Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007
Þriðjudagur, 27. febrúar 2007
Illa gengur að manna framboð hægri grænna.
Var að lesa þetta á hjá Agli Helgasyni
Samkvæmt heimildum gengur erfiðlega að manna framboð hægri grænna. Það er dálítið stór ákvörðun að gefa kost á sér í alþingiskosningum. Margir eru hræddir við það. Hræddir við að það eyðileggi starfsferil sinn. Hræddir við að ná ekki kjöri - og kannski líka hræddir við að ná kjöri. Sumir óttast að lækka í launum - þingmannskaupið er ekki sérlega samkeppnishæft. Margir hafa hugsjónina, en reiða sig á að einhverjir aðrir taki slaginn.
Það átti víst að vera búið að kynna framboðið - en það hefur ekki gerst vegna þess hve fólk er tvístígandi að taka sæti á lista. Samfylkingin krækti í nokkuð stóran bita þegar hún fékk Reyni Harðarson, stjórnarmann í Framtíðarlandinu, til að setjast á lista hjá sér. Þar er líka Sólveig Arnarsdóttir sem hefur verið starfsmaður Framtíðarlandsins.
Hverjir eru þá eftir til að skipa lista hægri grænna? Ómar Ragnarsson? Margrét Sverrisdóttir sem engan rekur minni til að hafi haft sérlega sterkar skoðanir á umhverfismálum? Jakob Frímann Magnússon, nýgenginn úr Samfylkingunni? Jón Baldvin Hannibalsson?
Þriðjudagur, 27. febrúar 2007
Þetta er glæsilegt
Samkvæmt því sem ég best veit þá eiga að mestu viðskiptavinir Sparisjóðina. Þó eru einhverjir stofnfjáreigendur sem hafa fengið hluti í þessum bönkum. Nú hér á SV landi er verið að pranga með þessa hluti og menn eru að sækja í sjóði bankana sem hafa gildnað gegnum árin. En þarna er fólkið á staðnum viðskiptavinirnir látnir njóta hagnaðrins svon um munar.
Frétt af mbl.is
Sparisjóður Svarfdæla kostar byggingu menningarhúss á Dalvík
Innlent | mbl.is | 27.2.2007 | 12:31
Í ljósi góðrar afkomu Sparisjóðs Svarfdæla á árinu 2006 hefur stjórn hans samþykkt að leggja til við aðalfund að sparisjóðurinn kosti byggingu menningarhúss á Dalvík. Áformað er að húsið komist í gagnið fyrir mitt ár 2008. Áætlaður byggingarkostnaður, og þar með andvirði þessarar gjafar til íbúa í Dalvíkurbyggð, er um 200 milljónir
Sparisjóður Svarfdæla kostar byggingu menningarhúss á Dalvík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 27. febrúar 2007
Lánshæfi banka hækkar vegna óbeinna ábyrgða frá ríkinu
Mér er það þvert um geð þessar nýjustu mataðferði Moodys. Þeir hækka lánshæfismat bankana hér á landi því þeir telja líkur á því að Íslenska ríkið kæmi til með að hlaupa undir bagga ef að bankarnir lentu í alvarlegum erfiðleikum. Mér er ekkert um þetta. Þetta gerðist í Noregi fyrir hva 10 - 15 árum að einhverjir bankar rúlluðu og ríkið hljóp undir til að bjarga inneignum viðskiptavina bankana og um leið þá eignaðist ríkið þessa banka. Mér finnst að þar sem við höfum lækkað verulega skatta á þessa banka og þeir gera margt til að losna við að greiða suma skatta með því að stofna fyrirtæki í skattaparadísum þá eigi þetta bara ekkert að koma til greina. Bankarnir haf nú ekki verið að flýta sér að láta okkur njóta þess að þeir fái lán á bestu kjörum.
En svo er reiknað með að við leysum úr vandræðum sem þeir kunna að koma sér í með einhverjum ofurfjárfestingum eða lánum.
Úr fréttinni
Sérfræðingur í greiningardeild franska bankans Societe Generale í Lundúnum, mælir með því að fjárfestar kaupi skuldabréf íslensku bankanna, ekki hafa áhyggjur þar sem ríkisstjórnin mun losa bankana úr vandræðum," sagði Suki Mann, sérfræðingur Societe Generale í gær.
Að sögn Suki Mann að með hækkun lánshæfismats íslensku bankanna sé Moody's búið að kasta trúverðugleikanum fyrir róða. Mann segir að þetta veki upp spurningar um hvort þörf sé á starfsemi matsfyrirtækja.
Nigel Myer, sérfræðingur hjá Dresdner Kleinwort í Lundúnum, segir að hækkun lánshæfismats íslensku bankanna veki upp spurningar í huga hans um hvers virði lánshæfismat Moody´s sé. Segir hann að þetta geti dregið úr trúverðugleika Moody's og hvort mark sé takandi á mati frá fyrirtækinu. Ungverska blaðið Budapest Business Journal greinir frá þessu á vef sínum.
Frétt af mbl.is
Greiningardeildir erlendra banka gagnrýna lánshæfismat Moody's
Viðskipti | mbl.is | 27.2.2007 | 12:13
Greiningardeildir Royal Bank of Scotland, Dresdner Kleinwort og Societe Generale gagnrýna þá ákvörðun Moody's að hækka lánshæfismat íslensku viðskiptabankanna á föstudag. Er lánshæfismat íslensku bankanna nú hærra heldur en banka eins og ABN Amro.
Greiningardeildir erlendra banka gagnrýna lánshæfismat Moody's | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 27. febrúar 2007
Anskotans ég er kominn með ofnæmi fyrir Jessicu en ekki pizzum
Ég verð að segja að ég er bara komin með ofnæmi fyrir fréttum af þessari stúlku. Finnst hún ekki hafa margt til bruns að bera. Hún er reyndar falleg en samkvæmt þessu þáttum sem voru sýndir um hana síðasta vetur er hún vitgrönn og hæfileikalaus og þessi frægð hennar með afbrigðum.
Vildi samt að ég hefði ofnæmi fyrir pizzum það kæmi sér vel fyrir mig og holdafarið.
Frétt af mbl.is
Andlit pítsukeðju með ofnæmi fyrir pítsum
Veröld/Fólk | mbl.is | 27.2.2007 | 9:29
Bandaríska söngkonan Jessica Simpson er andlit flatbökukeðjunnar Pizza Hut og kemur fram í auglýsingum fyrirtækisins. En nú er komið í ljós að Simpson hefur ofnæmi fyrir hráefnunum í pítsum.
Andlit pítsukeðju með ofnæmi fyrir pítsum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 27. febrúar 2007
Atvinnumiðlun Framsóknar
Var að sjá að það er verið að útvega Hjálmar Árnasyni starf. Þetta er náttúrulega sárabætur frá framsókn fyrir að hann komst ekki í það sæti sem hann óskaði sér sem og hann hefur unnið vel fyrir flokkinn:
Af www.jonas.is
27.02.2007
Æstur sendiherra
Mér brá, þegar ég sá, að ráðgert væri að ráða Hjálmar Árnason sem konsúl í Kanada, undanfara sendiherraembættis. Ég held, að Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson hafi nóg gert, þótt landsþekktum æsingamanni sé ekki bætt við stétt sendiherra. Nú þarf að staldra við og spyrja, hvað við höfum að gera við fjölmenna sveit sendiherra. Hafa þeir stutt útrás atvinnulífsins? Hafa helztu kóngar útrásarinnar leitað sér aðstoðar í sendiráðum? Svarið er stutt, nei. Viðskipti Íslands í útlöndum eru óháð sendiherrum öðrum en þeim, sem starfa hjá fjölþjóðastofnunum í Bruxelles og New York.
Þriðjudagur, 27. febrúar 2007
Frábær síða talsmanns neytenda
Vildi benda fólki á síðu talsmanns neytenda www.tn.is . Hann Gísli Tryggvason er auðsjáanlega kominn á skrið og ýtir við fyrirtækjum alveg villt og galið. M.a. í dag er hann að leggja út af pisli sem hann skrifaði í fyrradag um:
Í pistlinum í talhorninu fjallar talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, um það vandamál þegar hljóm- eða mynddiskar eyðileggjast - ekki síst diskar með barnaefni. Bent er á að þetta sé ekki bara vandamál neytenda enda er varan sem maður kaupir ekki bara diskurinn; hann er bara eins konar fylgihlutur til þess að njóta megi tónlistarinnar eða myndarinnar. Diskurinn er í raun umbúðir og ekki réttmætir hagsmunir fyrirtækja að geta selt nýjan og nýjan disk fyrir þá sem skemmast enda væri þá búið að margborga fyrir afnotaréttinn að sama innihaldinu.
Þarna er hann m.a. að vísa til þess að mest af verðu disks sem maður kaupir er höfundaréttur og afnotaréttur en diskurinn sjálfur og umbúiðir minnsti kosnaður. Og afnotarétturinn sem maður greiðir fyrir er til ótakmarkaðs tíma. Og því leggur hann til að maður geti skilað ónýtum diskum og fengið annann.
Síðan 23. febrúar er hann að kynna beiðni til símafyrirtækja um rökstuðuning fyrir útskriftargjaldi sem legst við öll verð hjá þeim en þar segir Gísli:
23. feb. 2007
Síminn og Vodafone beðin um rökstuðning fyrir útskriftargjaldi
Í bréfi til stærstu símafyrirtækja landsins, Símans og Vodafone, er þeim boðið að upplýsa um raunkostnað við útsendingu reikninga í ljósi þess að neytendur eiga rétt á fullri sundurliðun fjarskiptareikninga - endurgjaldslaust.
Í tengslum við meðferð samgöngunefndar Alþingis á frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjarskipti hefur talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, í umsögn til samgöngunefndar ítrekað tillögu í fyrri umsögn til samgönguráðuneytis um drög að sama frumvarpi.
Eins og fram kom í frétt á heimasíðunni í fyrradag felur tillagan í sér að sett verði mörk við kostnaði sem heimilt verði að krefja neytendur um. Er það gert í ljósi þess að neytendur eiga lögum samkvæmt rétt á endurgjaldslausri sundurliðun reikninga frá fjarskiptafyrirtækjum og eftir samþykkt umrædds frumvarps á sú sundurliðun að ná til allra símanúmera og annarrar þjónustu.
Í bréfum til Símans og Vodafone er þeim gefinn rúmlega viku frestur til þess að gera athugasemd við upplýsingar talsmanns neytenda um hver raunkostnaður við útsendingu reikninga er, þ.e. alls að hámarki 105 kr. og er þar rúmt reiknað að mati talsmanns neytenda. Einnig er spurt um raunkostnað fyrirtækjanna sjálfra við útsendingu reikninga og þau gjöld sem fyrirtækin leggja á neytendur vegna sundurliðunar og útsendingar reikninga.
Hvet fólk til að skoða síðunna hans. Tel að þarna fari opinber starfsmaður sem er að vinna vinnunna sína.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 27. febrúar 2007
Hægrigrænt framboð!!
Var að lesa eftirfarandi inn á www.mannlif.is . (Reynir Trausta auðsjáanlega farinn að vinna og henda inn fréttum)
Grænt skjallbandalag
Flest bendir til þess að Jakob Frímann Magnússon, burtfloginn Samfylkingarmaður, og Margrét Sverrisdóttir, sem yfirgaf Frjálslynda í fússi, taki höndum saman og bjóði fram einshverskonar grænan lista í vor. Sést hefur til Margrétar og Jakobs Frímanns á plottfundum í miðborg Reykjavíkur. Þá þykir vera stutt í Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra, sem er náinn samherji Jakobs. Enn eitt hjólið undir kosningavagninn er síðan Ómar Ragnarsson sem þykir bera þess öll einkenni að vilja komast í framboð. Innbyrðis hefur þetta fólk hælt hvert öðru á bloggsíðum. Stjórnmálaskýrendur mannlif.is eru sammála um að allt stefni í grænt framboð þar sem Jón Baldvin fái jafnvel talsvert vægi. Það þykir reyndar dálítið skondið þar sem Jón Baldvin er maðurinn sem lyfti Davíð Oddssyni, fyrrverandi forsætisráðherra, hæsta stall en vill nú bæta ýmis mein samfélagsins sem hlotist hafi af langvarandi setu Sjálfstæðisflokksins í landsstjórninni ...
