Leita í fréttum mbl.is

Ágætu atvinnurekendur!

Það er ekkert mál! Við bara setjum val milli fyrningarleiðar og samningaleiðar í þjóðaratkvæði. Og þá verður vilji þjóðarinnar ljós. Alveg makalaust að stilla kjarasamningaviðræðum upp á þann hátt að eignarhald manna á kvóta sé skilyrði. Það væri kannski rétt að láta ykkur ágætu menn finna fyrir því hvernig verði að reka þessar útgerðir ef allt logar í verkföllum. Það er krafa þjóðarinnar að í stað þess að menn séu að maka krókinn á framsali og leigu þá fái þjóðin til framtíðar sambærilegt auðlindargjald af fiskiauðlindinni. Mér heyrist að menn séu að leigja þennan kvóta á 100 til 150 krónur á kílóið. Og þann pening vill ég fá í auðlindarsjóð.

Enn aðallega er þetta út í hött að kjarasamningar milli einkafyrirtækja og starfsmanna skuli vera sett í þetta samhengi að þvinga stjórnvöld til einhvers.

En ég mæli með því að þessum þvingunum verði mætt með fullri hörku.  Nokkur hundruð manna fá ekki að nota kjarasamingsviðræður til að maka krókin. Þeir verða bara að sætta sig við að við ætlum að taka kvótan til baka. Og til að nota hann verða þeir að borga. Sem og að þetta á að gera á 20 árum þannig að menn hafa nóg tækifæri á að aðlaga sig þessu fyrirkomulagi.


mbl.is Forsætisráðherra haldi ró sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki boðlegur þingmaður

Hef sagt það áður og segi það aftur að Vigdís er ekki boðlegur þingmaður. Á eftir að gera mér það til dundurs að telja hversu oft hún talar t.d. um landráð á þingi og fleira misgáfulegt. Eins og þegar hún kendi starfsmönnum Alþingis um að hún gerði mistök i tillögu um þjóðarakvæði um að hætta við ESB aðildarviðræður. Þá var mistökin öll starfsmönnum alþingis að kenna.
mbl.is Sakaði tölvudeild þingsins um yfirhylmingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétt að benda mönnum á álit Eiríks Tómassonar.

Hann segir í frétt á ruv.i s: „Það má deila um þessa niðurstöðu. Hvort þessir annmarkar sem vissulega voru fyrir hendi - og voru meiri en ég hafði gert mér í hugarlund - hafi átt að leiða til þessarar niðurstöðu, vegna þess að í lögunum um...

Ég googlaði Þorstein og viti menn

Hann var á óskalista Sjálfstæðismanna sem þeir sendu á alla félagsmenn: Brynjólfur S. Ívarsson Elías Bl. Guðjónsson Elías Teodórsson Frosti Sigurjónsson Garðar Ingvarsson Gísli Kristjánsson Grímur Sigurðsson Guðbrandur Ólafsson Guðmar R. Stefánsson...

Heyr, heyr Jóhanna!

Það kemur ekki til greina að hætta við stjórnlagþing. Það má auðveldlega kjósa aftur, skipa þessi 25 í stjórarskrárnefnd en Sjálfstæðisflokknum skal ekki takast að koma í veg fyrir að auðlindir og yfirráðaréttur þeirra verið sett í stjórnarskrá....

En Þráinn hefur bara rétt fyrir sér!

Hef um nokkur ár fylgst nokkuð vel með útsendingum frá Alþingi. Nokkuð ljóst að þessi liður "Störf þingsins" er gjörsamlega misnotað af sumum þingmönnum. Þeir koma þarna upp í tíma og ótíma vitnandi í blogg og facebook en hafa ekki neitt til málana að...

Skyldi þetta fyrst á einn veg svo annann

Þegar ég las pistil Páls Vilhjálmsson rann upp fyrir mér ljós og fattaði að Karólína er örugglega að höfða til órólegudeildarinnar að segja sig úr Vg. En Páll Vilhjálmsson segir: Karólína Einarsdóttir hefur um árabil starfað í Heimssýn. hreyfingu...

Eru þau ekki nokkuð skýr?

Í meirihlutaáliti utanríkisnefndar frá því í júní 2009 varðandi samþykkt umsóknar um aðild að ESB segir í 7. gr. i. Orku- og auðlindamál. Vatns- og orkuauðlindir: Nefndin skoðaði ítarlega þau álitaefni er lúta að vatns- og orkuauðlindum, enda er þar um...

Alveg er þetta makalaust lið

Hefið haldið að þetta væri svar eftir Jón Bjarnason en viti menn Ásmundur kominn í sama gírinn: Í fréttum RÚV var einnig rætt við Ásmund Einar og Ögmund Jónasson, innanríkisráðherra. Aðspurður hvort hann hefði óskað eftir því að Árni Þór bæðist afsökunar...

Halda þessi rök vatni

Þau segja: Stuttu eftir hrun hafi sérfræðingar spáð því að tala atvinnulausra gæti nálgast 25.000. Ef fjöldi atvinnulausra (12.300 einstaklingar), brottfluttra umfram aðflutta (8.000) og minni atvinnuþátta (4.000) sé tekinn saman, þá hafi sú spá ræst. Nú...

Hélt að Mogginn hefði enga trú á AGS og hans sérfræðingum.

Allavega er skrítið að Mogginn skuli vitna í hann varðandi Evrunna. A.m.k. margir sjálfsstæðismenn, hreyfingin og Lilja geta ekki tekið nokkuð mat á manni sem verið hefur "aðalhagfræðingur" AGS. En gamala krónan sá okkur fyrir því hann mælir með þ.e....

Fyrirgefið ég er ekki að skilja hverju Lilja er móðguð yfir

Skv þessar frétt segir Össur: ,,Í öllum góðum stóðum eru burðugar hryssur með strok í genum og sjálfstæðan vilja. Hún er öflugur þingmaður en ræður sínum næturstað. Það mun ekki hafa áhrif á stöðu ríkisstjórnarinnar, jafnvel þó folaldið fylgi," segir...

Gleðileg áramót og árið framundan. Takk fyrir það sem er að líða

Nenni ekki að skrifa hér neitt fyrr en á nýju ári. Mér er orðið tregt um mál maðkaður heilinn eins og kál ekkert að segja best að þegja Það saknar mín ekki nokkur sál

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband