Leita í fréttum mbl.is

Bíddu er þá Kristján kominn á biðlaunin ?

Gott að hafa tryggar tekjur á meðan maður er að berjast fyrir sæti á Alþingi. Ekki allir sem geta snúið sér svoan alfarið að kosningabaráttunni.

Frétt af mbl.is

  Nýr bæjarstjóri tekur við á Akureyri í dag
Innlent | mbl.is | 9.1.2007 | 10:55
Sigrún Björk Jakobsdóttir tekur við starfi bæjarstjóra á... Nýr bæjarstjóri á Akureyri, Sigrún Björk Jakobsdóttir, tekur við embætti eftir bæjarstjórnarfund í dag, um leið og Kristján Þór Júlíusson lætur af störfum. Samkvæmt upplýsingum frá Akureyrarbæ verða bæjarstjóraskiptin um klukkan 17:30. Kristján Þór hafnaði í efsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar í vor.


mbl.is Nýr bæjarstjóri tekur við á Akureyri í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Kristján Þór er ekkert að fá meira eða minna en bæjarstjórar almennt. Sex mánaða biðlaun er almennt í þessum bransa. Ingibjörg Sólrún hætti sem borgarstjóri rétt áður en kosningabaráttan hófst árið 2003 og fór á biðlaun sem slík í nokkra mánuði t.d.

Stefán Friðrik Stefánsson, 9.1.2007 kl. 13:19

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Finnst samt að biðlaun sé eitthvað sem menn eiga að fá ef að staða þeirra sem slík sé lögð niður eða þeim sagt upp. Finnst það ekki eiga við þegar þeir sjálfir kjósa að hætta og snúa sé að öðrum störfum. Það er svo alveg sama hvaða dæmi önnur eru fyrir þessu. Ég held að allir aðrir sem eru að hella sér í þessa baráttu í fyrsta sinni eigi erfiðara með að að taka sér hálfárið frí til að vinna að sinni baráttu. Ég hef aldrei skilið biðlaun svona.

Magnús Helgi Björgvinsson, 9.1.2007 kl. 17:24

3 Smámynd: Margrét Ingibjörg Lindquist

Mér finnst  allt þetta mál með Kristjá... ömurlkegt mál... loforðin í sveitastjórnakosningunum að vera ekki á leiðinni á þing... BULLSHITTT ekkert nema lygar...

Margrét Ingibjörg Lindquist, 9.1.2007 kl. 18:17

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sammála síðasta ræðumanni!

Magnús Helgi Björgvinsson, 9.1.2007 kl. 19:14

5 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Samfylkingin krafðist þess að Kristján Þór léti af embætti bæjarstjóra fyrir lok þessa mánaðar. Þessi meirihluti hefði sprungið. Hann hafði enga valkosti aðra en láta af embættinu.

Úrslit kosninganna í vor voru með þeim hætti að Sjálfstæðisflokkurinn fékk ekki afgerandi umboð til forystu. Það náðust ekki samningar u að Sjálfstæðisflokkurinn fengi embætti bæjarstjóra út kjörtímabilið og við gátum ekki gert kröfu um það. Við þær aðstæður er ekki undarlegt að Kristján hafi sóst eftir leiðtogastólnum þegar að Halldór Blöndal ákvað að hætta.

En það verða breytingar hjá okkur, en ég lít svo á að kjósendur hér hafi valið þá breytingu í vor. Kristján fékk ekki sterkt umboð til að vera áfram bæjarstjóri. Hann mun áfram sitja í bæjarstjórn hinsvegar og verður nú forseti hennar.

Stefán Friðrik Stefánsson, 9.1.2007 kl. 20:58

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Já ég skil þetta. En það eru þessi biðlaun sem eru að flækjast fyrir mér. T.d. á Selfossi voru 3 að þiggja biðlaun á síðasta ári. Og þá er ég líka að gera greinarmun á því hvort menn hætta sjálfviljugir og eru sannanlega á leið í annað starf. Þetta gildir ekki annarsstaðar í þjóðfélginu nema hjá stjórnmálamönnum og embættismönnum sem sjálfir ráða miklu um sín kjör. Þetta skapar honum forskot á aðra nýja  sem eru að bjóða sig fram í NA kjördæmi. Sem þurfa að sinna framboðsmálum í frítíma eða í launalausu starfi.

Magnús Helgi Björgvinsson, 9.1.2007 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband