Mánudagur, 11. nóvember 2013
Svona fá útvaldir nú gefins makrílinn!
Virðulegur forseti. Það hefði verið eðlilegt að spyrja hæstv. sjávarútvegsráðherra þessara spurninga en ég skal taka að mér að svara þótt málefnið sé á sviði annars ráðherra. Eins og hv. þm. Árni Páll Árnason veit stendur til og er vinna þegar hafin við endurskoðun fiskveiðistjórnarkerfisins þar sem verður horfið frá varanlegri úthlutun og menn færa sig yfir í það sem sáttanefndin svokallaða hafði raunar fjallað töluvert um og var komin langt með, þ.e. að samningar taki við af varanlegri úthlutun. Þá væri mjög óeðlilegt að ætla á sama tíma að fara að taka eina tegund þar út fyrir sviga og láta aðrar reglur gilda um þá tegund en aðrar.
Makríll, af því að ég geri ráð fyrir að hv. þingmaður sé sérstaklega að ræða makríl, fer auðvitað inn í þetta kerfi með öðrum tegundum. Þeir sem verða með kvóta í makríl munu til dæmis þurfa að leggja sitt af mörkum til að setja í potta og aðrar ráðstafanir, alveg á sama hátt og þeir sem eru í bolfisksveiðum. Að ætla að taka tegundina út fyrir sviga að öðru leyti væri því mjög óeðlilegt og eingöngu til þess fallið að koma í veg fyrir að hér komist á heilsteypt kerfi sem skili hámarkshagræðingu og hámarkstekjum til samfélagsins.
Við skulum hafa það hugfast að nú lítur út fyrir að á þessu ári og því næsta verði tekjur af íslenskum sjávarútvegi meiri en nokkru sinni fyrr. Tekjur af veiðigjaldinu, það verður greitt veiðigjald af makríl, verða að minnsta kosti jafn miklar og á síðasta ári og heildartekjur af sjávarútvegi meiri en nokkurn tímann fyrr í sögu landsins. (Sgmundur Davíð á Alþingi í dag)
Bara svona til að minna fólk á að samningaleiðinn gengur út á að einhverjir fá þá kvótan skv. samningi til 20 til 25 ára með möguleika á framlengingu. Gegn "hóflegu veiðigjaldi"! Hefði ekki verið ráð að leigja þennan kvóta næstu árin á ársgrundvelli þannig að hámarka tekjur okkar af honum a.m.k. fyrstu árin á meðan okkur vantar penigna. T.d. einhvern kvótamarkað. En nei það verða einhverjir einkavinir sem fá þetta líka.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson
Athugasemdir
Það er sennilega skárra að hann sé gefinn frá vinstri en hægri eða hvað?
Allavega stóð ekkert á síðustu ríkisstjorn að gefa þennan sama makríl allt síðastja kjörtímabil.
Sigurður (IP-tala skráð) 11.11.2013 kl. 20:29
Það þarf nú víst ennþá að veiða hann.
Ásgrímur Hartmannsson, 11.11.2013 kl. 22:01
Færeyingar settu 20.ooo tonn af sínum makrílkvóta á markað og fengu miljarð fyrir, eða 50 kr. pr./kg.
Ef þetta gengur eftir að makríl kvótinn verður afhentur nokkrum útgerðum án endurgjalds og með frjálsu framsali, þá er ekki hægt að sjá annað en þjóðin muni mæta á Austurvöll,á sama tíma sem þeir bástöddustu eiga ekki fyrir lyfjunum.
Jón Ólafur (IP-tala skráð) 11.11.2013 kl. 22:52
Svokölluð þjóð er nú núbúin að kjósa þessa skuggalegu náunga til alvalda í landinu. Það vissi hver hugsandi maður að þessir náungar eru bókstaflega kostaðir af LÍU og sumir eru svo heimskir að þeir hreinlega monta sig af því að vera eingöngu fulltrúar LÍÚ klíkunnar á þingi. Vandamálið virðist vera að fólk kolfellur fyrir hálfvitaprópaganda framsjallaflokksinns og fólk hreinlega er ekki nægilega vel að sér í pólitík.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 11.11.2013 kl. 23:12
Hvernig hefði LANDRÁÐAFYLKINGIN úthlutað makrílkvótanum?????
Jóhann Elíasson, 12.11.2013 kl. 08:43
Er einhver munur á hægri og vinstri í pólitík, annar en sá, að margir hægri segja það sem þeir meina, en margir vinstri segja það sem þeir meina ekki?
Jón Bjarnason bjargaði því sem bjargað varð af þessum makríl, áður en vinstrin ráku hann úr ríkisstjórninni, samkvæmt óskalista frá Brussel-strákunum í fílabeins-pappírsmyllunni ábyrgðarlausu og rugluðu.
Því miður var/er Jón Bjarnason ekki vinsæll hjá vinstrinu. Kannski vegna þess að hann vill frekar láta veiða fiskinn, heldur en að láta hann drepast og úldna í Kolgrafarfirði. Það datt víst engum Brussel-hvítflibbanum í hug, að segja Svandísi blessaðri, að svona á ekki að fara með umhverfið og lífríkis-jafnvægið. Þeir kunna líklega bara að al-tana banka, blessaðir Brussel-flibbarnir. Það er eitthvað mikið að.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 12.11.2013 kl. 12:47
Jóhann Elíasson það er engin flokkur sem heitir Landráðafylkingin. Ef þú ert að tala um Sjalfstæðisflokkkinn þá hefði hann sennilega afhennt hann einkavinum sínum. Samfylkingin hefði væntanlega sett allan kvóta á markað. Eða sem mest af honum. Tryggt samt möguleika á endurnýjun i greininni með einhverjum mörkum eða leiguhluta. En ef þú ert að tala um Framsókn þá hefði hún gert það sem Sjálfstæðisflokkurinn og Kaupfélag Skagfirðinga hefði sagt þá.
Annars held ég að þú þurfir eitthvað að taka þig á í Íslensku af því þú ert hér sífellt með nöfn sem passa ekki við neinn Íslenskan flokk sem ég þekki ekki.
Ef þér finnst þetta sniðugt eða virkilega trúir því að það sé til flokkur hér sem kennir sig við Landráð eða stundar þau þá kemur það mér á óvart. Nema að hugsanlega hafi verið Landráð að gefa bankana okkar á sínum tíma til sérvaldra vina Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. Icesave er og var afurð þess. Og það var á tímabili að ef við hefðum ekki verið opin fyrir samningum um Icesave 2008 til 2010 þá hefðum vð orðið gjaldþrota. Þó við aldrei viðurkendum formlega skildu okkar til að borga þá hefðum við ekki fengið neyðarlán nema vegna þess að við vorum í samningavirðæðum um Icesave. Og þó við hefðum unnið málið svo 2012 þá voru bara konir allt aðrir tímar. Við vorum komin með gjaldeyrisforða og í allt annarri stöðu. Sem við hefðum ekki þurft ef við værum komin í ESB því þá stæði Evrópski seðlabankinn á bakvið okkur. En í staðinn verðum við að vera hér með um 5 til 600 milljarða af gjaldeyrir að láni til að eiga í sjíoðum og borga vexti af þeim
Magnús Helgi Björgvinsson, 12.11.2013 kl. 21:57
Magnús,
"Samfylkingin hefði væntanlega sett allan kvóta á markað. Eða sem mest af honum".
Afhverju gerði hún það þá ekki?????
Hafði hún ekki 4 ár til þess, en gaf hann öll árin?
Hvað varð annars um allar breytingarnar sem samfylkingin lofað á kvótakerfinu þegar hún var kosin til valda 2009?
Er ekki tímabært fyrir þig að fara að horfast í augu við að samfylkingin lá eins og ódýr h%"ra undir LÍÚ rétt eins og allir hinir flokkarnir?
Sigurður (IP-tala skráð) 13.11.2013 kl. 13:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.