Leita í fréttum mbl.is

Í framhaldi af þessari frétt finnst mér við hæfi að benda á grein Valgerðar Bjarnadóttur í Fréttablaðinu í dag.

Hún fer aðeins yfir sviðið í sambandi við samgöngumál á Íslandi eða aðallega stjórn þeirra. Í greininni segir hún m.a.

Klúðrið í samgöngumálum er átakanlegt og birtist í fáránleikafarsanum í kringum Flugstoðirnar sem eiga að taka til starfa eftir áramótin. Allt bendir til að vegna þess klúðurs muni flugumferðastjórn í háloftunum hér á norðurhveli flytjast úr landi og ef marka má orð forstjóra Icelandair þá hefur sú starfsemi fært ríkinu, þ.e. sameiginlegum sjóði okkar Íslendinga, rúma tvo milljarða í tekjur á ári hverju.

Samgönguráðherrann segir að þar sé ekkert klúður og enginn flumbrugangur á ferðinni vegna þess að lög um hið nýja fyrirkomulag hafi verið samþykkt á Alþingi með góðum fyrirvara. Hann virðist ekki skilja að lög mega sín lítils ef framkvæmd þeirra er í molum. Það þýðir ekkert að berja flugumferðarstjóra í hausinn með lagabálkum ef þeir vilja ekki vinna við þær nýju aðstæður sem í boði eru. Ef þeir vilja frekar fá sér sex eða tólf mánaða frí á launum og koma svo aftur til starfa að því loknu þá gera þeir það hvort heldur lögin voru samþykkt í fyrra eða í gær. Stóra spurningin fyrir þá hlýtur að vera hvort þá verði að einhverjum störfum að hverfa.

Kannski er ekkert athugavert við að flytja þessa starfsemi úr landi. Kannski gera flugumferðarstjórarnir, sem ekki vilja ráða sig til Flugstoða, óraunhæfar kröfur. Ef svo er þá eiga samgönguyfirvöld að segja það upphátt og segja okkur að þau telji rétt að hætta að sinna þessari þjónustu vegna þess að hún borgi sig ekki. Það sem er verst við þetta mál eins og svo margt annað í stjórn hins opinbera er að það er engin stefna greinanleg, það er alltaf verið að bregðast við frekar en að byggja eitthvað upp.

Annað dæmi úr samgöngumálum er fjarskiptatenging landsins við umheiminn. Nú á tímum hnattvæðingar og þegar sjaldan líður sá dagur að ekki er talað um hina miklu íslensku útrás kemur allt í einu í ljós að við erum svo illa tengd að við urðum sambandslaus við umheiminn í einhverja klukkutíma. Það kom mér mjög á óvart að þetta gæti gerst, ég hélt sannast að segja að þessi mál væru í góðu lagi. En annað kom á daginn og nú segist samgönguráðherrann ætla að kippa þessu í liðinn. Ég spyr af hverju var ekki búið að því?

Þriðja dæmið í þessum málaflokki er uppbygging vegakerfisins og þær vitlausu áherslur sem þar eru. Ber þar sérstaklega að nefna Héðinsfjarðargöngin sem mörgum milljörðum er hent í á meðan allir eru sammála um að vegakerfið á þéttbýlasta svæði landsins er allsendis ófullnægjandi og beinlínis lífshættulegt. Samgönguráðherrann segir að unnið sé að öllum þessum málum í ráðuneyti hans allan ársins hring. Ég efast ekki um að þar er gott fólk sem rækir starf sitt vel. Enda er gagnrýni eins og þessari og þeirri sem maðurinn sem samgönguráðherrann skammaðist út í í blaðagreininni í vikunni ekki beint að embættismönnum. Gagnrýninni er beint að ráðherranum sem hefur raðað verkefnum í vitlausa forgangsröð.

Alveg er ég hjartanlega sammála henni og hef oft bent á þessa hluti. Valgerður hefði betur komist ofar á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík því hún hefur margt gott til málana að leggja. Hér má sjá greinina í heild


mbl.is Deilt um hvort bera ætti samkomulag Flugstoða og FÍF undir félagsfund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já það má segja að flest klúðrist í höndunum á samgönguráðherra og að verið sé að setja peninga í Héðinsfjarðargöng, þar sem örfáir fara um er algjör hneisa á meðan að umferðarmannvirki í nágrenni höruðborgarinnar eru gjörsamlega sprungin

Anna Ólöf Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 2.1.2007 kl. 23:26

2 identicon

Sammála því að ráðherrann sé klúðrari og þessi Héðinsfjarðargöng eru skandall! Annars sýnist mér að reyna eigi til þrautar að svínbeygja flugumferðarstjóra, líkt og gert var við kennara hérna um árið. Þessu er vafalaust fjarstýrt úr Stjórnarráðinu.

Agnar Gunnarsson (IP-tala skráð) 3.1.2007 kl. 01:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Af mbl.is

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband