Leita í fréttum mbl.is

Segið svo að það borgi sig ekki að berjast.

Til hamingju Mosfellsbæingar með árangurinn:

www.ruv.is

Álafosskvos: Hætt við að sinni

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti einróma í dag að taka aftur deiliskipulag um umdeilda tengibraut við Álafosskvos. Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri segir að með þessu sé tekið tillit til ábendinga úrskurðarnefndar skipulags- og byggingamála.

Með bráðabirgðaúrskurði nefndarinnar voru framkvæmdir við tengibrautina stöðvaðar. Nefndin skoðar hvort að vinna þurfi umhverfisskýrslu. Þá vantaði í skipulagið að gert væri ráð fyrir mótvægisaðgerðum vegna mengunar.

Fyrirtækið Helgafellsbyggingar hefur haft í hyggju að reisa íbúðahverfi á svæðinu en lögðu í dag inn framkvæmdaleyfi fyrir 500 metra kafla tengibrautarinnar í þeim tilgangi að skapa sátt um framkvæmdina og að í nýju framkvæmdaleyfi verði með skýrari hætti gerð grein fyrir mótvægisaðgerðunum.


Furðulegt orðalag.

"Krónan styrktist áður en yfir lauk" Er þá öllu lokið núna? Hef alltaf haldið að þetta þýði að endalok. Er þá krónan formlega hætt núna? Kannski kemur þá evra á morgun!

Frétt af mbl.is

  Krónan styrktist áður en yfir lauk
Viðskipti | mbl.is | 28.2.2007 | 16:40
Þrátt fyrir að krónan hafi veikst nokkuð við byrjun viðskipta í morgun náði hún sér á strik og áður en yfir lauk


mbl.is Krónan styrktist áður en yfir lauk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins gott að maður á ekki hlutabréf í Eimskip.

Ef ég hefði keypt hlutabréf í Eimskip í gær fyrir 100.000 þá ætti ég í dag 91.220 krónur. Þannig að stundum er gott að vera blankur og eiga engin hlutabréf.

Frétt af mbl.is

  Úrvalsvísitalan lækkar um 1,47%
Viðskipti | mbl.is | 28.2.2007 | 16:37
Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,47% í Kauphöll Íslands í dag og er lokagildi hennar 7.303,70 stig. Mosaic Fashion hækkaði um 2,03% en Eimskip lækkaði um 8,78% og Kaupþing um 2,38%.


mbl.is Úrvalsvísitalan lækkar um 1,47%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja þá fer fasteignamarkaðurinn aftur í sama tryllinginn.

Var það ekki einmitt þetta sem gerðist þegar markaðurinn fríkaði út fyrir 3 árum. Lán íbúðalánasjóðs voru hækkuð í 90% sem bankarnir bættu um betur og hækkuðu hámarkstlánin og lánuðu allt að 100% af markaðsverði sem leiddi til að fasteignaverð rauk upp. Nú loksins þegar markaðurinn er að hægja á sér þá byrjar ballið aftur.  Þetta tel ég að sé ekki heppilegur tími til að hækka lánin,nema kannski til kaupa á fyrstu íbúð. Nú ábyrgist ég að verðið ríkur upp aftur.

Frétt af mbl.is

  Lánshlutfall Íbúðalánasjóðs hækkar úr 80% í 90%
Innlent | mbl.is | 28.2.2007 | 19:59
Mynd 179800 Lánshlutfall almennra lána Íbúðalánasjóðs verður hækkað í 90% úr 80%, samkvæmt reglugerð sem Félagsmálaráðuneytið hefur gefið út, og hámarksfjárhæð lánanna hækkar í 18 milljónir úr sautján, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu.


mbl.is Lánshlutfall Íbúðalánasjóðs hækkar úr 80% í 90%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mexíkóskar húsmæður nema strípidans - Það gera Íslenskar konur líka.

Bíddu er þetta ekki sama og er í tísku hér og út um allan heim. Þykir alveg hin best líkamsrækt fyrirJennifer%20Lopez utan að gera makan spenntari og stinnari. Það væri kannski meiri frétt ef þær hefðu ekki stundað þetta nýja æði.
"Úr fréttinni
Margar þeirra kvenna sem numið hafa dansinn hafa haldið áfram að sækja námskeiðið og það jafnvel í þrjú ár. Það er fyrrum strípidansari sem rekur þennan sérstaka dansskóla og kennir þar m.a. hvernig dansa eigi við súlu, fækka fötum með eggjandi hætti og dansa í kjöltu karlmanns svo eitthvað sé nefnt."

 

 

En það sem vekur athygli og menn ættu kannski að passa sig á er

  

Frétt af mbl.is

  Mexíkóskar húsmæður nema strípidans
Veröld/Fólk | mbl.is | 28.2.2007 | 10:19
Hundruð húsmæðra sækja nú námskeið í strípidansi í Mexíkóborg og telja það krydda kynlífið og fela þeim aukið vald í svefnherberginu.

Sem sagt að þetta er nýtt bragð í kvennabaráttunni. Því ættu menn kannski að fara að huga að mótvægisaðgerðum til að konur nái ekki yfirhöndinni.

 


mbl.is Mexíkóskar húsmæður nema strípidans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upphaf Baugsmálsins meintar greiðslur Ísl. Erfðagreiningar til Davíðs?

Alveg fór þessi kjaftasaga fram hjá mér á sínum tíma. En það var víst rætt um það að Íslensk Erfðagreining hafi greitt Davíð 300 milljonir og meint múturboð Jóns Ásgeirs hafi verið brandari byggður á þessum orðrómi. En þetta las ég hér á www.mannlif.is

Meint mútuþægni Davíðs

27 feb. 2007

Bolludagsmál Davíðs Oddssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, um að Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs hefði viljað bera á hann 300 milljónir króna hefur enn fengið byr undir báða vængi og ýmsir fótgönguliðar halda kenningu Davíðs stíft á lofti og vilja jafnvel rannsókn á því hvort Jón Ásgeir hafi ætlað að beita mútum. Að sögn Davíðs á sínum tíma var það Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, sem var milligöngumaður um tilboðið góða á frægum Lundúnafundi. Það sem enn vantar í sögu forsætisráðherrans fyrrverandi er tilefni orðaskiptanna þegar 300 milljónirnar bar á góma milli Hreins og Jóns Ásgeirs. Þá höfðu, eins og síðar, gengið sögur um að Íslensk erfðagreining hefði gaukað einmitt þeirri upphæð að Davíð. Hreinn hafði vitnað til þess á Lundúnafundinum að Jón Ásgeir hefði sagt í hálfkæringi í því samhengi að kannski væri eina ráðið fyrir Baug til að fá frið að leggja að mörkum sömu upphæð. Í rauninni má segja að stórfurðulegt sé að ekki skuli hafa verið rannsakað hvort flugufótur sé fyrir því hvort 300 milljónirnar hafi raunverulega skipt um hendur á sínum tíma ...


Þetta er náttúrulega bara til að vekja hræðslu

Samkvæmt frétt á www.visir.is var þetta bara einn af þessum klikkuðu unglingum í Bandaríkjunum sem halda að lausn allra vandamála sé að meiða, skaða eða drepa aðra í skólanum sínum. Finnst nú vafasamt að kalla svona hryðjuverk

Úr frétt á www.visir.is

Lögregla yfirbugaði drenginn eftir að skólinn hafði verið rýmdur en alls þurftu 5.500 nemendur að yfirgefa skólasvæðið. Talið er að slælegur námsárangur drengsins hafi verið ástæðan fyrir verknaðinum.

Frétt af mbl.is

  Nemandi í bandarískum háskóla handtekinn fyrir að hóta hryðjuverkum
Erlent | mbl.is | 27.2.2007 | 16:13
Maður var handtekinn í dag í háskólanum í Missouri-Rolla í Bandaríkjunum eftir að hafa hótað hryðjuverkaárás. Maðurinn er nemandi við háskólann og var með hvítt duft á sér og lögregla segir hann hafa haft á sér efni sem væru „mögulega til sprengjugerðar“. 23 menn sem voru í sömu byggingu og maðurinn hafa hreinsaðir af tæknimönnum lögreglu í varúðarskyni, ef efnið skyldi hafa verið skaðlegt. 

 


mbl.is Nemandi í bandarískum háskóla handtekinn fyrir að hóta hryðjuverkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. febrúar 2007

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband