Þriðjudagur, 16. september 2014
Er allt í lagi að ráðherra ljúgi á Alþingi? Eða hefur hann rangar upplýsingar
Hlustaði aðeins á umræður um breytingar á virðisauka í dag á Alþingi. Þar hélt Bjarni Ben því ítrekað fram að láglauna fólk eyddi sama hlutfalli tekna í matvöru og þeir efnameiri eða um 15%. Ég fór að hugsa um þetta og þetta fær ekki staðist!
Segjum svo að einhver sé með kannski um 200 þúsund krónur eftir skatt á mánuði. 15% af því eru 30 þúsund krónur! Það er auðvita ekki möguleiki að það dugi fyrir matvörum. Og það eru margir með lægra ráðstöfunarfé eftir skatt. Það getur verið að fólk reyndar hafi ekki meira en 15% eftir þegar það er búið að borga annan kostnað en það lifir engin á 20 til 30 þúsundum í mat til lengdar! En 15% af kannski 500 þúsundum eftir skatt eru hvað 75 þúsund og ég bara trúi því ekki að þeir sem hafa þannig tekjur veiti sér ekki betur.
Annað hvort eru þessar kannanir sem kynntar hafa verið Bjarna Ben vitlausar eða hann er að ljúga!
Föst í sírópi með skattabreytingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:52 | Facebook
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Af mbl.is
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.12.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 969485
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 37
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson
Athugasemdir
Nei það er ekki í lagi þarna á austurvelli. Fólk er ekki fífl.
Margrét (IP-tala skráð) 16.9.2014 kl. 22:36
Bjarni er að ljúga.
Sveinn R. Pálsson, 16.9.2014 kl. 22:41
Það er rétt. það er þá allavega sláandi lítið sem láglaunafólk lifir á.
Þessu var skipt i könnuninni á 4 tekjufjórðunga eða tekjuhópa. Veit ekki alve hvernig skiptingin nákvæmlega var eða við hvaða tekjur var miðað. En það var miðað við heildartekjur fyrir skatt, að eg tel.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 16.9.2014 kl. 23:02
Þetta er hárrétt athugasemd hjá þér. Auk þess vil ég bæta við að þegar vaskurinn er hækkaður úr 7% í heil 12% þá er um 71% raunhækkun að ræða! Það er undarlega lítið fjallað um þessa staðreynd.
Jón Kristján Þorvarðarson, 17.9.2014 kl. 00:41
Margir telja sig eyða töluvert hærri upphæðum til matarkaupa en raunin er. Flokka allt sem keypt er í matvörubúðum sem matarinnkaup. Þannig verða vörur eins og klósettpappír, tannkrem, sápur og álpappír að matvöru í bókhaldinu.
Mataræði stýrist ekki eins mikið af tekjum og mætti ímynda sér. Fólk með hærri tekjur kaupir ekki kók í stað mjólkur eða dádýrakjöt í stað lambalæris. Matarsmekkur ræður þar mestu og hann ræðst af uppeldi og menningu. Hátekjufólk getur verið jafn hrifið af kjötsúpu og hver annar. Og flestir tækju soðna Ýsu með smjöri og nýjum kartöflum framyfir froskalappir og snigla. Stór hluti matarinnkaupa er eins hvort sem tekjurnar eru lágar eða háar.
En hvort tölur Bjarna séu réttar eða ekki get ég ekki dæmt um nema sjá gögnin sem þær eru unnar úr. Mitt eigið bókhald er frekar lítið úrtak til að geta talist marktækt sem mælikvarði á heila þjóð.
Hábeinn (IP-tala skráð) 17.9.2014 kl. 01:05
Samkvæmt þessari könnun sem sjallar eru með, þá eyðir tekjuhæsti hópurinn næstum helmingi meira í mat að krónutölu en sá tekjulægsti.
Það er mikill munur, finnst mér.
En burtséð frá því, þá er ábending Magnúsar alveg rétt.
Það er þá áberandi, um leið og búið er að segja það, hve hluti fólks er þá að eyða litlum upphæðum í mat. Kannski um 30.000.
Það er eitthvað sem passar ekki þarna. Eitthvað trikk í gangi til að blekkja eins og framsjallar eru alræmdir fyrir.
Talandi um kjötsúpu og sona - að það er ekki ódýr matur. Það er frekar dýrt.
Fólk er fljótt að komast í 30.000 kallinn ef það ætlar að borða mikið af kjötsúpu.
Þar fyrir utan eru nú flestir hættir að borða svoleiðis og hvað þá soðinn fisk. Áratugir að verða síðan fólk hætti að borða svoleiðis.
Þetta lítur soldið út sem almúginn kaupi rusl í stórverslunum - en framsjallaelítan fari bara út að borða.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 17.9.2014 kl. 09:31
Það er þessi greining sem sjallar eru að vísa í:
http://www.rsv.is/Files/Skra_0068333.pdf
Ómar Bjarki Kristjánsson, 17.9.2014 kl. 10:44
Ps. Almennt um þetta efni, þá er minnistætt fyrir mörgum áratugum þegar Steingrímur Hermannson var forsætisráðherra og þá var niðurskurður og auknar álögur á almenning til umræðu.
Hann var í viðtali og sagði eða það orðtæki kom upp í samtali við blaðamann að fólk þyrfti ,,að herða sultarólina". Þetta þótti sjálfsagt að segja þá en væri PR lega séð óhugsandi í dag fyrir stjórnmálamann að segja eða taka undir.
Svo tala þeir áfram fréttamaður og Steingrímur og þá kemur upp einhverskonar spurning um hvort láglaunafólk ætti þá bara að borða grjónagraut.
Þá segir Steingrímur: Ja, mér finnst nú bara grjónagrautur góður, verð að segja það.
Þar með var málið dautt. Meginþorri innbyggja féll alveg fyrir þessum ummælum. Þau þóttu alþýðeg og ekki var talað um efnið meir. Það átu bara allir grjónagraut. Sérstaklega framsóknarmenn.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 17.9.2014 kl. 10:52
Ps.ps. ennfremur hlýtur að þurfa að hafa í huga fyrir hve marga er verið að kaupa í matinn.
Það þarf að greina þetta miklu betur áður en hent er útí umræðuna og framsjallar djöflast á með PR-Própaganda rétt eins og landið hafi færst aftur fyrir 2008.
Þetta er ekki nægilega greinargóð könnun til að byggja eitt né neitt á, að því er virðist.
Sorglegt að sjá sjalla hamast með þetta og reyna að berja það inní höfuð innbyggja eða framsetning þeirra er þannig - að allir eyði bara því sama í mat! Enginn munur.
Sorlegt að sjá Pavel Bartósek stökkva fram á foraðið fyrir sjalla.
Sýnir bara að það á aldrei að treysta sjöllum. Aldrei.
Sjallar = Óheiðarleiki.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 17.9.2014 kl. 13:00
Edit: ,,Sorglegt að sjá Pavel Bartósek stökkva fram" o.s.frv.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 17.9.2014 kl. 13:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.