deyjum og síðan ekki meira.
- Sé ekki að trúarbrögð skili fólki betri heilsu, meira langlífi, betra lifi en þeirra trúlausu.
- Ég til að menn sem eru á sæmilegum launum frá ríkinu og rukka svo aukalega fyrir alla þjónustu við fólk auk þess sem þeir eru menntaðir í skóla með styrkum frá ríkinu, geti ekki verið þeir fulltrúar Guðs sem lýst er í Biblíunni.
Þetta eru bara nokkur atrið sem eru að veltast fyrir mér. Nú ber þess þó að geta að ég hef ekki sagt mig úr þjóðkirkjunni, börnin mín eru skírð og dóttir mín er fermd og hin gerir það líklega líka. Því ég vill ekki taka ákvörðun fyrir þær. Þær geta síðan sagt sig úr kirkjunni síðar. Ég kem til með að gera það þegar ég finn gjöldum mínum betri farveg. T.d. ef þau mundu ganga til hjáparstarfs. Vill ekki borga til HÍ sérstaklega.
Jam þetta var Jólahugvekja mín.
Gleðileg Jól