Mánudagur, 28. mars 2011
Svo segja hér "Nei" spekingar að fyrirtæki hafi ótakmarkaðan aðgang að lánsfé!
Nú heyrum við af Orkuveitunni. Í síðustu viku heyrðum við frá Landsvirkjun sem jú fá lánsloforð en þau eru skilyrt við fjármögnun og Icesave. Svo getum við nefnt Hafnafjörð og fleiri bæjarfélög sem er boðið upp á lán með 7% vöxtum.
Reynið svo að segja að það skipti ekki máli að leysa úr málum eins og Icesave sem sannarlega hefur valdið því að hér eru líkur á að lánshæfi landsins fari algjörlega í ruslflokk.
Bendi fólki á lesa þennan pistil eftir Andra Geir Arinbjarnarson þar segir hann m.a.
Ef Icesave verður fellt má búast við að vaxtakrafan á erlend lán (ný, framlengd og endurfjármögnuð) til íslenskra aðila muni hækka enn frekar. Til að mæta slíkri hækkun þarf að hækka skatta og gjöld (t.d. gjaldskrá OR), skera niður og takmarka launahækkanir (eða flytja úr landi eins og Össur). Þá þarf að styrkja gjaldeyrisforðann og það verður varla gert nema með enn meiri höftum. Innflutningshöft munu verða rædd, sérstaklega á lúxusvörur. En ef það dugar ekki til og höft, skattar og niðurskurður eru orðin of sársaukafull er til leið sem verður næstum ómótstæðileg og það er að þjóðnýta erlendar eignir lífeyrissjóðanna.
Og lesið svo áfram í pistlinum hvernig að fyrirmynd Lilju Mósesdóttur Argentína fór í eignir lífeyrissjóða Argentínubúa.
Vilja ekki lána Orkuveitunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:53 | Facebook
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 969459
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 47
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson
Athugasemdir
Þvílíkt bull, þú ert kominn í ruslflokk með svona rakalausu bullbloggi.
Orkuveitan fær ekki lán vegna fjármála óstjórnar á liðnum árum og er skuldastaða fyrirtækissins komið niðurfyrir velsæmi og í ruslflokk.
Landsvirkjun er alla ekkert háð Icesave í sínum fjármögunum það er enn ein Já sinna lýgin.
Sveinn Úlfarsson (IP-tala skráð) 28.3.2011 kl. 13:05
Af www.eyjan.is 21 mars:
Forstjóri LV á www.visir.is
Magnús Helgi Björgvinsson, 28.3.2011 kl. 13:55
Magnús, Ices(L)ave hefur engin áhrif á fjármögnun OR heldur er það bullið og kjaftæðið í borgarstjóranum, sem kemur úr dótturflokki Landráðafylkingarinnar.
Jóhann Elíasson, 28.3.2011 kl. 14:01
Æi greyin látið ekki svona. Þið vitið að lánshæfi bæði ríkisins og fyrirtækja hér er lægra en það ætti að vera vegna Icesave. Og vegna þess á orkuveitan líka erfitt með að fjármagna sig. Vissulega er þett líka rekstur Orkuveitunar sem veldur en Landsvirkjun er vel rekin en á samt erftitt með að endurfjármagna sig. Og sama er um öll sveitarfélög. Þeim býðst í dag um 7% vexti á lán sem þau taka.
Magnús Helgi Björgvinsson, 28.3.2011 kl. 14:07
Eitt er á hreinu Magnús Helgi og það er að þið já sinnar við Icesave og ESB eruð búin að grafa markvisst undan trúverðugleika Þjóðarinnar með þessum áróðri ykkar og er það að koma í hausin á okkur núna...
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 28.3.2011 kl. 14:26
Magnús, þessi orð virðast eiga vel við þig og marga aðra JÁ-sinna: "LIVING WITH EYES CLOSED IS EASY"............
Jóhann Elíasson, 28.3.2011 kl. 14:42
Magnús Helgi, þessar fréttir sem þú vitnar í frá Vísi og Eyjunni eru ekkert annað en lygar. Ég hringdi í Landsvirkjun og fékk staðfest hjá starfsmönnum þar að hvorugt lánið frá NIB eða EIB vegna Búðarhálsvirkjunar er með neinum skilyrðum um IceSave. Einu skilyrðin eru þau að takist að útvega 7 milljarða sem vantar upp á heildarfjármögnun, og að ríkissjóður hafi tiltekið lágmarkslánshæfismat. Hver sú einkunn á að vera er hinsvegar trúnaðarmál að kröfu EIB, og fullyrðingar um það því aðeins sögusagnir.
Ástæðan fyrir því að Orkuveitan fær ekki lán er hinsvegar mjög einföld. Borgarstjóri hefur lýst því yfir opinberlega að Orkuveitan sé gjaldþrota, en hvort það er rétt mat hjá honum eða ekki skal ósagt látið fyrst engin formlegur úrskurður um gjaldþrot er fallinn. Í ljósi þessara yfirlýsinga er samt engin furða þó OR fái hvergi lán og það hefur ekkert með IceSave að gera en allt með slæman rekstur og fjárhagsstöðu Orkuveitunnar að gera. Aftur á móti hefur borgarstjóri líka lýst því yfir að hann vilji borga IceSave, en það virðist samt ekki duga honum til að útvega lán...
En hefur enginn stoppað til að spyrja sig að því afhverju þessi áhersla er lögð á að taka erlend lán? Var það ekki einmitt það sem rústaði fjármálakerfinu hérna til að byrja með? Eru menn í alvöru svona vitlausir að ætla að láta teyma sig tvisvar ofan í sömu forarvilpuna?
Ef útlendingar vilja ekki lána okkur eiga Íslendingar frekar að gera það. Vaxtatekjurnar af þeim lánum myndu skila arði í þjóðarbúið í stað þess að streyma til útlendinga. Til dæmis væri hægt að ljúka fjármögnun Búðarhálsvirkjunar með 7 milljarða láni frá nýja Landsbankanum. Einhverntímann hefðu það þótt litlir peningar og verkefnið hlýtur að vera arðbært, vaxtatekjurnar af því myndu svo renna að hluta til skilanefndarinnar og standa undir greiðslum vegna IceSave. Allir vinna!
Og til að leysa vanda OR og þar með Reykjavíkurborgar, að þá var aðferð til þess kynnt fyrir meira en hálfu ári síðan, sem krefst engra erlendra lána og sparar um leið helling af peningum. Ennþá er beðið eftir viðbrögðum.
Ef hér væri fólk tilbúið að hlusta á lausnir í stað þess að velta sér endalaust upp úr vandamálunum, þá gætum við haldið áfram uppbyggingu og atvinnusköpun. Það sem stendur öðru framar í vegi fyrir því virðist vera landlæg fíkn í erlendar skuldir. Þessu þarf að útrýma, byrjum 9. apríl.
Guðmundur Ásgeirsson, 28.3.2011 kl. 15:52
Guðmundur Ásgeirsson.
Ert þú virkielga svo einfaldur að halda því fram að yfirlýsing borgarstjórans á Facebook hafi áhrif á lánshæfi OR. Það vandamál er svo miklu eldra, að það var orðið að veruleika löngu áður en Jón Gnarr varð borgarstjóri....
Georg (IP-tala skráð) 28.3.2011 kl. 16:12
Frjálsar handfæraveiðar leysa byggða, fátæktar og atvinnuvanda
Íslendinga, frelsi er allt sem þarf, ekki nýjar lántökur !
Aðalsteinn Agnarsson, 28.3.2011 kl. 17:26
Lausnin á vanda Orkuveitunnar er augljós. Reykjavíkurborg á að bjóða einhverju þrotabúi bankanna 130 ma borgarábyrgð. Þá mun lánshæfismat stykjast og auðvelt verður fyrir Orkuveituna að fá hagstæð lán. Snilld!
NN (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 20:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.