Mánudagur, 26. febrúar 2007
Alveg gáttaður á hverning fréttamenn í Íslandi í dag spyrja.
Ég hlustaði á Ísland í dag áðan. Þar var Ingólfur forstjóri Kaupþings að svara til um mun á kjörum á lánum bankans hér og svo erlendis.
- Hann lét manninn komast upp með að fullyrða að hér værum við jafnvel að fá betri kjör en almenningur fær í Svíþjóð. Hann sleppti honum að mestu þegar rætt var um raunvexti og það væri bara engin munur. Þegar ljóst er að með verðbótum er fólk að borga um 12% raunvexti í dag miðað við verðbólgu. Hann slapp við að skýra það út þegar hann ræddi um að álag þeirra á það fjármagn sem þeir lána sé nánast ekki neitt. En nú vitum við að bankinn fær fjármagn til að lána á sömum kjörum hér og erlendis. En hann þarf ekki að borga verðtryggingu af sínu fé þannig að bankinn er að græða mismuninn að mestu.
- Hann fékk að fullyrða að kosnaður sem greiddur er hér á landi sé innifalinn í vaxtamun í Svíþjóð. Það finnst mér ótrúlegt.
- Hann fékk að sleppa mjög vel frá spurningu um uppgreiðslugjaldið hér. Hann sagði að það þyrfti að verja fé það sem bankinn þyrfti að taka að láni til að endurlána. En þarf bankinn ekki að gera það í Svíþjóð?
Miðað við hversu vel Ísland í dag og Kompás hafa staðið sig í að upplýsa mál, þá finnst mér að þegar kemur að því að spyrja fólk í beinni útsendingu þá þurfi þau að vera betur undirbúin og fá helst einhverja sem hafa góða innsýn í að spyrja eða uppfræða fréttamennina.
Þetta finnst mér líka koma reglulega fyrir í Kastljósi. Þetta þurfa báðar stöðvarnar að bæta. Það er ljóður á annars góðum þáttum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 26. febrúar 2007
Kurteisi og góð mannleg samskipti hafa ekki verið hans sterkustu hliðar hingað til
Það hefur heldur betur vaðið á Gunnari sérstaklega þegar einhver gagnrýnir hann. Ég hef fjallað um það áður þegar hann sagði um oddvita samfylkingar í Kópavogi:
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, segist vísa fullyrðingum Guðríðar um að gögnum hafi verið leynt algerlega á bug. "Til hvers ættum við að vera að því?" spyr bæjarstjórinn og bætir við: "Það mætti halda að hún væri að vinna fyrir Garðabæ en ekki Kópavog þessi manneskja. Hún verður að fara aftur í frumbernskuna og læra að segja satt áður en hún fer að taka þátt í pólitík."
En þetta er það sem fólk í Kópavogi kaus yfir sig aftur. Vitandi um hvernig hann er og hvernig hann hefur unnið síðust 12 ár. Mulið undir fyrirtækið klæðningu og heilu hverfunum verið úthlutað án þess að nokkuð almennilegt skipulag sé á bænum. Það er t.d. enginn fallegur og mannvænn miðbær í Kópavogi næst stærsta bæ landsins.
Frétt af mbl.is
Kópavogsbær kann að leita réttar síns í Heiðmerkurdeilunni
Innlent | mbl.is | 26.2.2007 | 19:32
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, lýsir allri ábyrgð á Heiðmerkurdeilunni á hendur Reykjavíkurborg. Kópavogsbær íhugar að leita réttar síns gagnvart borginni, fái hann ekki að hefja framkvæmdir að nýju í Heiðmörk á næstu dögum. Frá þessu greinir Ríkisútvarpið.
Kópavogsbær kann að leita réttar síns í Heiðmerkurdeilunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kópavogur | Breytt s.d. kl. 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 26. febrúar 2007
Ég er frjálslyndur vinstrimaður.
Ég gerði eins og margir hér á blogginu að fara hér inn og taka þetta próf. Þannig að nú legg ég spilin á borðið og hér sést hvar ég raðast í stjórnmálaskoðunum mínum.
Ég er frjálslyndur vinstrimaður.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.1.): 7
- Sl. sólarhring: 23
- Sl. viku: 49
- Frá upphafi: 969564
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 48
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson