Leita í fréttum mbl.is

Síðast þegar spurt var um þetta voru engin svör

Síðast þegar spurt var um þetta var ekki hægt að fá nokkur svör. Björn sagði að ekki væri búið að taka þetta saman og ekki væri hægt að koma með nokkrar tölur. Reikna með að þetta verði svona líka núna

Frétt af mbl.is

  Spurt um kostnað við rekstur Baugsmálsins
Innlent | mbl.is | 20.2.2007 | 22:02
Þingmenn úr fjórum þingflokkum á Alþingi hafa lagt fram fyrirspurn til dómsmálaráðherra þar sem spurt er um kostnað ríkisins við rannsókn og rekstur Baugsmálsins. Þá er m.a. einnig spurt hversu margar vinnustundir starfsmanna ríkislögreglustjóra hafi farið í málið frá júlí 2002 til dagsins í dag.


mbl.is Spurt um kostnað við rekstur Baugsmálsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður svæðið einhverntíma eins og áður?

Gunnar hefur farið mikinn í dag og látið vita að málið sé öllum öðrum að kenna. Framkvæmdaleyfið hafi ekki verið komið en Kópavogur var bara viss um að gleymt hefði að senda það.

En síðan ræðir hann um að svæðinu verið skilað eins og áður. En verður það nokkurntíma. Ég geri ekki ráðfyrir að æskilegt sé að gróðursetja yfir leiðslu þar sem að hún gæti bilað og þurft að grafa hana upp. En það spyr enginn að því.

Frétt af mbl.is

  Jákvæð niðurstaða af fundi Skógræktarfélags Reykjavíkur og Kópavogsbæjar
Innlent | mbl.is | 20.2.2007 | 18:04
Hluti trjánna úr Heiðmörk. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, segir bæjarstjórn Kópavogs og Skógræktarfélag Reykjavíkur hafa átt góðan fund í dag þar sem menn hafi náð að stilla saman strengina. „Eins og í góðu hjónabandi verða menn að tala saman og ég held að það hafi margt skýrst í þessu. Ég held að margir hafi farið heldur geyst í þessu máli,“ sagði Gunnar í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins. Hann segir að ákveðið hafi verið að halda annan fund í vikunni.

En svo þegar hann er búinn að lýsa því að allt sé á réttu róli byrjar hann aftur:

www.ruv.is


mbl.is Jákvæð niðurstaða af fundi Skógræktarfélags Reykjavíkur og Kópavogsbæjar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alræmdi klósettrúlluþjófurinn varaður við

www.visir.is

 

Vísir, 20. feb. 2007 21:30

Alræmdi klósettrúlluþjófurinn varaður við

Rað-klósettrúlluþjófur í Bretlandi hefur fengið viðvörun frá lögreglu eftir að upp komsklosettpapir2t klósettpapirað hann hefur stolið klósettrúllum af almenningssalernum. Konan er miðaldra og hefur tekið tíu rúllur á dag í að minnsta kosti þrjár vikur. Hún var gripin glóðvolg af bæjarstarfsmönnum í vestur Bridgford í Nottingham. Haft er eftir yfirmanni bæjaryfirvalda í dagblaðinu Metro að ekki sé hægt að horfa framhjá því að eigur bæjarins séu teknar ófrjálsri hendi; “Tíu rúllur á dag safnast saman.”


Leyniþjónstur- Varasamt að trúa þeim

Var að lesa þetta á www.visr.is . Þetta skýrir kannski ýmislegt eins og mistökin í Írak, saklausa fanga í leynifangeslum um allan heim og sérstaklega á Kúpu. Þegar breska leyniþjónustan gerir svona mistök hvernig er þetta þá í Bandaríkjunum?

Vísir, 20. feb. 2007 16:46

007 hlerar vitlausa síma

Samkvæmt nýrri breskri skýrslu ger leyniþjónustumenn hennar hátignar alltof margar skyssur þessa dagana. Þeir hlera vitlausa síma og gramsa í gegnum póst á heimilisföngum sem löngu hafa skipt um eigendur. Njósnurunum er þó talið það til afsökunar að þeir hafa haft gríðarlega mikið að gera undanfarin ár. Verkefnum þeirra hefur fjölgað langt umfram mannskap, síðan stríðið gegn hryðjuverkum hófst.

Samkvæmt skýrslunni er öllum gögnum sem safnað er saman fyrir mistök samviskusamlega eytt. Þar segir líka að þrátt fyrir skyssurnar gegni starfsbræður 007 lykilhlutverki í vörnum landsins og hafi komið í veg fyrir mörg hryðjuverk.


Enginn látinn bera ábyrgð

Búið að sanna og fyrirtæki að viðurkenna það að um samráð var að ræða um arirði er varða bort á samkeppnislögum. Annað fyrirtækið er í eigu ríkisins! Og það þarf nú að borga um fleiri tugi milljóna. Og ekkert er gert. Það þarf enginn að bera ábyrgð. Þetta eru jafnvel hærri upphæðir sem tapast en það sem Byrgismenn eru taldir hafa dregið sér.

Vísir, 20. feb. 2007 18:46

Fjármálaráðherra harmar mistök Símans og Landsvirkjunar

Fjármálaráðherra harmaði, á Alþingi í dag, þau mistök sem Símanum og Landsvirkjun urðu á með ólögmætu samráði. Þingflokksformaður vinstri grænna benti á að helstu talsmenn markaðsvæðingar, sem forðum hrópuðu báknið burt, þeir Friðrik Sophusson og Brynjólfur Bjarnason, hefðu nú verið staðnir að brotum á samkeppnislögum. Síminn og Landsvirkjun hafa viðurkennt ólögmætt samráð og fallist á að greiða samtals áttatíu milljóna króna sekt í ríkissjóð. Gögn málsins sýndu að forsenda Símans fyrir samstarfi aðilanna og verkaskiptingu hafi verið sú að Landsvirkjun og dótturfélag þess drægju sig út af almennum fjarskiptamarkaði og kæmu ekki til með að keppa við Símann á þeim markaði. Mál þetta kom til umræðu á Aþingi í dag þegar stjórnarandstæðingar spurðu hvort þessum fyrirtækjum væri treystandi. Fjármálaráðherra sagði augljóst að þessum fyrirtækjum hefði orðið á og þau þyrftu nú að gjalda þess ríkulega. Mál þetta sýndi hins vegar að samkeppnisyfirvöld væru virk og mikilvæg.


Furðuleg viðbrögð við skort á samkeppni á raforkumarkaði.

Þetta er skrýtin ráðstöfun að nú þegar ljóst er að engin samkeppni skapaðist á raforkumarkaði þá er farið út í að sameina fyrirtæki undi einn hatt Landsvirkjunar og skapa risa á raforkusölumarkaði.

Stöð 2, 20. feb. 2007 18:42


Mistekist að koma á samkeppni á raforkumarkaði

Það er verið að búa til einn samansúrraðan einokunarrisa, sagði formaður vinstri grænna í þingræðu um frumvarp ríkisstjórnarinnar um að leggja Rafmagnsveitur ríkisins og Orkubú Vestfjarða undir Landsvirkjun. Fjármálaráðherra segir ljóst að markaðsvæðing raforkukerfisins hafi ekki tekist sem skyldi og mistekist hafi að koma á samkeppni. Ríkisstjórnin vill gera Orkubú Vestfjarða og Rafmagnsveitur ríkisins að dótturfélögum Landsvirkjunar, bæði til að ná fram hagræðingu og til að styrkja eiginfjárstöðu Landsvirkjunar. Steingrímur J. Sigfússon spurði hvort þetta væri brandari og spurði hvort ríkisstjórninni væri alvara með því að fá þetta afgreitt á síðustu dögum þingsins. Jú, mönnum er alvara, svaraði fjármálaráðherra.Samkeppniseftirlitið telur að með breytingunni kunni Landsvirkjun að komast í markaðsráðandi stöðu í smásölu raforku til almennings. Því hyggst ráðherra mæta með því að kveða á um að skilið verði á milli framleiðslu og sölu raforku innan Landsvirkjunar, en jafnframt viðurkenndi hann að markmið Evrópusambandsins um markaðsvæðingu raforkukerfisins, sem Íslendingar fóru eftir, hefðu mistekist. Evrópusambandið reyni nú að greina hversvegna samkeppni náist ekki.

Eins bendu þingmenn á að það væri undarlegt að meiningin væri að fjármálaráðherrra færi með hlutafé í þessu fyrirtæki ekki iðnaðar og orkumálaráðherra sem ætti að gera það skv. venju. Og töldu sumir að þetta væri upphaf að einkavinavæðingu Landsvirkjunar.


Spáð fyrir um Byrgismálið? Í bók sem var skrifuð fyrir mörgum árum kemur fram eftirfarandi.

Fann þetta á www.mannlíf.is 

Íslensk orðabók framsýn

20 feb. 2007

Í síðasta hefti Mannlífs var gerð ítarleg úttekt á málefnum Byrgisins sem mikið hafa verið í umræðu að undanförnu. Mál Byrgisins hafa verið á allra vörum og sitt sýnist hverjum um þetta annars flókna mál sem ekki sér fyrir endann á. Einhverjir hafa þó bent á að mál þetta hefði komið fyrr fram í sviðsljósið ef rýnt hefði verið í merkingu nokkurra orða í Íslenskri orðabók. Þar segir t.d. að orðið byrgiskona merki frilla og byrgismaður standi fyrir friðil. Orðið byrgisskapur hefur einnig sína merkingu sem er saurlifnaður eða samfarir utan hjónabands. Hvort hér sé um tilviljun eða annað að ræða skal látið ósagt en víst er að hér er nokkuð skondinn orðaleikur á ferðinni.


Aumingja konan kemst ekki einusinni í gröfina

Reyndar er hætta á að ef hún verið brend þá verði mengunarslys þarna í USA því ég hef lesið einhversstaðar að það væri orðið fátt ekta í henni. Lífið var skrautlegt og hún ætlar að halda áfram löngu eftir dauðan. Mér skilst að það séu einir 5 menn sem telja að þeir geti verið feður barnsins sem og að ráðherra á Bahama þurfti að segja af sér eftir að hafa sést á myndum eiga í nánum kynnum við hana. Hef á sjónvarpstöinni "E" séð viðtöl við konunna og hún vesalingurinn virðist hafa verið útúr dópuð af lyfjum síðustu mánuði lífsins a.m.k. og sonur hennar eldri fengið sinn skammt líka. Hún virðist alla tíð vera leikfang fyrir menn að leika með. Hvort sem þeir voru ungir eða örvasa gamalmenni.

Frétt af mbl.is

  Harðar deilur um hvílustað Önnu Nicole Smith
Veröld/Fólk | AP | 20.2.2007 | 16:45
Vergie Arthur, móðir Önnu Nicole grét við réttarhöldin í dag. Kærasti Önnu Nicole Smith heitinnar, Howard K. Stern, mætti í dómssal í dag með það fyrir augum að ná fram því sem hann sagði að hefði verið ósk hennar um hinsta hvílustað. Það eru tólf dagar síðan hún lést í Flórída og nú er bæði barist í réttarsölum í Flórída og Kaliforníu um hvað eigi að gera við jarðneskar leifar hennar sem og um faðerni dóttur hennar.


mbl.is Harðar deilur um hvílustað Önnu Nicole Smith
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. febrúar 2007

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband