Leita í fréttum mbl.is

Kaffibandalagið úti.

Ég verð að segja að mín tilfinning er að Vg og Samfylking eigi hér með að slíta þessu tali um Samfylkingsamstarf við Frjálslynda nú. Þar hafa náð völdum aðilar sem hafa farið fremstir í að ala á fordómum gagnvart útlendingum á Íslandi.frjalslyndir

Í framhaldinu eiga Vg og Samfylking að lýsa áhuga á samstarfi eftir kosningar og leggja áherslu á velferðarstjórn með umhverfismál og umhverfisvernd sem eitt stærsta málið. Gæti séð fyrir mér að flokkarnir settust niður nú á þessum næstu vikum og athuguðu hvernig stefna þeirra í umhverfis málum rýmar saman. Og hvort að þeir gætu kynnt fólki hvernig Vinstri grænirsáttmáli þeirra í þeim flokki gæti litið út. Þar með gæfist fólk i á að meta það hvað það fengi við að kjósa þessa flokka í meirihluta.

Frétt af mbl.is

  Steingrímur: Fyrirfram útilokað samstarf við flokka sem gera út á andúð í garð útlendinga
Innlent | mbl.is | 2.2.2007 | 7:50
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, segir í grein í Morgunblaðinu í dag, að ef svo dapurlega eigi eftir að fara í íslenskum stjórnmálum að þar gangi fram flokkur sem beinlínis geri út á andúð í garð fólks af erlendum uppruna og daðri við kynþáttaaðgreiningarhyggju þá sé samstarf fyrirfram útilokað við slíka flokka.


mbl.is Steingrímur: Fyrirfram útilokað samstarf við flokka sem gera út á andúð í garð útlendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Hallsson

Sammála þessu Magnús. Samfó og Vinstri græn geta náð saman og fellt ríkisstjórnina í vor. Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 2.2.2007 kl. 09:12

2 identicon

Sælir, Magnús Helgi, Hlynur og aðrir !

Hvaða helvítis svartsýni er þetta í ykkur, piltar ? Þeir Jón Magnússon og félagar, í Frjálslynda flokknum vilja einna helzt stemma stigu við uppivöðslu Múhameðstrúar manna, hér á Íslandi, og er það ekki nema eðlilegt !!!

Ég hefi oftsinnis, í ræðu og riti getið þess, að köstuðu Arabar, þessar annars ágætu þjóðir, á  glæ þessarri brjálæðishyggju, frá Mekka og nærsveitum, og tækju, sem aðrir trúbræður þeirra aftur upp trúna á hin ýmsu ágætu skurðgoð, hver tignuð voru þar austur frá, í fornöld og inn á for-miðaldir, þá væri vel! Hvet ykkur, Magnús Helgi og Hlynur alveg sérstaklega; farið inn á Gogglara leitarvélina, sláið inn Palmyra, þá sjáið þið nokkra af þessum ágætu guðum: þ.e. þá Aglibol - Baalshamin og Malachbel á virðulegum grunni, úthöggnir í grjót, og hinir hressilegustu !

Við sjáum dæmin, í löndunum í kringum okkur, allvíða. Tóm vandræði og rugl, víða í gangi, hjá fylgismönnum áðurnefnds Múhameðs. Þessar þjóðir væru betur komnar, með piltana frá Palmýru, ekki satt félagar ? Minnir mig, að t.d. Aglibol hafi verið einhvers konar tunglguð. Ekki skemmir það !

Með beztu kveðjum, og hífið ykkur upp úr drunganum strákar !!!

Óskar Helgi           

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 2.2.2007 kl. 12:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband