Þriðjudagur, 14. janúar 2014
Ríkisstjórnin rassskellt af þvílíkri ritsnild og orðkynngi að maður fellur í stafi.
Las þessa grein á visir.is eftur Hannes Pétursson og flottari skrif óháð efninu hef ég ekki séð í langan tíma svo ég stelst til að birta hana hér:
Rúmfræði
Forundarlegt er að fylgjast með snúningum nýju ríkisstjórnarinnar, svigrúmsstjórnarinnar, kringum aðildarumsókn Íslands að ESB. Fyrir alþingiskosningarnar síðustu hétu Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur þjóðaratkvæðagreiðslu á þessu kjörtímabili um framhald viðræðna við sambandið, kæmust þeir til valda, enda klókt til atkvæðaveiða vegna þess að í flokkunum báðum er að finna fjölmarga kjósendur hlynnta því að samningsniðurstaða liggi fyrir.
En þegar þingmeirihluti þessara flokka fékkst í kosningunum og saminn hafði verið stjórnarsáttmáli gaf strokkurinn frá sér annað hljóð. Fyrirheitið um þjóðaratkvæðagreiðslu varð eins og hver annar orðaleikur. Lýðræðislega svigrúmsstjórnin hefur því ekki enn séð sér fært að gefa borgurunum lýðræðislegt svigrúm til ákvarðanatöku í ESB-málinu, enda þótt meirihluti þjóðarinnar óski þess samkvæmt skoðanakönnunum.
Bæði helbláir og gallgrænir stjórnarflokkamenn staðhæfa raunar að í alþingiskosningunum sjálfum hafi þjóðin afráðið að slíta aðildarviðræðum við ESB að fullu og öllu. Það eru að vísu falsrök. En setjum sem svo að það væri rétt, hvað dvelur þá Orminn langa, hvers vegna hefur ríkisstjórnin ekki nú þegar afturkallað umsóknina? Hefur hún kannski ekki bein í nefi til þess? Ríkisstjórnin áræddi hvorki annað né meira en að gera fortakslausara hlé á viðræðunum en verið hafði um sinn, viðræðum við ríkjasamband sem hún í öðru orðinu segist hatast við, nýtur þó áfram góðs af öllu því pólitíska brautryðjendastarfi Evrópumanna sem liggur til grundvallar innri markaði ESB.
Enda þótt svigrúmsstjórnin sjái hvorki svigrúm til að halda aðildarviðræðum áfram né að efna til áðurnefndrar þjóðaratkvæðagreiðslu áleit hún sig hafa fullt svigrúm til að krefja ESB um milljónir á milljónir ofan í styrki (IPA), bundna aðildarviðræðum. Yfir alla þessa grautargerð samanlagða slær formaður fjárlaganefndar Alþingis mildum ljóma sem betur fer, hin rósfingraða morgungyðja Framsóknar, Móamanna og Heimssýnarfólksins.
Svigrúm forsætisráðherrans til skuldaleiðréttingar handa heimilunum í landinu dróst saman um sirka þrjá fjórðu hluta milli kosningabaráttunnar og haustsins sem í hönd fór. Skítt með það, stóra svigrúmið hafði þjónað vel tilgangi sínum á atkvæðaveiðunum. Það sem andstæðingarnir héldu fram fyrir kosningar reyndist nú laukrétt, svigrúm allra svigrúma gat aldrei orðið neitt í líkingu við það sem lofað hafði verið statt og stöðugt. Svigrúmið í ESB-málinu varð hins vegar að alls engu. Samt sem áður vísaði ríkisstjórnin því til Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. Þar fengi það akademískt yfirbragð. Nú sem stendur brýtur sú stofnun, í umboði stjórnvalda, heilann um þetta þrotna svigrúm og mun skila niðurstöðu sinni hvað úr hverju.
Hagfræðingastéttin er alls góðs makleg. En seint verður sagt að innan hennar líti allir sömu augum á silfrið frekar en gerist og gengur um aðra menn, hvað svo sem verða kann um svigrúmsrannsóknirnar í Hákóla Íslands. Eiginlega er leitun meðal akademískra greina að þrálátari sundurþykkju um leiðir og markmið en einmitt í hagvísindum. Nýlegt dæmi um þetta er hrópandi: Þegar Grikkir höfðu spilað botninn úr buxunum enn einu sinni, nú komnir í evrusamstarfið, voru sex, ef ekki sjö, ofurhagfræðingar frá jafn mörgum löndum beðnir um rökstutt álit sitt á því til hvaða ráða vænlegast væri að grípa í skuldakreppu gríska ríkisins. Þeir lögðust undir feld hver á sínum stað. En þegar úrræðunum var skilað reyndust þau eins sundurleit og mennirnir voru margir.
Sumir hinna nafntoguðu ofurhagfræðinga standa í stórbisniss í þágu fjárfesta. Einn þeirra er Nouriel Roubini (í uppáhaldi hjá Móamönnum). Hann rambaði á að segja fyrir um bankakreppuna á Wall Street árið 2008, kreppuna sem send var þaðan heiminum með beztu kveðju, og hefur síðan ekki látið af að spá og spá eins og sjálfur Jesaja. Fyrri part sumars 2012 fór Roubini stað úr stað í Evrópu líkur hlaupadýri, þefaði víða og sannfærðist um fall evrukerfisins innan fárra daga. Hann ráðlagði áhættufjárfestinum John Paulson eindregið að veðja á hrun evrunnar. Paulson lét ekki segja sér það tvisvar og veðjaði. En það var evran sem ekki hrundi og er um þessar mundir fastari fyrir en nokkru sinni, var á síðastliðnu ári styrkust allra hinna alþjóðlegu mynta. Paulson tapaði hrikalega (einnig Soros gamli á sömu forsendum) og viðurkenndi eftir á að hafa mislesið evrópska pólitík. Roubini hafði nefnilega allur verið í kauphallarhvískrinu, vissi auðvitað ekkert hvað Merkel, Mario Draghi og fleiri hugsuðu. Af Paulson er það annars að frétta að í júní síðastliðnum keypti hann kröfur á Glitni að upphæð 229 milljónir dollara.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.12.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 969485
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 37
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson
Athugasemdir
Hugsa sér hvað bankaforstjóra/lífeyrisjóðs-forstjóra-liðið skemmtir sér yfir því hvernig við rífumst um valdalaust fólk, eins og okkur íslendingum er svo listavel gefið að einbeita okkur við.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 14.1.2014 kl. 22:07
Lárviðarskáldið kann að orða hlutina þannig að þeir skiljist. Ég held líka að Anna Sigríður hitti naglann margfræga á höfuðið. Það eru nefnilega ekki pólitíkusar sem ráða, það eru flokkaeigendurnir.
E (IP-tala skráð) 15.1.2014 kl. 09:57
Skáldbetlarinn er steingeltur.Það eina sem hann getur núna er að lifa á almenningi.Hann á hundskast til Bretlands.Þar yrði hann rasskeltur.Hann fengi ekki að lifa á betli þar.
Sigurgeir Jónsson, 15.1.2014 kl. 21:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.