Leita í fréttum mbl.is

Sé að aðrir bloggarar fagna því að engar niðurstöður náðust

Ég verð bara að spyrja mig hvað er að þessu fólki:

  • Vilja þau að þessi deila standi endalaust?
  • Vilja þau að þessi deila okkar við Breta og Hollendinga vaxi og við verðum beitt auknum þrýstingi?
  • Hvað halda þessir spekingar að græðist á þessu?
  • Halda þeir virkilega að Bretar og Hollendingar gefi okkur þessar upphæðir sem þeir greiddu út eftir loforð frá okkur?
  • Vilja menn áfram hér hátt skuldatryggingarálag, engar fjárfestingar og því áfram aukið atvinnuleysi?
  • Vita þessir menn að langtímakostnaður af hverjum mánuði sem líður er metinn sem tugir milljarðar í tapaðar tekjur fyrir okkur.  Jafnvel allt að 75 milljarðar vegna seinkaðs hagvaxtar?

Verð að segja að ég undrast að Íslendingar séu svo skini skorpnir að halda að þessi atkvæðagreiðsla sem í raun engin veit hvað er um eigi eftir að skipta einhverju máli nema að koma okkur í frekari vandræði. Við erum jú ekki að hafna því að borga, heldur erum við að synja þessum lögum samþykktar en þá taka gildi lög sem samþykkt voru í Ágúst skv. Indefence og Forsetanum sem og þingmönnum og engin veit hvað þau þýða lengur.

Því er ég undrandi á þessum bloggfærslum. Þarna fara aðilar sem eru búnir að láta ljúga sig fulla um að við komumst hjá því að borga.

Capture

 


mbl.is Fundi lokið án niðurstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Held að við þurfum að passa okkur

Ég er á því að Alþingi ætti nú að koma sér saman um þær leikreglur sem við viljum hafa í atvinnulífinu og viðskiptum hér á landi. Reglunar séu nokkuð nákvæmar og harðar. Taki til þess siðferðis og gegnsæis sem fólk vill hafa. Síðan sé öllum þeim sem vilja starfa inna þessara reglna það leyfilegt. Ekki á að banna einum eða neinum að koma inn í þetta umhverfi óháð fortíð þeirra. Ef þeir verða síðan sakaðir og dæmdir fyrir eitthvað sem þeir nú þegar hafa gert saknæmt sé það í lögum að þeir megi ekki stunda atvinnurekstur eða eiga ráðandi hluti í neinum fyrirtækjum.

En þangað til setjum lög og reglur sem stuðla að því atvinnu- og viðskiptaumhverfi sem við viljum en ekki má handvelja hverjir koma að því heldur nýta alla þá peninga sem völ er á til að koma því á stað. Við eigum að setja hörð viðurlög við brotum og stuðla að góðu eftirlit. Þá smátt og smátt kemst hér skriður á málin.

Heyrði Tryggva Þór tala á þingi áðan þó ég sé ekki alltaf sammála honum þá mynntist hann einmitt á að ef að menn hefðu tapað peningum og fyrirtækjum þá væru raddir  um að þeir mættu ekki taka þátt meira. En líka þeir sem græddu mega skv. sama fólki ekki taka hér þátt meir. Þar með eru fullt af peningum sem nýtast ekki til að byggja hér upp.

 Bendi líka á ágætan pistil Margrétar Kristmannsdóttur:

Fréttablaðið, 25. feb. 2010 06:00

Doði og aðgerðarleysi

Margrét Kristmannsdóttir skrifar

Mikið óskaplega er íslenskt samfélag að verða leiðinlegt! Reiðin, pirringurinn, doðinn og meðvirknin tröllríður öllu og jákvæð umræða og fréttir komast vart að. Þeir Íslendingar sem nú ferðast að nýju til útlanda segja margir að það sé ekki eingöngu til að komast í betra loftslag heldur ekki síður til að komast burt frá landinu - komast burt frá neikvæðninni og andleysinu sem liggur eins og mara á þjóðinni.

Því er hins vegar ekki að leyna að margir eiga um sárt að binda eftir hrunið og samfélagið verður að tryggja að þeir sem eru fórnarlömb hrunsins fái þá aðstoð sem þeim ber. Hluti af reiðinni snýst einmitt um það hversu seint og erfiðlega gengur að tryggja bæði heimilum og fyrirtækjum, sem eru sannarlega fórnarlömb aðstæðna, viðunandi úrræði. Hins vegar réttlætir hrunið ekki þá deyfð sem hvarvetna er sjáanleg í samfélaginu.

Það er meira og minna allt í frosti og þeir sem geta og eiga að vera leiðandi í að rífa þjóðina áfram hafa orðið meðvirkninni að bráð. Þeir haga sér sjálfir eins og þeir séu fórnarlömb hrunsins í stað þess að drífa aðra með sér og koma samfélaginu í gang á ný.

Það er hlutverk stjórnvalda að semja um Icesave. Það er hlutverk stjórnvalda að koma virkjunaráformum í gang þannig að stóriðjuframkvæmdir og fleiri orkufrekar framkvæmdir verði mögulegar. Það er hlutverk stjórnvalda að tryggja að friður ríki í kringum einstakar atvinnugreinar en á meðan hver vikan af annarri líður án þess að hvorki fáist niðurstaða í þessi mál né önnur má þjóðin ekki láta pólitíkina draga sig niður í andlegt þunglyndi.

Sem betur fer er til fullt af fólki sem á peninga í þessu landi og einnig fullt af fyrirtækjum sem eru svo til ósködduð eftir hrun. Þetta eru þeir aðilar sem verða að draga vagninn á meðan aðrir eru laskaðir eða ófærir um að leysa úr sínum verkefnum. Helsta vandamál okkar Íslendinga um þessar mundir er einmitt hugarfarið. Þeir sem geta framkvæmt sitja með hendur í skauti og á meðan er nær ógerlegt að koma hjólum atvinnulífsins af stað að nýju.

Það eru ótrúlega margir sem gætu verið að framkvæma og gera alla þessa litlu hluti sem skipta nú sköpum. Margar litlar gárur geta orðið að stórum bylgjum ef við komum þeim af stað því margfeldisáhrifin eru fljót að segja til sín. Ef þeir sem eru aflögufærir myndu átta sig á hlutverki sínu í núverandi stöðu - að það er þeirra að draga vagninn á meðan pólitíkin þráttar í kyrrstöðu - þá þyrftum við ekki að grafa okkur sífellt dýpra í kreppuna.
Að lokum leysir pólitíkin úr sínum verkefnum með einhverjum hætti, en þjóðin má ekki sitja aðgerðarlaus á meðan enda er það misskilningur að pólitíkin spili stærsta hlutverkið í núverandi stöðu. Þjóðin verður sjálf að taka ákveðið frumkvæði í sínar hendur og halda hjólum atvinnulífsins gangandi eftir fremsta megni því hún hefur mest um það að segja hvernig okkur reiðir af. Hér skiptir hugarfarið öllu og það er ekki að ástæðulausu að sagt er að hugurinn beri mann hálfa leið!


mbl.is Margt gott gert innan bankanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bíddu eru þeir ekki farnir að hljóma eins og ríkisvald!

Ef að fólk les þessa frétt eins og ég þá hljómar hún eins og þar fari opinberir fulltrúar Íslands. Væri kannski rétt að minna að þetta er hópur 10 til 20 manna sem hafa sína sýn á málið en tala ekki í umboði þjóðarinnar. Enda hafa þeir ekki verið til...

Það er ástæða til að fagna núna!

Ólafur Arnarson sem ég er ekki oft sammála segir þetta ágætlega á www.pressan.is í grein með yfirskriftinni "Til hamingju Ísland" Sá málaflokkur, sem mestu máli skiptir okkur, fyrir utan gjaldmiðilssamstarf, er sjávarútvegurinn. Niðurstaða...

En þjóðaratkvæðagreiðslan er ekkert um þetta!

Finnst dálítið merkilegt að þessir kláru menn erlendis sem skrifa um málefni okkar og Icesave fara stundum frjálslega með. John Kay heldur því fram að þjóðaratkvæðagreiðslan sé um að hafna kröfunni um að almenningur beri ábyrgð á mistökum banka og...

Skrautlegur sjálfstæðisflokkur!

Nú er Gunnars armur Sjálfstæðisflokkins í Kópavogi genginn í Framsókn til að hefna sín væntanlega á einhverjum þar. Sömu aðilar sem hafa verið að saka aðra um það sama. Sbr. frétt á www.vísir.is „Það var greinilega mikið um nýskráningar hjá okkur....

Þetta er alveg stórkostulegur málflutningur hjá Sigmundi!

Ræðst að embættismönnum sem eru að flytja mál okkar við erlend ríki. Þessi sömu menn sem hafa komið í ítrekað í ræðustól Alþingis og boðað greiðslufall og þjóðargjaldþrot. Ráðast nú að mönnum sem í störfum sínum eru að reyna með öllu ráðum að fá stuðnig....

Þetta er nú meira ruglið!

Held stundum að fólk erlendis í samskiptum við okkur hljóti að halda að við höfum orðið fyrir andlegum skaða við hrunið. Ef fólk les þingræður varðandi Icesave í sumar og haust voru athugasemdir fólk við Icesave aðallega eftirfarandi: Vextir: Þeir þóttu...

Og við bíðum og bíðum og bíðum og bíðum og bíðum!

Og við bíðum og bíðum, og ekkert verður hér að verki á meðan. Og við bíðum og bíðum og öll endurreisn bíður á meðan! Og við bíðum og biðum og töpum milljörðum í tugum til framtíðar litið Og við bíðum og bíðum og frestum um leið öllum verulegum...

Bíddu eru þeir búnir að sjá tilboðið?

Ætla bara rétt að vona að Indefence sé ekki búnir að sjá þetta tilboð Breta og Hollendinga. Þeir hafa ekki neinn rétt umfram aðra að sjá tilboðið. Og á meðan því er haldið leyndu fyrir okkur hafa þeir ekkert með að sjá það. Og ég gef ekkert fyrir rök...

Tek undir með Merði Árnasyni: Birtið tilboðið

Það er ekki hægt að leyfa mönnum eins og Sigmundi að fabúlera með þetta mál eins og þetta sé hans einkamál. Hann er búin að vera nú síðustu daga og sér í lagi í dag búinn að vera að með allskonar yfirlýsingar sem fara þvert á það sem aðrir sem að þessu...

Jæja tími breytinga hafinn hér í Kópavogi!

Ef að fólk horfir raunhæft á hlutina þá hljóta allir að sjá að þetta er fyrir bestu. Tími stjórnmálamanna sem stjórna eins og einræðisherrar og líta á bæjarfélag sem sitt einkafyrirtæki er liðin. Þetta er mynd sem maður fékk af stjórnunarstíl Gunnars...

Sigmundur tilbúinn að leggja þjóðina undir í eitt ár í viðbót.

Ég er bara ekki sáttur við að þessi maður komi að samningamálum okkar. Burt með þennan mann! Hann er þjóðinni hættulegur! Maður sem lætur hafa eftirfarandi eftir sér. „Ætli þetta þýði ekki að við séum að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu og svo verði...

Ef að þeir eru að bjóða að vaxtalaust tímabil eða lækkun vaxta, þá tökum við þessu!

Ef eins ég las einhversstaðar í gær að um væri að ræða vaxta lækkun , vaxtalaust tímabil, eða breytilega vexti þá tökum við þessu og hættum þessari vitleysu. Ef að eignarsafn Landsbankans dugar upp í 90% af Icesave láninu þá erum við að tala um að 2015...

Gátum sagt okkur þetta!

Skv. fréttum eru þeir að bjóða breytilega vexti og sömu kjör og var samið um í október. Vissi það að meiriháttar breytingar væri mikil bjartsýni. Held að það sé að koma í ljós að Bjarni, Sigmundur og Birgitta hafa ekkert vit á samningum milli ríkja og...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband