Miðvikudagur, 7. janúar 2009
Það verður erfitt að koma á varanlegum friði þarna
Var að skoða á wigipedia þetta kort. Þarna er merkt með Grænu yfirráðasvæði Palestínu, ljósbrúnu er Ísrael, stóra svarta brotalínan er uppsunalegu mörk milli Ísrael og Palestínu og svörtu þríhyrningarnir eru landtökubyggðir. Og við sjáum að Ísrael er búið að skera sig á mörgum stöðum langt inn í Palestínu og setja niður landtökubyggðir um alla Palestínu. Því er eðlileg krafa að landamæri verið aftur miðuð við upphaflegu landamæri milli þjóðana því annars verður Palestína illbyggileg
Samið um forsendur vopnahlés | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson
Athugasemdir
Hvað kallar þú "upprunalegt"? (Ég reikna með að orðið "uppsunalegu" hafi átt að vera upprunalegu en ekki uppspunalegu).Ef mér skjátlast ekki, þá sýnir þetta kort stöðuna árið 1967, eftir 6 daga stríðið. Hvað er upprunalegt við það? Viltu ekki fara aðeins lengra aftur í tíman? Segum bara eitt ár sem dæmi. Að vísu var þá ekkert til sem hét Palestína. Árið 1966 tilheyrði Vesturbakkinn Jórdaníu og Gaza tilheyrði Egyptalandi. "Palestínsk þjóð" varð ekki til fyrr en eftir 6 daga stríðið. Fram að því vóru það Jórdanir og Egyptar sem bjuggu á þessum svæðum.
Viltu kannski fara enn lengra aftur í tímann? Fyrir Heimsstyrjöldina fyrri tilheyrði þetta svæði allt trykneska heimsveldinu. Þar áður tilheyrði það Býsanska heimsveldinu og þar áður Rómvejum og Grikkjum. Áður en Grikkir tóku það, hét þetta svæði, að Gaza og Vesturbakkanum meðtöldum, Ísrael. Frá þeim tíma og fram til 1948 hefur engin sjálfstæð þjóð byggt þetta svæði.
Ég spyr því aftur: Hvað kallar þú "upprunalegt"?
Kristinn (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 12:33
Ef þú skoðar kortið þá sérð þú að punktalínan er kölluð Grænalínan og var ákvörðuð 1949. Palestínumenn voru nú þarna fyrir þó að landsvæðið tilheyrði tyrkjum. En eftir 1967 lítur landsvæði Palestínu svona eins og er á kortinu. Þ.e. að það er skorið þvers og kruss og landnemabyggðir um allt við og innan svæði sem tilheyri Palestínu. Þ.e. grænihluti kortsins. T.d. er Ísrael með yfiráð hringin í kring um Palestínu á vesturbakkanum og svo þvert í gegnum það líka. Og raufar inn í það hér og þar.
Magnús Helgi Björgvinsson, 8.1.2009 kl. 13:00
Þetta tilheyrði ekki "Palestínumönnum" (sem urðu ekki til fyrr en 1967) árið 1949, heldur Jórdaníu og Egyptalandi. Fyrir 1967 hafði enginn heyrt talað um Palsestinska þjóð, hvað þá að þarna hafi verið eitthvert Palestínskt ríki þar áður. Palestína var nafn á landsvæði sem náði yfir það sem í dag er Ísrael, Vesturbakkinn og Jórdanía. Því var skipt í tvo hluta - Arabískt Palestínuríki sem heitir Jórdanía og Gyðinga Palestínuríki sem heitir Ísrael. Í 6 daga stríðinu missti Jórdanía Vesturbakkann til Ísraels. Þannig gerist gjarnan í stríðum. Ég vildi að það væru engin stríð og að allir gætu lifað saman í friði, en svona er heimurinn sem við búum í. Þegar menn tapa striðum, þá missa þeir gjanan landsvæði líka. Og þá þýðir ekkert að koma eftir á og væla og biðja um landið til baka svo hægt verði að halda áfram að ráðast á þann sem tók það. Enn síður verður við það til ný þjóð sem allt í einu er búin að vera á staðnum í þúsundir ára, þótt engin hafi heyrt á hana mynnst fyrr.
Kristinn (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 18:03
Og voru það ekki arabar sem nú kalla sig Palestínumenn sem bjuggu þar. Ef ég man rétt byrjuðu Gyðingar að flytja þangað þegar á 19 öld og þar bjuggu Arabar og gyðingar á sömu slóðum. En árið 1948 eða 9 átti Ísland með öðrum löndum tillögu sem lögð var fyrir nýstofnað SÞ þar Gyðingum var úthlutað svæði sem átti að vera ríki þeirra. Myndin hér að ofan sýnir það svæði sem punktalínur. Í 6 daga stríðinu hernámu Ísraelsmenn hins vegar stóran hlut af þessu svæði og hafa ekki skilað honum. Og síonistar vilja að þessum svæðum verði aldrei skilað og hafa barist fyrir landnemabyggðum þar til að tryggja sér svæðin til frambúðar. Auk þess eru nú milli 4 til 5 milljónir Palestínuismanna sem bjuggu þar sem lifa í flóttamannabúðum í öðrum löndum og fá ekki að snúa heim.
Á meðan að þessari þjóð er haldið herkví og reistir múrar þannig að þau geta illa framfleitt sér. Það er ekki ferðafrelsi og ekki leyft að fljúga til og frá Palestínu.
Nú t.d. væri lag fyrir Ísrael að taka upp betri siði við Vesturbakkann en þar er Abbas og Fatahreyfingin við völd og hafa verið friðsamlegri. Væri ekki kjörið að sýna þar fordæmi fyrir góðum samskiptum þannig að stuðunigsmenn Hamas sjái hag í friðsamlegum samskiptum.
Magnús Helgi Björgvinsson, 8.1.2009 kl. 18:43
Þetta er ekki alveg rétt hjá þér. Arabarnir sem þarna bjuggu kölluðu sig ekki Palestínumenn, af því að svæðið hét ekki Palestína. það fékk það nafn eftir að sigurvegarar fyrri heimsstyrjaldarinnar skiptu Tyrkjaveldinu milli sín. Þeir kölluðu sig Araba. Gyðingar byrjuðu ekki að flytja þangað á 19 öld, heldur á 15. öld fyrir Krist, og hafa búið þarna síðan. Reyndar fóru fleiri Gyðingar að streyma þangað á 19. öld og kaupa landað af Aröbunum. Það að flytja löglega þangað og kaupa land er ekki það sem flestir kalla "hernám". Tillagan um ríki handa Gyðingum kom hvorki frá Íslendingum né SÞ. heldur var það samþykkt af Þjóðabandalaginu(forvera SÞ.) árið 1922. Bretar áttu að sjá um framkvæmdina. Þeir stofnuðu Jórdaní á um 80% af því sem þá kallaðist Palestína. Þeir komu því hins vegar aldrei í verk sem "alþjóðasamfélagið", eins og það er oft kallað í dag, fól þeim. Það voru Sameinuðu Þjóðirnar sem skiptu því sem eftir var af Palestínu upp og stofnuðu ríki fyrir Gyðinga á þeim hluta þar sem Gyðingar voru í meirihluta. Það var áætlun þeirra að stofna annað Arabaríki á þeim svæðum þar sem Arabar voru í meirilhuta. Arabarnir sjálfir höfnuðu því hins vegar og því lentu þau svæði undir Egyptaland og Jórdaníu. Í 6 daga stríðinu, þar sem Egyptaland, Jórdanía Sádí Arabía, Sýrland og Líbanon réðust á Ísrael með það sem yfirlíst markmið að þurrka það út, misstu þau þessi svæði aftur. Síðan þá hefur Aröbunum á þessum svæðum verið boðið nokkrum sinnum að stofna sitt eigið ríki, en þeir hafa alltaf hafnað því. Sjálfstæði er nefnilega ekki það sem þeir vilja. Það sem þeir vilja er að útrýma Gyðingum. Krafan um sjálfstætt ríki er aðeins ein aðferð sem þeir nota til þess.
Skoðaðu þetta vídeó ef þú villt kynna þér sögu svæðisins.
Kristinn (IP-tala skráð) 16.1.2009 kl. 07:50
Kristinn ér er búinna að kýkja á þetta lauslega. Stend samt fast á því að fljótlega eftir að Ísrael varð formlega til í andstöðu þjóða sem þarna voru fyrir þá hófu þau nær skipulega að hrekja arabar/palestínumenn af svæðum sínum. Arabar sem þarna bjuggu voru ósáttir vð 2 ríkjalausn veit ég og hamlaði málum En það voru skipulagðar sveitir eftir seinna stríð sem hröktu íbúa þarna á flótta. M.a. Sharon forseti og fleiri fyrrum ráðherrar sem byrjuðu sinn feril sem forsprakkar í einskonar dauðasveitum. Ísrael hertók stór svæði við Vesturbakkan um 1966 og á næstu árum. Þetta voru svæði þar sem nú Palestínumenn bjuggu. Og þessum svæðum virðast Ísraelmenn ekki ætla að skila og harðlínu Gyðingar eru styrktir til að taka sér búsetu á þessum svæðum sem skera það landsvæði sem Palestínumenn búa á í dag.
Magnús Helgi Björgvinsson, 16.1.2009 kl. 17:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.