Laugardagur, 26. september 2009
Við ætlum ekki að borga erlendar skuldir óreiðumanna!
Hlutstaði á Davíð á Skjá 1 í kvöld. Datt í hug nokkrar spurningar sem vantaði í viðtalið!
- Í framhaldi af því sem Davíð sagði um IceSave hefði Sölvi átt að spyrja hvort það hafi ekki verið nokkuð ljóst að upphaf þvingana Breta og Hollendinga hafi hafist einmitt eftir að Davíð mætti í Sjónvarpið og sagði m.a. eitthvað á þá leið að við ætluðum ekkert að borga skuldir óreiðumanna í útlöndum?
- Eins ef þetta voru óreiðumenn - Hversvegna í andskotanum var hann að selja þeim bankana?
- Eins var vitað að Neyðarlögin voru samin að hluta af starfsmönnum Seðlabankans og fleirum sem hann kallaði til þeirrar vinnu.
- Ef að Morgunblaðið ætlar að hefja andstöðu gegn ESB inngöngu og IceSave væri kannski rétt að hann skýrði frá því hvort að hann ætlist til að þeir blaðamenn sem hafa fjallað um kosti við ESB og um Icesave skipti um skoðun?
- Eins væri gott að hann skýrði af hverju að ríkisstjórn hans og þeirri næstu sem hann var utanríkisráðherra í settu bönkunum ekki stífari reglur og lög.
- Eins af hverju að ríkisstjórn hans var á móti því sem þeir kölluðu "eftirlitsiðnað" og töldu að fyrirtækin ættu að sjá sjálf um það með innra eftirliti. Og af hverju kerfisbundið var dregið úr mætti eftirlits eins og samkeppniseftirlits og FME?
- Og eins væri gott að hann og aðrir skýrðu okkur frá því af hverju að aðrar þjóðir sem eru í EES samstarfinu lentu ekki í að bankarnir blésu svona út eins og hér! Það er jú nokkuð ljóst að þeir höfðu alla burði til þess en voru með mun meira aðhald!
- Og eins væri gott ef að hann skýrði frá því ef hann vissi með löngum fyrirvara í hvert stefndi, hvíslaði hann því bara í símtölum við Geir og stundum Ingibjörgu? Af hverju gerði hann ekki eitthvað í því sem Seðlabankastjóri að koma þessu almennilega á framfæri.
- Eins hefði Sölvi mátt spyrja hvort að staðreyndin sé ekki sú að t.d. Bogi og Elín Hirst séu bæði sjálfstæðisfólk. Og meira að segja Útvarpsstjóri? Og eins hvort að allt fréttamat sem ekki er samþykkt af Valhöll sé áróður fyrir samfylkingu?
Var að hugsa um að hætta að blogga en sé maður yrði vitskertur að geta ekki tjáð sig þegar svona baunabyssur koma fram aftur.
Davíð: Mun nýta reynslu úr fyrri störfum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:40 | Facebook
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson
Athugasemdir
Mikið ROSALEGA er öfgahyggja ykkar vinstrimanna hér. ALDREI datt mér
í hug að hætta að blogga hér eða segja upp Mogga þótt OFUR-ESB.sinni
væri hér ritstjóri..........
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 26.9.2009 kl. 01:06
Sæll
1. Hélt að væri löngu afsannað að það hefði verið sú setning sem hafi haft þessi afdrifaríku áhrif. Ákvörðun hafi komið áður.
2. Menn vita það að það er ekki forsætisráðherra sem situr sem einhver bankasölumaður og dreifir eign eftir 'behag'. Hann Davíð hefur margoft komið fram og sagt að hann hefði viljað dreifða eignaraðild.
3. Það eru mismunandi skoðanir hvað neyðarlögin hafi gert. 'Baugur' telur að þar hafi komið til stærsta bankarán Íslands. Persónulega finnst mér þetta svona 'EF' atriði sem er meira tengt hryðjuverkalögunum en nokkuð annað. Voru menn annars ekki stóryrtir á að þetta hefði verið stjórnmála-vinsælda 'ploy' hjá Brown og Darling á þessum tíma ? Þægilegt reyndar að skella þessu bara á Davíðs herðar.
4. Ég gat ekki heyrt betur en hann hafi talað um opna umræðu, hvorki gegn né móti. Þó hann talaði um eigin skoðun, sem væri gegn aðild, þá vildi hann að umræðan væri þannig að öll sjónarmið væru kynnt.
5. Reglur og lög voru að einhverju leiti til staðar. Embættismönnum förlaðist. En hitt er annað að að hann hefur áður minnst á að það hefði líklega verið mistök sú breyting sem kom FME á fót.
6. Sama og að ofan. Reyndar má segja að almennt voru menn hrifnir af því að ríkið væri ekki með puttana ofaní öllu. Eða vilja menn að ríkið sé ávallt að horfa yfir öxl allra ? Á að setja lög og eftirlit yfir allt ? Eru menn kannski að óska eftir veraldarsýn Orwells '1984' ?
7. Ef hefur lesið/séð viðtöl þá hefur Davíð sagt frá áhyggjum sínum með þessar stækkanir og kom þeim á framfæri. Hver voru viðbrögðin við þeim áhyggjum ?
8. Átti hann að gerast 'whistleblower' ? Fara á bak við eiðsvarin orð og undirskriftir ? Hann kom þessum áhyggjum áfram til þess bæra manna...manna sem áttu að gera eitthvað í þessum málum.
9. Eiginlega skil ég ekki þetta atriði. Dró hann þessa einstaklinga fram í umræðuna ?
Almennt séð þá skín í gegn andúð á Davíð Oddsyni frá ritara.
Persónulega þá kemur mín athugasemd útfrá því að mér hefur blöskrað þessi nálgun margra, og þá aðila sem eru hátt skrifaðir sem bloggarar, að Davíð sé ímynd alls sem illa hefur farið í þjóðfélaginu síðan haustið 2008 (og fyrr).
Með rangfærslum og stóryrðum þá hafa sumir róað í þessum 'gegn Davíð' bát án þess að mynda sjálfstæða skoðun heldur látið segl fylgja vinsældar-vindi.
Svo má koma því að að viðtal Sölva var við nýráðinn ritstjóra Morgunblaðsins og nálgunin var þannig. Þetta var ekki viðtal sem átti að gera upp fyrri störf Davíðs. Til þess hefði þurft mun lengri tíma.
Ignito, 26.9.2009 kl. 01:41
Málið er að undir stjórn Ólafs varð aldrei vart við að blaðið vær eitthvað hliðhollt esb aðild. Aldrei okkurntíman. Eiginlega þvert á móti.
Jú, Ólafur skrifaði einhverjar örfáar greinar þar sem hann fór yfir mál á hlutlausan og fræðilegan hátt og benti á villigötur andsinna. Allt og sumt. Allur glæpurinn.
Nú virðist hins vegar vera yfirlýst stefna að reka hard core andsinna stefnu - líklega þá í anda AMX, með rangfærslum, ævintýra og töllasögum um samband fullvalda lýðræðisríkja evrópu sem ísland verður brátt aðili að.
Það virðist vera yfirlýst stefna - og eru menn býsan roggnir með þá tilvonandi stefnu.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 26.9.2009 kl. 01:48
Hvar segir að Davíð ætlaði að ábyrgjast græðgi útrásarvíkinganna? Þú átt mjög bágt Magnús og þessi klippa segir ekki neitt þótt þú viljir trúa því.
Guðmundur Björn, 26.9.2009 kl. 02:20
Las þennan pistil fyrir klst. Nennti ekki að svara allri rangfærslunni,sé að aðrir hafa gert það. Magnús minn, reynum að stunda réttlæti.
Helga Kristjánsdóttir, 26.9.2009 kl. 02:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.