Föstudagur, 31. júlí 2009
Þetta vissu allir nema Sigmundur Davíð
Ég datt inn á ruv.is og sá þá ummæli höfð eftir Sigmundi Davíð sem sýna hversu vanhugsaður málflutningur hans getur verið. En á www.ruv.is er haft eftir honum:
Hann segir að ætli Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn að kúga Íslendinga til að ganga að samningi sem hann þekkir ekki þá séu Íslendingar komnir á hættulega braut. Það hlýtur að vera að við að minnsta kosti reynum að útskýra stöðu okkar ef menn, þrátt fyrir það, eru staðráðnir í að kúga okkur til að taka á okkur greiðslur umfram skyldu. Þá verðum við að taka ákvörðun út frá þeirri stöðu," segir Sigmundur og á við að breyta eigi Icesave-samningnum og hafna honum.
Svona til að byrja með finnst mér ótrúlegt að hjá fjölþjóðlegri stofnun þar sem vinna minnir mig um 700 sérfræðingar þá held ég að þeir viti nú bara sennilega allt um þennan samning. Þannig að þetta er nú furðuleg framsetning. AGS er nú með starfandi skrifstofu hér og fullt af fólki sem er að fara yfir efnahagsáætlanir okkar og hafa gert frá því í Október. Og ég held að það þurfi ekkert að skýra út fyrir þeim stöðuna. Fremur en Norðurlöndum. Þau vita alveg nákvæmlega um þessa stöðu.
Það var búið að segja Sigmundi Davíð í vor og sérstaklega í júní að þetta yrðu viðbrögðin og hann og fleiri hálfpartinn hló að þessu og kallaði þetta hræðsluáróður. Um leið og hann gaf í skyn að nær allir embættismenn og starfsmenn ráðuneyta og sérstaklega þeir sem fóru í samninganefndina um IceSave væru vitlausir og ekki starfi sínu vaxnir.
En viti menn allt sem honum hefur verið sagt hefur reynst rétt. Munum líka eftir því að frá því í október og fram í apríl/maí var hann alveg viss um að við þyrftum bara ekkert að borga í IceSave. Og svo núna að við fellum bara að veita ábyrgð og þá koma Breta og Hollendingar og bjóða okkur að semja aftur! Ekkert mál.
Ég er farinn að halda að það sé hópur þingmanna nú á þingi sem eru þjóðinni hættulegir og gætu orðið að afli sem hryndir okkur endanlega fram af brúninni. Þeir virðast lifa í einhverjum tilbúnum heimi mótuðum af hugmyndum einhverja sérvitringa sem eru ekki í tengslum eða takt við raunverleikan
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:45 | Facebook
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 969459
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 47
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson
Athugasemdir
Ekkert sjálfsagðra en að vinna málið málefnalega! Í byrjun átti að keyra málið í gegn án þess að Alþingi fengi allar upplýsingar. Já hérna, þetta eru vönduðu vinnubrögð Samfylkingarinnar, eða hitt og heldur.
Ólafur Sveinn Haraldsson (IP-tala skráð) 31.7.2009 kl. 07:32
Sammála. Sigmundur D hefur tapað öllum trúverðugleika, endalausar dómsdagsspár án neinna haldbærra lausna. 20% niðurfelling skulda er ekki lausn. Nær væri fyrir XD og XB að koma með lausnir og vinna að framgangi mála í stað þess að vinna gegn málum bara af því þeir eru í stjórnarandstöðu. Ábyrgð þessara flokka er öll á hruninu.
Björn Ólafs (IP-tala skráð) 31.7.2009 kl. 08:02
Algjörlega sammála. Þessi hópur getur endanlega gengið frá okkur. Ef samningurinn verður ekki afgreiddur á þingi og fer í meiri umræðu, þvælu og síðan feldur, þá fellur ríkisstjórnin, krónan og trú heimsins saman á okkur og við erum endanlega kominn í fokking fokk... þetta er það hættulegasta sem ég hef lengi séð og ótrúlegt að hugsandi fólk skuli vera að leika sér að eldinum þegar púðurtunnurnar standa opnar við hliðina á þeim
Arnar Már (IP-tala skráð) 31.7.2009 kl. 08:20
Tek undir með ykkur ,,þeir ætla að sprengja núverandi stjórn með icesave og komast til valda aftur til að stöðva rannsókn á hruninu
emil skulason (IP-tala skráð) 31.7.2009 kl. 08:41
Það er einfaldlega ekki meirihluti á þingi fyrir því að lúffa algerlega í Icesave málinu. Ef minnihlutanum á þingi sem vill gera slíkt getur ekki gefið neitt eftir í því getur hann allt eins gefist upp á að koma málinu í gegn. Ekki síst vegna viðbragða almennings við eftirgjöf í þessu máli án þess að gengið sé í eigur útrásarvíkinganna til að sækja peningana.
Annars finnst mér með ólíkindum hversu illa stjórnin hefur haldið á upplýsingagjöf til almennings í þessu máli. Ef þetta gildir líf eða dauða fyrir íslenskt samfélag eins og látið er í veðri vaka þá finnst mér með ólíkindum að ekki skuli vera búið að útskýra það í þaula fyrir fólki með því t.d. að taka yfir hluta að sendingartíma RÚV til að útskýra allt samhengið. Inn á island.is hefur ekki verið lagður fréttamannafundur síðan ríkisstjórn var mynduð 10. maí og ekki er hægt að sjá þá í fullri lengd neinstaðar annarstaðar. Á þeim fundum sem ég hef farið um málið hafa fulltrúar stjórnvalda alltaf komið út eins og illa undirbúnir viðvaningar og ekki tekist að útskýra á neinn hátt nauðsyn þess að skrifa undir þetta.
Stjórnvöld kunna annað hvort ekki að tala fyrir málstað sínum eða þá þau hafa verulega vondan málstað. Ég hallast meira og meira að hvorttveggja sé tilfellið.
Héðinn Björnsson, 31.7.2009 kl. 08:47
Íhaldi og framsókn nægir ekki að hafa skapað aðstæður og grundvöll fyrir hruninu síðasta haust, heldur róa þeir að því öllum árum að annað hrun og enn verra verði á komandi hausti. Verstur andskotinn að það er fullt af fólki sem styður þá til slíkra óhæfuverka. Eitthvað er athugavert við dómgreind stórs hluta landsmanna.
Smaladrengur (IP-tala skráð) 31.7.2009 kl. 08:48
Þú ert nú meiri leirinn Magnús, vilt liggja gjörsamlega flatur fyrir þessum bretadjöflum svo ég tali nú ekki um hollendinga. Einhvers staðar verður að spyrna við fótum. Við stöndum við skuldbindingar okkar upp að því marki sem okkur ber skylda til og ekki krónunni meira. Hvers vegna? Ef þú gerir samning um kaup á bílnum þínum og greiðir 2 millur fyrir ætlarðu þá að borga 1 millu síðar ef seljandinn krefst þess.
Björn Ólafs. Ég er gjörsamlega ósammála þér. Mjög margt af því sem Sigmundur Davíð hefur sagt allt þetta ár hefur glettilega ræst. Bullandi Samfylking og VG hafa verið dugleg að kalla hann dómsdagsspármann þegar hann hefur verið að skýra út alvarlega stöðu þjóðarbúsins og því reynt að fegra stöðuna langt umfram það sem eðlilegt er. Nú er komið í ljós að SDG hafði kórrétt fyrir sér, skuldir íslendinga komnar yfir 250% af landsframleiðslu en ekki 160% eins og stjórnin var að reyna að telja okkur trú um fyrir kosningar, svona rétt til þess að blekkja ykkur Björn og Magnús. Og svo skiljið þið neitt. SDG benti líka á fyrir kosningar að gengið kónunnar myndi hríðfalla og hvað hefur svo komið í ljós. Ég kaus ekki Framsókn en geri það næst. Hvernig væri nú að þið færuð út í sólina í dag og reynduð að nota höfuðið svona til tilbreytingar Magnús og Björn.
ÞJ (IP-tala skráð) 31.7.2009 kl. 08:56
Þú ert nú meiri ræfillinn.
Kári (IP-tala skráð) 31.7.2009 kl. 09:20
Sigmundur Davíð er einn mesti lýðskrumari sem komið hefur fram í íslenskri pólitík. Hann er stórhættulegur sérstaklega þar sem það er fullt af bjánum á Íslandi sem sjá ekki í gegnum hann.
Dude (IP-tala skráð) 31.7.2009 kl. 10:02
Fólk ætti nú kannski að átta sig á því að heimurinn er ekki og hefur aldrei verið fullkominn. Þó að okkur finnist þetta og hitt ósamgjarnt eða það eigi að vera svona eða hinsegin þá óvart ráðum við ekki svo miklu. Þannig er þetta með IceSave. Og Bretum og Hollendingum finnst það örugglega ekki sanngjarnt að það hafi komið netbankar héðan frá Íslandi, stofnað útibúð hjá þeim, safnað innistæðum og svo rúllað og eftir sitja Hollendingar og Bretar sem þurfa að borga nærri eins mikið og við til innistæðueigenda. Var það ekki 6 til 700 milljarðar sem þeir greiða ofan á það sem við borgum.
Bendi fóli á fínar færstu um þetta mál hjá Krístjáni Vigfússyni
Magnús Helgi Björgvinsson, 31.7.2009 kl. 10:25
Kvitta undir þennan pistil. Margir þingmenn eru bæði þjóðinni hættulegir og algerlega vanhæfir til að sinna þessu starfi. Sigmundur er einn af þeim.
Ína (IP-tala skráð) 31.7.2009 kl. 11:01
Sammála þér Maggi.
Það er ljótt að segja það en á alþingi sitja nokkrir vitleysingar, sem í þokkabót eru illa innrættir. SD er lýðskrumari af verstu sort, en hann er ekki einn. Ef þessir menn myndu kynna sér málin á hlutlausan hátt væri búið að afgreiða Icesave málið fyrir löngu. Þeir eyða frekar tímanum í að hlusta á ábendingar manna sem eru með "frammíköll" og vitleysur, sem síðar eru hrakin. Við sem þjóð erum ábyrg fyrir gjörðum stjórnvalda og embættismanna Íslands og ef við erum ósátt við útkomuna, skulum við ráðast á þá en ekki fórnarlömbin. Þeir sem vita upp á sig skömmina reyna allt til að fá okkur almenning til að líta á Hollendinga og Breta sem orsakavald frekar en fórnarlömb aðgerða´"útrásarvíkinga" og embættismanna og aðgerðaleysis stjórnvalda á Íslandi.
Jónas Rafnar Ingason, 31.7.2009 kl. 11:05
Sammála!
Því miður sópaðist rusl inn á Alþingi í síðustu kosningum. Sigmundur Davíð er vissulega þar á meðal. Einhver mesti lýðskrumari þjóðarinnar fyrr og síðar.
Finnur (IP-tala skráð) 31.7.2009 kl. 11:15
Sammála,! Sigmundur Davíð er þarna á alþingi Íslendinga að verja allt aðra
hagsmuni enn þjóðarinnar, þeir sem ekki fatta það fylgjast greinilega ekkert með.
Heiður (IP-tala skráð) 31.7.2009 kl. 11:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.