Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

Ætti kannski að taka þetta upp á Alþingi?

Gæti kannski komið eitthvað viturlegt út úr því. Takið sérstaklega eftir kaflanum með öðrum leturlit.

Af www. visir.is

Nektarpartý í bandarískum háskólum

Bandarískir nemendur í bestu háskólum landsins hafa tekið sig til, gert uppreisn gegn kreddum og hefðum í skólunum og ákveðið að kasta af sér byrðum þjóðfélagsins, sem og fötum sínum, og halda nektarpartý.

Nemendur í Yale háskólanum í Bandaríkjunum eru farnir að halda allt að 6-8 slíkar veislur á hverju skólaári. Aðeins útvaldir fá að mæta og hermt er að önnur dóttir George W. Bush Bandaríkjaforseta, Barbara, hafi mætt í eitt slíkt teiti árið 2002.

Alkóhól er haft við hönd og allir eru naktir en þrátt fyrir það segja þátttakendur að fólk verði svo meðvitað um útlit sitt að það einbeiti sér meira að samræðum og því verði samtöl oft mun gáfulegri en þegar fólk er fullklætt. Snertingar eru ekki liðnar nema með fengnu samþykki beggja aðila.

Skólayfirvöld koma ekki í veg fyrir þessi nektarpartý en þau hvetja ekki til þeirra heldur. Árið 2002 kom upp eitt mál þar sem karlmaður var kærður fyrir kynferðislega áreitni eftir nektarpartý.

Skoska dagblaðið The Scotsman skýrir frá þessu á vefsíðu sinni í dag.


Það mætti draga þó nokkuð úr þessu fjölda sem þyggur bætur

 

Ég hef þá óbilandi trú að allir öryrkjar gætu unnið og margir hverjir fulla vinnu. Þetta er þó bundið því að þeim séu skapaðar aðstæður til að vinna. Þannig getur maður sem aðeins getur hreyft einn fingur unnið. Þá sé ég fyrir mér vél þar sem að þarf aðeins að ýta á einn takka.

EN eins og kerfið er í dag er öllum sem vilja vinna refsað með gríðarlegri skerðingu á örorkubótum og því engin hvati fyrir þau til að vinna. Þetta fólk gæti samt margt unnið jafnvel fulla vinnu ef að þau fengju vinnuumhverfi við hæfi og stuðning við starf sitt. Þetta tel ég brýnt að þjóðfélagið átti sig á .

Einstaklingur sem ekki hefur orku í líkamlega vinnu getur unnið t.d. við svara í síma. Einstaklingur sem þjáist af geðröskunum getur unnið sína vinnu ef að hann fær réttar aðstæður. Þar sem að iðjuþjálfi og starfsleiðbeinandi styðja hann. Hann þarf kannski sveigjanlegan vinnutíma, sér aðstöðu þar sem hann verður ekki fyrir óþægilegu áreiti.  Með því að ríkið greiddi kostnað við atvinnuveitenda við að aðlaga vinnunna að þörfum þeirra og sjá um þann stuðning sem þau þurfa þá væri hægt að vinna gegn þessari þróun að sífellt fleiri verða öryrkjar. Um leið mundu margir öðlast meiri lífsfyllingu og verða nýtari þjóðfélagsþegnar.

Eins þarf þjóðfélagið að sýna umburðarlyndi og átta sig á því að við erum ekki öll eins. Fólk með fötlun og aðrir öryrkjar eiga alveg sama rétt á að lifa við sömu aðstæður og við hin þó þau þurfi einhvern stuðning til þess

Refsingar á vilja þeirra til að verða virkari með því að skerða örorkulífeyrir þeirra við minnstu tekjur er í raun til að drepa niður allann vilja til að bjarga sér sjálfur.

Við í raun dæmum marga til að vera 75 til 100% öryrkja sem gætu alveg með tíð og tíma komist gjörsamlega af án bóta.

Frétt af mbl.is

  Öryrkjum fjölgar áfram hér á landi
Innlent | mbl.is | 8.1.2007 | 18:45
Geðraskanir og stoðkerfisraskanir eru algengustu orsakir örorku, að því er kemur fram í grein í nýjasta tölublaði Læknablaðsins. Þar kemur fram að áframhald hefur orðið á þeirri þróun síðustu ára, að öryrkjum fjölgi á Íslandi en mikil tækifæri séu til að draga úr þessari þróun með því að efla starfsendurhæfingu og grípa til annarra úrræða á vinnumarkaði, enda sé minna lagt í slík úrræði hér á landi en á hinum Norðurlöndunum.


mbl.is Öryrkjum fjölgar áfram hér á landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er eins og allir hafi sameinast um að benda okkur á að sækja um að komast inn í ESB

Það eru daglega nú fréttir sem styrkja mig í þeirri trú að okkur væri betur borgið með því að sækjast eftir því að semja um inngöngu í ESB. Við lifum við okurvextir, okurverð og samkeppni hér er eins og brandari á helstu mörkuðum. Bara það að sækja um mundi krefjast þess að við næðum stjórn á vöxtum og öðru til þess að eiga möguleika á að komast þangað inn.

Frétt af mbl.is

  Verð á vörum og þjónustu 46% hærra hér að jafnaði en í ESB
Innlent | mbl.is | 8.1.2007 | 13:47
Verð á vörum og þjónustu sem venjuleg heimili nýta sér var að jafnaði 46% hærra á Íslandi en var að jafnaði í „gömlu" Evrópusambandslöndunum 15 árið 2005, að því er kemur fram í samantekt dönsku hagstofunnar. Verð á mat- og drykkjarvörum var 62% hærra hér á landi en að jafnaði í ríkjunum 15.


mbl.is Verð á vörum og þjónustu 46% hærra hér að jafnaði en í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má ég þá biðja um ástandið fyrir Kárahnjúka og Reyðarál

Ef að þessi frétt er ekki lóð á þá vogaskál að lítið hagkerfi verði að fara varlega í ofurfjárfestingar þá veit ég ekki hvað. Nú er um fernt að velja:

  • Hækka laun fyrir uppeldis- og umönnunarstéttir umtalsvert
  • Fara varlega í frekari þennsluvekjandi verkefni á næstu árum
  • Foreldrar hætti að vinna
  • Sama gildir um fólk með fötlun sem býr á sambýlum . Aðstandendur hætti að vinna og sinni þeim einstaklingum sem þar búa.

Frétt af mbl.is

  Ástandið mjög slæmt í nokkrum leikskólum í Kópavogi sökum manneklu
Innlent | mbl.is | 8.1.2007 | 12:13
Mikil mannekla hamlar starfi í um þremur til fjórum leikskólum í Kópavogi að sögn leikskólafulltrúa bæjarins. Í leikskólunum Marbakka hefur t.a.m. leikskólastjórinn sent foreldrum bréf um að grípa verði til neyðarúrræða vegna manneklu, t.d. með því biðja foreldra um að vera heima með börn sín einn dag í viku. Þá hefur einnig heyrst af lokunum í leikskólanum Dal. Mjög fáar starfsumsóknir hafa borist.


mbl.is Ástandið mjög slæmt í nokkrum leikskólum í Kópavogi sökum manneklu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já takk! - Svona má koma hér á landi.

Smá eigingirni hjá mér. Ég þarf að fara að kíkja í kring um mig eftir stærra húsnæði og gæti alveg því alveg sætt mig við að svipað ásand og er nú í Kaupmannahöfn komi hingað. Allt að 20% undir ásett verð er eitthvað sem ég gæti sætt mig við:

Frétt af mbl.is

  Óvænt verðlækkun á fasteignum í Kaupmannahöfn
Erlent | mbl.is | 8.1.2007 | 9:35
Töluverð verðlækkun hefur orðið á fasteignamarkaðnum í Kaupmannahöfn á undanförnum níu mánuðum eftir miklar hækkanir á undanförnum árum. Samkvæmt upplýsingum Realmæglerne, landsamtökum danskra fasteignasala, urðu litlar breytingar á fasteignaverði frá því í mars á síðasta ári og fram undir lok ársins en þá tók fasteignaverð að lækka. Þetta kemur fram á fréttavefnum Børsen.


mbl.is Óvænt verðlækkun á fasteignum í Kaupmannahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki gaman að lenda í þessu

Þessi frétt var í sjónvarpsfréttum í kvöld

.ruv.is

  • » Fréttir
  • » Frétt
  • „Fregnir af andláti mínu stórlega ýktar“preview

    Fregnir af andláti mínu eru stórlega ýktar segir kona sem lenti í því á dögunum að þurfa að lesa minningargrein með mynd af sjálfri sér.

    Konan, Anna Ingólfsdóttir prófessor við Háskólann í Reykjavík, opnaði Morgunblaðið í rólegheitum síðastliðinn þriðjudag. Í ljós kom að myndavíxl höfðu orðið varðandi minningargrein um konu sem lést á níræðisaldri síðastliðið sumar og mynd af Önnu birt með greininni. Myndin var tekin síðastliðið haust af því tilefni að Anna er fyrst kvenna til að verða prófessor í tölvunarfræði.


Ég hef smá við þessa frétt að athuga

Afhverju er ítrakað sagt að þetta hafi verið kjallaraíbúð?  Er svona sérstakt að þær séu rændar?

Eins þá væri kannski ekki gott fyrir þann sem á flakkarann  að lögreglan findi hann ef að þessi flakkari er eins og margir fullur af efni sem er kannski ekki alveg löglegt skv. höfundarlögum.

En annars þá er ég að velta fyrir mér hver kaupir svona dót notað. Það eru 90% líkur að það sé stolið nema að þú þekkir seljandann vel (og jafnvel þó þú þekkir hann)

"Í neðra Breiðholti var veski stolið í ólæstri forstofu í íbúðarhúsi. Lögreglan segir ljóst að einhver er á ferli og kannar um leið hvort útidyrahurðir séu ólæstar". Bíddu ef einhver væri ekki á ferli þá hefði veskið væntanlega flogið í burtu!

Frétt af mbl.is

  Braust inn í kjallaraíbúð og stal raftækjum
Innlent | mbl.is | 7.1.2007 | 17:59
Tilkynnt var um innbrot í kjallaraíbúð í Teigahverfi í Reykjavík um klukkan 16:30 í dag samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Meðal þess sem var stolið var fartölva, Playstation-leikjavél og flakkari. Málið er í rannsókn.


mbl.is Braust inn í kjallaraíbúð og stal raftækjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Starfsfólk á skrifstofum - Varið ykkur

Nú er í Bretlandi farið að merkja á skrifborð hjá þjónustufulltrúum með svörtu límbandi þar sem að lyklaborðið og pennarnir eiga að vera. Talið að þetta muni kosta um 7 milljón punda.

Fulltrúar verkalýðsfélaga mótmæla þessu harðlega og segja að þetta dragi úr góðum starfsanda og sé niðurlægjandi.

Starfsfólk National Insurance offices in Longbenton, North Tyneside hafa verið valin til að prófa/þróa þetta .

Fulltrúi stéttarfélagsins Public and Commercial Services Union's Kevin McHugh sagð. Þessi skrifstofa hefur verið starfsandi í 60 ár og starfsfólk hefur hingað til getað fundið heftara og pennana sína án þess að ráðgjafar væru að aðstoða þau við það stöðugt

Þetta svarta límbands verkefni er hluti af átaki á landsvísu í Bretlandi  sem er stjórnað af ráðgjafafyrirtæki og á að stuðla að því að starfsfólk sé ekki með persónulega hluti á skrifborðum sínum

Fyrrnefndur Kevin nefndi sem dæmi að í Skotlandi hefði komið upp aðstæður þar sem starfsmaður var spurður hvort að banani á borðinu hjá honum væri virkur eða óvirkur. Með því var átt við hvort starfsmaðurinn ætlaði að borða hann eða ekki. Ef ekki átti hann að fjarlægast. Þetta er brjálæði sag'i Kevin.

En fulltrúi átaksins sagði að verkefnið miðaði að meiri skilvirkni og  þjónustað viðskiptavininn betur

Heimild http://www.ananova/.com

Þetta ættu kannski yfirmenn að hafa í huga næst þegar þeir breyta um starfsmannastefnu og endurskipuleggja. Það er kannski hægt að ganga of langt í gæðastarfi.


Ég varð bara að varðveita þessa frétt á blogginu hjá mér

Já hvað eru 77 ár á milli vina?

Frétt af mbl.is

  107 ára gamall prestur kvæntist þrítugri konu
Veröld/Fólk | AFP | 7.1.2007 | 14:44
Samuel Akinbode Sadela er 107 ára gamall og elsti presturinn í Nígeríu. Hann sagðist sækja styrk sinn til drottins eftir að hann giftist þrítugri konu, sem er í söfnuðinum hans.


mbl.is 107 ára gamall prestur kvæntist þrítugri konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er eiginlega að gerast í Reykjanesbæ?

Á tímabili ekkert nema brunar þar og nú ekkert nema ofbeldi:

Frétt af mbl.is

  Ráðist á karlmann á skemmtistað í Keflavík
Innlent | mbl.is | 7.1.2007 | 12:02
Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum veittu lögreglumenn, sem voru við eftirlit á Hafnargötu í Keflavík um hálf sex í morgun, athygli karlmanni sem var töluvert blóðugur í framan og með skurð á höfði.

www.ruv.is

  • » Fréttir
  • » Frétt
  • Unglingsstúlkur berja stöllu sína

    Tvær 13 og 14 ára stúlkur réðust að 15 ára stúlku með hafnarboltakylfu á leikvelli við Ásbraut í Keflavík í gærkvöldi og slógu hana í höfuðið með kylfunni. Hún er ekki alvarlega slösuð að sögn lögreglunnar í Keflavík.

    Stúlkan tilkynnti lögreglunni sjálf um verknaðinn í gær eftir að hafa leitað læknishjálpar. Lögreglan hafði upp á stúlkunum sem gerðu árásina og þær játuðu verknaðinn. Eftirmál ráðast af því hvort stúlkan kæri árásina.



mbl.is Ráðist á karlmann á skemmtistað í Keflavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband