Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010
Fimmtudagur, 15. apríl 2010
Björgvin kemst í sögubækurnar!
- Hann vildi segja af sér í október 2008 en var talinn á að sitja fram í janúar 2009 þegar hann axlaði ábyrgð með því að segja af sér ráðherraembætti sem og að telja Jón Sigurðsson og Jónas Fr. á að segja af sér í FME.
- Hann sagði af sér þingflokksformannsembætti.
- Og nú víkur hann af þingi á meðan hans mál eru rannsökuð.
Í skýrslu Rannsóknarnefndar er mjög skýrt að honum var haldið utan við nær allar ákvarðanir og upplýsingar sem ríkisstjórn fékk fyrir og meðan hrunið varð. Og hann þvi í ömurlegri stöðu.
Bloggarar landsins hafa dæmt hann fyrir löngu fyrir mál sem síðan hefur komið í ljós að hann hafði ekkert um að segja. Alveg ömurlegt hvernig talað hefur verið um hann. En svo samt sem áður er hann eini maðurinn sem hefur virkilega axlað ábyrgð.
Held að menn ættu nú að skoða hvað menn láta frá sér á prenti áður en þeir ráðast svo að mönnum. Og verður gaman að sjá hvort að sömu menn snúa sér nú að Þorgerði Katrínu, Einari Guðfinns, Illuga sjóðstjórnarmanni í sjóð 9 og fleirum.
Björgvin víkur af þingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 13. apríl 2010
Hollráð til samfylkingarinnar og þjóðarinnar!
Hvernig væri nú að við létum atvinnumenn um fortíðina. Þeir virðast vera að ná tökum á þessu. Held að almenningur, stjórnmálaöfl og í raun þjóðin ætti að láta nú að láta:
- Sérstakan saksóknara
- Skattrannsóknar stjóra
- Efnahagsbrotadeild Lögreglunar
- Nefnd Alþingis um meðferð niðurstöðu Rannsóknarnefndar í skýrslunni góðu
um að vinna úr sekt eða sakleysi fólks.
Aðrir íslendingar ættu að beina kröftum sýnum í að vinna að uppbyggingu, nýjum lögum og reglum sem koma í veg fyrir svona hörmungar (eða draga úr líkum á því) komi fyrir aftur.
Alveg ótrúlegur kraftur sem fer hjá fólki í að finna einhverja sökudólga þó það bjargi ekki heimilum fólks í skuldum eða skaffi fólki hærri tekjur.
Hef aldrei lesið Æðruleysisbænina en held að fólk ætti dálitið að kynna sér hana. Því að hér er t.d. orðinn hópur manna sem hefur nærri atvinnu af því að mæta í fjölmiðla og draga allt sem gert er hér í skítinn og gera allt sem er gert tortryggilegt. Hér eru t.d. menn sem eru að halda því fram að allir þingmenn ættu að hætta sem hafa einhverja reynslu. En ég spyr í ljósi síðustu kosninga þar sem var skipt um helming Alþingismanna - Finnst fólki þingi hafa batnað við það? Hvernig væri að fólk færi nú frekar að hvetja fólk til dáða! Þrýsta á góða hluti að fagna því sem næst fram. Ekki vera alltaf að röfla yfir því sem þó er gert. Vitandi það að því verður ekki breytt. En endilega lesið eftirfarandi (Ég persónulega sleppi Guði úr þessu dæmi.:
(Guð) gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það,
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt
og vit til að greina þar á milli
Og svo bara að drífa sig í að fara af stað að byggja upp. Setjum ströng lög og reglur sem þó leyfa fyrirtækjum að dafna. Verum með strangt eftirlit og stofnanir til að sinna því. Setjum stjórnmálamönnum og flokkum skýran ramma um ábyrgð og leiðir til að láta þá sæta ábyrgð á störfum sínum. Förum yfir öll lög landsins og bætum þau. Förum yfir stjórnarskrá okkar og lögum hana eða setjum nýja. Komum upp kerfi svo að almenningur fái að taka þátt í ákvörðunum um öll meiriháttar mál.
Finnum almennilega lausn á skuldavanda heimila.
Stefnum að því að Ísland verði til fyrirmyndar.
Þetta getum við vel gert ef að fólk er ekki fast í fortíðinni og neitar að horfa fram á við eða trúa á leiðir og vill alltaf reyna einhverjar aðrar.
Við þurfum hugrakka Alþingismenn sem sem ekki láta þrýstihópa hafa áhrif á sig heldur taka saman höndum og vinna að þeim bestu lausnum sem þeir finna.
Treysti um of á fyrirliggjandi upplýsingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 12. apríl 2010
Davíð er dálítið eins og rauði þráðurinn í þessu öllu!
- Hann lagið niður þjóðhagstofnun
- Hann stóð ásamt öðrum sjálfstæðismönnum að fjársvelta allar eftirlitsstofnanir
- Hann og Halldór fóru fyrir einkavæðingunni og ákváðu hverjir mættu kaupa bankana
- Hann og Halldór sömdu um áframhaldandi stjórn 2003 með því skilyrði að 90% húsnæðislán og skattalækkunum. Sem var búið að var við að væru óráð í þenslunni. Sér í lagi þegar byrjað var að byggja Kárahnjúka og álverið á Reyðarfirði.
- Hann gerist síðan Seðlabankastjóri en hættir ekki að skipta sér af stjórnmálum. Hann lendir í rifrildi við Björgvin viðskiptaráðherra og hættir að upplýsa hann um þau mál sem snerta verksvið Björgvins sem og að koma með mögulegar lausnir.
- Hann sem seðlabankastjóri heldur áfram að lána bönkum sem hann þó var búinn að vara við að væru allt of skuldsettir.
- Hann rýkur í að taka yfir Glitnir án þess að kanna málið nægjanlega eða kanna afleiðingarnar.
- Hann fer í allskonar æfingar með vexti eftir hrunið sem hafði slæmar afleiðingar. Eins og "Fastgengis stefnuna" sem ekkert var á bakvið, vaxtalækkun í 12% sem þurft síðan að hætta við því það var engin grundvöllur fyrir því.
- Hann hringlaði með t.d. fréttir af Rússaláni og fleiru sem átti ekki við rök að styðjast.
Síðan eru lýsingar af hræðslu Gers Haarde og flein við viðbrögð og reiðikasta hans náttúrulega kafli út af fyrir sig. T.d. þegar hann hótar Tryggva Þór að honum verði ekki líft hér á landi ef hann ráðleggur Geir að hafna hugmyndum um kaup á Glitni. Og eins hræðslu Geirs við að segja Davíð að Samfylkingin samþykkti ekki Davíð sem yfirmann neyðarstjórnar.
Eins þá er ömurleg þessi hefði sem Davíð vann eftir og síðan Geir að ásamt þeim flokkum sem voru með þeim í stjórn að allar ákvarðanir voru teknar af þeim sem leiddu flokkana. Þ.e. Davíð og Halldór og síðar Geir og Ingibjörg. Þetta hlýtur að hafa orðið til þess að aðrir ráðherrar voru ekki upplýstir sem skildi og að stjórnin sem heild gat ekki brugðist við eins fljótt og ef um samheldna stjórn væri að ræða. Því flestir ráðherrar voru ekki almennilega inn í þessum alvarlegu málum
Valdarán Davíðs Oddssonar" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 12. apríl 2010
Sigmundur og furðulega ræða
Hann byrjaði einmitt á því að segja:
Sigmundur sagði hættu á því að ef þjóðin festist í innbyrðis deilum og skaðinn af því geti verið meiri en af hruninu sjálfu. Þá sé ákveðin hætta á að við sveiflumst úr einum öfgum yfir í aðrar
Síðan kom hann með kafla um að framsókn væri búin að fara yfir sín mál og axla ábyrgð og færa sig til vinstri. Síðan kom kafli sem ég náði illa. Jú það var fjármálakerfi heimsins sem brást en Íslendingar algjörlega saklausir nema þeir sem áttu bankana. Og síðan einhver kafli um að þjóðin beri enga ábyrgð á þessu. Kafli sem ég skil ekki! Hvernig má það vera að allar þjóðir lögðu mikla upphæðir í að halda bönkunum gangandi? Ef að það voru bara áhættufjárfestar sem orsökuðu hrunið og ættu því að bera skaðann. Svona miðað við að hann var að vara við innbyrðis deilum þá fannst mér þessi ræða ekki skýra hvernig ætti að fara að því
Margt þegar vitað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 11. apríl 2010
Nú hef ég ekki hundsvit á golfi ennnnn................!
Þar sem ég starfa höfum við útsýni yfir nokkrar brautir í Grafarholti. Nú er verið að segja að GR sé alveg búinn að spengja af sér núverandi aðstöðu. Það vekur furðu mína miðað við það sem við horfum á hér út um gluggann hjá okkur. Það er vissulega mikið að gera suma daga yfir sumartímann en oft er þetta bara einn maður á stangli heilu og hálfu dagana. Eins skemmtum við okkur konunglega yfir því að þarna virðast vera menn sem mest fá út úr því að keyra þarna um á golfbílum sínum. Oft mæta þeir á þessum bílum í flottum golffötum með flottar græjur en síðan er kunnátta þeirra ekki í nokkru samræmi við alla múnderinguna. Sumir eru hins vegar á röltinu með pokana sína og mættir kannski klukkan 7 á morgnana. En maður veltir fyrir sér tilgangi manna sem þurfa að keyra á eftir boltanum hvert sem þeir slá hann. Á kannski hálifrarmilljóna bíl? Spurnging hvort það að hoppa út og inn í gólfbíl 70 til 100x telst vera sport. Ekki mikil hreyfing í því.
Finnst að fólk sem hefur getu til að eina hundruðum eða milljónum í þetta gólfdót eigi þá bara líka að kosta að mestu til varðandi þessa gólfvelli. Sér í lagi nú þegar þarf peninga í margt annað þarfara.
Heitar umræður oddvitanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 9. apríl 2010
Kópavogur: Ekki ástæða til að örvænta út af svona könnun!
Meirihlutinn myndi halda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 9. apríl 2010
Æi greyin látið ekki eins og þetta komi ykkur á óvart!
Það er ekkert sem á að koma þarna á óvart!
- Hollendingar og Bretar eru á móti því að gengið verði frá endurskoðun á áætlun AGS og okkar. Þar sem að þau vita að það setur þrýsting á okkur að ganga frá Icesave.
- Norðurlönd og Eystrasaltsríkin eru á móti þessu vegna þess að ef ekki er gengið frá Icesave er réttaróvissa um alla banka sem eiga útibú í öðrum löndum
- Norðurlönd vilja ekki lána okkur fé sem vegna Icesave gætu verið í hættu á að verða ekki greitt til baka.
- Allar þjóðir Evrópu telja að okkur beri að greiða Icesave og því eru þau ekkert að auðvelda okkur lífið.
- Flestar þjóðir sem ætla að lán okkur eru með í lánsloforði sínu ákvæði um að áður þurfi að ganga frá Icesave.
Íslandslán ekki á dagskrá AGS | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 7. apríl 2010
Jú víst þetta er vondu útlendingunum að kenna!
Það er nokkuð ljóst eftir lestur á sumum blogganna við þessa frétt að þó nokkur hluti bloggara hér er enn á þeirri línu að:
- Það séu vondu útlendingarnir sem eru aðal gerendurnir í okkar ógæfu.
- Erlendu bankarnir sem lánuðu okkar bönkum allt of mikið
- Sem varð til þess að heimilin þurftu að taka há lán vegna þess að bankarnir sögðu þeim að gera það.
- Síðan vondu útlendingarnir sem eru að rukka okkur um innistæðutryggingar fyrir innistæðueigendur í Landsbankanum.
- Síðan vondu útlendingarnir í AGS sem ætla að matreiða Ísland fyrir útlenda glæpamenn
- ESB sem ætlar að stela hér allri orku og fiski og flytja það allt til útlanda. (sé fyrir mér Geysir um borð í flutningaskipi)
- Og vondu útlendingarnir á Norðurlöndum sem vilja að við fylgjum áætlunum ef þeir eiga að lána okkur
- Og vondu þjóðirnar í EES og Schengen.
Og harðir Sjálfstæðismenn hvetja meira að segja að við skiptum frekar við Kína og fleiri ríki sem þeir hingað til hafa hvatt til að við hefðum sem minnst samskipti við.
Og svo er rifist yfir því að hér sé allt strand þó að Samtök atvinnulífsins, orkufyrirtæki, samtök flestra launþega og í raun flestir segja að við fáum engin lán til framkvæmda á viðráðanlegum kjörum fyrr en Icesave er leyst. En ný það má ekki semja um Icesave við þessa vondu útlendinga. VIð eigum frekar að hverfa til lífsskilyrða sem við bjuggum við um miðja síðustu öld. Þá verða þessir besservissar loks kannski ánægðir. Við förum bara öll á sjóinn eða í sveitirnar og lifum á landsins gagni og nauðsynjum.
Ekki vondum útlendingum að kenna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 6. apríl 2010
Væri gaman að heyra núna lausnir Sigmundar/Indefence og Þjóðarheiðurs varðandi endurfjármögnun!
Landsvirkjun, OR, sveitarfélög og ríkið þurfa að endurfjármagna lánin sín á þessu og næstu 2 árum. Hundruð milljarða. Það væri gaman að sjá hvaða leiðir spekingarnir sem berjast á móti Icesave leggja til? Sem og að það yrði reiknað út hvað lækkað lánshæfismat kostar okkur aukalega? Sem og hvaðan við fáum gjaldeyrir til að borga afborganir. Manni skilst að lítið verði eftir af gjaldeyrisvaraforða næsta ár ef við fáum ekki ný lán.
Alþjóðlega greiningarfyrirtækið Moody's tilkynnti í morgun að það hefði breytt horfum fyrir lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins, Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur, úr stöðugum í neikvæðar, aðallega vegna óvissunnar um Icesve-málið.
En þeir segja að það sé ekkert að marka þessi lánshæfisfyrirtæki. Sorry af hverju halda menn að þau séu til? Það er vegna þess að til þeirra er horft áður enn menn lána t.d. þjóð eins og okkar.
Svo halda menn því fram að við séum að græða svo á að draga að ganga frá Icesave!
Engir Icesave-fundir ráðgerðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 3. apríl 2010
Og allir bullukollarnir búnir að blogga við þessa frétt!
Og allir á því að ekkert eigi að semja og manni sýnist að þeir telji jafnvel að Bretum og Hollendingum beri að borga okkur sumir. Þeir tala allir eins og við eigum að fara borga sjálf þjóðin hundruð eða þúsundir milljarða. En vita að eignir Landsbankans dekka mest af þessu. Nota svo einhverjar vafasamar lagatúlkanir sem eru slitnar úr samhengi. Í tilefni Páska þá nenni ég ekki að segja meira um Icesave nema að ég tal að þessi dráttur á frágangi þessa máls hafi kostað okkur hundruð milljarða til framtíðar og þó við náum betri samning núna þá sé tapið okkar bundið í að fleira fólk er og verður næstu ár atvinnulaust.
Hér er listinn eins og hann var þegar þetta var skrifað.
Bloggað um fréttina
- Benedikta EÆsseif málið verður í frosti hjá Bretum og
- Jón Valur JenssonUmboðslausi Bjarni Ben., "ásættanlegt" er það eitt
- Torfi Kristján StefánssonHvaða einhliða skilmálar?
- Loftur Altice ÞorsteinssonRæðum beitingu hryðjuverkalaganna við Breta
- Gunnar HeiðarssonGott ef satt er
- Haraldur HaraldssonFalla frá einhliða skilmálum/sennilega bara gildra
- Gunnlaugur I.Þeir munu þurfa að gefa enn meira eftir - Enginn
- Jóhann ElíassonLYMSKUBRAGÐ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
- Víðir BenediktssonBömmer
- Kristinn PéturssonForgangsatriði í Icesave málinu - er mat
- Axel Jóhann AxelssonEru fjárkúgararnir farnir að skammast sín?
Þvílíkir spekingar. Og það væri nú umhugsunarvert fyrir þessa spekinga af hverju allir sem raunverulega vinna að þessu máli og hafa kynnt sér það eru að reyna að semja fyrir okkar hönd. Sbr VG-Samfylking- Sjálfstæðisflokkur og hugsanlega Hreyfingin.?
Falla frá einhliða skilmálum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.4.2010 kl. 14:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (46)
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson