Leita í fréttum mbl.is

Verður meirihlutanum í Reykjavík slitið?

Var að lesa eftirfarandi inn á www.mannlif.is

Þó Björn Ingi haldi ró sinni ætti sjálfstæðisfólk að hafa það í huga að þessa dagana er lemstraður Framsóknarflokkurinn að reyna að átta sig á hvern hann hatar mest; Vinstri græn, Ingibjörgu Sólrúnu eða fláráðan Sjálfstæðisflokkinn og til eru þeir sem vilja að Björn Ingi launi fyrrum samstarfsflokknum í ríkisstjórn lambið gráa með því að gera minnihlutanum í borgarstjórn tilboð um nýtt meirihlutasamstarf gegn því að hann verði borgarstjóri. Með þessu gætu framsóknarmenn sýnt að þeir kunna enn að leika pólitíska hráskinnaleiki og myndu skilja Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, borgarstjora, eftir í minnihluta ...   www.mannilif.is


Trúi því ekki að ekki sé hægt að finna lausn á þessu

Mávar hafa eyðilagt þá skemmtun sem ég hafði að fara með dóttur mína niður á Tjörn og svo held ég að sé um marga. Þessir Mávar eiga náttúrulega sinn tilverurétt en þetta er full mikið af því góða. Væri ekki hægt að finna helstu varpsvæði þeirra og steypa undan þeim þannig að þessi stofn sem heldur til í nágreni Höfuðborgarinnar deyi hreinlega út eða minnki umtalsvert.

Frétt af mbl.is

  „Það er ekki allt í lagi“
Innlent | mbl.is | 25.5.2007 | 15:45
Undanfarin tvö ár hefur mikið borið á mávum í Reykjavík og nærliggjandi sveitarfélögum og hafa margir kvartað undan átroðningi fuglsins inn í mannabyggðir. Fuglafræðingar benda á að ástandið sé mjög óvenjulegt og að það tengist atferlisbreytingum hjá fuglategundinni. Fæðuskortur rekur máva frá varpstöðvum inn í þéttbýlið


mbl.is „Það er ekki allt í lagi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjónusta VÍS og gildi þessara trygginga sem maður er að borga fyrir

Ein smá reynslusaga af samskiptum við tryggingarfélag!

Nú um daginn lenti ég í því að dóttir mín var í heimsókn hjá ömmu sinni sem væri ekki í frásögu færandi nema fyrir það að henni og vinkonu hennar sem var hjá henni tókst að hella gosi yfir fartölvu ömmu hennar. Og í framhaldi af því þá kviknar ekki á skjánum á tölvunni. Það var hringt í mig og ég sagði ömmu hennar að vera róleg þar sem að ég sé búinn að vera með heimilis og fjölskyldutryggingu heil lengi og nú sé meira segja búið að uppfæra hana í F+ Kaskó. Og ég hringi bara í þá og þessu verði kippt í liðinn.

Jú svo hringi ég í VÍS daginn eftir og þá er mér bent á að ég þurfi að sækja eyðublað á netinu og fylla út sem er allt í lagi og koma með til þeirra sem ég geri. Og við það að skila þessu inn er mér sagt að ég geti kannað afgreiðsluna strax daginn eftir, sem ég geri. Þá er engin svör að hafa. Daginn eftir er ekki búið að úrskurða um þetta. Daginn eftir það ekki heldur. Næsta dag er mér vísað á einhverja skrifstofu manns varðandi ábyrgðartrygggingar. Hann getur ekki tekið síma og mér boðið að skilja eftir skilaboð og hann hringi. En ég heyri ekkert frá honum.

Loks þá hringi ég daginn eftir í þjónustuverið og þá bendir sú sem þá svarar að VÍS borgi þetta ekki ef að amman sé með heimilistryggingu. Það sé allaf kannað hvort að aðili sem verður fyrir tjóni sé með tryggingu sem gæti hugsanlega dekkað þetta. Ég spurði hvort að það væri virkilega að tjónþoli ætti að fórna hugsanlegum bónusum og jafnvel þurfa að taka á sig sjálfsábyrgð vegna tjóns sem dóttir mín ylli. Og jú viti menn svo er. Þá spurði ég af hverju  enginn hefði haft fyrir að segja mér frá þessu í öllum þeim símtölum sem ég hafði hringt til þeirra. Hún vissi það ekki.

Eins þá fór ég að velta fyrir mér af hverju sölumenn trygginga segðu manni ekki frá þessu þegar þeir væru að selja manni viðbætur við tryggingar sem manni skilst að eigi bara að bæta allt.

En í framhaldi af þessu þá mundi ég eftir máli sem ég  leitaði til þeirra með fyrir nokkrum árum þar sem að stolið var út bíl hjá mér. En bílnum var stolið og þegar hann fannst var horfið úr honum m.a. Íþróttadót og fleira. Ég tilkynnti þetta til þeirra og þeir vildu fá skýrslu frá lögreglu sem ég lét senda. Eftir það reiknaði ég með að haft yrði samband við mig og beið rólegur, svo rólegur að ég gleymdi þessu og ekkert var haft samband og hefur ekki verið gert enn. Konan benti mér á að svona mál þyrfti ég sjálfur að ýta á eftir og sækja því að þau réðu bara ekkert við að sinna þessu öllu að eigin frumkvæði.

Svo er restin af samtali mínu við VÍS ekki eftir hafandi nema að ég sagði að svona trygging hefði bara ekkert upp á sig! Þó ég hafi orðað það ekki svona pent.


Bloggfærslur 25. maí 2007

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband