Fimmtudagur, 9. desember 2010
Bjarni er ekki allt í lagi hjá þér!
Það var mikil óvissa um hvað myndi gerast þegar að forsetinn synjaði lögunum staðfestingu. Hann í raun tók áhættu fyrir hönd þjóðarinnar. Hér hefði allt getað farið til andskotans varðandi samskipti okkar við erlendar þjóðir . Og í raun höfum við greitt Icesave dýru verði líka í formi lánakjara sem okkur hefur boðist ef okkur hafa boðist erlend lán yfir höfuð. Þá vorum við þá að tala um vextir sem þessar sömu þjóðir eru að bjóða Írum. En náttúrulega frábært að betri kjör buðust nú og ég kaupi að Bretar og Hollendingar eiga ekki að græða á þessum lánum.
En þjóðaratkvæðagreiðslan var ekki svona gildishlaðinn eins og menn láta nú. Viðsemjendur okkar voru búnir að bjóða betri kjör og Steingrímur og Jóhanna hvöttu ekki til að þessir samningar yrðu samþykktir eftir það. Fyrir Steingrími og fleirum vakti það að koma þessu Icesave frá svo hægt væri að fara að stunda hér eðlileg viðskipti og fjárfestingar á viðráðanlegum kjörum. Og þegar bæði Icesave 1 og 2 voru var hér allt önnur staða.
Nú eiga menn bara að fagna því að hér er komið betri samningur og drífa hann í gegnum Alþingi. Allar líkur á að eigur Landsbankans gamla standi undir allri skuldinni.
Og þegar Bjarni horfir til fortíðar ætti hann að rifja upp sitt innlegg í þessi mál. Þetta sagði hann m.a. í lokaræður sinni 2008 um heimild ríkissjórnar til að ganga til samninga út á sameiginleg viðmið deiluaðilar sem voru upp á 6.7% vexti:
Ég held að það sé afskaplega mikil einföldun á þessu máli öllu saman að telja í raun og veru að það hafi verið valkostur fyrir íslensk stjórnvöld að standa stíf á lögfræðilegri túlkun og halda henni til streitu, jafnvel fyrir dómstólum, hvort sem það væri á alþjóðlegum vettvangi eða hér heima fyrir íslenskum dómstólum. Ef menn ætla að fara að taka þann slag verða menn líka að vera tilbúnir til að tapa því máli ef á það mundi reyna. Þeir sem tala fyrir því að þá leið hefði átt að velja eru auðvitað tilbúnir til að gera það eftir á vegna þess að þeir geta gefið sér það í umræðunni að við hefðum sigrað þá lagaþrætu. Það er fínt að gera það í dag vegna þess að það liggur fyrir að sú leið verður ekki farin, en eru þeir hinir sömu þá tilbúnir til að fallast á að við mundum taka herkostnaðinn af þeirri ákvörðun ef niðurstaðan yrði okkur í óhag? Það er alveg ljóst að sú leið sem valin var og sá farvegur sem málið er í núna mun alveg örugglega skila okkur hagstæðari niðurstöðu en við hefðum fengið með því að láta reyna á rétt okkar og ef við hefðum síðan mögulega tapað þeirri þrætu fyrir dómstólum. Það er alveg öruggt.
Þess utan er líka afar líklegt, eins og m.a. hefur komið fram í máli hæstv. utanríkisráðherra, að á meðan málið væri í slíkum farvegi hefðum við ekki fengið fyrirgreiðslu hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, það liggur fyrir, og auk þess eru verulegar líkur á því að Bretarnir hefðu ekki dregið úr aðgerðum sínum á grundvelli hryðjuverkalaganna eins og þeir hafa reyndar þegar gert þó að ekki hafi þeir látið af öllum aðgerðum sínum á grundvelli laganna, þ.e. enn þá eru eignir Landsbankans kyrrsettar í Bretlandi. Þar til viðbótar má leiða líkum að því að á vettvangi samstarfsins um Evrópska efnahagssvæðið hafi verið látið reyna á það hvort hægt hefði verið að hindra eða stöðva eða þvælast fyrir með einhverjum hætti frjálsum viðskiptum okkar inn á svæðið á grundvelli öryggishagsmuna. Allt eru þetta atriði sem þarf að taka með í reikninginn þegar menn eru að gera upp á milli þeirra valkosta sem við stóðum frammi fyrir í þessu
máli
Af hverju ekki að fagna nú betri árangri og hætta að velta sér upp úr fortíðinni og reyna að horfa smá bjartsýnni fram á veginn.
Þurfa að svara fyrir fyrri samning | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:33 | Facebook
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson
Athugasemdir
Maðurinn hefur nákvæmlega ekkert gáfulegt fram að færa. Afturhald og niðurrif. Af öllum flokkum er formaður SJ'ALFSTÆÐISFLOKKSINS að ræða um ábyrgð!!!
Sverrir Jónsson (IP-tala skráð) 9.12.2010 kl. 22:31
Þú barðist nú hart fyrir því að Íslendingar ættu að borga svavars samninginn, sem betur fer er aðeins örlítill hluti Íslendinga heiglar og landsölulið eins og þú, það er mín skoðun að skaðlega menn eins og þig ætti að fjarlægja af netinu.
Geir (IP-tala skráð) 9.12.2010 kl. 22:36
"Og í raun höfum við greitt Icesave dýru verði líka í formi lánakjara sem okkur hefur boðist ef okkur hafa boðist erlend lán yfir höfuð."
Áttu við að við hefðum getað verið á fullu að taka lán á sömu kjörum og Írar (sem fylgja boði "alþjóðasamfélagsins" og gangast undir skuldbindingar án þess að hafa hugmynd um það hvort eða hvernig þeir ráða við þær) allan þennan tíma?!!
Ó, hvílíkur skaði!
Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 9.12.2010 kl. 22:44
Magnús, þú segir þetta hérna að ofan.......
"Hér hefði allt getað farið til andskotans varðandi samskipti okkar við erlendar þjóðir ."
Þetta er bara einfaldlega RANGT! Ég fullyrði að aðrar þjóðir hafi með þessu fengið aukna aðdáun á okkur íslendingum fyrir að standa á okkar rétti gagnvart bretum og hollendingum.
Ari (IP-tala skráð) 9.12.2010 kl. 22:54
Ég held það viti allir allt um ábyrgð Sjálfstæðisflokksins sem stuðningsmenn Samfylkingar og Vinstri grænna vilja endilega benda á í þessu máli.
En það breytir því ekkert að Samfylking og Vinstri grænir tóku mjög ranga ákvörðun og ætluðu að gera það í hreina andstöðu við vilja stórs hluta þjóðarinnar. Þeir þurfa að bera ábyrgð á því, þetta er stór og mikil ábyrgð að hafa ætlað að koma þjóðinni í svona hræðilega stöðu án þess að þess þyrfti í raun og veru, án þess að fá erlenda sérfræðinga til þess að taka þátt í samningaviðræðum fyrir Íslands hönd.
p.s. þar sem ég veit hvernig svona tilgangslaust stjórnmálaþras virkar þá vil ég bara benda á að ég tengist Sjálfstæðisflokkinum ekki neitt, hef, að mig minnir, aldrei kosið flokkinn. Ég hef hins vegar kosið VG einu sinni fyrir löngu.
VG og Samf. brugðust þjóðinni þarna og þurfa að bera ábyrgð á því, merkilegt nokk þá var það Ólafur Ragnar sem bjargaði þeim þarna, þó þau hafi ekki verið sátt á sínum tíma.
Nú hafa þessir tveir flokkar sammælst um að ráðherra megi kæra fyrir afglöp í starfi, sbr. Geir Haarde. Þá er bara spurning hvort það teljist afglöp þegar forsetinn bjargar flokkunum fyrir horn. Við vitum allavega að ef forsetinn hefði ekki bjargað þeim þá væri Ísland í mjög slæmum málum.
Andri (IP-tala skráð) 9.12.2010 kl. 22:56
Þá á ég við hvort það teljist afglöp hjá Samf. og VG að samþykkja Icesave á sínum tíma.
Forsetinn bjargaði þeim svo með því að senda samninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Andri (IP-tala skráð) 9.12.2010 kl. 22:58
Magnús hvað hefur þú að óttast...
Það er eins og þú sért að missa þig....
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 9.12.2010 kl. 23:03
Þetta er rangt hjá þér. Þegar Bjarni hélt þessa ræðu voru hin sameiginlegu viðmið til grundvallar. EKKI ÞESSIR VEXTIR SEM ÞÚ NEFNIR. Reyndu að hafa staðreyndir á hreinu ef þú þykist vita eitthvað um þetta mál.
Helga (IP-tala skráð) 9.12.2010 kl. 23:14
Tekð af síðu Gisla Baldvinssonar:
Magnús Helgi Björgvinsson, 9.12.2010 kl. 23:32
Af ruv.is
Svo talar Bjarni Ben um að þessi samningur sé 200 milljörðum betri eða þannig segir mbl.is frá ummælum Bjarna. Við erum hugsanlega að tala um 100 milljarða mun og einhver hluti af því er sökum hærra gengis.
Síðan á eftir að vinna rannsókn í framtíðinni hvað það kostaði Ísland að hafa þetta ófrágengið í nærri 2 ár.
Magnús Helgi Björgvinsson, 9.12.2010 kl. 23:49
Legðu nú frá þér bjórkolluna og sjá dagar koma.
Guðmundur Ingi Kristinsson (IP-tala skráð) 9.12.2010 kl. 23:51
Magnús, farðu nú að hafa vit á því að loka lúðrinum.
Árni Karl Ellertsson, 9.12.2010 kl. 23:54
Eigum við ekki að bíða eftir því að indefens og þeirra spekingar fari að reikna þetta uppí trilljón skrilljónir sem allar falli á ríkið?
Jú, held það. Eg allavega bíð eftir því.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 9.12.2010 kl. 23:59
Árni Karl Ellertsson ég bara á ekki neinn lúður svo ég get ekki lokað neinum lúðri fyrir þig. Þú hefur kannski tekið eftir því að þetta er hljóðlaust blogg þannig að þó ég myndir þegja þegar ég slæ inn texta þá tækir þú bara ekki eftir því. Og ég skirfa bara hér eins og ég vill.
Magnús Helgi Björgvinsson, 10.12.2010 kl. 01:02
Ja hérna.....
furðulegt að menn leggi á sig að verja þessa ríkisstjórn.
stebbi (IP-tala skráð) 10.12.2010 kl. 01:06
Þegar Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands setti hryðjuverkalögin, samin fyrir óvini Hins Frjálsa Heims, á þá eitt hæststandandi land í heiminum, siðferðilega sem á öðrum sviðum, Ísland, með lengstu alþingishefð í veröldinni..............herlaust land sem var á toppnum á Global Peace Index sem friðsælasta og mest friðelskandi land heims......
þá sveik hann Vestræna menningu eins og hún lagði sig. Lagði lóð á vogarskálar þeirra sem vilja tortýma henni með að gera lítið úr hryðjuverkalögunum, og lagði eyðingaröflunum lið með að bera þau saman við 30 misvitra íslenska bankamenn.
Að láta þjóðina alla gjalda siðferðis örfárra óvinsælla bankamanna er sama "lógík" og var að baki Helförinni, sem nazistar, óvinir Vestrænnar menningar eins og Gordon Brown og terroristarnir vinir hans sem þakka honum fyrir að vera komnir á blað með Íslandi og þar með hvítþvegnir, töldu sanngjarna laus við hinu svokallaða "gyðingavandamáli".
Ef Íslendingar taka á sig þessar skuldir munu þeir hljóta slæmt karma fyrir, afþví skuldaþrældómur er helsta ástæða sárrar fátæktar fátækustu ríkja heims, en ekki skortur á matvælum eða annað. Þeir sem ekki þekkja til ættu að kynna sér "Make Poverty History" átakið sem Bono í U2 var front maður fyrir. Við skuldum þessum þjóðum að við látum ekki þjóðirnar sem hnepptu þau í þennan þrældóm og hafa með því svellt milljónir og milljarða barna í hel......hneppa okkur í þrældóm líka. Ef við sleppum við að borga, opnar það smugu fyrir þau að hætta að borga. Svo mikilvægt er okkar hlutverk, og ófyrirgefanlegt að bregðast því núna, og erum við þá persónulega ábyrg fyrir sveltandi Afríkubúum og höfum með því að taka á okkur óréttlátar skuldir lagt persónulega blessun íslensku þjóðarinnar yfir meðferðina á okkar minnstu bræðrum meðal þjóða heims.
Að lokum skal hafa í huga að Þroskastríðið er ekki á enda. Bretar hafa arðrænt þjóðir heims hvað mest allra þjóða og heiminum blæðir enn undan heimsvaldastefnu þeirra. Þeir hafa lengi ásælst auðlindir okkar.
Frelsi - Jafnrétti - Bræðralag!
Á lykiltímum í veraldarsögunni þýðir ekki að hugsa smátt...Ísland verður að rísa undir hlutverki sínu.....
VAKNIÐ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Lykillinn. (IP-tala skráð) 10.12.2010 kl. 02:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.