Laugardagur, 13. apríl 2013
Að lofa ekki meiru en hægt er að standa við gengur ekki í kjósendur
Nú fyrir þessar kosningar tók Samfylkingin ákvörðun um að lofa ekki meiru en hægt er að standa við. Engin loforð um peninga af himnum ofan eða eitthvað sem svo auðvelt er að svíkja eftir kosningar.
Formaðurinn boðaði ný vinnubrögð í stjórnmálum og auka samstarf og samvinnu við aðra flokka og fólkið í landinu.
En það er ljóst að fólk vill eitthvað annað. Það vill loforð um peninga af himnum ofan og að fá áfram að trúa því að heimili í landinu almennt hafi það svo hræðilega illa eftir síðustu 4 ár að annað eins hafi aldrei komið upp hér á Íslandi. En úps lesið þessa grein.
Það er orðin viðurkennd hugmynd að heimili landsins séu öll svo þjökuð af skuldum eftir hrun að annað eins hafi ekki sést og nú sé því nauðsynlegt að ráðast í almennar niðurfærslur á húsnæðislánum heimilanna. Þetta á að gera í nafni réttlætis og svo að hér fari ekki allt í bál og brand.
Undirritaður er, svo vægt sé til orða tekið, fullur efasemda. Getur verið að þetta sé rangt og þessi hugmynd hafi orðið til út af múgæsingi, gegndarlausum áróðri, minnisleysi og því sem kallast peningaglýja (e. money illusion)? Margir hrista eflaust hausinn yfir slíkum vangaveltum, sem er skiljanlegt. Við nánari skoðun kemur þó annað í ljós.
1. Heimasíða Hagstofu Íslands hefur að geyma ýmsar athyglisverðar tölur um fjárhag heimila frá 2004 (http://hagstofa.is/pages/2495). Þar kemur meðal annars eftirfarandi fram:
- Hlutfall heimila í vanskilum vegna leigu eða lána árið 2004 var 9,4% sbr. 10,1% árið 2012. Með öðrum orðum var vandinn svipaður í góðæri, þegar kaupmáttur var þar að auki um 2% lægri en hann er í dag. Enginn talaði þá um slæmt ástand heimilanna og nauðsyn leiðréttingar.
- Húsnæðiskostnaður á Íslandi, sem hlutfall af ráðstöfunartekjum, virðist ekki vera langt frá því sem gengur og gerist í Evrópu og virðist ekki hafa hækkað frekar á Íslandi en annars staðar eftir hrun. Á árunum 2005-2010 hefur hann verið 16,4-18,7% sem er á bilinu 0,1-1,7% hærra en í Evrópusambandinu.
- Þeir sem leigja hafa frá 2004 þurft að glíma við meira íþyngjandi húsnæðiskostnað (skilgreining Hagstofu: Ef 40% eða meira af ráðstöfunartekjum fara í húsnæðiskostnað) en þeir sem búa í eigin húsnæði. Árið 2011 var hlutfall heimila í þessari stöðu í leiguhúsnæði 16,4%, en 10% þeirra sem búa í eigin húsnæði.
- Árið 2004 áttu 9,7% heimila mjög erfitt með að ná endum saman og 36,6% erfitt eða nokkuð erfitt með það. Árið 2012 voru þessar tölur nær þær sömu, eða 11,5% og 36,7%. Staðan 2004 og 2012 er því nánast sú sama.
- Hlutfall húsnæðiskostnaðar af ráðstöfunartekjum meðalheimilis með húsnæðislán var 20,2% árið 2006, en 18,7% árið 2011.
- Árið 2007 áttu 28,4% heimila erfitt með að ná endum saman og 29,8% gátu ekki mætt óvæntum útgjöldum, á toppi góðærisins.
- Í tölum Hagstofunnar er ekkert sem bendir til þess að staða heimilanna fari versnandi. Í raun lítur út fyrir að hún fari batnandi, t.d. með því að færri áttu erfitt með að ná endum saman árið 2012 heldur en 2011.
2. Á vef Hagstofunnar eru einnig tölur um verðbólgu og launaþróun sem styðja þetta. Þær styðja líka þann grun að ein lykilástæða þessara hugmynda sé peningaglýja:
- Verðlag hefur hækkað um 50,4% frá júlí 2007 til dagsins í dag, sem þýðir að verðtryggt lán, sem ekkert er greitt af, hefur hækkað um 50,4%. Á sama tíma hefur vísitala launa hækkað um 40,4%. Launaþróun hefur því að miklu leyti náð að bæta upp fyrir hækkun lánanna, þótt vissulega sé þarna munur.
- Til útskýringar, þá væru skuldug heimili að öllu óbreyttu að greiða jafn hátt hlutfall af ráðstöfunartekjum sínum í afborganir og vexti af lánum sínum og 2007 ef laun og verðlag hefðu hækkað jafn mikið.
3. Mikið er talað um að vandinn sé forsendubrestur.
- Fólk skrifar sjálfviljugt undir lánasamning þar sem skilmálarnir eru skýrir það veit það að lánið mun fylgja verðlagi. Það er eina forsendan fyrir utan aðra skilmála svo að fullyrðingar eins og hér varð forsendubrestur eru býsna máttlaus rök.
- En þá er gjarnan sagt: Fólk gerði ekki ráð fyrir svona mikilli verðbólgu. Stutta svarið er: Það var ekki skynsamlegt, þetta er Ísland. Verðbólgan árin 2008 og 2009 var um 12% hvort ár. Meðalverðbólga frá lýðveldisstofnun er hærri, eða um 15%. Þegar fólk tekur lán eða fjárfestir veit það að aðstæður geta breyst. Það kallast ekki forsendubrestur heldur óvissa og hún mun alltaf vera til staðar.
- Það var líka forsendubrestur samkvæmt þessari skilgreiningu að hlutabréfamarkaðurinn hrundi. Enginn hefur kallað eftir almennri leiðréttingu vegna taps í hlutabréfaviðskiptum.
4. Að lokum vil ég benda á hversu mikið virðist vera búið að rugla með réttlætishugtakið í umræðunni.
Ef ríkið getur framkvæmt almennar niðurfellingar, þá hefur það augljóslega fjármuni til þess og getur ráðið því hvernig þeim er ráðstafað. Nú vona margir að hægt verði að fá mikla fjármuni frá kröfuhöfum bankanna í almenna niðurfærslu verðtryggðra húsnæðislána, samt er ekkert sem segir að ráðstafa þurfi þeim fjármunum þannig. Þessir fjármunir gætu til dæmis nýst til þess að greiða niður skuldir ríkissjóðs og sparað þannig strax marga milljarða í vaxtagjöld. Það er eitthvað sem allir græða á skuldarar, þeir sem leigja og komandi kynslóðir.
Hvernig er þá sanngjarnt að hampa sérstaklega þeim sem tóku verðtryggð lán, á kostnað annarra borgara? Hvernig er það réttlætanlegt gagnvart komandi kynslóðum að nýta ekki tækifærið til að minnka byrðarnar á þeim? Hvernig er réttlætanlegt að veita þeim sem skulda mest, þ.e.a.s. þeir sem eru að öllu jöfnu efnaðastir, langstærstu aðstoðina? Ef það á að veita aðstoð í húsnæðismálum, hvernig er þá réttlætanlegt að hjálpa þeim sem búa í eigin húsnæði en ekki þeim sem leigja og virðast hafa það verra?
Árið 2007 héldum við að við værum bestu bankamenn í heimi og fyrr á sama áratugi ætluðu allir að græða á Decode. Við trúðum því að fótanuddtæki væri algjör snilld og að hundurinn Lúkas hefði verið drepinn á hrottalegan hátt. Vissulega er staðan ekki góð langt í frá. Drögum samt andann djúpt, hlustum ekki á órökstuddar upphrópanir og skoðum staðreyndirnar. Þegar það er gert blasir allt annar veruleiki við.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:48 | Facebook
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson
Athugasemdir
Sæll Magnús.
Þú gleymir reyndar alveg eina kosningaloforði Samfylkingarinnar sem er að koma þjóðinni inn í ESB og upptaka evru.
Þetta er nánast eina kosningaloforð flokksins og er alveg háheilagt. Þetta á að þeirra mati að leysa nánast öll vandamál þjóðarinnar.
Flokksformaðurinn opnar aldrei munninn öðru vísi en hamast á þessu eina stefnumiði flokksins. Skiptir þá engu hvort að rætt er um vegasamgöngur á Vestfjörðum, fikveiðimál eða almenn byggðamál. Alltaf skal ESB aðildin poppa upp sem helsta lausnarorðið !
Gæti þetta kannski einmitt verið helsta ástæðan fyrir lánleysi Samfylkingarinnar og þessu afhroði sem virðist bíða flokksins ?
Gunnlaugur I., 13.4.2013 kl. 15:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.