Leita í fréttum mbl.is

"Flutum sofandi að feigðarósi"

Haflið Helgason skrifar grein unir heitinu  Flutum sofandi að feigðarósi í Fréttablaðinu í dag þar sem hann segir m.a.:

Sá vandi sem nú hefur verið stimplaður af Standard og Poor's liggur ekki síst í því að umræða og aðgerðir stjórnmálamanna hafa ekki fylgt eftir þeim róttæku þjóðfélagsbreytinum sem orðið hafa á undra skömmum tíma. Íslenskt atvinnulíf er fullgildur þátttakandi í alþjóðavæðingunni.

Stjórnmálaumræðan er hins vegar föst í heimóttarlegum farvegi þar sem skellt er skollaeyrum við því sem almennt er talið boðlegt í hinum siðmenntaða heimi. Lokað ósýnilegt hagkerfi á heimskortinu gat hagað sér nokkurn veginn að vild. Opið hagkerfi sem vakið hefur eftirtekt í alþjóðlegum viðskiptaheimi getur ekki leyft sér slíkan munað, ef munað skyldi kalla.

Þannig voru augljóslega tímaskekkja og mistök að ráða stjórnmálamann í embætti Seðlabankastjóra. Ekki síst þegar sá hinn sami var holdgervingur þeirra sjónamiða sérstakra íslenskrar efnahagshegðunar sem nú hefur leitt til þess að traust okkar á alþjóðavettvangi hefur beðið hnekki.

Í ljósi þess hversu illa við höfum haldið á málum á methagvaxtarskeiði síðustu ára, getur farið svo að kostir okkar verði engir aðrir þegar upp er staðið, en að kasta núverandi gjaldmiðli og taka upp evru. Það væri kaldhæðni sögunnar ef afleiðingar efnahagsstjórnarinnar yrðu þessar í ljósi þess að í forystu efnahagsstjórnarinnar sitt hvorum megin borðs, fyrst sem forsætisráðherra og síðan Seðlabankastjóri, sat á þessum tíma einn eindregnasti andstæðingur evrunnar.

En það sem mér fannst fyndið voru athugasemndir sem birtast við greininna hans inn á visir.is:

23. desember 2006 kl. 08:48
maggimur@visir.is
Ertu að byrja á að átta þig á þessu vinur. Fyrir hálfu ári var helst á skrifum þínum að skilja að viðvaranir um að málin þróuðus í þessa veru, væru runnar undan rifjum erlendra greinigardelda sem skildu ekki íslenskt efnahagslíf, ef ekki, þá af hreinni öfund.
23. desember 2006 kl. 15:44
baldurmcqueen.com
Því fer fjarri að allir hafi flotið sofandi.
Þannig má nefna Þorvald Gylfason sem margítrekað varaði við ráðningu Oddssonar í embætti Seðlabankastjóra og hefur enn oftar skrifað rökstuddar greinar um hvert stefndi.
Fyrir vikið hefur maðurinn verið lagður í einelti og stimplaður "nöldurseggur" af þorra þjóðarinnar.

Nei, það eru kjósendur apakattana sem sváfu og þeir bera fulla ábyrgð á því hvernig komið er; ekki síður en ríkisstjórnin sjálf.

Ef ykkur vantar eitthvað til að æsa ykkur yfir þá er Hrafnaþing tekið til starfa aftur

inn_logoHef í dag og í gær verið að kýkja á fyrstu færslur Ingva Hrafns. Hann er búinn að stofna fjölmiðlafyrirtæki í hring um Hrafnaþing sem hann nefnir ÍNN. Og boðar komu sína á netmiðil og í sjónvarp í gegnum breiðbandið og adsl.

Ingvi Hrafn er með þeim ósköpum að honum er í lófa lagið að láta mig missa stjórn á skapinu yfir svona um 80% af því sem hann segir. Samt freistast ég til a hlusta á hann einstaka sinnum og röfla svo yfir því næstu vikurnar.

Miðað við skoðanir Ingva Hrafns þá gæti þessi stöð hans boðað svipaðar skoðanir og FOX fréttastöðinn. Hann er alveg svakalega til hægri og allir þeir sem ekki eru þar eru Asnar.

En sem sagt, ef þið eruð í svona melló skapi og vantar eitthvað til að rýfa í heilasellurnar þá skulið þið fylgjast með skrifum hans. Nóg að kýkja þar aðeins inn í neyð. Of stór skammtur gæti skemmt ykkur varanlega:


Landsvirkjun í vanda?

Landsvirkjun var nú í síðustu viku að skrifa undir samninga við Alcan um orkusölu vegna stækunar íSAL í Straumsvík. Nú viku seinna er lánshæfi LV lækkað úr AA- í A+ sem þýðir væntanlega hækkaða vexti fyrir LV. Vona að þeir  hafi tekð tillit til þess við samninganna sem ég efast um.

Var að hlusta á samtal Sigurðar G Tómassonar og Guðmundar Ólafssonar hagfræðings á Útavarpi Sögu í gærmorgun. Þar komu þeir með ágætan punkt. En hann er að Landsvirkjun hljóti að sækjast eftir því að fá lágt verð fyrir orkuna sem þeir selja stóriðju. Því að það sé LV sem leggi áherslu á leynd yfir orkuverði. Ef verðið væri upp á borðum þá væri samkeppni um að semja við þá og þá fengist mun hærra verð. Sem mundi kalla á betri og aðrðbærari stóriðju til að nýta þessa orku.

Frétt af mbl.is

  Lánshæfismat Landsvirkjunar lækkað
Viðskipti | mbl.is | 22.12.2006 | 16:17
Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfismat á langtímaskuldbindingum Landsvirkjunar í erlendum myntum lækkaði í A+ úr AA- og eru horfur stöðugar. Lánshæfismat á efnahag félagsins lækkaði einnig í A+ úr AA- og eru horfur áfram neikvæðar. Þá lækkaði S&P lánshæfiseinkunina á langtímaskuldbindingum í innlendri mynt í AA úr AA+.


mbl.is Lánshæfismat Landsvirkjunar lækkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. desember 2006

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband