Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2011

Alveg er þetta makalaust lið

Hefið haldið að þetta væri svar eftir Jón Bjarnason en viti menn Ásmundur kominn í sama gírinn:

Í fréttum RÚV var einnig rætt við Ásmund Einar og Ögmund Jónasson, innanríkisráðherra. Aðspurður hvort hann hefði óskað eftir því að Árni Þór bæðist afsökunar sagði Ásmundur Einar: „Nú fer lyftan niður. Hún fór upp fyrr í dag." Spurður nánar út í þau orð svaraði þingmaðurinn: „Það þýðir að hún er búin að fara upp og fer núna niður."

Heldur Vg eða órólega deildin að þetta hjálpi eitthvað. Ætla rétt að vona að Steingrimur sé ekki að kaupa þau til liðs við ríkisstjórnina með einhverjum kúvendingum á stefnu stjórnarinnar.


mbl.is Þingflokksfundi VG lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Halda þessi rök vatni

Þau segja:

Stuttu eftir hrun hafi sérfræðingar spáð því að tala atvinnulausra gæti nálgast 25.000. Ef fjöldi atvinnulausra (12.300 einstaklingar), brottfluttra umfram aðflutta (8.000) og minni atvinnuþátta (4.000) sé tekinn saman, þá hafi sú spá ræst.

Nú fór ég inn á Hagstofu og þar má sjá að mörg ár eru brottfluttir fleiri en aðflutir. Þetta er fólk sem er að fara erlendis í nám. Þannig er t.d. 2009 meira en helmingur borttflutra erlendir verkamenn sem eru að fara heim í kjölfar minnkandi vinnu. Enda á ekkert land að vera háð erlendu verkafólki það þýðir yfirleitt ofþennslu.

 adfluttrvsbrottfluttir


Af þessari stöplariti má ráða að rúmlega helmingur þeirra sem flytja af landinu eru erlendir ríkisborgarar. Enda voru þeir fluttir hingið í miklu mæli til að vinna við byggingarframkæmdir sem nú hafa verið kláraðar eða stoppað. Auðvita er líka fólk sem er tímabundið að fara erlendis að vinna. En það hefur alltaf verið þannig.

Veit að Lilja er að horfa í að nota skatt á séreignarsparnað til að koma hingað inn með fjármagn en halda menn að ríkisframkvæmdir kæmu til með að draga úr samdrætti? Og hverju mun það hjálpa að halda t.d. uppi starfsemi sem verður hvort sem er að skerfa þá niður þegar þessi innspýting er búinn því að þá kemur að því að tekjur ríkisins af skatti á úttekin séreignarsparnað er engar því búið er að skattleggja hann. Á meðan þá halda þau uppi stanslausum áróðri gegn erlendri fjárfestingu og með Icesave óleyst og krónuna eins og hún er ekkert víst að við höfum aðgang að erlendur fjármagni í framkvæmdir eins og við viljum.

Síðan ræða þau um að tölur um atvinnuleysi upp á 25 þúsund standist. Þau gleyma því að hér á landi hafa alltaf um 2 til 4 þúsund manns verið á atvinnuleysisskrá. Og nú eru þau 13 þúsund sem þýðir raunhæft að skapa þarf um 9000 þúsund manns vinnu. Það verður ekki gert með því að auka umsvif ríkisins því við stöndum ekki undir því til lengdar.  Áður var ég búinn að sýna að mera helmingur brottfluttra eru erlendir ríkisborgarar og því eru þessi 8000 gróft yfir skot hjá þeim. Þannig að þetta vandamál er ekki næstum eins slæmt og þau láta.

Veit ekki hvaðan þau hafa upplýsingar um að 4000 manns hafi hætt atvinnuþátttöku. Ég bara trúi því ekki.

Og töldu þau þá besta ráðið að reyna að fella ríkisstjórnina til að koma í veg fyrir þetta?

Við vitum líka að ef að þetta fólk sýndi meiri samstöðu værum við komin lengra á leið í endurreisn. Það er ógurleg orka sem fer hjá stjórnvöldum í að reyna að halda þeim ánægðum.


mbl.is Bregðast við málflutningi Árna Þórs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hélt að Mogginn hefði enga trú á AGS og hans sérfræðingum.

Allavega er skrítið að Mogginn skuli vitna í hann varðandi Evrunna. A.m.k. margir sjálfsstæðismenn, hreyfingin og Lilja geta ekki tekið nokkuð mat á manni sem verið hefur "aðalhagfræðingur" AGS. En gamala krónan sá okkur fyrir því hann mælir með þ.e. gengisfallið sá um þessa hugmynd hans fyrir okkur:

 Á sama tíma myndu þessar þjóðir endurheimta samkeppnishæfni sína í útflutningi með stórfelldri launalækkun.“


mbl.is Rogoff: Evran líklegust til að falla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirgefið ég er ekki að skilja hverju Lilja er móðguð yfir

Skv þessar frétt segir Össur:

,,Í öllum góðum stóðum eru burðugar hryssur með strok í genum og sjálfstæðan vilja. Hún er öflugur þingmaður en ræður sínum næturstað. Það mun ekki hafa áhrif á stöðu ríkisstjórnarinnar, jafnvel þó folaldið fylgi," segir Össur. 

Og síðan svarar tjáir Lilja sig um þetta á facebooksíðu sinni og þar er ótal ummæli fólks sem ég held að hafi aldrei lesið það sem Össur sagði. En þau eru öll á því að fordæma Össur. Sé ekki hvað er að þessu. Þetta er eitthvað sem tíðkast hér á landi. Menn eru kallaðir

  • Forystusauðir
  • Síðasti geirfuglinn
  • Forystusauðir
  • Letibikkjur
  • Hópar er nefndir stóð

Bara svona nokkur orði sem mér dettur í hug. Og svo allir málshættir og setningar sem við notum án þess að hugsa. "Leiddir eins og fé til slátrunar"

Náttúrulega alltaf hægt að finna sér allt til að móðgast yfir.


mbl.is Segir Össur sýna VG fyrirlitningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband