Mánudagur, 11. janúar 2010
Hvenær ætlar fólk að ná þessu?
Birti hér fréttatilkynningu ríkisstjórnarinnar af www.eyjan.is
Innlent - mánudagur - 11.1 2010 - 16:33
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar: Enginn vafi að innlán í útibúum erlendis eru á okkar ábyrgð
Ríkisstjórn Íslands hefur sent frá sér tilkynningu vegna fjölmiðlaumfjöllunar um ábyrgð gistiríkja á eftirliti útibúa fjármálastofnana innan sinnar lögsögu. Er það hrakið það sem Evrópuþingmaðurinn Alain Lipietz hélt fram í þættinum Silfur Egils í gær að Ísland bæri engar ábyrgðir vegna Icesave reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi.
Tilkynningin er svohljóðandi:
Með aðild sinni að EES-samningnum gerðist Ísland hluti af innri markaði Evrópu. Samkvæmt tilskipunum ESB sem Ísland hefur tekið upp með lögum frá Alþingi gildir eftirfarandi:
· Banki sem er með höfuðstöðvar í EES ríki stofnar útibú í öðru EES ríki: þá gildir ábyrgð tryggingarsjóðs heimaríkisins, þar sem höfðustöðvar bankans eru.
· Banki sem er með höfuðstöðvar í ríki utan EES stofnar útibú í EES ríki: þá gildir ábyrgð tryggingarsjóðs gistiríkisins, þar sem útibúið starfar.Ljóst er af þessu að þar sem Ísland er EES ríki féllu skyldur vegna trygginga á innlánum í útibúum íslenskra banka í öðrum EES ríkjum á íslenska tryggingasjóðinn. Þótt meginreglan sé einnig sú að eftirlit með því að fjármálastofnun geti greitt út innlán hvíli á heimaríki hefur af hálfu Íslands samt sem áður verið bent á að eftirlitsstofnanir gistiríkis séu ekki undanþegnar eftirlitsskyldum.
Samkvæmt tilskipun 94/19/EB um innlánatryggingakerfi sem Ísland hefur tekið upp er það skylda sérhvers aðildarríkis EES að tryggja að á yfirráðasvæði þess sé komið á fót innlánatryggingakerfi, sem nái til fjármálastofnana með höfuðstöðvar í því ríki sem og útibúa þeirra á Evrópska efnahagssvæðinu. Tilskipunin kveður skýrt á um að útibú í öðrum aðildarríkjum EES falli undir innlánatryggingakerfi heimaríkisins.
Íslensk stjórnvöld hafa á öllum stigum Icesave-málsins haldið því fram gagnvart Bretum, Hollendingum og Evrópusambandinu að um lagalega óvissu væri að ræða varðandi ábyrgð ríkissjóða við kerfishrun á lágmarkstryggingum innstæðueigenda. Jafnframt var strax í upphafi lögð áhersla á að fá úr málinu skorið fyrir viðeigandi úrskurðaraðila eða dómstól, en öllum tilraunum til þessa hefur verið hafnað af öðrum samningsaðilum en það er meginregla í þjóðarétti að ríki geta ekki leyst úr ágreiningi sín á milli fyrir dómstólum nema allir aðilar samþykki. Þessi fyrirvari sem áréttaður er í 2. gr. l. nr. 1/2010 breytir þó engu um þá niðurstöðu að ábyrgð tryggingarsjóðs heimaríkis gildir um útibú banka innan EES þótt annað hafi verið fullyrt undanfarna daga.
Held svo að við ættum að reyna að klára þetta núna heldur en að valda okkur en meiri skaða.
Ræddi við norræna ráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:21 | Facebook
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Af mbl.is
Innlent
- Myndir: Náttúrulegur þröskuldur að taka við
- Aldrei runnið vestar: Um 100 metrar á klukkustund
- Nýr samningur við sjálfstætt starfandi leikskóla
- Yfir 300 stæði fóru undir hraun
- Fullvissa ferðamenn um að hér sé öruggt
- Flogið á milli ljósaskipta
- Beint: Kosningafundur eldri borgara með frambjóðendum
- Tafir á þjónustu vegna ágreiningsmála um þjónustu
Erlent
- Segir að Rússar séu að nota Úkraínu sem tilraunasvæði
- Handtökuskipun á hendur Netanjahú og Gallant
- Leitar á ný mið eftir kolranga könnun
- Mun borða nærri 900 milljóna króna banana
- Skutu langdrægri eldflaug í átt að Úkraínu
- Flækingshundar auka áhuga á pýramídum
- Tveir Danir á meðal ferðamanna sem létust
- John Prescott er látinn
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson
Athugasemdir
Tálsýnin er lífseig. En auðvitað vildi maður að raunveruleikinn væri allt annar. Að við gætum sent þetta allt í fangið á Bretum og Hollendingum. Við efahyggjumenn erum stimplaið sem landráðamenn og hálfvitar. Ég kann þó betur við að lifa í raunveruleikanum en draumheimi.
Finnur Bárðarson, 11.1.2010 kl. 17:27
Það er víst bannað að taka sér orðið landráðamaður í munn svo ég ætla ekki að gera það hér. Efahyggjumennirnir taka ekkert mark á prófessorum né doktorum í Evrópurétti það gera aftur á móti þeir sem lifa í draumaheimi. Efahyggjumennirnir taka hins vegar mikið mark á þingmönnum sérstaklega þingmönnum Samfylkingarinnar.
Sigurður Þórðarson, 11.1.2010 kl. 17:35
Þið Magnús og Finnur lásuð hvorugir yfirlýsinguna til enda svo áfjáðir virðist þið vera að reyna að koma þessari byrði á almenning.
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar stendur þvert á móti að ágreiningur sé um þessi mál. Ég myndi ekki ábyrgjast að þið væruð ekki hálvitar.
Sigurður Þórðarson, 11.1.2010 kl. 17:41
Gott að vera í draumheimum og gleypa allt hrátt, spyrja einskis Sigurður og takk fyrir það sem þú ýjar að.
Finnur Bárðarson, 11.1.2010 kl. 17:42
Þótt lagalegum ágreiningi, þ.e. að innstæðutryggingin eigi ekki við þegar um kerfishrun er að ræða, sé réttilega haldið til haga með í lögum nr. 1/2010, þá snýst allt málið ekki nema að litlu leyti um lagalegar hliðar þess. Alþingi samþykkti þegar í desember 2008 að fara skyldi samningaleiðina, þ.e. leysa málið pólitískt og án þess að fara dómstólaleiðina.
Með réttu eða röngu þá var þetta leiðin sem var farin og ekki er hægt að taka upp - og ekki einu sinni þótt þjóðin felli lög nr. 1/2010 úr gildi. Áfram verður reynt að leita samninga.
Afleiðingarnar af frekari töfum geta hins vegar orðið erfðar fyrir íslenska efnahagslífið og mun verri en ef ríkisábyrgðin verður veitt að óbreyttum lögum. Samningsstaðan undir lok þessa árs verður alls ekki góð. Þá verða þungar greiðslur ríkisins á árinu 2011 yfirvofandi og knýjandi nauðsyn að fá aðgang að erlendum lánum til að létta afborganir.
Ómar Harðarson (IP-tala skráð) 11.1.2010 kl. 17:51
Eins og ég sagði, landráðamenn og hálfvitar, sem leyfa sér að velta hlutunum fyrir sér.
Finnur Bárðarson, 11.1.2010 kl. 17:54
Sæll Finnur og takk fyrir hógværðina.
Margir málsmetandi hagfræðingar telja að Ísland muni sitja uppi með ósjálfbærar skuldir. Ef það gengur eftir liggur fyrir þjóðinni þ.e. niðjum okkar að verða efnahagsleg nýlenda Breta og Hollendinga.
Ég hirði ekki um að gefa þeim nöfn eða einkunn sem ráðast eins og úlfar á þá sem af velvild taka upp hanskann fyrir Ísland.
Ég bið þig og raunar alla aðra einmitt að lesa þér til og velta hlutum fyrir þér. Það er ekki endilega skemmtilegt en það er nauðsynlegt, ekki endilega fyrir okkur heldur börnin okkar.
Sigurður Þórðarson, 11.1.2010 kl. 18:56
Ég tel mig vera nokkuð raunsæja manneskju og hef eftir bestu getu aðskilið tilfinningar og kalt mat í þessu máli. Ég er sammála Magnúsi Helga um að við gerum okkur mjög sennilega meira ógagn en gagn með þessu upphlaupi okkar í kjölfar neitunar forsetans á að undirrita lög 5 jan sl.
Það er sammerkt með lögum og kjarasamningum að hvorutveggja er hægt að toga og teya í allar áttir. Ásmundur Hilmarsson vann um árabil hjá ASÍ og leiðbeindi trúnaðarmönnum á vinnustöðum um túlkun kjarasamninga. Hann fékk fyrirspurn og svaraði henni á þann veg að túlkunin gæti verið svona eða hinsegin. Þá sagði einn neminn. Verður þá ekki að breyta orðalaginu svo það sé skýrar. Ásmundur svaraði og sagði "Það er aldrei hægt að orða neitt þannig að ekki megi túlka á fleiri en einn veg"
Þessi orða festust mér í minni og hafa komið oft í hugann nú á síðustu vikum. Lögfræðiálit vegna ICESAVE eru mörg og ámarga vegu.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 11.1.2010 kl. 21:24
Mismunurinn á þér og þjóðinni, er að þú trúir öllu sem frá stjórnarheimilinu kemur en þjóðin ekki. Ef þú vilt setja snöruna um hálsinn þá verður þú að eiga það við þig, en þú getur ekki verið hissa á að aðrir fylgi þér ekki.
Sigurður Þorsteinsson, 11.1.2010 kl. 22:19
Við áfall og ógnun taka grunnhvatir völdin, menn fyllast af adrenalíni og blóðið rennur niður til fóta. Öll hugsun ræðst af þessum sterku sjálfsbjargar hvötum.
Að hlaupa í öskrandi geðshræringu langt í burtu með Sigmundi Davíð virðist vera í tísku. Og á þessari vegferð upp í virki þar sem öllu skal skellt í lás er kallað að þeim sem vilja reyna að standa sig í samfélagi þjóðanna"aumingjar og landráðsmenn.
Banjó (IP-tala skráð) 11.1.2010 kl. 22:34
Þar sem mökkur af embættismönnum, stjórnmálamönnum; stjórnar- og andstöðu-; erlendum sem íslenskum, reglugerðarsamningamönnum, lögfræðingum og hagfræðingum GETUR EKKI FUNDIÐ HINA EINU OG SÖNNU LAUSN ...
... hvernig í ósköpunum dettur fólki eins og okkur í hug við VITUM STÓRA SANNLEIK. Ja, það er ekki minnimáttarkenndin þar.
Eygló, 12.1.2010 kl. 02:31
Siguður ef að allir véfengja allt sem stjórnvöld gera þá verður hér aldrei sátt eða samstaða. Annars sagði ég s.l. Sunnudag:
"
Skipum þverpólítiska nefnd strax!
Sunnudagur, 10. janúar 2010
Ég persónulega tel að það eigi að ganga frá þessu Icesave máli hið fyrsta og að við komumst ekki hjá því að borga. En til að taka af allan vafa væri nú rétt að skipa þverpólitíska nefnd sem á næstu kannski 4vikum kanni möguleika okkar með færustu sérfræðingum hvaða möguleika við höfum á að ná nýjum samningi. Ekkert verði til sparað og einnig að rætt verði við viðsemjendur okkar til að kanna möguleikana.
Á meðan að þessi nefnd vinnur að málinu verði samkomulag hér meðal fjölmiðla og almennings að ræða þetta mál ekki, heldur að snúa sé að öðrum áríðandi málum.
Síðan þegar þessi nefnd skilar af sér kannski eftir mánuð þá sameinumst við um niðurstöður hennar um möguleika í stöðunni.
Orðinn þreyttur á að menn séu hér að tala um hluti sem enginn veit neitt um. Finnst sjálfum ótrúlegt að embættismenn og stjórnvöld hafi valið að fara út í að skuldbinda okkur fyrir gríðarlegum upphæðum ef að aðrir möguleikar voru raunhæfir í stöðunni.
En ég að minnstakosti væri til í að halda kjafti um Icesave á meðan að færustu sérfræðingar greindu möguleika okkar.
Ég held hvernig sem þetta mál færi væru alltaf einhverjir sem segðu eftir á að við hefðum átt að gera eitthvað annað. Og hér myndi þetta mál hvíla á okkur áfram "
Og það má segja að stjórnvöld hafi ákveðið daginn eftir að skoða þetta þvi að þá hittust allir flokksformenn og eru að skoða samvinnu og samstarf.
Ég er á því í megin atriðum séu stjórnvöld að fara eftir því sem okkur var ráðlagt í upphafi og ég hef kosið að trúa á þá leið og styð hana innan skynsamlegra marka. Annars væri tilgangslaust að búa hér áfram ef menn væru vissir um að stjórnvöld vinni gegn fólkinu. Ef ég hugsað þannig myndi ég flytja héðan.
Magnús Helgi Björgvinsson, 12.1.2010 kl. 13:38
Eygló.......Það var alls ekki hægt að orða þetta betur. Ég hins vegar set mikla fyrirvara á það sem kemur fá UPPHAFSMÖNNUM hrunsins númer 1 og skil ekki hvað fólk er duglegt að hlaupa á eftir yfirlýsingum þeirra. Ég óttast að það verði sömu aðilar sem skipuleggi hrun númer 2. Spurning já stór spurning hverjir sé LANDRÁÐAMENN.
Guðmundur Sigurðsson (IP-tala skráð) 12.1.2010 kl. 18:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.