Leita í fréttum mbl.is

Ríksistjórnin fallin og Samfylkingin orðin næst stærsti flokkur landsins skv. Mannlífskönnun

Var að lesa þessa frétt á www.visir.is . Hún er byggð á svörum um 3500 manna úrtaks og skv. henni eru Framsókn og Sjálfstæðismenn með 31 þingmann. En tæpt er það!

Vísir, 02. maí. 2007 20:35


Ríkisstjórnin rambar í Mannlífskönnun

Úrslit þingkosninganna í maí verða mjög tvísýn ef marka má nýja könnun Mannlífs sem birt er í nýjasta tölublaði tímaritsins sem kemur út á morgun. Könnunin nær til alls landsins og samkvæmt henni fengi Sjálfstæðisflokkur 36 prósent atkvæða og 24 þingmenn og Framsóknarflokkurinn fengi 10,2 prósent og sjö þingmenn. Frjálslyndi flokkurinn fær 5,8 prósent og nær inn fjórum jöfnunarþingmönnum. Samfylkingin 23,4 prósent og 16 þingmenn. Vinstri hreyfingin-grænt framboð mælist með 17,9 prósent eða 12 þingmenn. Íslandshreyfingin næði ekki inn manni fari úrslit kosninganna á sama veg. Gangi þessi úrslit eftir eru ríkisstjórnarflokkarnir samtals með 31 þingmann og stjórnarandstaðan með 32.

Könnunin var framkvæmd dagana 20.-23. apríl og svöruðu 3.505 kjósendur spurningunni um hvað þeir myndu kjósa. Í könnuninni er tekið tillit til kyns, aldurs og búsetu svarenda og þau atriði vigtuð til samræmis við upplýsingar Hagstofunnar um dreifingu íbúa um áramótin síðustu.

„Þó svo að enn ríki óvissa um úthlutun þingsæta er óvissan mest þegar kemur að úthlutun jöfnunarsæta," segir í tilkynningu frá Mannlífi en í könnuninni er jöfnunarþingmönnum úthlutað. Ennfremur er bent á að örlítil fylgissveifla í einu kjördæmi geti breytt miklu um hvaða frambjóðendur fari inn á þing. Þannig þurfi ákaflega lítið að breytast til þess að jöfnunarsæti fari á milli flokka og kjördæma og að örlítil sveifla í einu kjördæmi geti breytt heildarmyndinni. „Þannig munar ákaflega litlu að Sjálfstæðisflokkur fái síðasta jöfnunarsætið á kostnað Frjálslyndra og þar með að stjórnin haldi velli. En ríkisstjórnin rambar og segja má að úrslit kosninganna ráðist af úthlutun jöfnunarsætanna."


Grímseyjarferju klúður.

Mér finnst þetta fyrir neðan allar hellur. Þarna er Sturla að tala um einu samgönguleið Grímseyinga. Það er keypt einhver aflögð ferja frá Írlandi á 100 milljónir (c.a. 15 ráðherrabílar) síðan þarf að breyta henni fyrir a.m.k. 250 milljónir sem síðan Kristján Muller bendir á að líklegt sé að komi til með að verða meira þar sem að ekki er reyknað með kælingu til að flytja fisk, ekki er gert ráð fyrir aðgengi fyrir fatlaða, ekki gert ráð fyrir útvarpi eða sjónvarpi og ýmislegt annað. Síðan ef við gerum ráð fyrir að líftími þessara ferja sé kannski um 20+ ár þá á hún kannski 10 til 15 ár eftir. Síðan eru Grímseyingar bara látnir bíða svona c.a. ári lengur vegna þess að vegagerðin kann ekki að gera almennilega samninga eða áætla verk og stendur nú í stríði við verktakana sem eru að breyta skipinu. Það er allveg spurning ef horft er til þess að allir landshlutar eru nú að fá göng og vegabætur hvort ekki hefði verið eðlilegt að Grímseyingar hefðu ekki átt að fá betra skip og það fyrr.

Frétt af mbl.is

  Ómálefnaleg gagnrýni lituð af kosningabaráttu
Innlent | Morgunblaðið | 2.5.2007 | 5:30
„Þessi gagnrýni Kristjáns er lituð af því að hann er í kosningabaráttu. Hún er mjög ómálefnaleg og hann setur fram fullyrðingar sem standast ekki," sagði Sturla Böðvarsson samgönguráðherra í samtali við Morgunblaðið, aðspurður vegna gagnrýni Kristjáns Möller, alþingismanns Samfylkingarinnar, vegna nýrrar Grímseyjarferju í Morgunblaðinu.

 


mbl.is Ómálefnaleg gagnrýni lituð af kosningabaráttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðeins áfram með samsæriskenningar varðandi Landsvirkjun

Var að lesa póst sem Ögmundur Jónsson birtir á heimasíðu sinn frá lesanda. Þar er fjallað um þá bræður Árna og Pál Magnússyni og þær stöður sem þeir eru komnir í. Og í framhaldi á sölu á hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja til Geysir Green Energy sem er...

Árni Matt. reiðist auðveldlega.

Vakti athygli mína í umræðuþætti um skattamál í Kastljósi áðan þegar að Árni Matt. misti kúlið og notaði dýmætan tíma til að ráðast að þáttastjórnanda, sem og að finna að kjósendum sem voru þarna í sal. Þetta er ekki atkvæðavæn hegðun en maður veit ekki...

Kjartan Gunnarsson næsti forstjóri Landsvirkjunar og sala undirbúin?

Skv. ræðu SKúla Thoroddsen formanns Starfsgreinasambandsins stendur til ef núverandi flokkar halda völdum að selja Landsvirkjun og að búið væri að ákveða að Kjartan Gunnarsson fyrrverandi framkæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins verið forstjóri. Skúli segist...

Ég á ekki til orð - Valgerður ætti að skammast sín

Ég ætlað bar að vitna í www.jonas.is hann segir allt sem ég vill segja um þetta mál. EN hann segir: 01.05.2007 Maður gæti ælt Eftir að hafa ofsótt sjálfstæða mannréttindastofu árum saman, segjast stjórnvöld vilja efla mannréttindi. Valgerður...

Framkoma sjálfstæðismann gagnvart forseta Íslands er fyrir neðan allar hellur

Var að lesa þessa klausu á blogginu hennar Ástu Muller. Hún er þarna að halda áfram umræðunni um Reykjavíkurbréf Moggans. Hitt atriðið í Reykjavíkurbréfinu varðar hugsanlega virka íhlutun forseta Íslands í stjórnarmyndun, sem er áhyggjuefni og ógnun við...

Furðuleg árátta olíufélaganna að reyna að kæfa samkeppni

Afhverju eru olíufélöginn gömlu ekki búin að læra að það er ekki samkeppni að lækka bara verð til ákveðins hluta viðskiptavina og það bara á svæðum sem annað félag en 3 veldið er að reyna að koma sér inn á markað. Þetta gerir það að verkum að...

« Fyrri síða

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2007
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband