Laugardagur, 9. janúar 2010
Duglegir þingmenn!
Gott að fólk er að tala okkar máli. En
- Lilja af hverju ætti að skipa sáttasemjara þegar að í gildi er samningur. Og ekki enn er útséð um hvort að þjóðin samþykkir eða synja ábyrgðinni? Og af hverju ættu Bretar og Hollendingar ekki að bíða bara rólegir eftir niðurstöðunni?
- Ögmundur af hverju ætti ESB að koma til hjálpar fyrir beiðni þingmanna sem hafa þá trú að ESB sé eitthvað bákn sem við eigum ekkert að eiga með meira en nú er orðið?
Og um hvað á að semja?
Og hvernig dettur fólk í hug að Joschka Fischer eða Bill Clinton ásamt fleiri gáfulegum nöfnum gefi sig í að leysa deilu upp á 700 milljarða? Eða í raun kannski 200 milljarða þegar eignir Landsbankans eru komna upp í skuldina. Finnst fólk full bjartsýnt. En verður gaman að fylgjast með þessu.
![]() |
Vill þýskan sáttasemjara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 9. janúar 2010
Bíddu Pétur þetta en andstæðingar þess að samþykkja lögin
Hef nú ekki áhyggjur af því að andstæðingar Icesave 2 verði í vandræðum með að halda fram sínum málstað. Það er nú t.d. vegna málflutningsl þeirra sem við erum að fara í þessar kosningar. Og ekki hafa þeir verið með hlutlausan málflutning. Hef m.a. séð að þeir hafa haft fjármagn til að kaupa sér heilsíður til að auglýsa.
Finnst þetta óþarfa áhyggjur
![]() |
Hætt við að umræðan skekkist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 9. janúar 2010
Nokkrar vangaveltur varðandi Icesave. Svör óskast!
Svona í framhaldi af þessu viðtölum þá væri kannski rétt að spyrja nokkra spurninga svona almennt hér á blogginu:
- Hvaða upplýsingar hafa menn um að lánakjör okkar séu svo slæm sem fólk hefur sagt? Eftir hverjum eru þau höfð? Og hverjir segja að við eigum möguleika á betri kjörum?
Í fréttablaðinu segir í dag
Í umfjöllun Gauta B. Eggertssonar um lán vegna Icesave á vef hans er bent á að vextir sem ríkjum Evrópu og Bandaríkjunum standi til boða á lánum til 10 ára séu í sögulegu lágmarki og hlaupi á 3,5 til 4,0 prósenta. Í því samhengi skipti máli að lánin til Íslands séu til 15 ára. Vextir til þessara ríkja hafi síðast í fyrra verið um eða yfir fimm prósent.
"Ef miðað er við tveggja til þriggja prósenta verðbólgu á þessum tíma eru raunvextir á Icesave í kringum þrjú til fjögur prósent. Mér sýnist það töluvert lægra en raunvextir á verðtryggðum ríkisvíxlum á Íslandi," skrifar Gauti á vef sinn.
Fjárhæðin sem Ísland þarf að endurgreiða nemur 1.329 milljónum evra til Hollands og 2.350 milljónum punda til Bretlands.
Gert er ráð fyrir ársfjórðungslegum greiðslum sem hefjist í september 2016 og ljúki í júní 2024.
Hvenær sem er á lánstímanum er hægt að fara fram á lengingu endurgreiðslutíma um sex ár, til ársins 2030, en ef lánið hefur ekki verið endurgreitt að fullu fyrir árið 2024 framlengist það sjálfkrafa til ársins 2030.
Tryggingarsjóði er svo, hvenær sem er á lánstímanum, heimilt að greiða niður lán Hollendinga og Breta í heild eða að hluta.
Og Gylfi Magnússon segir:
Vaxtakjörin sagði Gylfi að byggðu á útreikningi vaxtakjara á skuldabréfum Breta og Hollendinga til tíu ára, eða langtímavaxtakjörum þeim sem ríkjunum standa til boða, að viðbættu lágu álagi. "Þá ætti að hafa í huga að þetta eru hámarksvextir sem ríkið kann að þurfa að borga, því landið hefur á hverjum tíma rétt til að greiða upp lánið að fullu ef hagstæðari fjármögnun fengist annars staðar."
Þorvaldur Gylfason segir í Mogganum í dag:
Icesave-samningurinn getur talist nokkuð hagfelldur Íslendingum í þeim skilningi, að Bretar og Hollendingar taka samkvæmt honum á sig hálfa ábyrgðina með því að krefja Íslendinga um ca. helming þeirrar fjárhæðar, sem þurfti til að bæta 400.000 innstæðueigendum Landsbankans í Bretlandi og Hollandi skaðann, sem þeir urðu fyrir, þegar Landsbankinn hrundi. Það má kallast nokkuð vel sloppið miðað við kringumstæður. Falli samningurinn í þjóðaratkvæðagreiðslunni, geta Bretar og Hollendingar krafist þess að fá skaðann bættan að fullu. Erlendur dómstóll þyrfti að fjalla um þá kröfu.
- Hvað ætti að verða til þess að Bretar og Hollendingar færu að semja við okkur áður en þjóðin samþykkir eða synjar Icesave 2?
- Ætti einhver ekki að setjast niður og reikna út hvað við komum til með að tapa til lengri tíma með því að draga það að ganga frá þessu máli. Er ekki líklegt að sú upphæð sem þetta kostar okkur að draga þetta komi til með að kosta okkur tugi eða hundruð milljarða vegna skorast á fjárfestingum, lánamöguleikum, verri lánakjörum næstu árin?
Og þeir sem koma með athugsemdir gerið það fyrir mig að svara bara með tilvitnunum í orði Sigmundar, Bjarna eða Hreyfingarinnar.
![]() |
BBC ræðir við Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 9. janúar 2010
Er það svona sem menn leita sátta og samvinnu?
Segir forsætisráðherra hafa sett Íslandsmet í afneitun
Bjarni segir að það sé búið að vera átakanlegt að fylgjast með afneitun ríkisstjórnarinnar í þessu máli og að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hafi sett Íslandsmet í afneitun á Alþingi í gær þegar fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla varð að lögum.
Ríkisstjórnin getur ekki varpað ábyrgðinni af Icesave frá sér. Hún á samninginn með húð og hári, sagði Bjarni.
Verst voru þau skilaboð sem ríkisstjórnin sendi frá sér daginn sem forsetinn skrifaði ekki undir, að sögn Bjarna. Hún hafi sent þau skilaboð út í alþjóðasamfélagið að endurreisnaráætlun ríkisstjórnarinnar væri í hættu.
Bjarni var harðorður í garð ríkisstjórnarinnar á fundinum, sagði að hún hafi kosið að fara í stríð við forseta Íslands. Halda þau að það sé verið að vinna þjóðinni gagn með þessari framkomu, sagði Bjarni.
Og svo þetta
Ríkisstjórnin hefur, að sögn Bjarna, brugðist í að halda málstað íslensku þjóðarinnar á lofti. Fjölmiðlar og stjórnmálamenn hafa sýnt að þeir hafa skilning á stöðu Íslands og málstaður Íslands víða tekinn. Það að Hollendingar og Bretar hafi beitt Íslendinga kúgunum. Fræðimenn og prófessorar hafa tekið málstað Íslands.
Hann gleymir því að við veljum nú úr þau álit erlendra manna sem við viljum heyra. Í þættum "Í vikulokin" sem var í dag á rás 1 var m.a sérfræðingur í samningatækni sem hafði búið í Hollandi og Bretlandi og hann sagði að mikill þrýstingur væri þar að innheimta þessi lán að fullu. Og það væri almenna skoðunin.
Við kjósum hinsvegar að vitna dálkahöfunda þar eins og þeir tali fyrir hönd Breta eða Hollendinga í heild.
Finnst þetta nú ekki klókt hjá manni sem er nú að tala fyrir öðrum vinnubrögðum og samvinnu milli fylkinga. Eins bendi ég á fyrstu ræðu hans í gær um Þjóðaratkvæðagreiðslulögin. Þar byrjar hann með sömu djöfulslátunum.
Og Bjarni og Sigmundur leiða umræður um að það sé ekkert mál að fá betri kjör og betri samninga og við eigum bara ekki borga neitt. Þeir segja samt ekkert hvernig raunverulega eigi að ná því. Nú er talað um sáttasemjara. En þeir gleyma alveg að segja okkur hvernig sáttasemjari kemur að máli þegar að Þjóðir eru búnar að semja og beðið er eftir þjóðaatkvæðagreiðslu um hann. Bretar og Hollendingar þurfa ekkert að flýta sér. Þau eru með samning sem er orðin að lögum hér og verður það þar til búið er að greiða atkvæði. Eftir það geta þeir bara hafið innheimtuaðgerðir. Hægt og rólega eða með látum. Meir að segja lögfræðingur sem var að skrifa grein okkur til varnar og Indefence leitaði til segir að hann telji að um 60% líkur séu á að þeir vinni málið.
En væri ekki rétt að láta af svona yfirlýsingum ef menn vilja koma sér saman um að reyna að fá samningum breytt? Kristján Júlíusson var í þættinum "Í vikulokin" og þar talaði þingmaður sem var virkilega tilbúin að koma upp úr skotgröfunum og efna til samræðna og samvinnu um þetta mál. Verð að segja að hann væri líklegri til að ná árangri fyrir sjálfstæðismenn en Bjarni. Hann talar af yfirvegun og tilbúinn að skoða mál frá fleiri hliðum án þess að víkja frá meginstefnu Sjáflstæðisflokksins. Alls ekki sammála Kristjáni en þar talar maður sem maður hlustar á án þess að fara í baklás.
Það væri gott að einhver benti Bjarna á þessa grein hans Gylfa Ásbjörnssonar þar sem að hann segir frá því að:
Það hefur m.a. farið lítið fyrir því í umræðunni undanfarið að í raun krafðist AGS og Norðurlöndin að Bretar og Hollendingar lánuðu okkur fyrir þessum skuldbindingum okkar svo tryggt væri að lánafyrirgreiðsla þeirra til okkar nýtist til þess að reisa efnahagskerfið okkar við á ný. Þeir hafa sagt að náist ekki viðunandi lausn á því geti þeir ekki lánað okkur umrædd lán því hætta væri á að þau færu ekki til að fjármagna endurreisn efnahags- og atvinnulífs, heldur til að endurgreiða Bretum og Hollendingum skuldbindingar okkar vegna innistæðutrygginganna!
http://pressan.is/pressupennar/Lesa_Gylfa_Arnbjornsson/um-hvad-snyst-malid-um-hvad-mun-thjodin-kjosa
Og það var hans flokkur sem gekk í að framkvæma þetta í október og nóvember 2008. Þ.e. að viðurkenna að við ætluðum að greiða innistæðutrygginar sem og þyggja lán fyrir þessum skuldum sem Bretar og Hollendingar voru beittir þrýsing til að veita.
![]() |
Hvað segja sérfræðingarnir um Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 9. janúar 2010
Þó að allt gott umtal sé okkur í hag held ég að menn verði nú aðeins að segja rétt frá.
Þessi kona sem skrifar þessa grein er nú svo vel inn í málum hér að hún segir
I only once sent a reporter to Reykjavik in 1988, when they elected their first woman PM for a third term. I can still spell her fabulous name, Vigdis Finnbogadottir, without Googling (though I did just that to check it was still two Ns).
Jam hún segir að Vigdís hafi veirð forsætisráðherra og talar síðar um að hún hafi veirð endurkjörin 3 sinnum sem forsætisráðherra.
Annars er greinin aðallega hugrenningar hennar út frá lopapeysu sem hún fékk frá dóttur sinni og henni finnst flott og koma sér vel í kuldanum í Bretlandi nú.
Og svo vogar hún sér að segja í fyrirsögn:
Pity the poor sweater-knitters of Iceland
Eða: Hafið meðaumkun með aumingja [fátæku?] peysu prjónurum Íslands
Og eins segir hún í lokin:
But they're going to have to knit an awful lot of ethnic sweaters, poor beasts.
Þeir munu þurfa að prjóna mjög mikið af þjóðlegum peysum - aumingjarnir
![]() |
Telegraph: Engin ástæða til að Íslendingar greiði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Bloggfærslur 9. janúar 2010
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Af mbl.is
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
Augnablik - sæki gögn...
DV
Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
Augnablik - sæki gögn...
Pressan
Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson