Sunnudagur, 1. nóvember 2009
Jæja Lilja þá verðum við bara að lýsa okkur gjaldþrota!
Það er nú óvart þannig að við erum búin að skrifa undir samning nú 2x. Og það er með okkur Ísland eins og hvert annað fyrirtæki að ef við neitum svo að gangast við samningum þá er eini möguleiki þeirra sem við skuldum peninga að keyra okkur í gjaldþrot. Eða gera hér lögtak í þeim eignum sem þeir ná í! Lilja eins og aðrir hljóta að gera sér grein fyrir að þetta mál ófrágengið kostar okkur almenning milljarða á viku. Bæði í formi þess að hér koma engir inn fyrir alvöru til að fjárfesta eða lána peninga i framkvæmdir á meðan að þetta mál er ófrágengið.
Finnst hæpið að tjá sig svona í fjölmiðlum án þess að vera búin að fjalla um þetta í nefndum Alþingis og fá skýringar á þessu frumvarpi.
Og þessi ágæta Lilja hlýtur að átta sig á að þessar yfirlýsingar hennar veikja stjórnina í hvert skipti sem hún tjáir sig. Hún hlýtur t.d. að taka eftir því að Sjálfstæðismenn og framsókn eru búin að taka hana og Ögmund inn sem heiðursfélaga og lifa á því að vitna í þau.
Eins ætti hún sem hagfræðingur að taka með í myndina þá milljarða sem fólk er að tapa sem er að kaupa neysluvörur nú fyrir 30 til 40% hærra verð en þyrfti ef að krónan væri í því sem menn telja eðlilegt en kemst ekki á meðan að hér er allt frosið.
Eins væri gaman að reikna út þá milljarða sem hafa tapast síðan síðasta vor á meðan að allt þetta streð hefur verið í þinginu.
Eins ætti hún að horfa á það að hún er í andúð sinni á AGS að vitna í 10 til 20 ára reynslu landa sem eiga fátt sambærilegt við okkur.
Hefur hún t.d. horft til þess að nú þegar erum við farin að brjóta EES samninginn. Og í framhaldi t.d. hvað mundi gerast ef okkur yðri vísað þar út og/eða að ESB mundi setja þvinganir á okkur eins og viðskiptabann. Heldur hún t.d. að Norðmenn mundu redda okkur með því að kaupa allann fiski af okkur?
Getur ekki samþykkt Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:07 | Facebook
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson
Athugasemdir
Lilja styður ekki Icesavesamninginn EN styður stjórninga - hún setur ekki tengsl milli Icesave og stuðning sinn við stjórnina ÞÓ svo að Jóhanna Sigurðardóttir geri það -
Ég vona að aðrir ábygir þingmenn VG eins OG Ögmundur standi með þjóðinni.
Icesave stjórnin ber alla ábyrgð á þessum samning - það er klárt mál.
Óðinn Þórisson, 1.11.2009 kl. 13:37
Þú vilt svo ólmur ganga í bandalag, sem þér þykir líklegt til að beita efnahagsþvingunum og kúgun til að fá sínu fram? Svelta þjóðir ef þær fallast ekki á að greiða reikninga, sem þeim ber ekki að greiða?
Skelltu í þig öðrum bjór og sjáðu hvort það rofar eitthvað til í hausnum á þér varðandi þversagnirnar í máli þínu.
Jón Steinar Ragnarsson, 1.11.2009 kl. 13:41
Mátti ekki alveg búast við þessu.
Hún er alveg úti að aka.
Steinhissa yfir að Sjallar voru að spila með hana.
Haa ? Voru sjallar að spila með mig Haa ?
Ómar Bjarki Kristjánsson, 1.11.2009 kl. 13:45
Það er nú bara þannig Magnús að "Icasavesamningurinn" er eins og sá fyrri samnignsdrög sem eru gerð með fyrirvara um samþykki alþingis og eins og kom Fram síðast þá settust menn einfaldlega yfir drögin, þó svo að ESB sinnar hafi haldið því Fram að svo yrði ekki gert, eftir að alþingi samþykkti hann með fyrirvörum.
Nei nei það er engin hætta á að Ísland verði keyrt í þrot það er mun meiri von um að dómstólaleiðin verði farin, ekki fara að bulla um að hún sé ófær því að hún er greiðfær og að menn komist að því að sökin liggur að mestu leiti hjá ESB bákninu, því að í því regluverki sem útrásavíkingarnir unnu eftir var og er galli og því eiga Bretar og Hollendingar mun meira í Icesave vandanum en þeir vilja eiga og samfylkingin vil að þeir eigi og það getur enginn heilvita alþingismaður samþykt að ríkið ábyrgist bara hvað sem er fyrir hvern sem er, í þessu tilfelli ábyrgðasjóð sem bara fer í þrot - ekki flókið mál.
ESB er ekki þess virði að hvað sem er sé greitt fyrir inngöngu þangað.
Enn og aftur er von nú með Lilju Mósesdóttur og Ögmundi, það kom í ljós að Guðfríður Lilja var föl fyrir rétt verð.
Burtu með ríkisstjórnina og burtu með forsetann, samfylkingin og Ólafur eru fyrir við uppbyggingu núja Íslands.
Högni Jóhann Sigurjónsson, 1.11.2009 kl. 13:51
frábært! Endilega keyra allt í klessu aftur útaf Icesave sem er innan við 20% af skuldum þjóðarinnar. Allt í lagi vg- það sem gerist ef þið samþykkið ekki, þá fer ríkisstjórnin frá og bjarni ben verður næsti forsætisráðherra og skrifar undir nákvæmlega sama samning ef ekki verri- og tíminn sem fer í það rugl kostar hundruð milljarða.- Endilega vg. eyðileggja pínulítið meira!
One (IP-tala skráð) 1.11.2009 kl. 13:54
Högni það er óvart bara þannig að við leyfðum bönkum hér í raun að þróast út í þetta og þeir höfðu undir okkar eftirliti fleiri þúsundir milljaða af innistæðueigendum í Bretlandi og Hollandi. Við sleppum með að borga einstaklingum innistæutryggingar en annað borga bretar og hollendingar og stór huli fellur á fyrirtæki, sveitarfélög og aðra lögaðila. Það er bara þannig að þó þetta sé ósangjarnt og djöfullegt þá er andi lagan í ESB og EES þannig að innistæutrygginar eiga að gilda fyrir alla og það er það land þar sem móðurbankinnn er sem ber ábyrgð á þvi. Þetta er svona svipað og borga sekt þó maður eig varla fyrir henni eða finnist hún sanngjörn en gera það samt frekar en að fara í fangelsi fyrir hana og missa vinnunna, fjölskylduna og húsnæðið í kjölfarið.
Magnús Helgi Björgvinsson, 1.11.2009 kl. 14:17
Afsakið vantaði nokkra stafi í þetta hér fyrir ofan er að horfa á formúluna á meðan ég skirfaði þetta.
Magnús Helgi Björgvinsson, 1.11.2009 kl. 14:18
Jón Steinar get ekki séð að ESB sé að hóta einu eða neinu. En ætla rétt að vona að ef við göngum þarna inn að það standi þétt við bakið á okkur þegar og ef við lendum í milliríkja deilum. SKárra væri það nú. Auðvita stendur ESB með sínum þjóðum sér í lagi ef skilningur flestra þjóða er sá sami og Breta og Hollendinga.
Magnús Helgi Björgvinsson, 1.11.2009 kl. 14:20
Hvað þýðir þetta þá?
"Og í framhaldi t.d. hvað mundi gerast ef okkur yðri vísað þar út og/eða að ESB mundi setja þvinganir á okkur eins og viðskiptabann. "
Ertu ekki að gefa því undir fótinn að þetta séu vinnubrögð bandalagsins? Ertu að segja að bandalagið standi mé sínum, hvað sem lög og reglur segja? Hver sem réttur manna er?
Er þetta bara einhver heimatilbúinn hræðsluáróður? Hefur þú séð einhvern íja að þessu innan bandalagsins, eða ert þú bara að bulla svona út í loftið til að gera málsttað þinn líklegri?
Jón Steinar Ragnarsson, 1.11.2009 kl. 15:38
Jón Ragnar í dag erum við að brjóta EES reglur varðandi frjálst flæði fjármagns með viðskiptahöftum og fleiri atriðum. Ef við komum okkur ekki út úr þessu Icesave rugli þá verðum við með þetta haftakerfi hér áfram og þar með erum við ekki að uppfylla EES samninginn og því gæti farið svo að þar sem við uppfyllum hann ekki að okkur verði sagt upp sem aðili að honum. Og eins og þú hefur heyrt var því hótað í haust. En það er ekki vegna Icesave skuldana heldu af þvi að við fengum engin lán nema samja um Icesave og því þurftum við að loka á peninga sem erlendir aðilar áttu hér inni. Minni þig líka á að þó nokkur hluti Icesave innistæðum í dag eru orðnar að steynsteypu á Íslandi. Því að öll lán frá Landsbanka síðustu ár hafa verið út á innistæður í Icesave
Magnús Helgi Björgvinsson, 1.11.2009 kl. 15:59
Því fyrr sem þessi stjórn áttar sig á því að þjóðin vill ekki að Alþingi samþykki Icesave því betra. Vonandi að fleiri stjórnarþingmenn fari að hugsa á sömu nótum og Lilja; hvað vill þjóðin og hvað getur hún borgað?
Soffía (IP-tala skráð) 1.11.2009 kl. 16:16
Og hvað á að gera þá Soffía. Þetta icesave hverfur ekki? Við erum löngu búin að viðurkenna okkar ábyrgð á þessu og búin að lýsa því yfir að við ætlum að borga innistæðtryggingar. Og það er alveg sama hvað okkur finnst þessi skuld okkar hverfur ekki. Annars væri þetta ekkert mál. Við mundum bara segja að ríkið ætli ekki að taka ábyrgð á mistökum Seðlabanka og greiða þessar 300 milljarða sem við þurftum að yfirtaka þar. Og ekki bera ríkisábyrgð á lánum Landsvirkjunar og þar hverfa nokkurhundruð milljarðar. Þetta væri mjög einfallt ráð til að stroka út skuldirnira. Bendi þér á að það eru líkur á að við berum ekki nema kannski 100 milljarða af þessu icesave og öll icesave skuldin okkar er innan við eða um 15% af skuldum þjóðarinnar. Og allar hinar skuldirnar eru með gjalddaga á undan Icesave. Og vaxtargreiðslur þurfa ekki að verða svo mikla af icesave eins og fólk lætur í veðri vaka því að höfðustóllinn greiðist niður með eignum landsbankans um leið og þær seljast eða greðast upp.
Magnús Helgi Björgvinsson, 1.11.2009 kl. 16:28
Maggi minn auðvitað varst þú búinn að samþykkja þetta, en þá varstu nú búinn að drekka of marga bjóra. Við hin voru edrú og lofuðum ekki að borga neitt. Nú verður gerður samningur um að Maggi og vinir fái að borga Icesave, við hin ekki.
Sigurður Þorsteinsson, 1.11.2009 kl. 17:54
Sigurður ég veit ekki alveg hvernig þú túlkar eftirfarandi en ég lít á að Geir Haarde hafi verið búinn að samþykkja þetta í október:
Yfirlýsing forsætisráðherra
8.10.2008
Ríkisstjórn Íslands metur mikils að bresk stjórnvöld hyggjast tryggja að eigendur Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi muni ekki tapa peningum á viðskiptum við Icesave.
Ríkisstjórnir landanna meta nú stöðuna og leita að viðunandi lausn fyrir alla aðila.
Með breytingu á lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta eru innstæður gerðar að forgangskröfum ef kemur til skiptameðferðar. Góðar líkur eru á að eignir Landsbankans muni standa undir stærstum hluta innstæðna á Icesave-reikningum Landsbankans í Bretlandi.
Ríkisstjórnin ítrekar að ríkissjóður mun styðja Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta við öflun nægjanlegs fjár.
Ríkisstjórn Íslands er staðráðin í að láta ekki núverandi stöðu á fjármálamörkuðum skyggja á áralanga vináttu Íslands og Bretlands.
Samkomulag milli Hollands og Íslands um IceSave
11.10.2008
Að loknum uppbyggilegum viðræðum hafa hollensk og íslensk stjórnvöld náð samkomulagi um lausn mála hollenskra eigenda innstæðna á IceSave-reikningum Landsbankans.
Fjármálaráðherra Hollands, Wouter J. Bos, og fjármálaráðherra Íslands, Árni M. Mathiesen, tilkynntu þetta.
Ráðherrarnir fagna því að lausn hafi fundist á málinu. Wouter J. Bos kvaðst einkum ánægður með að staða hollenskra innstæðueigenda væri nú skýr. Árni M. Mathiesen bætti við að aðalatriðið væri að málið væri nú leyst.
Samkomulagið kveður á um að íslenska ríkið muni bæta hverjum og einum hollenskum innstæðueiganda innstæður að hámarksfjárhæð 20.887 evrur. Hollenska ríkisstjórnin mun veita Íslandi lán til að standa undir þessum greiðslum og hollenski seðlabankinn mun annast afgreiðslu krafna innstæðueigendanna.
Reykjavík 11. október 2008
Tilkynning frá forsætisráðuneytinu
13.11.2008
Að gefnu tilefni er rétt að taka það fram að íslensk stjórnvöld hafa engar áætlanir uppi um að falla frá áformum um að tryggja innstæður á bankareikningum hérlendis. Orðrómur um að íslensk stjórnvöld muni gefa þessi áform eftir í samningum við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn er rangur. Innstæðueigendur þurfa ekki að óttast um fjármuni sína sem geymdir eru á bankareikningum innlánsstofnana hérlendis. Í þeim efnum hefur ekkert breyst frá því að þessu var fyrst lýst yfir af hálfu ríkisstjórnarinnar.
Reykjavík 13. nóvember 2008
Samkomulag næst við Evrópusambandið fyrir hönd Hollendinga og Breta - Greiðir fyrir láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF)
16.11.2008
Mikilvægur áfangi hefur náðst til lausnar deilunnar um innstæðutryggingar vegna íslenskra bankaútibúa á Evrópska efnahagssvæðinu og stöðu sparifjáreigenda í þeim. Viðræður Íslands við nokkur Evrópusambandsríki, sem komust á fyrir tilstilli Frakklands sem nú fer með formennsku í Evrópusambandinu, leiddu til samkomulags um viðmið sem lögð verða til grundvallar frekari samningaviðræðum.
Samkomulagið felur í sér að íslensk stjórnvöld ábyrgjast lágmarkstryggingu þá sem EES-reglur mæla fyrir um til innstæðueigenda í útibúum bankanna erlendis. Endanlegur kostnaður ríkissjóðs vegna þessa mun ráðast af því hvað greiðist upp í innstæðutryggingar af eignum bankanna..
Magnús Helgi Björgvinsson, 1.11.2009 kl. 18:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.